Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1992, Blaðsíða 13
13
LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1992.
Systurnar Díana og Sara. Díana var eins og litli, Ijóti andarunginn í saman-
buröi viö hina vinsælu systur.
Díönu og hún komst íljótlega aö raun
um að konunglegt ástarævintýri gat
verið dýrkeypt. Blaðamenn hringdu
í hana eldsnemma á morgnana, en
hún þorði ekki að taka símtólið af
gafdinum ef einhver í fjölskyldunni
yrði veikur og þyrfti að ná til henn-
ar. í hvert skipti, sem hún fór út í
sínum auðþekkta Metro-bíl, var hún
með halarófu af blaöamönnum og
ljósmyndurum á eftir sér.
Þótt vinkonum hennar þætti hún
standa sig vel gagnvart þessu fór
þetta ástand samt fljótlega að hafa
mikil áhrif á hana. Þegar hún var
innan fjögurra veggja eigin heimilis
gat hún gefið tilfmningunum lausan
tauminn.
„Ég grét eins og bam, ég gat ekki
ráðið við þetta,“ sagði hún. Karl
prins bauðst aldrei til þess að hjálpa
henni eða liðsinna og þegar hún hafði
samband við fréttastofuna í Bucking-
hamhöll var henni sagt að þeir gætu
ekkert gert fyrir hana, hún væri al-
gerlega á eigin vegum.
Það sem gerði þetta enn verra var
að Karl virtist hafa mun meiri áhuga
á gangi mála hjá fyrrum ástkonu
sinni, Camillu Parker-Bowles, sem
hann hélt alltaf nánu sambandi við.
Hann sagði Díönu frá vandræðum
Camillu vegna þess aö það voru allt-
af þrír eða fjórir blaöamenn fyrir
utan húsið hjá henni. Díana beit á
jaxlinn og sagði ekki neitt. Hún vildi
ekki íþyngja manninum sem hún
elskaði.
Eftir því sem leið á ástarævintýrið
fór Díana að efast um hollustu Cam-
illu við sig. Hún virtist alltaf vita
hvað farið hafði á milli þeirra Díönu
og Karls þegar þau voru saman ein.
Camilla átti jafnan ótal ráð um
hvemig hún ætti að koma fram við
Karl.
Karl kuldalegur
Þar sem Díana hafði aldrei áður
átt raunverulegan kærasta vissi hún
ekki almennilega hvemig hún átti
að bregðast við Karh. Henni fannst
samt eitthvað athugavert við kulda-
lega framkomu hans. Hún kom
hlaupandi um leið og hann kallaði.
Sem prinsinn af Wales var hann því
vanur að allir skjölluðu hann og að
fá alltaf það sem hann vildi. Hann
kallaði hana Díönu en hún kallaði
hann „herra“.
Hann vakti móðurtilfinningar hjá
henni. Henni fannst hann þurfa að
vinna alltof mikið. í hennar augum
var hann sorgmæddur, einmana
maður, sem þarfnaðist einhvers til
þess að líta eftir sér. Hún var yfir sig
ástfangin og vildi eyða ævinni með
honum.
Kvöldið áður en tilkynnt var opin-
berlega um trúlofunina kvaddi Díana
vinkonur sínar og flutti með föggur
sínar. Leynilögreglumaður kom og
sótti hana og um leið og hún kvaddi
vinkonur sínar sagði hann: „Ég vek
athygli þína á því að þetta er síðasta
kvöldið sem þú getur um fijálst höf-
uð strokið, svo þú ætti að ryóta þess
vel.“
Seinna sagði Díana: „Mér fannst
þessi orð fara eins'og hnífur í gegnum
mig.“
Þrátt fyrir að Díana hefði fengið
uppeldi sem jarlsdóttir og hefði titil-
inn lafði, kunni hún strax illa við sig
í hinu stífa, stéttskipta lífi sem var
innan hallarveggjanna í Bucking-
ham. Henni fannst líkt og hún væri
lokuð inni í fílabeinstumi og fékk
engan stuðning, ekki einu sinni frá
Karh heitmanni sínum. Hún var
mjög óhamingjusöm og einmana, gat
ekki haft samband við fjölskyldu sína
eða vini.
Fyrsta kvöldið hennar í Clarence
House, sem er aðsetur og heimih El-
ísabetar drottningarmóður, var
skelfilegt. Díana var látin ein og af-
skiptalaus, engum fannst ástæða til
að bjóða hana velkomna - ekki einu
sinni Karh. Sú mynd hefur gjaman
verið dregin upp af drothningarmóð-
urinni að hún sé hlýleg og velvfljuð
kona sem hafi snúist í kringum Dí-
önu um leið og hún kenndi henni
hvemig á að koma fram við kónga-
fólkið. Hirðmey drottningarmóður-
innar, lafði Susan Hussey, átti að
kenna Díönu sögu konungsættarinn-
ar.
í rauninni fékk Díana minni þjálf-
un en stúlka sem er að hefja störf á
kassanum í kjörbúðinni.
BréffráCamillu
Þjónn vísaöi Díönu tfl svefnher-
bergis hennar á annarri hæö. Á rúm-
inu beið hennar bréf frá Camillu
Parker-Bowles, sem skrifað hafði
verið nokkram dögum áður en tfl-
kynnt var um trúlofunina. Þetta var
boðsbréf um að snæða hádegisverð.
Camilla vfldi fá að vita hvort Díana
hygðist leggja stund á veiðar, er hún
flytti tfl Highgrove., Díönu fannst
þetta undarleg spuming en kvað nei
við henni. Camillu létti augsýnflega.
Síðar gerði Díana sér grein fyrir að
Camflla sá leið tfl að viðhalda sam-
bandi sínu við Karl í gegnum veið-
amar. En þetta lá ekki ljóst fyrir fyrr
en síðar. Eins og svo margt annaö.
Eitt af fyrstu vandamálum Díönu
eftir að hún kom í höllina var varð-
andi fatnað. Hún átti sjálf lítið af fot-
um þegar hún kom í konungsfjöl-
skylduna. Fékk hún aðstoð hjá rit-
stjóra tískublaðsins Vogue við að
byggja upp klæðaskápinn, en rit-
stjórinn var vinkona systur hennar.
Smám saman lærði Díana hvemig
hún átti að klæðast og hvemig hún
þurfti að taka tfllit tfl ótal atriða. Hún
lærði aö þyngja faldinn á kjólunum
svo pilsin fykju ekki upp um leggina
o.s.ftw.
Hún valdi tvo unga tískuteiknara
tfl þess að teikna brúðarkjólinn. Þeir
teiknuðu einnig fyrsta kvöldkjólinn
hennar, sem hún notaði í fyrsta
skipti sem hún kom fram opinber-
lega eftir trúlofunina. Þetta var góö-
gerðarsamkoma af stærstu gerö.
Kjóllinn var úr svörtu tafti, hlýra-
laus og mjög fleginn í bakið. Karl
prins var ekki hrifinn af kjólnum.
Henni fannst að svart væri besti Ut-
urinn fyrir stúlku á hennar aldri, en
hann var á annarri skoðun. Þegar
hún birtist í öllum skrúðanum í dyr-
unum á skrifstofu hans hreytti hann
út úr sér að einungis fólk sem væri
í sorg klæddist svörtu. Díana svaraði
um hæl að hún væri ekki orðin ein
af fjölskyldunni enn og það sem
meira væri, hún ætti ekki annan kjól
sem passaði fýrir þetta tækifæri.
Þetta var ekki beinlínis til að auka
sjálfsáht hennar þegar hún þurfti að
mæta blossandi myndavélunum.
Hún var illa undirbúin í siðum hirð-
arinnar og var gjörsamlega miður
sín, ef henni yrði á að verða heit-
manni sínum tfl skammar á ein-
hvem hátL
Þetta kvöld hitti hún Grace Kelly
í fyrsta sinn. Grace sá hvemig Díönu
leið og leiddi hana afsíðis og sýndi
henni vinarhót. Díana trúði henni
Camilla Parker er sögð hafa verið
ástkona Karls prins i mörg ár. Hér
er hún ásamt eiginmanni sínum,
Andrew.
fyrir erfiðleikum sínum varðandi
umtahð, einmanakenndina og
hræðslu hennar við framtíðina.
„Hafðu ekki áhyggjur," sagði
Grace. „Þetta á eftir að verða miklu
verra.“
Skömmu seinna fór Karl í fimm
vikna heimsókn til Ástrahu. Áður en
hann hvarf inn í flugvélina greip
hann í handlegg Díönu og kyssti
hana á kinnina. Þar sem hún horfði
á eftir flugvélinni brotnaði hún sam-
an og grét.
Ekki vom þessi tár eingöngu vegna
þess að Karl var farinn. Áður en
hann hélt á flugvölhnn var hann að
ganga frá einhverjum málum á skrif-
stofu sinni í Buckinghamhöh. Díana
var hjá honum og spjallaði við hann
þegar síminn hringdi. Það var Cam-
flla. Díana vissi ekki hvort hún ætti
að vera kyrr eða yfirgefa skrifstof-
una og leyfa þeim að kveðjast í friði.
Hún yfirgaf skrifstofuna og sagði síð-
ar vinum að þessi atburður hefði
gengið henni svo nærri að hjarta
hennar hefði brostið.
Fáeinum dögum fyrir brúðkaupið
kom bögguh á sameiginlega skrif-
stofu Díönu og Karls. Hún vfldi opna
pakkann en ritari Karls hafði á móti
þvi. Hún hafði sitt fram og viti menn:
I pakkanum var guflarmband með
blárri emaléraðri plötu með stöfun-
um F og G samantvinnuðum. Þetta
vom upphafsstafir í gælunöfnum
sem Karl prins og Camilla, fyrrum
ástkona hans, notuðu fyrir hvort
annað, Fred og Gladys.
Það varð uppi fótur og fit á skrif-
stofunni þegar Díana spurði Karl um
armbandið. Þrátt fyrir tárvot mót-
mæh Díönu var Karl ákveðinn í að
gefa Camfllu það. Þessi kona setti
skugga á allt tflhugalíf Díönu og
Karls og hefur raimar sett skugga á
aht þeirra hjónaband.
Daginn fyrir brúðkaupið var Díana
að því komin að hætta við allt sam-
an. Karl hafði farið að heimsækja
Camfllu tfl að gefa henni armbandið
góða og fór án lífvarðar.
Hún trúði systrum sínum fyrir
óhamingju sinni en þær sögðu að það
væri of seint og ekki aftur snúið.
Ofát, uppköst
og lystaróþol
Á meðan á trúlofuninni stóð þjáð-
ist Díana af ofáti og uppköstum. Hún
hríðhoraðist og var á örskömmum
tíma varla orðin annað en skinn og
bein. Hún kastaði stundum upp
þrisvar sinnum á dag.
Hún hefur sagt aö hún hafi haldið
aö mataróþohð hafi verið í tengslum
við tilhugahfið og áhyggjur hennar
af Camfllu. Þegar hún kom út úr
kirkjunni sem prinsessan af Wales
var hún hamingjusöm og hélt að nú
væra allar áhyggjur að baki.
Hún hafði því miður rangt fyrir
sér. Ástand hennar versnaöi í brúð-
kaupsferðinni. Hún kastaði stundum
upp fjórum eða fimm sinnum á dag.
Hinn mikh skuggi Camfllu var alltaf
nálægur, jafnvel í brúðkaupsferð-
inni.
Ungu hjónin fóra með konunglegu
snekkjunni Britannicu um Miðjarð-
arhafið. Dag einn vora ungu hjónin
að bera saman dagbækur sínar. Dett-
ur þá mynd af Camfllu út úr dagbók
Karls. Hún grátbað hann að segja sér
hvem hug hann bæri tfl Camihu en
Karl lét sem ekkert væri.
Nokkrum dögum síðar bauð hann
Egyptalandsforseta tfl kvöldverðar.
Þá tók Díana eftir að hann var með
nýja ermahnappa sem bára tvö C,
fléttuð saman. Hann viðurkenndi að
ermahnappamir væra gjöf frá Cam-
Ulu.
Fyrsta
sjálfsmorðstilraunin
Það mátti greinflega heyra há-
værar raddir og grát frá herbergjum
ungu hjónanna í Sandringhamhöll.
Það var rétt eftir jól og það var ekki
mikfl hátíðarstemning á milli ungu
hjónanna. Díana var komin þrjá
mánuði á leið með Wilham og leið
mjög Ula. Samband hennar og Karls
varð alltaf verra og verra. Svo virtist
sem Karl hvorki kærði sig um né
væri fær um að skflja andlega líðan
Díönu. Hún þjáðist af rnikilh morg-
unógleði, hún var með sífelldar
áhyggjur af Camillu Parker-Bowles
og hún reyndi af öllum mætti að sam-
lagast hinni nýju stöðu sinni og nýj-
um fjölskylduháttum.
Hún reyndi, grátbað og hótaði
Karh tfl þess að fá hann tfl að skflja
sig en allt án árangurs. Svo var það
einn janúardag árið 1982 að hún hót-
aði að fremja sjálfsmorð. Hann sak-
aði hana um að vera með leikaraskap
og bjó sig undir að fara í útreiðatúr
um landareignina. En Díana stóð við
orð sín. Hún henti sér niður tréstig-
ann og lenti eins og hrúgald fyrir
neðan stigann.
Drottningarmóðirin var fyrst til að
koma á vettvang. Hún var gripin
skelfingu, fékk algert taugaáfall yfir
því sem hún varð vitni að. Læknir
úr nágrenninu var tilkallaður á með-
an beðið var eftir kvenlækni Díönu,
sem var tilkvaddur frá London til
þess að skoða hinn konunglega sjúkl-
ing sinn. Til allrar hamingju hlaut
Díana ekki alvarleg meiðsli þótt hún
fengi marbletti. Nákvæm rannsókn
leiddi í Ijós að fóstrið var óskaddað.
Þetta atriði var aðeins eitt af mörg-
um, þar sem Díana reyndi að svipta
sig M. Hún kastaði sér einu sinni á
glerskáp í Kensingtonhöflinni og í
annað skipti skar hún sig á púlsinn
með rakvélablaði. Eitt sinn reyndi
hún að skera sig með tökkóttum
ávaxtahníf og í enn annað skipti skar
hún sig bæði á bringu og mjöðmum
með vasahníf. Var það eftir hat-
rammt rifrfldi við Karl prins. Hann
lét sér þó hvergi bregða þótt blóðið
lagaði úr henni.
Síðar hefur bæði Díana og vinir
hennar viðurkennt að þessar sjálfs-
morðstflraunir hafi verið hróp á
hjálp.
„Eg kallaði á hjálp. Ég þurfti á
lengri tíma að halda tfl þess að átta
mig á þessari nýju stöðu,“ sagði hún.
Eftir að William prins var fæddur
var ástandið síst betra. Díana var
með sífelldar áhyggjur vegna vináttu
Karls og Camfllu. Það var grátur og
gnístran tanna þegar hann kom ekki
heim á tflsettum tíma og hún átti
svefnlausar nætur þegar hann var
að heiman. Eitt sinn heyrði Díana
af tilvfljun á símtal eiginmannsins.
Þvi lauk með orðunum: „Ég mun
alltaf elska þig hvað sem á gengur."
Díana hefur sagt frá því að hún
hafi stundum ýtt á endurhringingar-
hnappinn á símanum hjá Karli og
hafi þá jafnan fengið samband við
heimfli Camillu.
Þegar Díana gekk með síðari son
sinn, Wilham, þjáðist hún einnig af
morgunógleði. Það bætti ekki
ástandið. Hún vissi að Karl þráði að
eignast dóttur og þegar Wifliam var
fæddur sagði Karl: „Nú, annar strák-
ur. Og hann er meira að segja með
rauðleitt hár.“ Eftir þessa athuga-
semd fór hann að leika póló!
Díana hefur sagt vinum sínum að
á þessu augnabliki „dó eitthvað inni
í mér“. Með þessari athugasemd
hans hófst lokakafli hjónabandsins.
Velkomin í Veiðimanninn
í yfir fimmtíu ár hefur verslunin Veiðimaðurinn þjónað
sportveiðimönnum og öðrum unnendum útiveru.
Hjá okkur fæst mikið úrval veiðistanga og hjóla í fjölda
verðflokka, ásamt fyrirtaks veiðifatnaði á hagstæðu verði.
Við seljum aðeins viðurkennd vörumerki.
Opið mánud. - fimmtud.kl. 09 - 19, föstud.kl. 09 - 20,
laugard. kl.10 - 16, sunnud. frá kl.ll - 16.
Hafnarstræti
sitógílö?