Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1992. 7 Falsaðijeppinn: FÍB gerði allt sem mögu- legt var Vegna fréttar í blaöinu á fimmtu- dag um falsaða jeppann, sem Hall- varður Ólafsson keypti á bílasölu nýlega, vill framkvæmdastjóri Fé- lags íslenskra bifreiðaeigenda, Run- ólfur Ólafsson, koma því á framfæri að félagið hafi gert allt það í máli Hallvarðs sem mögulegt var. Að sögn Runólfs hafði FÍB ekki aðgang aö lögfræðingi sínum strax þegar Hallvarður kom fyrst méð er- indi sitt. Búið er að senda bréf frá lögfræðingi FÍB til seljanda jeppans þar sem farið er fram á að kaupsamn- ingi verði rift. -bjb BRÚÐARMYNDA DavíðOddsson forsætisráð- herravaráferð meðforeetan- umþýskaá t dögunum. Eitt- hvaðkomtil umræðuhve fallegtvajriá Þingvöllumog hve mikiil munurværiað bafa bústaðfor- sætisráðherra þar. Davíð sagðisthins vegar lítið nota bústaðinn, það væri orðiö s vo óskaplega mikiö um túrista þar, svo mikið aö þeir væru eiginlega komnir ofan í grillið hjá sér. Tanni, hundur forsætisráðherra, hcfði þó bægt túristum irá en hann heföi þó meíri áhuga á grilfinu en ferðamönn- um. Davíð var þó spurður hvort rétt væri að Tanni æti 5 kfló af kjöti á dag: „Er nú búið að skrökva því upp á hundínn. Það er ég sem ét 5 kfló á dag,“ sagði Davíð Oddsson. Gullið kynlíf „Fullnæging eykurmetnað kvcnnaoggef- : urþeimaukinn styrk," segja vísindamenn semftfllyrðaað kyniífnukilik- uríþrótta- mannaágulliá ólympfuleikun- um. Margir íþróttamenn hafatekiðí sama streng. Þeirraámeðal er Heike Henkel, heimsmeistari í hástökki: „Allt tal um bindindi í kyn- lffi rétt fyrir keppni er argasta þvæla. Kynlif fyrir keppni skilar sér í meiri árangri." Læknir þýska ólympíuliðsins er þeim algerlega sammála: „Kynlíf rétt fyrir keppni er hollt og gott bæði fyr- irkarlaog konur. Kyrflif dregur úr kvíða og árásargirni. Það dregur ekki úr líkamlegum styrk en hetur hins vegar mjög jákvæð áhrif á sálfræði- legaliðan." Vonandi verður gaman í Barse- lóna. Snúðurog Snælda Tíminngreínir fráþvíaðað- faranótt sunnudags h.ui lögreglanhaftí nóguaðsnúast vegnastöðugra veisluhaldai heimahúsum. Þcir scgja að skýringinsésú aðmargirfor- eldrar hafi far- íðúrbænum yfirhelgmaog ungviðíðnýtt tækifærið til hins ýtrasta. Siðan seg- ir: „Á meðan hafa unglingarnir leikiö lausum bala og ekki hagað sér betur en kettlingarnir Snúður og Snælda sem sveifluöu sér meðal annars í ljósakrónunni þegar þeir voru skildir einireitirheima.“ l\lekt í Skeljungi dögunum kom sótrauð konauppáB. h;eð í Skclj- ungshúsiuuog sagðistá cngan háttgetaðþolað þessarstöðugu nektarsýningar semfyrirtækið stæði fyrir. Húnsagðiþað vcraorðiðansi mikiðstundaö sportínær- liggjandi hus- um að horfa inn á kvennaklósettið tar sem dýrðin blastí við þeim sem >að vildu. Þegar málið var athugaö kom i ljós að nýju, stóru, fmu gluggarnir höfðu verið settir öfugt í. Ekki var hægt aðsjáút frá saleminu en hins vegar blasti allt við sem þar fórframinnandyra. Umsjón: Pálml Jónasson dv Sandkom Fréttir Lögreglan á Blönduósi: íhugar að „strauja“ sektir - fyrstir allra í Evrópu Lögreglan á Blönduósi er nú að kanna þann möguleika að taka upp greiðslukortaþjónustu við greiðslu lögreglusekta. Ef af verður mun Blönduóslögreglan vera brautryðj- andi á þessu sviði hér á landi og að því best er vitaö fyrsta lögreglan í Evrópu. Að sögn Arinbjörns Snorra- sonar lögregluvarðstjóra er erindi þeirra til athugunar hjá Visa ísland. „Það líður aö því að ökumenn geti „straujað" sektirnar hjá okkur því viðbrögðin við erindinu hafa verið góð,“ sagði Arinbjörn. Þann 1. júlí síðastliðinn tóku gildi þær reglur að hægt verður að gera upp lögreglusektir á staðnum. Við það fór lögreglan á Blönduósi að íhuga málið, einkum með tilliti til erlendra ferðamanna. Ef viðræður takast við greiðslukortafyrirtæki þá verður hægt að taka upp „plastið" við greiðslu allra lögreglusekta en takmarkast við dómsmál. Sem kunnugt er hafa ökumenn ekið greitt í gegnum Húnaþing þann- ig að langalgengustu sektirnar eru vegna hraðaksturs. Þótt lögreglan hafi aðallega verið að hugsa til er- lendra ferðamanna þá munu íslend- ingar einnig geta gert upp sínar sekt- ir með greiðslukorti eða staðgreiðslu. Arinbjörn sagöi að hagræðingin af þessu væri mikil. „Við losnum við að senda gíróseðla til fólks og þurfa að boða fólk á lögreglustöðina vegna gamalla sekta,“ sagði Arinbjörn. -bjb Olafur Rögnvaldsson. „Stundum ekki línuveiðar vegna tvöföldunarinnar, við hefðum gert það hvort eð er.“ Vesturland Ljósmyndastofa Akraness Skólabraut 9 s. 93-12892 300 Akranes Vestfiröir Ljósmyndastofan Myndás Aðalstræti 33 s. 94-4561 400 Isafiröi Akureyri Ljósmyndastofa Páls Skipagötu 8 s. 96-23464 600 Akureyri Ljósmyndastofan Norðurmynd Glerárgötu 20 s. 96-22807 600 Akureyri Húsavik Ljósmyndastofa Péturs Stóragarði 25 S. 96-41180 640 Húsavík Austfirðir Ljósmyndastofa Jóhönnu Valg. Arnbjörnsdóttur Bjarnarnesi I s. 97-81764 Höfn I Hornafirði Reykja nes Ljósmyndastofa Suðurnesja Hafnargötu 79 s. 92-14930 230 Keflavík Ljósmyndastofan Nýmynd Hafnargötu 90 s. 92-11016 230 Keflavík VERÐUR ÞÚ BRÚÐUR ÁRSINS 1992? 18 atvinnuljósmyndarar eru að leita að brúði ársins. Verði brúðarmyndin ykkar tekin hjá einhverjum þeirra gætir þú orðið brúður ársins 1992. Vegleg verðlaun verða veitt fyrir bestu brúðarmyndina í hverjum mánuði til ágústloka og fær brúður mánaðarins Philips eldhúskvörn frá Heimilistækjum hf. að verðmæti 13.000 kr. og kaffiborð á hjólum ásamt 6 kampavínsglösum úr kristal frá Tékk-Kristal að verðmæti 15.000 kr. í september verður brúður ársins kjörin og fær hún Philips 28" NICAM stereó sjónvarp og KODAK myndgeislaspilara, alls að verðmæti 150.000 kr. Með þvl að panta brúðarmyndatökuna hjá einhverjum ofantaldra Ijósmyndara ert þú orðin þátttakandi í brúðarmyndakeppninni. MEÐ ÓSK UM BJARTA FRAMTÍÐ. Eftirtaldir Ijósmyndarar eru þátttakendur í leitinni að brúði ársins: Reykjavík Ljósmyndastofa Sigríðar Bachmann Garðastræti 17 s. 623131 10! Reykjavík Ljósmyndastofa Póris Rauðarárstíg 20 s. 16610 105 Reykjavlk Svipmyndir Hverfisgötu 18 s. 22690 101 Reykjavík ..Ljósmyndarinn Jóhannes Long Parabakka 3 s. 79550 109 Reykjavík Ljósmyndastofa Gunnars Ingimarssonar Suðurveri - Stigahlíð 45 s. 34852 105 Reykjavík Ljósmyndastofan Nærmynd Laugavegi 178 s689220 101 Reykjavlk Studio 76 Síðumúla 22 s. 680676 108 Reykjavík Ljósmyndir Rutar Grensásvegi 11 s. 680150 108 Reykjavík KEPPNI BCodak UMBOÐSINS OG Ljósmyndastofa Reykjavíkur Hverfisgötu 105 s. 621 16 101 Reykjavík Ljósmyndastofan Mynd Trönuhrauni 8 s. 654207 220 Hafnarfjörður Ölafur Rögnvaldsson, oddviti á Hellissandi: Línutvöföldunin gerð fyrir okkur „Allir bátar, sem gerðir eru út frá Rifi, eru á línuveiðum í nóvember, desember, janúar og febrúar. Það er ekki einn einasti bátur gerður út á annan veiðiskap meðan tvöfoldunin er í gildi,“ sagði Ólafur Rögnvalds- son, oddviti Neshrepps utan Ennis, framkvæmdastjóri Hraðfrysthúss Hellissands og útgerðarmaður, þegar hann var spurður hvað það hefði að segja fyrir hans heimahyggð ef tvö- foldun á línuafla yrði afnumin. Ólafur Rögnvaldsson segir að frá 1. september 1991 til 30. apríl 1992 hafi 88 prósent af öllum afla, sem var landað á Rifi, verið þorskur, 10 pró- sent var ýsa og 2 prósent annar kvótafiskur. „Helmingsfrádráttur á línuafla var gerður sérstaklega fyrir utanvert Snæfellsnes og Vestfirðina á sínum tíma. Á þessum stöðum hafa - höfum ekkert annað en þorskinn línuveiðar verið stundaðar alla tíð. Við erum ekki að stunda línuveiðar af því að það er tvöföldun. Við mynd- um gera það hvort eð er því við höf- um alla tíð gert það. Ég efast um að nokkurt einasta byggðarlag á íslandi eigi jafn mikla hlutdeild í þorski, miðað við úthlutaðan afla, eins og við. Kannski að Grímsey sé með meira - þó efa ég það. Samdrátturinn verður langmestur hjá okkur. Viö erum ekki með togara, við höfum engar sérveiðar, ekki loðnu, ekki síld og ekki humar. Við höfum að vísu eitthvert rækjuskrap en það er lítill kvóti hjá okkur þar sem við byrjuð- um rækjuveiðar það seint. Við höfum ekkert annaö en þorskinn," sagði Ólafur Rögnvaldsson á Hellissandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.