Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1992, Blaðsíða 46
58
LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1992.
Afmæli
Ólafur Walter Stefánsson
Ólafur Walter Stefánsson, skrif-
stofustjóri í dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu, Hrefnugötu 10,
Reykjavík, er sextugur í dag.
Starfsferill
Ólafur fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann tók stúdentspróf frá
VÍ1952 og lauk embættisprófi í lög-
fræði frá HÍ í ársbyrjun 1959.
Ólafur varð fulltrúi í dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu 1959, deild-
arstjóri þar frá 1964 og hefur verið
skrtfstofustjóri þar og staðgengill
ráðuneytisstjóra frá 1972.
Ólafur sat í stjóm Orators, félags
laganema 1954-55, í stjóm Stúdenta-
félags Reykjavíkur 1963-64, í stjórn
Bandalags háskólamanna 1963-69
og var formaður Lionsklúbbsins
Baldurs 1986-87. Hann hefur átt
sæti í ýmsum stjómskipuðum
nefndum, hefur setið í Umferðarráði
og framkvæmdanefnd þess frá upp-
hafi 1969, var formaður fram-
kvæmdanefndarinnar l%9-88 og
varaformaöur ráðsins 1970-72 og frá
1988. Ólafur hefur setið í happdrætt-
isráði Happdrættis HÍ frá 1971 og
verið formaður þess frá 1973. Hann
var varamaður í Kjaradeilunefnd
1977-84 og situr í Norræna umferð-
aröryggisráðinu, frá 1979, og nor-
rænu ráði um rannsóknir á E vrópu-
samrunarétti, frá 1991.
Fjölskylda
Bræður Ólafs eru Bjöm S. Stef-
ánsson, f. 19.6.1937, dr. scient, bú-
settur í Reykjavík, var kvæntur
Margaretu Norrstrand en þau
skildu og er sonur þeirra Gunnar
Bjömsson, heimspekinemi í Sví-
þjóð; Jón Ragnar Stefánsson, f. 17.2.
1941, dósent í stærðfræði við HÍ,
búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Ölafs: Stefán Gunnlaug-
ur Bjömsson, f. 17.6.1906, d. 2.9.
1990, framkvæmdastjóri Sjóvá-
tryggingafélags íslands, og Sigríður
Jónsdóttir, f. 22.11.1908, húsmóðir.
Ætt
Föðursystkini Ólafs: Margrét hús-
móðir; Jón, málarameistari í
Reykjavík; Þórarinn, timburkaup-
maður í Reykjavík; Guðlaug Mar-
grét, húsmóðir í Hveragerði. Stefán
Gunnlaugur var sonur Þórarins
Bjöms, verslunarstjóra á Djúpavogi
og Vopnafirði, síðar í Reykjavík,
Stefánssonar, b. í Teigi í Vopnafirði,
Þórarinssonar og Margrétar Bjöms-
dóttur, fyrri konu hans. Bróðir Þór-
arins Björns var Þórarinn, b. í Teigi,
faðir Sigurðar jarðfræöings. Bróð-
ursonur Stefáns í Teigi var Þórar-
inn, skólastjóri á Eiðum. Systurson-
ur Margrétar var Sveinn E. Bjöms-
son, læknir og skáld í Kanada.
Móðir Stefáns var Margrét Katrín
Jónsdóttir, prófasts í Hjarðarholti í
Dölum, bróður Vigfúsar, prests í
Ási, afa Guttorms skógarvarðar,
föður Hjörleifs, fyrrv. ráöherra. Jón
var sonur Guttorms, prófasts í
Vallanesi, Pálssonar. Móðir Gutt-
orms í VaUanesi var Sigríður, systir
Guttorms, langafa Petrínu, ömmu
Kristjáns Eldjám forseta. Móðir
Jóns í Hjarðarholti var Margrét Vig-
fúsdóttir, systir Ingunnar,
langömmu Þorsteins Gíslasonar,
skálds og ritstjóra, fóður Gylfa,
fyrrv. menntamálaráðherra, fóður
Vilmundar dómsmálaráðherra, en
bróðir Gylfa var Vilhjálmur út-
varpsstjóri, faðir Þórs hæstaréttar-
dómara. Móðir Margrétar Katrínar
var Margrét Jónsdóttir frá Brekku
í Fljótsdal en meðal bræðra hennar
var Jón læknir og Páll verslunar-
maður, einn stofnenda elliheimilis-
insGrandar.
Móðursystkini Ólafs: Ágúst, afi
Elínar Eddu Ámadóttur leikmynda-
smiðs; Guðmunda, móðir Ágústs
Guðmundssonar, forstjóra Land-
mæhnga ríkisins; Marta, dó ung;
Ragna Jóna og Ingibjörg.
Sigríður var dóttir Jóns, stýri-
manns í Reykjavík, bróður Guð-
rúnar í Ási við Hafnarfjörð, móður
Jónasar, skólastjóra Stýrimanna-
Ólafur Walter Stefánsson.
skólans. Jón var sonur Árna, b. í
Víðinesi og Móum á Kjalamesi,
Björnssonar og konu hans, Sigríðar
Jónsdóttur frá Bakka í Landeyjum.
Móðir Sigríðar var Ragnhildur
Jónsdóttir, b. í Breiðholti við
Reykjavík, Jónssonar og Bjargar
Magnúsdóttiu- frá Óttarstöðum.
Systir Jóns í Breiðholti var Guðný,
amma Eggerts Guðmundssonar list-
málara.
Ólafur tekur á móti gestum á af-
mælisdaginn í Átthagasal Hótel
Sögukl. 16.00-18.30.
Kristinn Finnbjöm Gíslason
Kristinn Finnbjöm Gíslason
kennari, Jökulgrunni 21, Reykjavík,
varð sjötíu og fimm ára 1 gær.
Starfsferill
Kristinn fæddist að Skógum á
Þelamörk í Eyjafjarðarsýslu en ólst
upp á Hálsi í Oxnadal og á Hesteyri
í Jökulfjörðum. Hann stundaði nám
við Héraðsskólann á Núpi 1934-36
og við KÍ1937-40. Auk þess hefur
hann sótt íjölda námskeiða í ýmsum
greinum, m.a. við Danmarks Lærer-
hojskole.
Fram til 1940 stundaði Kristinn öll
almenn störf til lands og sjávar.
Hann stundaði kennslu og önnur
skyld störf á ámnum 1940-76 og
vann við bókhalds- og afgreiðslu-
störf1976-86.
Kristinn átti heima á Hesteyri til
1942 er hann stofnaði eigið heimili
í Reykjavík þar sem hann hefur
búið síðan.
Kristinn hefur haft með höndum
margvísleg trúnaðar- og stjómar-
störf fyrir félagssamtök kennara,
m.a. verið formaður Byggingarsam-
vinnufélags bamakennara í fjölda
ára og framkvæmdastjóri þess síð-
ustuárin.
Kristinn samdi Reikningsbók
handa framhaldsskólum, 2. hefti
ásamt dæmasafni og 3. hefti sömu
bókar í félagi við Gunngeir Péturs-
son. Þá hefur hann þýtt kennslu-
bókina Stærðfræði - reikningur eft-
ir Agnete Bundgaard, 6. hefti ásamt
kennsluleiðbeiningum.
Fjölskylda
Kristinnkvæntist30.5.1942
Margréti Jakobsdóttur Líndal, f.
30.5.1942, kennaraoghúsmóður.
Hún er dóttir Jakobs H. Líndal, b.
og fræðimanns, og konu hans, Jón-
ínu Sigurðardóttur Líndal, kennara
oghúsfreyju.
Börn Kristins og Margrétar eru
Jakob Líndal Kristinsson, f. 7.3.
1943, lyfjafræðingur og dósent við
HÍ, kvæntur Kristínu Gísladóttur,
kennara og verslunarmanni, og eiga
þau þrjú höm; Halldóra Kristins-
dóttir, f. 18.10.1946, kennari og hús-
móðir í Mosfellsbæ, gift Þorkatli
Traustasyni húsasmiði og eiga þau
eitt ham; Gísh Jón Kristinsson, f.
26.11.1950, arkitekt á Akureyri,
kvæntur Marjo Kaarinu Kristins-
son, f. Kittio, textílverkfræðingi og
húsmóður, og eiga þau þrjú böm;
Jónína Vala Kristinsdóttir, f. 12.8.
1952, kennari og æfingastjóri KHÍ í
Reykjavík, gift Gylfa Kristinssyni,
f. 7.3.1950, stjómmálafræðingi og
deildarstjóra í félagsmálaráðuneyt-
inu, og eiga þau þrjú börn.
Kristinn Finnbjörn Gíslason.
Systkini Kristins eru Hjálmar
Benedikt Gíslason, f. 22.12.1918,
skrifstofumaður í Reykjavík,
kvæntur Margréti Guðmundsdóttur
húsmóður og eiga þau fjögur böm;
Sigurrós Gísladóttir, f. 18.10.1929,
húsmóðir í Kópavogi, gift Guð-
mundi Bjömsyni rafvirkjameistara
og eiga þau fjögur böm.
Foreldrar Kristins voru Gísh Rós-
enberg Bjamason, f. 6.10.1882, d.
21.8.1936, b. ogkennari á Hesteyri
í Jökulfjörðum, og Sigfúsína Hall-
dóraBenediktsdóttir, f. 21.7.1891,
d. 30.9.1989, húsmóðir og verka-
kona.
Kristinn og Margrét verða að
heiman á afmæhsdaginn.
Sigurður Garðarsson.
Sigurður Garðarsson
Sigurður Garðarsson verslunar-
maður, Rjúpufelh42, Reykjavík, er
fimmtugurídag.
Fjölskylda
Sigurður er fæddur í Reykjavík
og ólst þar upp. Hann stundaði ýmis
störf á yngri og var ennfremur
sendibílstjóri á Nýju Sendibílastöð-
inni um árabil. Síöustu 20 árin hefur
hann stundað verslunarstörf og
lengst af í Austurstræti 17 en þar
er nú Kjötbúð Péturs.
Sigurður kvæntist20.6.1%7
Margréti Dóru Elíasdóttur.
Dætur Sigurðar og Margétar
Dóra: Ólafía; Laufey, sambýhsmað-
ur hennar er Ingi Rafn Bragason og
eiga þau einn son, Sigm-ð Rúnar;
Steinunn.
Systkini Sigurðar: Gísh, búsettur
í Hveragerði; Ómar, búsettur í Mos-
fehsbæ; Jómnn, búsett í Reykjavík;
María, búsett í Noregi.
Foreldrar Sigurðar vom Garðar
Ólason og kona hans, Steinunn Sig-
urðardóttir, en þau em bæði látin.
Helgi M. Sigmarsson
Helgi Marinó Sigmarsson sjómað-
ur, Kirkjuvegi 39, Vestmannaeyjum,
verður sextugur á morgun.
Fjölskylda
Helgi er fæddur á Akureyri en ólst
upp í Reykjavík og á Sauðárkróki.
Hann hefur stundað sjómennsku frá
unga aldri og gerir enn.
Helgi kvæntist 16.6.1960 Guðrúnu
Guðjónsdóttur, f. 10.3.1938, húsmóð-
ur. Foreldrar hennar vom Guðjón
Gíslason, sjómaður í Reykjavík, og
Jóna Þorgerður Gunnlaugsdóttir
húsfreyja en þau era bæði látin.
Böm Helga og Guðrúnar: Guðjón
Viðar, f. 18.9.1960; Sólrún, f. 17.8.
1%2, maki Sigurður Karlsson, þau
eiga eina dóttur; Jóna Þorgerður, f.
15.1.1964, maki Benóný Gíslason,
þau eiga tvær dætur; Hólmfríður
Helga, f. 15.12.1964, maki Rafn
Rafnsson, þau eiga tvo syni; Kristó-
fer Helgi, f. 10.11.1%6; Sigmar, f.
18.12.1970, maki Gyða Arnórsdóttir;
Guðbjörg, f. 22.6.1975.
Helgi eignaðist sjö systkini en eitt
er látið. Helgi eignaðist þijú hálf-
systkini, samfeðra. Helgi á tvær
uppeldissystur.
Fósturforeldrar Helga voru
Kristófer Eggertsson og Helga Egg-
Helgi Marinó Sigmarsson.
ertsdóttir en þau em bæði látin.
Helgi verður að heiman á afmæhs-
daginn.
Til hamingju með afmaelið 20. júní
---------------------------_ Gunnar Ásgeirsson,
OC ára Kirkjuvegi3,Ólafsfiröi.
03 __________________Pétur Valdimarsson,
Bjarni G. Tómasson málara- Hólagötu 18,'Vestmannaeyjum.
meistari,
Barmahlíð49, Reykjavík. |
Kona hans er Ehsa Tómasson.
Þauemaðheiman.
Gylfi Þór Ólafsson,
MelteigilS, Keflavík.
Böðvar Jónsson,
Þyrh 2, Strandarhreppi.
Sólbjörg Vigfúsdóttir,
Njarðvíkurbraut 16, Njarðvík.
Bragi O, Thoroddsen,
Aðalstræti 78, Tálknafirði.
70ára
Rake! Guðmundsdóttir,
HörðuvöUum 4, Hafnarfirði.
60 ára
Vigdís Dagmar Filippusdóttir,
Bjarmalandi 14, Sandgerði.
Hulda Þórðardóttir,
Vesturgötu 63a, Akranesi.
50 ára
Sverrir Magnússon,
Efra-Ási, Hólahreppi.
Guðjón Oddsson,
Hjallabraut 25, Hafíiarfirði.
Jón Bæringsson,
Gýgjarhóli, Staðarhreppi.
MagnúsKristjánsson,
Ásbraut 11, Kópavogi.
Þórhallur Kárason,
Njaröarholti 2, Mosfellsbæ.
Margrét Auðunsdóttir,
Blesugrófl7, Reykjavík.
Svanhvít Geirsdóttir,
Sævarlandi, Svalbarðshreppi.
Reynir F riðfinnsSon,
Álfaskeiöi 78, Hafnarfirði.
Jón Vilhjálmsson,
Miðengi23, Selfossi.
Sigríður Jóhannsdóttir,
Njörvasundi l, Reykjavík.
Auðbjörg Gunnarsdóttir,
Skólavegi 82a, Fáskrúðsfirði.
Kolbrún Sigurðardóttir,
Vesturvangi 34, Hafnarfirði.
Margrét ö. Stephensen,
Tunguseli 5, Reykjavík.
Heiðrún Þyri Sigfúsdóttir,
Veghúsum l, Reykjavík.
Hulda Símonardóttir
Hulda Símonardóttir, Dverga-
bakka 18, Reykjavík, verður sextug
ámorgun.
Fjölskylda
Hulda er fædd í Hafnarfirði en
ólst upp á ísafirði og Siglufirði.
Fyrri maður Huldu var Viggó Ól-
afssoir, þau shtu samvistir. Seinni
maður Huldu var Loftur Jóhannes-
son verkstjóri, hann lést 1985.
Böm Huldu: Guðrún Viggósdóttir,
f. 2.12.1950, Msmóðir, maki Elías
Kristinsson, Guðrún á fjögur böm
frá fyrra hjónabandi; Geir Viggós-
son, f. 21.1.1952, stýrimaður, maki
Helga Jónasdóttir, þau eiga þijá
syni, Geir átti tvo syni fyrir; Sigurð-
ur Viggósson, f. 4.5.1953, fram-
kvæmdastjóri, maki Anna Jensdótt-
ir, þau eiga fiögur böm; Þorbjöm
Viggósson, f. 27.1.1955, sjómaður,
maki Ásta Bára Pétursdóttir, þau
eiga tvær dætur, Þorbjörn átti tvo
syni fyrir; Símon Viggósson, f. 23.4.
1956, vélstjóri, maki Birna Bene-
diktsdóttir, þau eiga þijú börn;
Bjami Viggósson, f. 8.10.1958, stýri-
maður, maki Jóhanna Þórðardóttir,
Hulda Símonardóttir.
þau eiga tvo syni, Bjami átti dóttur
fyrir; Kristín Viggósdóttir, f. 26.2.
1%1, húsmóðir, maki Hilmar Jóns-
son, þau eiga tvö böm, Kristín átti
son fyrir. Barnabarnabömin era
tvö.
ForeldrarHulduvoruSímonJó- >
hannsson, sjómaður á ísafirði, og
Guðrún María Guðmundsdóttir.
Hulda tekur á móti gestum á af-
mæhsdaginn í Sóknarsalnum í
Skipholti50kl. 15-18.