Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1992, Qupperneq 32
44
MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 1992.
Halldór Ásgrímsson.
Ápólitísku
steinaldar-
stigi
„Við getum aðeins vonað að
þróunin snúist ekki við hjá Fram-
sóknarflokknum: Þaö hefði
skelfilegar afleiðingar fyrir
stjóramálaflokk sem er á póht-
ísku steinaldarstigi,“ sagði í Rök-
stólum Alþýðublaðsins.
Dómarafígúra
Ummæli dagsins
„Það var ekkert á þetta. Ég er
ekki vanur að tala illa um dóm-
ara en þessi maður er fígúra.
Hann getur ekki leyft sér að gera
svona hluti og brosa síðan að öllu
saman,“ sagöi Atii Eðvaldsson
knattspymukappi eftir mjög svo
umdeildan vítaspymudóm sem
gerði bikarvonir KR að engu.
Oflaunaðir prestar
„Það eru raunar nokkrir prest-
ar sem héldu því fram, í kjölfar
fyrri úrskurðar Kjaradóms, að
það opnaðist hætta á að við yrð-
um daufari á neyðina í þjóðfélag-
inu; að við yrðum svo mikill
launaaöall," sagði Geir Waage,
formaður prestafélagsins.
BLS.
::'^^ntj.lC>:«+»:«+*>;«+>»:«+»>:«+»>:«+*>:«+»>:«+»> Atvírwa í boöl. >+*.>+*.>+*.>+». Atvirma óskast 34 +...+..<+.•<+.39 :: 38
Atvinnuhúsnæði 38
Barnagæsla Bát#f................................ 38 36,41
Bílateiga 37
Bílaróskast Bllartílsölu Bólstrun 37 37,41 34
Dýrahatd Einkamál Fasteígnir 35 38 36,40
Fyrir ungbörn 33
Fyrir veiöimenn Fyrirtœki Garðyrkja 36 36 .38
Heimilistæki Hestamennska... 33 35
Smáauglýsingar
Hjót Hjóibarðar Hljóðfæri 35 38 33
Hreíngerningar Húsaviðgerðir Húsgögn; 38 39
Húsnæðí 1 boðí ... 37
Húsnæðióskast 38 Kennsla - námskeíð 38 Landbúnaðartæki 39 Ijósmyndun 34 Lyftarar 37 Málverk 34
Nudd 39
Óskast keypt Sjómennska Sjónvörp.. .«...>+».«+...33 38 34
Sptákonur......................... Sumarbústaðir Tennabiónusta 38 36,40 34
Til bygginga 39 Til sölu 33^39
Tölvur 34
Vagnar - kerrur Varahlutir Verðbróf 36,40 36,41 38
Verslun Víðgerðir Vinnuvólar 33,40 38 .37,41
Vldeó Vörubilar Ýmislegt 35 -...36 38,41
Þjónusta Ökukennsla 38,41 38
Léttskýjað að mestu sunnanlands
Á höfuðborgarsvæðinu verður
norðvestangola og skýjað með köfl-
um í dag. Gengur í sunnan- og suð-
austankalda í kvöld og nótt með rign-
Veðriðídag
ingu. Hiti 8 til 10 stig.
Á landinu verður minnkandi norð-
an- og norðvestanátt með súid eða
rigningu norðan- og norðaustan-
lands í fyrstu. Víða hægviðri og úr-
komulaust þegar líður á daginn.
Gengur í sunnan- og suðaustanátt
með rigningu sunnan- og vestan-
lands í nótt en léttir þá til í bili um
norðan- og austanvert landiö. Hiti 6
til 12 stig.
Á hálendinu má búast við norðan-
og norðvestanátt með dálítilli rign-
ingu eða súld um mið- og norðanvert
hálendið en björtu veðri sunnantil.
Hiti á bilinu 4 til 7 stig. í kvöld og
nótt verður suðlæg átt og hlýnar
heldur. Sunnan- og vestantil fer að
rigna en léttir til norðan jökla. Á
morgun rignir líklega víðast hvar.
Klukkan 6 í morgun var norðan-
og norðvestangola eða kaldi á land-
inu. Norðan- og norðaustanlands var
ennþá rigning en súld á Vestfjörðum
og þokumóða við suðausturströnd-
ina. Hiti 5 til 10 stig.
Við suðausturströnd landsins er
994 mb lægð sem þokast norðaustur
en vaxandi lægð suður af Hvarfi,
einnig á norðaustm-leið.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri alskýjað 7
Egilsstaðir rigning 9
Galtarviti súld 6
Hjarðames þoka 7
KeGavíkurflugvöllur skýjað 9
Kirkjubæjarklaustur skýjað 10
Raufarhöfn súld 6
Reykjavík léttskýjað 9
Vestmannaeyjar léttskýjað 9
Bergen skúr 12
Helsinki skýjað 20
Kaupmannahöfn skýjað 18
Ósló skýjað 13
Stokkhólmur léttskýjað 17
Þórshöfn rigning 10
Amsterdam rigning 17
Barcelona þokumóða 22
Berlín háifskýjað 18
Frankfurt léttskýjað 18
Glasgow léttskýjað 11
Hamborg skýjað 18
London léttskýjað 14
Lúxemborg léttskýjað 17
Madrid léttskýjað 20
Malaga þokumóða 21
Mallorca þokumóða 20
Montreal léttskýjað 21
New York þokumóða 22
Nuuk alskýjað 4
París léttskýjað 18
Róm þokumóða 24
Valencia heiðskírt 20
Vin heiðskírt 20
Winnipeg skýjað 14
'j Y 7 A
+a— <<v\
c . I
■'tl
Veðrið kl. 6 í morgun
Þrátt fyrir krepputalið og dag-
legar fréttir af gjaldþrota fyrirtækj-
um er enn hægt aö finna unga at-
hafnamenn og konur sem eru
óhrædd við að reyna eitthvaö nýtt.
Við Rauðarárstíg er að finna lítiö
og notalegt kafííhús sem hefur ver-
ið starfrækt i hartnær mánuð. Bak
við afgreiðsluborðið stendur Stein-
; unn Haröardóttir 30 ára tveggja
barna móðir sem lætur engan bil
bug á sér finna.
„Ég var búin að vinna í nokkur
ár á veitingastöðum og ákvað að
láta slag standa eftir að hafa gengið
með hugmyndina í maganum í tíu
ár, Það var ekki um neitt að ræða.
Það yrði nú eöa aldrei. Ég kom
auga á húsnæðíö og sá strax fyrir
mér hvernig þetta átti að vera.“
Þegar Steinunn var spurð hvort
þetta væri ekki áhælta sem hún
tæki með þessu svaraði hún því til
að það væri ekki annað hægt en
aö taka áhættu.
„Þetta hefur gengið vel hingað
Steí nunn HaröardóWr.
til. Hér koma sömu aðilarnir dag
eftir dag og alltaf bætast við ný og
ný andiit. Með mikilii vinnu hlýtur
þetta aö ganga."
KR-Fram
í mætast
Frosta-
skjoli
Aðalleikur kvöldsins er viður-
eign Reykjavíkurrisanna KR og
Fram. Liöin mætast á KR-vellin-
um og hefst viðureign þeirra
klukkan 20- Liðin hafa verið á
Íþróttiríkvöld
líku róli í sumar og þetta verður
því toppslagur í kvöld. Það lið
sem sigrar á góöa möguleika á
að fylgja Akranesliðinu en staðan
er að sama skapi slæm ef leikur-
inn tapast
1. deiid karia:
KR-Fram ki. 20.
Ólympluleikarnlr:
Ísland-Brasilía kl. 12.30.
Skák
Þessi staða er úr lokaskákinni í úrslita-
viðureign atskákmótsins 1 Brussel sem
sagt var frá í helgarblaðinu. Enski stór-
meistarinn Michael Adams hafði hvitt
og átti leik gegn Þjóðverjanum Eric Lobr-
on. Adams nægði jafntefli í skákinni til
að vinna einvígið og sigra á mótinu. Fékk
óvænta þjálp frá mótherjanum:
29. dxe6 Bxe6?? 30. Db7 + og Lobron gafst
upp. Hrókurinn á a8 fallinn og eftirleik-
urinn auðveldur. Svartur varð að leika
29. - Dxe6 og staðan ætti þá að vera í jafn-
vægi.
Jón L. Árnason
Bridge
Það hefur komið nokkuð á óvart hve
danska unglingalandsliðinu gekk illa á
Evrópiunóti yngri spilara í bridge sem
lauk í gær. Danir hafa jafnan átt á að
skipa góðum sveitum meðal yngri spilara
sem oft hafa verið í baráttunni um efstu
sætin á Evrópumótum en að þessu sinni
var það hlutskipti sveitarinnar að berjast
við botninn aBan tímann. Þegar illa geng-
ur reyna menn oft í örvæntingu sagnir
sem þá myndi undir venjulegum kring-
umstæðum ekki dreyma um að nota.
Mathias Bruun úr unglingaliði Dana reið
ekki feitum hesti frá fárveikri hindrunar-
sögn sinni gegn sveit ítala á mótinu.
Noröur gjafari og enginn á hættu:
* G103
V G652
♦ DG93
+ K4
* Á862
V 9874
♦ 764
+ 52
♦ KD9
V Á3
♦ ÁK52
4» Á1086
♦ 754
V KD10
♦ 108
* DG973
Norður Austur Suður Vestur
Pass 1+ 3* Dobl
p/h
Eitt lauf austurs var sterkt og lofaði 17
eða fleiri punktum og Mathiasi fannst
hann endilega þurfa að trufla sagnir.
Dobl vesturs sýndi einfaldlega 8 eða fleiri
punkta og austur var hæstánægður með
að spila vömina í þremur laufúm. Vestur
spilaði út tíguldrottningu, næsta slag átti
austur á tígulkóng og síðan var spaða
spilað. Er upp var staðið fékk sagnhafi
ekki nema 4 slagi og AV fengu 1100 stig
í sinn dálk. Það var litið upp í 400 sem
AV fengu á hinu borðinu fyrir þijú grönd
slétt staöin. ítalia vann leikinn 25-5.
ísak örn Sigurðsson