Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Qupperneq 10
10 KOLSTAKKUR eftir Brian Moore Bók þarf ekki að kosta 2000 krónur til að vera góð Kvikmynd gerð eftir bókinni var sýnd í Regnboganum í vor. Bókin er jafnvei enn meira spennandi og inniheldur alia þá þætti sem einkenna spennu- sögu: átök og afbrot, trúnað og undirferli, ást og afbrýði, spurningar sem varpað er fram og geta átt ótal svör, en verður ekki svarað fyrr en á síóustu síðum bókarinnar. Þeir sem unna góðum og spennandi sögum munu ekki leggja þessa bók frá sér fyrr en fulllesna. tr A næsta sölustað og kostar aðeins kr. 790,- - ennþá minna í áskrift. (91) 63 27 00 og ævintýrasaga Útlönd MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1992. DV Leikkonan Elísabet Taylor hefur verið mjög virk í baráttunni gegn eyðni og hún er meðal þeirra fjölmörgu sem eru á eyðniráðstefnunni i Amster- dam í Hollandi. Simamynd Reuter Eyðniráðstefnan í Amsterdam: Enn ekki vitað hvernig HlV-veiran veldur eyðni Þrátt fyrir áratugarannsóknir geta vísindamenn um allan heim ekki enn svarað þeirri grundvallarspurningu hvemig HíV-veiran veldur eyðni- sjúkdómnum. Kom þetta meðal ann- ars fram á ráðstefnunni um eyðni sem nú er haldin í Amsterdam í Hol- landi. í gær voru lögð fram gögn sem sýndu að tugur manna hefur fengið eyðni án þess að hafa reynst jákvæð- ur á HlV-prófi. Þykir þetta sanna enn fremur hversu mikið vantar ennþá upp á þekkingu manna á sjúkdómn- um. Dr. Anthony Fauci, yflrmaður eyðnirannsókna í Bandaríkjunum, heldur því fram að svo kunni að fara að vísindunum muni aldrei takast að afhjúpa öll þau leyndarmál sem sjúkdóminn umlykja. Sagðist hann ekki vera viss um að mannkyninu tækist að skilja hvert smáatriði sjúk- dómsins en eftir nokkur ár ættu menn að búa yfir meiri þekkingu á honum. Vanþekking á því hvað gerist frá þeirri stundu sem manneskja smitast áf sjúkdómnum og þangað til hún fær eyðni er aðalhindrunin í vegi visindamanna og hefur komið í veg fyrir að hægt sé að þróa bóluefni eða ráða niðurlögum sjúkdómsins. Ýmsar kenningar hafa verið á loffl um eyðni og nokkrir vísindamenn hafa jafnvel haldið því fram að HIV- veiran eiga engan þátt í sjúkdómn- um. Þessu hefur þó verið hafnað og forsvarsmanni kenningarinnar var ekki boðið að halda ræðu á ráðstefn- unni. Aðrir visindamenn segjast hafa gögn í höndunum sem sýna fram á að aðrir hlutir, eins og næring og til- vera annarra kynsjúkdóma, eigi stærstan þátt í því að fólk fái eyðni. Fauci heldur því fram að í lokasvar- inu muni líklega felast ailar þær kenningar sem komið hafa fram um Sjúkdóminn. Reuter Samnorrænt vamarbandalag: Bildt segir nei Carl Bildt, forsætisráðherra Sví- þjóðar, hefur hafnað tillögu yfir- manns sænska hersins um að hugs- anlegt varnarbandalag Norðurlanda sé góður kostur fyrir Svíþjóð og að frekar eigi að huga að því en aðild að Vestur-Evrópusambandinu, varn- ararmi Evrópubandalagsins. „Vamarbandalag Norðurlanda myndi ekki auka á öryggi Svíþjóðar, það gæti jafnvel dregið úr því. Það mun hvorki vera valkostur við hlut- leysi okkar né valkostur við aðild að Vestur-Evrópusambandinu,“ segir í vfirlýsingu frá Bildt. Bengt Gustafsson, yfirmaður sænskrahermála sagði í viðtali við Sydsvenska Dagbladet fyrir skömmu að vamarbandalag Norðurlanda væri fýsilegur kostur fyrir Svíþjóð þar sem hann efaðist um vilja landa eins og Þýskalands eða Frakklands. Á fimmta áratugnum lagði Svíþjóð til að Norðurlöndin stofnuðu með sér hlutlaust vamarbandalag fremur en að ganga til liðs viö Atlantshafs- bandalagiö, Nato. Sú hugmynd féll um sig sjálfa þegar Noregur og Dan- mörk ákváðu að ganga í Nato. - Utanríkisráðherrar Noregs og Danmerkur hafa einnig nú tekið fá- lega í hugmyndina og segja hana ekki áhugaverða. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.