Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1992, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1992, Qupperneq 23
MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 1992. 39 Fréttir „Þetta gengnr Jjómanái vel og ekki síst þegar veöur er gott ís- lendingar ferðast ekki mikiö í roki og rigningu en útlendingum stendnr nokkuö á sama. Við for- um í svonefnda Suðureyjarsigl- ingu og er um þrjár leiðir að veija. Vinsæiasta leiðin tekur rétt röskar tvær klukkustundir sagði Ólafur Sighvatsson, skip- stjóri í ferðamannabát Eyjaferða í Stykkishólmi. Þetta er gangmik- ill bátur sem tekur 62 farþega. „Við förum alit upp 1 fSmm tíl sex ferðir á dag. Sumarið núna er ekki hægt að bera saman við siðasta sumar. Það var alveg sér- stakiega gott“ Væntanlegum far- þegum um borö er óhætt að treysta Óiafi fyrir lifi og limum því að hann er gamalreyndur skipstjóri - var á fiskibátum fyrir vestan í æ ár. Aðspurður sagði Ólafúr að það væri ágætt að sigla með ferða- menn en heidur kysi hann að veiða þann gula. „Áhugi útlend- inga á íslenskri náttúru er dálítið sérstakur. Þjóðverjar haía td. óhemju mikinn áhuga á lunda. Sjái þeir lunda er ferðin fullkom- in.“ -ask Nýjar hugmyndir um baðstaðinn við Bláa lónið: Ferðamenn vilja náttúrulegt lón - segir Gunnar Þorsteinn Halldórsson leiðsögumaður „Þegar maður hefur skýrt út fyrir ferðamönnunum að þetta heita vatn væri ekki héma ef verksmiðjunnar nyti ekki við finnst þeim það hið besta mál - þeim finnst þetta miklu merkilegra fyrir vikið og staðurinn athyglisverður," sagði Gunnar Þor- steinn Halldórsson leiðsögumaður sem DV hitti við baðstaðinn í Bláa lóninu í góða veðrinu á dögunum. Gunnar sagðist vera andvígur þeirri hugmynd, sem fiam hefur komið, að byggja sundlaug í ná- grenni við Svartsengi, þar sem Bláa lónið er, - sundlaug sem kæmi í stað- inn fyrir hið hefðbundna lón. Þannig yrði lóninu lokað og vatni dælt yfir í sundlaugina. „Það sem ferðamönnunum finnst athyglisvert er einmitt þetta um- hverfi sem hér er,“ sagði Gunnar. Hann sagði á hinn bóginn að aðstöð- una í Bláa lóninu mætti stækka og bæta því þrengsli mynduðust stund- • um þegar 3-4 rútur kæmu með ferða- menn á staðinn. „Eg ætla jafnvel að koma hingað aftur á næsta ári,“ sagði Walter Trefzger frá Svartaskógi í Þýskalandi sem var afar spenntur fyrir vatninu og umhverfinu í Bláa lóninu. DV-mynd JAK Ökuleikni ’92 á Selfossi: Þórarinn ók manna best Brynjax M. Valdunaisson, DV, Ökuleilaii '92; Krakkamir stóðu sig með prýði í hjólreiðakeppmnni sem haldin var á Selfossi. Keppni í eldri flokki var mjög hörð. Þar sigraði Öm Gunn- þórsson með 52 refsistig. í öðm sæti lenti Jón Þór Jóhannsson með 56 refsistig og aðeins einu stigi ofar í þriðja sæti kom Andrés B. Andreas- en. í yngri flokki hjólreiðakeppninnar sigraði Davíð Öm Adamsson með 85 refsistig, Eyjólfur Viðar Grétarsson varð annar með 92 refsistig og í þriðja sæti varð Sigurjón Valgeir Hafsteins- son með 103 refsistig. í ökuleikni sigraði Þórarinn Bjamason í karlaflokki. Þórarinn hlaut 138 refsistig, Óskar Andreasen varð annar með 143 refsistig og þriðji Steindór Guðmundsson með 154 refsistig. Guðrún Karlsdóttir varð hlutskörpust kvennanna með 255 refsistig, næst kom Sigríður Bergs- dóttir með 284 refsistig. í flokki byrj- enda var Reynir Þórðarson með 148 refsistig. Gefendur verðlauna í ökuleikni vom Guðnabakarí og Gjáin á Sel- fossi. Verðlaun í hjólreiðakeppni gaf Fálkinn sem fyrr. Sigurvegarar í hjótreiðakeppni á Súöavik í flokki fullorðinna og bama en þar var keppt í fyrsta sinn. Ökuleikni ’92 á Súðavik: Hjólreiðakeppni ífyrstasinn t lkilfíljU ii mtiregishiíá Brynjar M. Valdimaisaan, DV, Ökuleikm '92: í fyrsta sinn var haldin hjólreiða- keppni í ökuleikninni á Súðavík í sumar. Bæði böm og fuUorðnir tóku þátt i keppninni Sigurvegari í yngri flokki varð Kristján Jón Jónatansson með 43 refsistig, Guðmundur Ingi Hinriksson varð annar með 64 refsi- stig og þriðji varð Eðvarð Kristinsson með 66 refsistig. í eldri flokki sigraði Jörundur Ragnars með 71 refsistig, Ingi Bjartur Már varð annar með 84 refsistig og Elías Þorbjamarson kom þriðji með 102 refsistig. Nokkrir fullorðnir reyndu sig á hjólunum. Þar varð Snorri Gunnar Steinsson efstur með 64 refsistig, aldursforsetinn Heiðar Guðbrandsson varð annar með 106 refsistig og Armann Heiðarsson fékk bronsið fyrir 117 refsistig. Verðlaunahafar i fiokkum karla, kvenna og byrjenda í ökuleikninni á Selfossi. Ökuleíkm ’92 á Þórshöfii: Þorsteinn varð öruggur sigurvegari Hjólreiðakappar á Þórshöfn með verðlaunin sín. BrynjarM. Valdimarsaan, DV, öknleikm '92; Tveir keppendur í eldri flokki hjól- reiðakeppninnar á Þórshöfii urðu jafnir í efsta sæti með 61 refsistig og urðu að keppa að nýju. Þá sigraði Guðmundur Sigurðsson með 40 refsi- stig en Hjalti B. Axelsson fékk 69 refsistig. í þriðja sæti varð síðan Axel Albert Jensen með 68 refsistig. Yngri flokkinn sigraði Albert Jón Hólm með 58 refsistig, Guðmundur Amar Guðmundsson annar með 84 refsistig og þriðji Hörður Már Hen- riksson með 102 refsistig. í karlaflokki ökuleikninnar sigraði Þorsteinn Þorbergsson með 173 refsi- stig, Snævar Hauksson varð annar með 198 refsistig og Þórður Ólafsson þriðji með 203 refsistig. í kvenna- flokki sigraði Jónína Samúelsdóttir með 234 refsistig og í flokki byrjenda var Hildur Salína með 194 refsistig. Gefandi verölauna í ökuleikni var Sparisjóður Þórshafnar og nágrenn- is.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.