Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1992, Blaðsíða 26
26
LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1992.
Linda Pétursdóttir vinsæl fyrirsæta í London:
„Þaö hefur margt veriö aö gerast
hjá mér á undanfomu ári. Ég starf-
aöi um tíma sem fyrirsæta í Tokyo
og kunni mjög vel viö mig þar. Síðan
fór ég til Mílanó og loks til London
þar sem ég hef verið nánast frá ára-
mótum,“ segir Linda Pétursdóttir,
ungfrú heimur árið 1988, en nú eftir-
sótt fyrirsæta í Englandi.
LífLindu hefur breyst mikiö á örfá-
um áram eða frá því hún var saklaus
heimasæta austur á Vopnafirði fyrir
fjórum árum. Linda fór þá fyrir til-
viljun í fegurðarsamkeppni íslands
en á hana hafði veriö bent. Hún er
fyrsta stúlkan sem sigrar í þeirri
keppni frá þeim landshluta.
Þetta var í maí árið 1988 og Lindu
fannst líf sitt hafa breyst á einum
degi á þeim tíma. Hún ætlaði sér að
vera í hótelvinnu í heimabyggðinni
um sumarið en titillinn breytti því.
Um haustið 1988 urðu enn meiri
breytingar í lífi Lindu er hún sigraði
í Miss World-keppninni. í heilt ár
ferðaðist hún um allan heim, auk
þess sem hún sá um margvisleg land-
kynningarstörf fyrir íslendinga. Það
starf hélt áfram í eitt og hálft ár eftir
að Linda hafði skilað titlinum frá sér
í Hong Kong árið 1989.
Undirbýr
fyrirsætunámskeið
Núna býr Linda Pétursdóttir í Lon-
don á heimili Morley-hjónanna sem
reka Miss World-keppnina. Þau buðu
henni að búa hjá sér þegar þau fréttu
af henni í Lundúnum.
Undanfarið hefur Linda verið tals-
vert á ferðinni milh íslands og Eng-
lands enda er hún að setja upp fyrir-
sætunámskeið á Holiday Inn-hótel-
inu fyrir breskan tískuskóla. „Ég er
að skipuléggja námskeið á vegum
The Fashion Bureau í London sem
er ætlað öllum sem hafa hug á að
leggja fyrirsætustörf fyrir sig, jafnt
stelpur sem stráka. Þátttakendur fá
leiðbeiningar um fyrirsætustörf,
jafnt betri sem verri hliðina. Einnig
verða þeir farðaðir og ljósmyndaðir.
Þeir sem koma vel út eiga möguleika
á að verða ráðnir til starfa á umboðs-
skrifstofu EUte/Premier í London.
„Þetta námskeið tekur allan minn
tíma núna. Mér finnst gott að geta
tekið mér frí frá fyrirsætustörfunum
og komið hingað heim þó að veðrið
sé ekki ákjósanlegt,“ segir Linda.
Kunni ekki
við Mílanó
Eins og margar ungar stúlkur
reyndi Linda fyrir sér sem ljós-
myndafyrirsæta í Mílanó. Þar eru
bestu ljósmyndaramir og staðurinn
því eftirsóttur. Lindu gekk vel og
hafði nóg að gera. Hins vegar kunni
hún ekki viö sig á staðnum. „Mér
fannst Mílanó drullug og leiðinleg
borg. Það var ekki hægt að ganga um
götur fyrir hundaskít. Ég bjó í pínu-
lítilli íbúð ásamt þremur öðrum
stúlkum og allur aðbúnaður. var
hörmulegur," segir hún. „Það varð
til að ég ákvað að fara til London og
ég dró aðra stúlku með mér.“
Linda segist ekki hafa haft nokkurt
sjálfstraust til að ganga inn á um-
boðsskrifstofuna Elite Premier í Lon-
don. Vinir hennar, sem hún kynntist
,a péWtS° Vj\eða'
„*,<
sdötf'f"
eftir að ég var valin Miss World en
margt hefur breyst. Núna þekki ég
borgina miklu betur og umgengst
frekar jafnaldra mína. Á Miss
World-tímabilinu var ég yfirleitt í
hópi eldra fólks. Þá var ég miklu
bundnari og mátti ekki fara það sem
ég vildi. Núna er ég fijáls."
Ekki sakar að Linda á kærasta ytra
og segist vera ástfangin upp fyrir
haus. Hann starfar einnig sem fyrir-
sæta og þau kynntust í Tokyo. Hann
hefur komið hingað til lands einu
sinni og Linda á von á honum aftur
á næstu dögum.
Vinnurfyrir
MissWorld
Auk fyrirsætustarfanna hefur
Iinda einnig unnið talsvert með
þeim Juliu og Eric Morley. Hún fór
nýlega með þeim til New York ásamt
Miss World þessa árs sem er frá Ven-
esúela. „Þau voru að kynna keppn-
ina í Bandaríkjunum með góðgerðar-
Á kærasta í London
„Ég kann ofsalega vel við mig í
London og hef hug á að vera þar
áfram. Reyndar þoldi ég ekki London
samkomu. Ég þurfti nánast ekkert
að gera annað en að borða góðan
mat og hafa það gott,“ útskýrir hún.
„Næsta Miss World-keppni verður
í Suður-Afríku og áætlað var að ég
færi með þeim þangað núna í júní
en því var frestað.“
Linda segir að það hafi ekki komið
annað til greina hjá Morley-hjónun-
um, þegar þau fréttu af henni í Lon-
don, en að hún byggi hjá þeim. „Þau
eiga risahús í London svo að það er
nóg pláss hjá þeim. Það liggur viö
að maður verði einmana í þessu stóra
húsi,“ segir hún.
„Mér fmnst alltaf mjög gott að
koma heim en hka að komast burt,“
útskýrir hún. „Sjálf hef ég breyst og
Linda og Ninibeth, Miss World þessa árs, ðsamt Eric Morley i New York á
dögunum.
fyrst í Tokyo, sáu um þann hlutann.
•Ekki var að sökum að spyrja, hún
var ráðin samstundis og hefur haft
nóg að gera.
Síðasta verk Lindu var að gera
stóran tískuþátt fyrir sjónvarpsstöð-
ina MTV. „Þetta voru fot fyrir til
dæmis Vivian Westwood sem er einn
vinsælasti hönnuður Breta um þess-
ar mundir. Skómir hjá henni voru
með mjög háum klumpbotnum eins
og voru í tísku um 1970 nema hvað
þeir voru heldur hærri,“ segir Linda
og brosir.
Hún hefur einnig verið aö vinna í
hárgreiðslusýniiigum og við hin
ýmsu bresku tímarit. Linda þykir
ekki hafa útlit fyrir vörulista sem
margar íslenskar stúlkur hafa fengið
vinnu við og þess vegna hefur hún
ekki unnið í slíkum verkefnum.
T
LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1992.
39
þroskast á undanfömum árum. Þaö
kemur fyrir einstöku sinnum að ég
sakna aúra þeirra ferðalaga sem ég
fór í sem Miss World. “
Linda hefur minnisstætt andlit og
margir muna enn eftir henni sem
Miss World. Það sannaðist í vikunni
þegar hún kom inn á hótel í London
en þá gekk einn starfsmaður að
henni og spurði hvort hún hefði ekki
verið Miss World árið 1988. „Ég var
alveg hissa,“ segir Linda. Hún hefur
verið fengin sem dómari í fegurðar-
samkeppni í Bretlandi og vekur at-
hygh hvar sem hún kemur, blaöaúr-
klippur sýna það.
Ætlar í fjölmiðlanám
Þó að Linda hafi haft nóg að gera
undanfama mánuði sem fyrirsæta
er það ekki framtíðarstarfið. Hún
hefur alltaf haft áhuga á að mennta
sig í fjölmiðlun og ætlar að láta verða
af þvi í haust. „Það er verið að kanna
fyrir mig skóla og ég býst ekki við
aö það sé of seint að innrita sig. jíf
svo reynist fresta ég náminu til ára-
móta,“ segir hún. „Það er ágætt að
starfa sem fyrirsæta meðfram skól-
anum,“ segir Linda.
„Mig langar mjög mikiö að vinna
við sjónvarp og ætla að læra eitthvað
í sambandi við það. Ég er 22 ára og
verð ekki fyrirsæta í mörg ár enn.
Það er því kominn tími til að gera
eitthvað," segir hún. „Mig langar líka
að fara að takast á við hluti," bætir
hún við.
Foreldrar Lindu eru fluttir til höf-
uðborgarinnar og hún býr hjá þeim
í Breiðholtinu núna. Linda er nýbúin
að selja íbúð sem hún átti í Smá-
íbúðahverfinu enda taldi hún sig
ekki hafa þörf fyrir hana lengur. „Ég
ætla frekar að ávaxta peningana á
annan hátt,“ segir hún. Bróðir Lindu
er í sambúð á Nýja-Sjálandi þannig
að miklar breytingar hafa orðið hjá
fjölskyldunni.
Tískuborgin
í uppsveiílu
Tískuheimurinn í London hefur
tekið miklum stakkaskiptum á und-
anfómum ámm og þar hafa komið
upp heimsfrægir hönnuðir eins og
Katherina Hamnett og Vivian
Westwood. „Lífið í London er líka
mjög skemmtilegt núna,“ segir
Linda. „Mér fimist sérlega gaman að
sitja á kaffihúsum úti á götu og fylgj-
ast með mannlífinu. Ég elska ind-
verskan mat og fer oft á veitingahús
á kvöldin enda ódýrt að borða á þess-
um stöðum. Fólk situr frekar á mat-
sölustöðum en að fara á diskótek."
Linda segist ekki vita til að fleiri
íslenskar fyrirsætur séu starfandi í
London um þessar mundir. „Þær
koma og fara,“ segir hún. Fyrirsætu-
störf voru aUtaf á hsta Lindu yfir það
sem hana langaði til að prófa. „Það
var samt aldrei ætlunin að vera í
þessu í fullu starfi í lengri tíma. Kost-
urinn við starfið er að maður kynn-
ist mörgu skemmtilegu fólki. Þó
eignast maður enga nána vini og því
er starfið oft einmanalegt. Sam-
keppnin er hins vegar hörð og í henni
nenni ég ekki að standa. Ég er ekki
sú manngerð sem potar sér áfram.
Maður er í raun að sækja um vinnu
á hveijum degi og sumar stelpur
nota alla töfra til að fá starfið. Þeir
verða bara að vega mig og meta eins
og ég er,“ segir Linda.
Starfmu fylgir heilbrigt líferni og
fyrirsætur þurfa stöðugt að hugsa
um útiitið. „Það hjálpar mér mikið
hvað ég geng mikið," útskýrir Linda.
„Maður labbar um aUa borgina og
er því í góðri þjálfun."
Magnaðar kjaftasögur
Frægðinni fylgir ókostur sem
Linda hefur ekki farið varhluta af.
Það em kjaftasögumar sem virðast
stöðugt grassera hér á landi. Linda
segir að margar þessar sögur verði
til þó að hún sé óralangt frá íslandi.
„Það er sjúkt hvemig fólk hér á landi
getur búið til sögur," segir hún. „Ég
á marga góða vini og vinkonur en
ég á víst að vera með þeim öUum,“
bætir hún við. „Þetta er hvimleitt þó
að ég reyni að láta það ekki á mig fá.
Ég fékk hringingu héðan tU ítahu þar
sem spurt var hvort ég væri að fara
að gifta mig. Það er alveg ótrúlegt
hvemig sumar sögumar em og
hvemig þær verða til. Ég fór að borða
á Hard Rock ásamt þremur góðum
vinkonum mínum og frétti það dag-
inn eftir að við hefðum verið tvær
saman mjög ástfangnar. Hvemig er
hægt aö verjast sUkum sögum?" spyr
Linda.
Hafnaði Hrafni
Gunnlaugssyni
Hún fékk tilboð um að leika í nýrri
kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar
en hafnaði því. „Mig langaði að prófa
að leika og gæti vel hugsað mér það.
Ég las yfir handritið hjá Hrafni en
missti áhugann þar sem um nektar-
senu var aö ræða. Á slíku hlutverki
hef ég engan áhuga," segir hún.
Linda átti að baða sig nakin í dögg-
inni á Seltjamamesi úti við Gróttu.
Ekkert varð því úr kvikmyndaleikn-'
um hjá henni í þetta skiptið.
Það em þó önnur tilboð í gangi og
Linda hefur nýlega skrifað upp á
samning við íslenska-austurlenska
um auglýsingar á Oroblu sokkabux-
um og undirfatnaði.
Þessa dagana er það þó fyrirsætu-
námskeiðið sem Linda er að und-
irbúa af fullum krafti. Líklega mun
hún einnig fara með hópnum um
Bretland þar sem sams konar nám-
skeið verða sett upp.
- Það er þá ekkert brúðkaup á næst-
unni?
„Nei, ekki á næstunni," svarar
hún. „Ég á eftir að gera heilmargt
áður en að því kernur." -ELA
Linda og Ninibeth ásamt hjartveiku barni frá Hondúras á góðgerðarsam-
komu í New York. Linda var meöal þeirra sem gáfu peninga til hjálpar
barninu sem átti skammt eftir ólifað.
Ásamt kærastanum Les í boði hjá Juliu og Eric Morley í London fyrir stuttu.
Helgi K. Einarsson 1 Steinunn Jósefsd.
b. Leifsstööum húsfr. Leifsstööum 1
Friöbjörn Jónsson
b. Kaöalsstöðum
}
Guörún Jónatansd.
húsfr. Eyvindará
Hólmgeir Jónsson
framkvæmdastjóri
Sjómannas. íslands
Linda
Pétursdóttir
Jón Hólmgeirsson
skrifstm. Grindavík
Gísli Jónatansson
kaupfst. Fáskrúösf.
Ása D. Hólmgeirsd.
húsfr. Rvk
Hólmgeir Jónatanss.
útvb. Sigtúni Flatey
Jónatan Jónsson
b. Brekku í Fjöröum
Jónatan Arnason
útvb. Flatey
Hólmgeir Árnason
útvb. Flatey
Jóhanna Jónsdóttir
húsfr. Knarrareyri
Jón Eiríksson
b. Eyvindará
Sigríður Sigurbjörnsd.
húsfr. Flatey
Árni Tómasson Tómas Guðmundss. 1
b. Knarrareyri b. Knarrareyri
Sigurbjörn Sigurjónss. 1 Sigurjón Jósefsson 1
b. Vargsnesi b. Naustavík
Petrína 1. Jóhannesd. 1
frá Bakka Tjörnesi |
Úr frændgarði
Lindu Pétursdóttur
Matthías Bjarnason
alþingismaður
Bjarni Bjarnason
vegaverkst. ísafiröi
Jónas Bjamason
vegaverkst. Þórsh.
Sigríöur Guömundsd.
frá Brún Svartárdal
Bjami Kráksson
Hraunshöfða Öxnad.
Pétur Olgeirsson
framkvst. Meitilsins
Ragnheiöur Jónasd.
húsfr. Húsavík
}
Kristjana Þorsteinsd.
frá Engimýri
K
Þorsteinn Jónasson
b. Engimýri Öxnadal
Olgeir Sigurgeirsson
útgm. Húsavík
}
Sigurgeir Pétursson
búst. Húsavík
HPótur Guömundsson I
b. í Álftageröi
Björg Jónsdóttir
húsfr. Húsavík
Anna Jónsdóttir
Skútustöðum III
hundrað ára í fyrra
Jakobína Jónsdóttir
húsfr. Húsavík
1
Kristín Kristjánsd.
húsfr. Höskuldsst.
Jón Olgeirsson
Höskuldsst. Reykjad.
KGK