Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1992, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1992, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1992. 33 Laxáí Aðaldal: 200 laxa múrinn roff inn Tryggvi Þórðarson með 20 punda laxinn stuttu eftir löndun hans í Brúarhyl í Laxá i Aðaldal. Laxinn veiddi Tryggvi á flugu sem faðir hans, Þórður Pétursson, hnýtti og hannaði, Dodda rauða númer 8. DV-mynd Þórarinn „Á þessari stundu eru komnir 200 laxar og það hafa veiðst tveir 20 punda, annar hjá okkur en hinn í Nesi,“ sagði Orri Vigfússon er við spurðum um Laxá í Aðaldal í gær- kveldi. „í fyrra var meðalþyngdin 9 pund en núna eru það 12 pund,“ sagði Orri ennfremur „Veiðin gekk ágætlega hjá okkur og við fengum 15 laxa, sá stærsti var 20 pund,“ sagði Þórarinn Sigþórsson en hann var á bökkum Laxár fyrir fáum dögum. „Það var Tryggvi Þórðarson 13 ára sem veiddi fiskinn og landaði alveg einsamall. Hann hefur ótrúlega mik- inn áhuga á veiði hann Tryggvi og ég spái því að hann verði orðinn 15-20 ára mesti veiðimaður landsins. Hann er stórkostlega efnilegur. Lax- inn tók fluguna Dodda rauða númer 8 og var hann 30 mínútur að landa laxinum. Við lentum í miklu mold- roki og þetta var ekkert veiðiveöur á tímabili," sagði Þórarinn í lokin. Það verður gaman að sjá hvort spá, sem Sportveiðiblaðið birti fyrir skömmu, þar sem Laxá í Aðaldal er spáð efsta sætinu í sumar, rætist. Eins og er eru Þverá, Kjarrá og Norð- urá efstar. -G. Bender Leirvogsá: 11 laxar á fyrsta veiðidegi „Við erum hressir með þessa opun í Leirvogsánni þetta sumarið, það komu 11 laxar í dag og hann var 10 pund sá stærsti en sá minnsti 3,5 pund,“ sagði Guðmundur Magnús- son í Leirvogstungu í gærkveldi. Veiðin hófst í Leirvogsá í gærmorg- un. „í fyrra veiddist 1 lax og 3 regn- bogasilungar. Veiðimenn sáu fisk um alla á en þessir fiskar veiddust frá Ketilhyl niður í sjó,“ sagði Guð- mundurennfremur. -G.Bender Veiðivon Bylgja Þrastardóttir með væna bleikju af silungssvæði Svínafossár fyrir fáum dögum. Hún mun eflaust renna fyrir fisk á veiðidegi fjölskyld- unnar. DV-myndir ÞÞ Veiðidagur fjölskyld- unnar á sunnudaginn Á sunnudaginn verður haldinn veiðidagur fjölskyldunnar en það eru Landssamband stangaveiðifélaga og Ferðaþjónusta bænda sem standa fyrir þessum veiðidegi. í 20 veiðivötnum verður boðið upp á ókeypis veiði. Vötnin eru Hreða- vatn í Norðurárdal, Vatnasvæði Lýsu í Staðarsveit á Snæfellsnesi, Haukadalsvatn í Haukadal, Hnausat- jörn í Þingi, Höfðavatn á Höfða- strönd, Hestvatn í Grímsnesi, Vest- mannsvatn í Reykjadal, Ekkuvatn í Fellum, Úlfljótsvatn í Grímsnesi, Þingvallavatn fyrir landi þjóðgarðs- ins, Keifarvatn, Geitabergsvatn, Þór- isstaðavatn, Eyrarvatn, Langavatn, Elliðavatn, Botnsvatn við Húsavík, Langavatn við Hveravelli og Kringluvatn sunnan við Kringluvatn og Vesturós Héraðsvatna í nágrenni Sauðárkróks. Arnarvatnsheiði opnuð í morgun „Við ætlum að opna Arnarvatns- heiðina í fyrramáhð (í dag) og eigum von á einhverjum veiöimönnum fyrstu dagana. Það hefur verið mikið spurt um heiðina," sagði Snorri Jó- hannsson á Augastöðum í gærkveldi. Dagurinn er seldur á 1900 kr. en helgin er á 3000 kr. Þetta er sama verð og í fyrra. -G.Bender _______________________ Merming Háskólabíó - Lukku-Láki: ★ Mislukkaður Láki Langt er síðan hætt var að þýða Lukku-Láka bækur yfir á íslensku en ég er viss um að af minni kynslóð eru margir aðdáendur. Þeim er eindreg- ið bent á að foröast þessa sjónvarpsuppfærslu og halda fast í bernsku- minningarnar. ítaíir hafa tekið sig til og gert sjónvarpsseríu um Lukku-Láka og er upphaf seríunnar líka dreift í bíó til þess að krækja í aukaaura. Verst fyrir bíógesti að það skuli ekki búið svo um efnið að það henti sem kvöld- skemmtun. Sagan sprettur beint upp úr síðum bókanna og hefst á því að landnem- ar setjast að á sléttunni og slá upp fyrirmyndarbænum Daisy Town með Kvikmyndir Gísli Einarsson miklum myndarbrag. Fljótlega gerast sumir heldur snöggir til með byss- una og brátt fær bærinn á sig orð sem hið mesta lastabæli. Enginn þorir að vera skerfari fyrr en Lukku-Láki kemur í bæinn ríðandi á ...? Nú var mér nóg boðið. Fararskjóti og betri helmingur Lukku-Láka, sem fylgdi honum gegnum súrt og sætt í yfir 30 bókum, hefur fengið nýtt nafn, sem er honum ekki samboðið, og ég ætla ekki einu sinni að hafa eftir. Hver sá sem hefur lesið, þó ekki væri nema eina Lukku-Láka bók veit að Jolly Jumper, vitrasti hestur vestursins, heitir Léttfeti á íslensku. Þýðandinn myndarinnar hefur ekki svo mikið sem tekið upp eina af hinum einstak- lega skemmtilega þýddu Lukku-Láka bókum. Hvað um það, myndin er hvort sem er vonlaus og það mun enginn fara á hana nema krakkar sem hafa sennilega aldrei lesið upprunalegu sögum- ar og svo kemur þáttaröðin í sjónvarpi og þessi spagettí-útgáfa Lukku- Láka mun skemmta nýrri kynslóð sem veit ekki hverju hún missti af. TiHryimingar íþróttafélag fatlaðra Aðalfundur Iþróttafélags fatlaðra í Reykjavik var haldinn 30. maí sl. á 18 ára afmæli þess. 011 aðstaða félagsins gjör- breyttist til batnaðar við opnun íþrótta- húss þess í Hátúni 14, en það var vígt 1. sept. sl. Á vegum félagsins eru þar æfmg- ar í boccia, bogfimi, borðtennis, fótbolta, frjálsum íþróttum og lyftingum, sem áhugasamir og færir þjálfarar sjá um, en sundið er eina greinin sem æfð er utan íþróttahúss félagsins. Símon E. Sig- mundsson, Vesturgötu 7, Reykjavik, arf- leiddi félagið að öllum eigum sínum til helminga á móti Reykjalundi, höfðingleg gjöf sem vissulega kemur sér vel. Rauði kross íslands Myndin Mannréttindi í verki er mynd sem Rauði krossinn hefur látið þýða og gefið út með íslensku tali. Myndin er gerö af breska Rauða krossinum og fjall- ar um störf sendifulltrúa Alþjóðaráðsins á átakasvæðum, en þeirra hlutverk er meðal annars að hafa eftirlit með að Genfarsáttmálamir séu haldnir. Sýning- artími myndarinnar er 18 mínutur. Hún er til sölu á skrifstofu RKÍ og jafnframt til útláns úr bóka- og myndbandasafni Fræðslumiðstöðvar RKÍ. Hana nú í Kópavogi Vikuleg laugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður á morgun. Lagt verður af stað frá Fannborg 4 kl. 10. Nýlagað molakaffi. Hjartagangan 1992 verður um land allt laugardaginn 27. júní. í fyrra var gengið á um 30 stöðum og tóku um 4000 manns þátt. í ár verða alls níu félagssamtök sem standa að göngunni. Á höfuðborgarsvæðinu veröur gengið um Elliðarárdal og verður lagt,.af VERSLUN VEIÐIANNSINS ______VEIÐILEYFI í EYSTRI RANGÁ. LAUGAVEGI 178, SÍMAR 16770 - 814455, FAX 813751 stað frá Mjódd á tímabilinu kl. 14-16. Mun Markús Om Antonsson, borgarstjóri í Reykjavík, ávarpa göngufólk kl. 14. Hjartagangan er farin í fjáröflunarskyni og þvi ekkert þátttökugjald. Rjómabúið Baugsstöðum verður opnað laugardaginn 27. júní og verður opið um helgar í sumar frá kl. 13-18. Rjómabúið hóf starfsemi sína 1905 og starfaði nær óslitið til 1952. Vatnshjól- ið og tækin í vinnslusalnum munu snú- ast þegar gesti ber að garði og minna á löngu Uðna tíma. Úppl. í síma hjá Hrefnu 98-21469, Kristínu 98-22117 eða Sigurði 98-63369. Jónsmessumót Ungl- ingareglunnar verður haldið í Galtarlækjarskógi laug- ardaginn 27. júní nk. Mótið hefst kl. 13 með boltakasti. Mótinu lýkur laust fyrir kl. 20 með afhendingu verðlauna fyrir þrautir. Mótið er opið öUum bömum á aldrinum 6-14 ára. Sætaferðir verða tíl og frá flestum kaupstöðum suðvestur- homsins. Þátttöku þarf að tiUtynna í síma 19944. Félag eldri borg- ara í Reykjavík Gönguhróifar leggja af stað frá Risinu kl. 10 laugardagsmorguninn 27. júní. Kristniboðsmót í Vatnaskógi Helgina 26.-28. júní stendur Samband ís- lenskra kristniboðsfélaga fyrir árlegu kristílegu móti í Vatnaskógi. Mót þetta hefur verið haldið um áratugi í Vatna- skógi og er yfrrskrift þess í ár: Leitið fyrst ríkis hans. Mótið er öUum opið og em næg tjaldstæði og hægt að fá gistingu í svefnskálum í Vatnaskógi meðan hús- rúm leyflr. Big foot Almenningi gefst nú kostur á að skoða Big foot tmkkinn og verður hann tU sýn- is við Kringluna frá kl. 15-18 í dag, fóstu- dag. Húsmæðrafélag Reykjavíkur Sumarferðin verður farin laugardaginn 4. júU nk. Farið verður frá Húsmæðra- félagshúsinu, Baldursgötu 9. Farið verð- ur um Borgarfjarðarbyggðir. Uppl. hjá Sigríði 14617, Þuríði 81742 og hjá Bergrós 39828.' Leikhús ÞJOÐLEIKHUSIÐ Sími 11200 Leikferö Þjóðleikhússins um Norður- og Austurland: KÆRA JELENA Húsavik: Samkomuhúsið. íkvöld kl. 21. Miðapantanir í Samkomuhúsinu, simi 41129. Ólafsfjörður: Samkomuhúsið. Laugerdag 27. júni kl. 21. Miðapantanir i Félagsheimilinu dag- lega frá 17-19 í sima 62188. Varmahlíð: Miðgarður Sunnudag 28. júni kl. 21. Miðasala við innganginn. Blönduós: Félagsheimilið. Mánudag 29. júni kl. 21. Miðasala við innganginn. Alþjóðlegur styrkur Nýlega var Loftl Erlingssyni veittur al- þjóðlegur styrkur, í a.m.k. eitt ár, til að stunda framhaldssöngnám við Royal Northem College of Music í Manchester. Er þetta í fyrsta skipti sem íslendingi hlotnast sá heiður að fá styrk til að stunda nám við konunglegan breskan tónlistarháskóla. Loftur hefur komið víða fram sem einsöngvari, meðal annars í hlutverki Umbertos í Ráðskonuríki og Fígaró, í Þáttum úr Brúðkaupi Fígarós, sem hvort tveggja vom nemenda- uppfærslur á vegum Söngskólans. Þá hefur hann fariö nokkur einsöngshlut- verk hjá íslensku óperunni, m.a. í Ævin- týrum Hoffmanns. 70 ára afmæli Dagana 25.-28. júní nk. ætla Flateyringar að minnast 70. ára afmælis hreppsins. Fjölbreytt dagskrá verðurþessa daga, t.d mun samkór Vestur-Isafjarðarsýslu flytja syrpu af lögum úr óperettum eftir Fi-anz Lehar í útsendingu Svend Sanby, textann þýddi Guðmundur Ingi Krist- jánsson. Stjómandi kórsins er Ágústa Ágústsdóttir og undirleikari er Sr. Gunn- ar Bjömsson. Einnig verður dansleikur, varðeldur og margt fleira. Háskóiahátið verður haldin í Háskólabíói laugardaginn 27. júni nk. kl. 14, þar sem kandidatar verða brautskráðir. Athöfnin hefst með því að Blásarakvintett Reykjavíkur leik- ur. Háskólarektor, Sveinbjöm Bjöms- son, ræðir málefni Háskólans og ávarpar kandídata. Deildarforsetar afhenda kandídötum prófskírteini. Að þessu sinni verða brautskráðir 522 kandidatar. Tapaðfiindið Síamsköttur, fress tapaðist frá Kársnesbraut 21c, Kópavogi, 14. júní sl. Finnandi er vin- samlegast beðinn um að hringja í síma 41009, 40545 eða 45051. Brúðkaup Þann 27. júni nk. kl. 16 verða gefm saman í hjónaband í Neskirkju af séra Guð- mundi Óskari Ólafssyni Guðný Lilja Guðmundsdóttir og Ingi Ingason. Heimili þeirra er að Hjarðarhaga 42, Reykjavík. Tónleikar Bubbi Morthens heldur tónleika á Valsvellinum 27. júní nk. kl. 16 og verður aðgangur ókeypis. Það er vegna samnings sem Bubbi hefur gert við Visa ísland sem gerir honum kleift að bjóöa landsmönnum upp á ókeypis tónleika.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.