Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLI 1992. 5 Fréttir ] Hrefnan braut drif- i hælinn af bátnum JiHia Imsland, DV, Hö6i; Mikið hefur verið af hval á miðum sem trillukarlar frá Höfn sækja suð- austur af Ingólfshöfða og ber þar mikið á hrefnu og hnúfubak. Miðvikudaginn 15. júlí lenti Elvar Unnsteinsson á handfærabátnum Emi í árekstri við stóra hrefnu. El- var var einn um borð og sagðist ekki hafa orðið hrefnunnar var fyrr en hún skall á kinnungi bátsins stjóm- borðsmegin, kastaði bátnum upp og lenti síðan á drifhælnum og braut hann. Elvar sagði að höggið hefði verið mikið og þetta heldur óþægileg uppá- koma en hrefnunni hefði ekki orðið mikið um þótt nokkur spiksýni yrðu eftir á skúfunni því hún hélt sig þarna skammt frá og virtist hin sprækasta en bátinn þurfti að draga til Hafnar. Hólmavík: Þar ráða konur ríkjum Öm SF 70 kominn á land með brotinn drifhæl. DV-mynd Ragnar Talaðu viðokkurum i BÍLASPRAUTUN BÍLARÉTTINGAR Auðbrekku 14, sími 64-21 -41 Guðfinnur Ffitnbogason, DV, Hólmavík: Konur em 1 öllum mikilvægustu embættunum á Hólmavík þessar sumarvikur. í vor kom til starfa nýr sóknarprestur, kona, og var sagt frá I í DV á sínum tíma. Þá leysa konur af bæði heilsugæslulækni og sýslu- mann í sumarleyfum þeirra. I Hulda Brá Magnadóttir er okkar heilsugæslulæknir og Hjördís Björk Hákonardóttir er sýslumaður. Hjör- dís Björk er okkur að góðu kunn. Hún varð sem kunnugt er fyrst kvenna sýslumaður hér á landi og það einmitt í Strandasýslu frá 1980- 1983. Fjórða konan í þessum hópi er Anna Þorbjörg Stefánsdóttir. Hún hefur í allmörg ár verið starfsmaður pósts og síma og verið stöðvarstjóri hin síðari ár. Þá má þess einnig geta að tannlæknirinn, sem okkur þjónar, er einnig kona. Þær eru í mikilvægustu embættunum á Hólmavik. Frá vinstri: Sigríður Ola- . dóttir sóknarprestur, Anna Þorbjörg Stefánsdóttir stöðvarstjóri, Hulda Brá Magnadóttir heilsugæslulæknir og Hjördis Björk Hákonardóttir sýslumaður. DV-mynd Guðfinnur Faöir óhress með RLR: Kvartar undan seinagangi -RLRsegirmaliöíviimslu x Rúnar Þorvaldsson, aðstoðar- skólastjóri Heiðarskóla í Leirársveit, er óhress með gang mála hjá RLR. Sonur hans varð fyrir líkamsárás í Hafnarfirði 17. júní síðasthðinn og voru brotnar úr honum tvær tennur. Þar sem Rúnar fór úr landi í gær til langdvalar óskaði hann eftir að rannsókn málsins yrði hraðað hjá RLR. í grein í DV síðastliðinn fostu- dag segir Rúnar að RLR hafi ekkert gert ennþá í málinu. Þegar haft var samband við RLR á mánudag var blaðinu tjáð að mál sonar Rúnars væri í vinnslu. Rúnar sagði í samtah við DV að kostnaður vegna tannviðgerða hjá syni hans væri aö lágmarki 150 þús- und krónur. „Það er óvíst hvort það fæst nokkurn tímann bætt,“ sagði Rúnar. Hjá RLR fengust þær upplýsingar að um þessar mundir væri fáhðað vegna sumarleyfa og reynt væri að sinna óskum Rúnars um rannsókn- arflýti eins vel og kostur væri. „Okk- ur finnst það th fyrirmyndar hvað fóðumum er umhugað um mál sonar síns. Við munum gera okkar besta," sagði rannsóknarlögreglumaður við DV. -bjb ÚTSALAN HEFST Á MORGUN REYKJAVÍKURVEGI 62, HAFNARFIRÐI, SÍMI 651680

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.