Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1992, Qupperneq 8
8
MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 1992.
Váleo
BÍLARAF H/F
BORGARTÚNI 19, SÍMI 24700-624090
ALTERNATORAR & STARTARAR
í BÍLA - BÁTA - VINNUVÉLAR - VÖRUBÍLA
Útlönd
George Bush Bandaríkjaforseti gerði hlé á kosningabaráttu sinni um helgina og hélt fund í Camp David með
öryggisráðgjöfum sínum til að ræða til hvaða aðgerða skyldi grípa gegn írökum. Simamynd Reuter
Á SÍLDARÆVINTÝRIÐ
Á SIGLUFIRÐI
MEÐ
SUÐURLEIÐUM
Upplýsingar á BSÍ
í síma 22300
FÓLKSBÍLA
Chevrolet. Ford, Dodge, Cherokee, Oldsmobile.
Diesel, Chevrol. 6,2, Datsun. Mazda, Daihatsu,
Renault. Mitsubishi. Toyota, Citroe...n, M. Benz,
Opel, BMW, Golf, Peugeot. Saab, Volvo. Ford
Escort, Sierra, Range Rover, Lada. Fiat o.fl. o.fl.
SENDIBÍLA
M. Benz 207 D. 209 D. 309 D, 407 D, 409 D,
Peugeot, Ford Econoline. Ford 6,9 L, Renault.
Volvo, Volkswagen, o.fl. o.fl.
VÖRUBÍLA
M. Benz, Scania, Man, GMC. Volvo, Bedford o.fl.
VINNUVÉLAR
JCB, M. Ferguson, Ursus, Zetor, Case, Deutz.
Cat, Breyt o.fl.
BÁTAVÉLAR
BMW, Bukh, Caterpillar, Ford, Cummings. Iveco,
Mann, Mercury Mercruiser, Perkins, Lister.
Sabb, Volvo-Penta, Renault o.fl.
Sikiley:
Herinn sendur gegn maf íunni
ítölsk stjómvöld fluttu hermenn
flugleiöis til Sikileyjar í gær og verö-
ur hlutverk þeirra að berjast gegn
maflunni. Stjómin fullvissaði Itala
um að þetta væri þó ekki forsmekk-
urinn að hervæðingu eyjarinnar.
„Þetta er ekki hervæðing Sikileyj-
ar. Herinn er ekki að taka við lög-
gæslu. Hún verður í höndum borg-
aralegra yfirvalda og herinn vinnur
með þeim,“ sagði Giuho Amato for-
sætisráðherra.
Stjóm Amatos ákvað á laugardag
að senda sjö þúsund hermenn til Sik-
ileyjar og hafa ekki íjölmennari her-
sveitir verið notaðar í baráttunni
gegn skipulögðum glæpasamtökum í
fjörutíu ár.
Ákvörðunin var tekin sex dögum
eftir morðið á mafíudómaranum Pa-
olo Borsellino. Hann og fimm fylgd-
armenn hans vom sprengdir í loft
upp í Palermo.
Nokkrir embættismenn og stjóm-
málaskýrendur gagnrýndu ákvörð-
un stjórnarinnar og sögðu að herinn
væri besta leiðin til að beijast gegn
mafíunni.
Reuter
Skálmöldln í Bosmu-Hersegóvínu:
Engin hjálp til Gorazde
á kvöldin í alltsumar.
Einnig bjóðum viðgestum
að velja afhinum frábcera
sjávarrétta- ogsérréttamatseðli.
ílÍÍ BORÐAPANTANIR í SÍMA 25700.
•fíft
CHATEAUX.
Að sögn talsmanns Sameinuðu
þjóðanna í Sarajevo, Miks Magnús-
sonar, var tiltölulega hljótt í Sarajevo
í nótt. Eitthvað var samt um að
sprengjuvörpum væri beitt og skot-
bardaga. Nokkuð var um bardaga í
gamla hluta borgarinnar, fyrir norð-
an ólympíuleikvanginn. Og enn eina
ferðina var mest um átök í Dobrinja-
hverfinu.
Hópin- Frakka kom til Sarajevo í
morgun til að taka við gæslu á flug-
vellinum. Frakkamir er um 400 og í
hópnum er hjúkrunarfólk og land-
gönguliðar. Einnig hafa komið sveit-
ir frá Egyptalandi og Úkraínu. Munu
þessar sveitir koma í stað kanadískra
sveita en þær munu fara aftur til
Króatíu.
Forseti Bosníu, Alija Izetbegovic,
sagði í morgun aö fulltrúar hans
myndu ekki setjast við samninga-
borðið með Serbum í Lundúnum í
dag eftir að sveitir Sameinuðu þjóð-
anna gáfust upp við að reyna að
koma hjálpargögnum til um 70.000
Lítil stúlka l sarajevo litur ut um dyrnar á helmlli sinu eftir að smáhlé var
gert á bardögunum þar. Sfmamynd Reuter
íbúa Gorazde. Leiðtogar Bosníu hafa þeirra gagnvart vestrænu hjálpar-
ekki farið leynt með að þolinmæði starfieráþrotum. Reuter
MaryWells
látin
Bandaríska blökkusöngkonan
Mary Wells, sem var meðal hinna
þekktu söngvara Motownútgáf-
unnar á sjöunda áratugnum, lést
i gær úr krabbameini, aðeins 49
ára að aldri. Hún reykti ávallt tvo
pakka af sígarettum á dag.
Wells var fædd og uppalin í
Detroit i Michiganfýlki og fór að
syngja hjá Motown aðeins 18 ára
að aldri. Vinsælasta lag hennar
var My Guy en einnig söng hún
mörg lög með Smokey Robinson.
Reuter
Deilur íraka og Sameinuðu þjóðanna:
Stríðinu aflýst í bili
George Bush, forseti Bandaríkj-
anna, gaf til kynna í gær að hættan
á hemaðaraðgerðum gegn írak væri
liðin hjá en útilokaði samt ekki þann
möguleika að enn gæti komið til
árásar á írak ef írösk stjómvöld fæm
ekki að tilmælum Sameinuðu þjóð-
anna.
Bush kallaöi Saddam Hussein, leiö-
GERUM GÖT A EYRU
ERUM NÝBÚIN AÐ FÁ NEFLOKKA
HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG
STOFNUÐ 1918
SÍMI 13010
toga íraka, kaupmann dauðans og
sagði að hann hefði gefið eftir í deil-
um sínum við Bandaríkin og banda-
menn þeirra. Hafði Hussein ákveðið
að leyfa eftirUtsnefnd frá Sameinuðu
þjóðunum að fara inn í landbúnaðar-
ráðuneytið í Bagdad.
Deilur íraka við Sameinuðu þjóð-
imar hófust að nýju er sérlegri
vopnaeftirlitsnefnd frá samtökunum
var meinað að fara inn í landbúnað-
arráðuneytið en talið var að þar
leyndust gögn og ýmsar aðrar upp-
lýsingar um kjamaoddaáætlanir og
einnig um eldflaugar. Eftir að nefnd-
in hafði staðið vörð um ráðuneytið í
18 daga gafst hún upp.
Náöist samkomulag í málinu eftir
fund sendiherra íraks hjá Samein-
uöu þjóðunum, Abdul Amir Al-
Anbari, við Rolf Ekeus sem er for-
maður nefndar sem á aö sjá um að
írakar eyði vopnaforða sínum. Féllst
Al-Anbari á að Sameinuðu þjóðirnar
skipuðu nýja eftirlitsnefnd og verður
formaður hennar Þjóðverjinn Achim
Biermann. Þeir nefndarmenn sem fá
aðgang að ráðuneytinu verða frá öðr-
um þjóöum en þeim sem tóku þátt í
Persaflóastríöinu. Auk Biermann
verða í nefndinni annar Þjóöveiji,
tveir Rússar, Svisslendingur, Finni
og Svíi. Að vísu verða einnig tveir
Bandaríkjamenn með í fórinni en
þeir munu ekki fá aðgang að ráðu-
neytinu heldur verða þeir að bíöa
fyrir utan.
Reuter