Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1992, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1992, Qupperneq 18
18 MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 1992. TIL SÖLU 1 jjf/ / V i 4 $ V. ; Jí / V 'i rm Ád | ; 1 @ 0 Höfum tll sölu úrval af rafmagns- og dísil- lyfturum, 2ja til 3ja tonna. fn\ Frystfgámur,40ft. Verö kr. 300 þús. + vsk. Hyster lyftari, 12 t lyftigeta, árg. 1990. GóAur fyrir hafnir, skipaafgrelðslur og þungaiðnað. Verð 4,5 millj. + vsk. Góð kjör. JCB Loader 530-120, árg. 1990. Fjölnota- lyftarl. Lyftigeta 6 t, lyftihæð 12 m, 4x4 drif og stýri. Margvíslegt notagildi. Verð 3,9 millj. + vsk. International TD 15C jarðýta, árg. 1982. Verð 1,8 millj. + vsk. Góð kjör. Krókaleyfisbátur, 4,41, smfðaður hjá Sam- taki 1985, vél Yanmar, 40 hö. Þarfnast lagfæringar. Verð tilboð. Fiskvlnnsluvélarffiskvinnslubúnaður. Höf- um til sölu mikið úrval af fiskvlnnsluvél- um, vinnslukerfum, þvottakörum, fiskstig- um, flæðllinum, vogum, ftokkunarvélum, hausurum, frystitækjum, frystipressum, roðflettivélum, flatnings- og flökunarvél- um, m.a. Baader 188,189,185, 440,150, 175,190 og fl. Leitum tilboða og aðstoðum þlg við hagkvæmustu kaupln. Sýningarsalur okkar að Faxa- skála 2 við Reykjavíkurhöfn (sama hús og Faxamarkaðurinn) er opinn alla virka daga frá kl. 8 tll 17. Tökum til sölumeðferðar vel með farnar vélar og tœki til fiskvinnslu og útgerðar. Verið velkomin. SOLUÞJÓNUSTA ATVINNUVEGANNA Faxaskála 2, Reykjavik, siml 91-623518, fax 91-27218 Menning íslensk áhugaleikfélög: 60 leikfélög störf- uðu á síðasta leikári Gífurleg aukning var á milli ára í starfi áhugamannaleikfélaga á land- inu. í skýrslu, sem bandalag ís- lenskra leikfélaga hefur gert, kemur í ljós að gróskan hjá félögunum hefur aldrei verið meiri. Sextíu leikfélög störfuðu á síðasta leikári og settu upp samtals 89 verkefni af ýmsum stærð- um og gerðum. Þetta er gífurleg aukning frá því í fyrra þegar fimmtíu leikfélög settu upp sjötíu og fmrni verkefni. Þetta er mjög blómleg starf- semi þegar hafður er í huga efna- hagslegur samdráttur í þjóðfélaginu og niðurskurður á fjárframlögum ríkisins. Á síðasta ári var framlag ríkisins til sameiginlegrar miðstöðvar leikfé- laganna skert á fjárlögum yfirstand- andi árs frá því sem verið hafði og framlag ríkisins til starfsemi leikfé- laganna hefur ekki haldið verðgildi sínu undanfarin ár. Þetta gerir áhugaleikfélögum erfitt um vik því sveitarfélögin eru flest það illa sett fjárhagslega að þau geta tæpast hlaupið undir bagga. Félögin hafa nú sótt um aukafjár- veitingu frá ríkinu svo ekki þurfi að koma til lokunar þjónustumiðstöðv- arinnar í Hafnarstræti 9 sem sér leik- félögunum fyrir allri þjónustu sem þau þurfa á að halda, má nefna hand- rit að leikritum, miliigöngu um þýð- ingu verka, hún útvegar leikstjóra og gætir allra hagsmuna fyrir félögin úti á landi. Þegar teknar eru saman upplýs- ingar úr ársskýrslum leikfélaganna kemur í Ijós aö þau áttatíu félög, sem aöild eiga að Bandalagi íslenskra leikfélaga, hafa samtals 4.500 félaga innan sinna vébanda. Þar sést einnig að þau sextíu leikfélög sem, settu upp verk á síðasta leikári, sýndu samtals 620 sinnum fyrir 66.500 áhorfendur. Eitt af þeim leikritum á vegum áhugamannaleikfélaga, sem vakti athygli á síðasta ári, var uppsetning Hugleiks á Fermingarbarnamótinu. Leikstjóri þess var Viðar Eggertsson. Virkir þátttakendur í þessum sýn- stærri hópur nýtur afraksturs tóm- ingum voru ekki færri en 3.800. Af stundaiðju þeirra sem virkir eru. þessu sést að hér leggur umtalsverð- -HK ur fjöldi fólks hönd á plóg og enn íslensk listakona í Svíþjóð: Seldi 27 myndir á sýningu Ægir Már Kárasan, DV, Suðumesjum; Inga Benny Eyleifs hefur vakið mikla athygU í Svíþjóð fyrir sína fyrstu málverkasýningu sem hún hélt á dögunum í Skarpnáck sem er í útjaðri Stokkhólms. Þar sýndi hún 52 myndir í menningarmiöstöð stað- arins og seldi hún 27 myndir sem þykir mjög gott. Inga Benny er 36 ára, ættuð úr Keflavík og hefur verið búsett í Sví- þjóð í 15 ár. Hefur hún málað í frí- stundum en hún er lærður sjúkrahði og er það hennar aðalstarf en einnig er hún snyrtifræðingur aö mennt. Þaö verður framhald á sýningum hjá Ingu Benny í Svíþjóð því hún sótti um að fá að sýna verk sín á mikilli listahátíð, „Water festivaT, sem fer fram í Stokkhólmi 8.-9. ág- úst. Það þykir mjög erfitt að komast inn á þessa myndlistarhátíð og í ár sóttu 2000 listamenn um þátttöku en aöeins voru valdir 275 úr þessum hópi og var Inga Benny á meðal þeirra og þykir það mikiil heiður fyr- ir hana. Mun hún sýna 15 málverk á sýningunni. W 4k, Bi ■K ««J|b|||A niðiit ii vefo- KauníZagreb Á alþjóölegri brúðuleiksýn- ingahátíð, sem haldin er árlega í : Zagreb í Króatíu, hlaut nýverið leikrit læikbrúðulands, Bannað að hlæja, 1. verðlaun. Hátiðin er ein stærsta sinnar tegundar í Evrópu og ávallt vel sótt og er þetta rnikill heiður fyrir Leik- brúðland að fa þessa viðurkenn- ingu en þtiggja manna dómnefnd var skipuð aðilum frá Króatiu. Slóveníu og Þýskalandi. Bannað aðhlæja varsýnt hérsíðastliðinn vetur við góða aðsókn og fékk sýtúngin mjög góða dóma gagn- rýnenda, í úrskurði dómnefndar- innar í Zagreb segir meðal annars að Leikbrúðulandi hafi tekist af mikilh kunnáttu, samfara kímni, að snúa texta sem byggður sé á Eddukvæðum sem snúið sé upp á nútímann þar sem mannkynið er varað við vistfræðilegum vandamálum í framtíðinni. Þá er tækninni, sem beitt er, hælt og segir t úrskurðinum að Leik- brúöuiand hafi enn einu sinni sjmt fram á hversu ótal mögu- leíkar eru til í framsetningu. Bjartur og frú Emelía Sjöunda tölublaö menningar- tímaritsins Bjartur og frú Emiha, sem fjallar um bókmenntir og leikhst, hefur nú litið dagsins ljós. í ritinu er meðal annars kynning á franska leikritahöfundinum Bemard Marie-Koltés en leikrit hans ltafa vakiö mikla athygh og birt er stutt leikrit eftir hann. Af öðm efni má nefita tvær smásög- ur eftir lan McEwan, Kristín. Ómarsdóttir ræðir við Sjón og ljcð úr nýrri ljóðabók eftir Sigfús Bjartmarsson, sem kemur út í haust, eru birt, Tímaritið Bjartur og frú Emilia kemur út íjórum sinnum á ári og kostar eintakið 1992 krónur og hækkar það um 1 krónu ár hvert. Götuvísa gyðingskemur útlÞýskalandi Skáldsaga Einars Heimissonar, Götuvísa gyöings, sem kom út hér á landi 1989, mun verða gefin út í Þýskalandi. Það er forlagið Foram sem mun gefa bókina út en Foram er eitt framsæknasta forlag i Þýskalandi, sprottið upp úr þeirri þjóöfélagsbyltingu sem varð 1990 og hafa útgáfubækur þess vakið mikla athygli undan- farið. Þess má geta að Götuvísa gyðings var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna á sirn um tíma. Stuttmyndin Ókunn dufl tekur nú þátt í gamanmyndahátiðinni í Vevey í Sviss. Hátlðin er ná- tengd nafni Charhe Chaplins enda haldin í bænum sem hann bjó í 25 ár og er hátíöin til heið- urs minningu hans. Forseti hátíð- arinnar er sonur Chaplins, Eug- ene, og vemdari hennar er Oona, ekkja snillingsins. I flokknum sem Ókunn dufl er sett í mun myndln kepppa við fimm aðrar af svipaörl lengd. Skipuleggjarar hátiðarinnar hafa lagt áherslu á að fá þekkt fólk til að silja í dóm- nefhdum og hafa þar setið meðal annarra James Mason, Capudne, Grace Jones, Benny Hhl og Au- drey Hepbum. Leiksljóri Ókunns dufls er Sigurbjöm Aðalsteinsson en með aöalhlutverldn fara Þröstur Leó Gunnarsson og Valdiraar Öm Flygenring.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.