Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1992, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992.
Fréttir
Enn ágreiningur milli stj ómarflokkanna um fj árlagafrumvarpið:
Vaxandi deilur
um virðisaukann
- ný þyrla verður ekki keypt á næsta ári
Eitt viökvæmasta málið í fjárlaga-
gerðinni er hvort taka eigi upp tvö
þrep í virðisaukaskatti og afnema
allar eða flestar undanþágur. Innan
Alþýðuflokksins er andstaða við
þetta og reyndar einnig innan Sjálf-
stæðisflokksins. Eftir að DV og síðar
aðrir fjölmiðlar birtu fréttir um fyr-
irhugaöar breytingar hefur orðið
vart mikillar óánægju og hefur hún
dregið kjark úr mörgum stjómar-
þingmönnum. Fullyrt er að meðal
ráðherra Alþýöuflokksins séu raddir
sem vilji fara varlega í allar þær að-
gerðir sem skaddað geta ímynd
flokksins. Jón Baldvin Hannibalsson
og Jón Sigurðsson munu hins vegar
vilja halda ótrauðir áfram á þeirri
braut sem mörkuð hefur verið í nið-
urskurði.
Þorsteinn Pálsson sagði í nótt að
verið væri að skera alls staðar niður.
Það fer reyndar ekki á milli mála og
ekki hitt heldur, að það er fjarri að
samstaða sé innan sfjómarinnar, um
hvað og hvernig verður skorið. Sem
dæmi má nefna aö Sighvatur Björg-
vinsson heilbrigðis- og trygginaráð-
herra vill ekki taka í mál að eigna-
tekjutengja lífeyrissgreiðslur - nema
þá á móti komi lögfesting á fjár-
magnstekjuskatti sem komi að fullu
til framkvæmda á árinu 1994.
Konumar, í báðum þingflokkum,
hafa lagst gegn skerðingu á fæðing-
arorlofi. Þá hafa kratar fengið það
út úr myndinni að sett veröi á skóla-
gjöld í framhaldsskólunum.
Rætt hefur verið um að lækka
tekjuskatt fyrirtækja um 700 til 1000
milljónir króna. Mikil andstaða er
um þetta innan raða Alþýðuflokks-
ins. Reynt hefur verið að ná sáttum
með því að breikka tekjuskattsstofn-
inn og auka þar með tekjurnar, það
er að segja ef skattaprósentan verður
lækkuð. En allt þetta getur tekið
lengri tíma vegna fyrirsjáanlegra
lagabreytinga. Það sem vakti and-
stöðuna, var ekki síst það, að hér var
verið að ræða um nánast sömu upp-
hæð og verið er að ræða um að skil-
aði sér ef breytingamar verða gerðar
á virðisaukanum. Svipað er að segja
um að aðstööugjöld og tryggingagjöld
verði endurskoðuð síðar, það er eftir
að fjárlagafrumvarpið hefur verið
afgreitt.
Lögregluskatturinn svokallaði
verður ekki aflagður á næsta ári.
Hann verður áfram, en stefnt er að
því að hann verði nefndur öðru nafni
en honum er ætlað að skila jafn-
miklu ef ekki meiru í ríkissjóð en
lögregluskatturinn gerði á þessu ári.
Ekkert veröur af kaupum á nýrri
þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna á
næsta ári. Þess í stað verður gerð
viljayfirlýsing um að þyrla verði
væntanlega keypt á árinu 1994.
Heimildir DV herma að fleygur sé
á milli Davíðs Oddssonar og Friðriks
Sophussonar í einu nokkuð stóru
máli en það er hvort breyta eigi
eignaskattsstofni einstaklinga. Davíð
er mun tregari til þess en Friðrik og
reyndar segja heimildir DV að Davíð
hafi skipt um skoðun hvað þetta
varðar á síðustu dögum.
Að lokum skal þess getið að ekkert
verður að því að,sérstakur skattur á
verslunar- og skrifstofuhúsnæði
verði afnuminn.
-sme
Appelsínu-
sósan vakti
Askell Þórisson, DV, Akureyii:
„Þau eru afskaplega alþýöleg og
elskuleg. Það sakaði ekki að ég og
drottningin gengum í háskólann í
Ósló sömu árin. Strax og það upp-
götvaðist mynduöust tengsl á milli
okkar og við höfðum um nóg að tala
eftir það,“ sagði Jóhann Siguijóns-
son, menntaskólakennari og leiö-
sögumaður norsku konungshjón-
anna, en þau ferðuðust um Mývatns-
sveit og fóni til Akureyrar í gær. Þar
meö lauk íslandsheimsókn þeirra.
Flugvél Haralds konungs og Sonju
drottningar lenti á Aðaldalsflugvelli
síðdegis í gær. Norðurland tók frem-
ur kuldalega á móti þeim hjónum.
Norðanrigning og hífandi rok var á
Aöaldalsflugvelli en veður skánaði
eftir því sem á daginn leið. í fór með
konungshjónunum var Vigdís Finn-
bogadóttir, forseti íslands, ásamt
ýmsum embættis- og stjómmála-
mönnum.
Farið var með konungshjónin og
fylgdarhð þeirra í Námaskarð og
sýndu þau mikinn áhuga á því sem
fyrir augu bar. Það vakti óskipta at-
hygli þegar gestimir fengu úthlutað
plastpokum sem þeir drógu á fætur
sér en leðja í Námaskarði þykir lítt
skemmtileg á viðkvæman skófatnað.
„Þau spurðu um allt milli hims og
jarðar og ekki síst um náttúm lands-
ins. Auðvitað ræddi ég mikið um
jarðfræði landsins og þau höfðu mik-
inn áhuga á orkumálum og náttúm-
vemd. Mér fannst sérstaklega at-
hyglisvert hve Haraldur konungur
var vel að sér í tæknilegum þátt-
um,“ sagöi Jóhann Siguijónsson.
Frá Námaskarði var haldið í
Dimmuborgir en hádegisverður var
snæddur í Hótel Reynihlíö. Konungs-
hjónin fengu villisveppasúpu, lax og
skyr með aöalblábeijum. Amþór
Bjömsson hótelhaldari tíndi sjálfur
sveppina í súpuna. Meö laxinum var
borin fram afar ljúffeng appelsínu-
sósa og vakti hún athygli drottningar
sem hafði á orði að uppskriftina yrði
hún að fá handa kokkinum í kon-
ungshöllinni.
Þegar Haraldur og Sonja komu til
Akureyrar var tekið á móti þeim í
Lystigarðinum. Við hliðið var flagg-
að norskum og íslenskum fánum.
Sigríður Stefánsdóttir, forseti bæjar- j
stjómar, ávarpaði gestina.
Norsku konungshjónin luku opinberri heimsókn sinni á íslandi f gær. Hér eru þau ásamt Vigdísi Finnbogadóttur,
forseta íslands, í Dimmuborgum í Mývatnssveit.
Viröisauki á listir:
Munum bregð-
asl mjög hart við
- segir Hjálmar Ragnarsson
„Ég verð að segja eins og er að
mér var mjög brugðið þegar ég
sá þetta í fréttum. Ég átti ekki von
á þessu. Viö höfðum ekki séð fyr-
ir þann möguleika að ríkisstjóm-
in myndi seilast inn á þetta svið,"
sagði Hjálmar Ragnarsson, for-
seti Bandalags íslenskra lista-
manna, þegar hann var spurður
um fyrirhugaða skattlagningu á
listir og listastarfsemi.
„Ef þessari hugmynd verður
hrint í framkvæmd munu lista-
menn bregöast hart við. Þetta era
bara hugmyndir ennþá og ég á
eftir að sjá að þeim verði fram-
fylgt. Ef það verður gert er hörðu
að mæta.“
Hjálmar sagöi listamen geta
gripið til annarra aðgerða en
flestir aðrir geta gert: „Ég held
að það sé ekki gott fyrir pólitík-
usa að fá listamenn upp á móti
sér. Okkar listamenn hafa mikil
áhrif - óbein áhrif í gegnum list-
ina,“ sagðiHjálmarRagnarsson.
-sme
EESáAlþingi:
Fyrstu umræðu
laukínétt
- stóö íSOtíma
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra sagði undir lok
fyrstu umræðu um EES-samn-
inginn á Alþingi í nótt að þing-
menn og ráöherrar hefðu talað í
30 klukkustundir og 48 mínútur
um málið. Hann sagði að í norska
Stórþinginu yrði fyrsta umræða
um málið aðeins í tíu klukku-
stundir.
Þegar Jón Baldvin hóf ræðu
sína sagði hann einnig að í tengsl-
um við raálið hafl verið rætt um
þingsköp í tæpa klukkustund og
um frumvarp sem gerir ráð fyrir
breytingum á stjórnarskránni
hafi verið búiö að ræöa í nærri
lOklukkustundir. Ráðherra sagði
meöal annars: „Það þjónar ekki
tilgangi að flytja um málið lang-
lokur héðan úr ræðustóIL“
Fyrstu málunum, frá þvi Al-
þingi kom saman 17. ágúst, var
vísað til nefndar í gær, en það era
bráðabirgöalögin, Kjaradómur og
kjaranefnd, kjarasamningur op-
inberra starfsmanna, samning-
urinn um evrópskt efhahags-
svæði og frumvarpið um breyt-
ingar á stjórnarskránni.
Þingfundi lauk ekki fyrr en um
klukkanþrjúínótt, -sme
Bíldudalur:
Engintilboð
hafa borist
- óvístumleiguna
Engin tilboð haía borist i eignir
þrotabús , Fiskvinnslunar á
Bíldudal. I gær átti að fara fram
nauöungaruppboö á fasteignum
fyrirtækisins en Skarphéðinn
Þórisson skiptastjóri frestað upp-
boðunum og skulu þau fara fram
i síðasta lagi 16. janúar. Allar
fasteignir og lausafé er mikið veð-
sett. Helstu veðkröfuhafar eru
Fiskveiðasjóður, Byggðastofnun
og Landsbanki Islands.
Eins og áður sagði hafa engin
formleg tilboö borist i eignir Fisk-
vinnslunnar en viðræður hafa
verið milli skiptastjóra og full-
trúa heimamanna enda eru þeir
sennilega einu kaupendurnir að
fasteignunum.
Utgerðarfélag Böddælinga er
meö eignir Fiskvinnslunnar á
leigu til 15. þessa mánaðar. Ekki
er búiö að semja um hvort leigu-
samningurinn verður framlengd-
ur. Fiskvinnslan á 70 prósent
hlutaíjár f Ötgeröarfélaginu, sem
leigir Fiskvinnsluna, sem aftur á
togarann Sölva Bjarnason og bát-
inn Geysi. Miklar veðskuldir era
ábáðumskipunum. -sme