Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1992, Page 3
FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992.
3
dv Fréttir
Stjómun fiskveiða með stærð flotans:
Mjög dæmigerð
ríkisforsjá
- segir Snjólfur Ólafsson dósent
„Eðli sóknarmarks- og sóknar-
stýringarkerfa er óhagkvæm nýt-
ing tækja og mannafla. Þeir sem
biðja um slík kerfi gera of lítið úr
þessum ókostum. Aftur á móti
kenna þeir kvótakerfinu um ýmsa
hluti sem eru ekki því að kenna.“
Þetta segir Snjólfur Ólafsson, dós-
ent í viðskipta- og hagfræðideild
Háskólans. Ásamt fjórum öðrum
aðilum íjallar Snjólfur um fisk-
veiðistefnu í bókinni Stjóm fisk-
veiða og skipting fiskveiðiarðsins
sem sjávarútvegsstofnun Háskól-
ans og háskólaútgáfan hafa nýlega
gefið út.
Kvótakerfið og sóknarstýring
hafa verið til umræðu að undan-
fómu, meðal annars vegna um-
mæla Einars Odds Kristjánssonar,
framkvæmdastjóra Hjálms hf. á
Flateyri, um að stjórna eigi fisk-
veiðum með stærð fiskiskipaflot-
ans. Um þá skoðun Einars segir
Snjólfur:
„Þetta væri kannski ekki flókið
mál ef það væru einræðisherrar
sem ættu að ráða því hvaða skip
yrðu gerð út. Það er útilokað að
setja reglur sem sættir nást um.
Þetta væri mjög dæmigerð ríkisfor-
sjá. Ef kvótakerfi með framseljan-
legum kvótum er orðið fast í sessi
og stjórnvöld hætta að stuðla að
skipakaupum þá eru allar reglur
um skipakaup óþarfar."
Snjólfur segir hægt að hugsa sér
ótal möguleika sóknarmarks- eða
sóknarstýringarkerfis. „Einar
Oddur hefur ekki skilgreint þessa
sóknarstýringu sem hann er að
biðja um frekar en aðrir sem eru
að biðja um sóknarmark. Menn
hafa ekki hugsað þetta til enda. Ef
hugmyndirnar væru útfærðar
væri líklegt að þeir hættu að vera
fylgjandi sóknarmarkinu." Það er
skoðun Snjólfs að flestar tegundir
sóknarmarkskerfa leiði til þess að
fólk leitist við að fjárfesta í sem
bestum vélum og veiðarfærum til
að ná sem mestum afla á þeim dög-
um sem veiöar eru heimilaðar.
Snjólfur segir hins vegar hagræð-
ingu nást með kvótakerfinu. „At-
hafnafrelsi einstakhnga og fyrir-
tækja á að vera sem mest. Þar með
hafna ég miðstýringu. Kvótakerfi
með framseljanlegum kvóta er
laust við miðstýringu en sóknar-
markskerfi hlýtur að fela í sér
mikla miðstýringu.“
Um andstöðu manna á Vestfjörð-
um gegn kvótakerfinu segir Snjólf-
ur: „Það hefur skapast viss mórall
þar. Það þýðir ekki að vera framá-
maður á Vestfjörðum, hvorki al-
þingismaður né eitthvað annað,
nema að vera á móti kvótakerfinu."
Snjólfur segir þjóðina verða að
aðlaga sig breyttu umhverfi og
markaðsaðstæðum. „Frystitogarar
skila meiri hagnaði en aðrir. Eg hef
aldrei skilið að það sé markmið að
sem flestir íslendingar séu að flaka
fisk eða vinni í frystihúsi. Við vilj-
um hagræðingu í þjóðfélaginu og
hún felst meðal annars í því að
færri og færri þurfa að vinna
ákveðin störf. Ég tel það mjög
óæskilegt að íbúar Utillastaða ætU
að halda áfram að byggja tilveru
sína á einni atvinnugrein. Við eig-
um að horfast í augu við að það
gengur ekki upp lengur. En ég er
algjörlega á móti því að ríkið
ákveði hvort einhverjir eigi að
flytja á brott. Það þarf hins vegar
að sameina nágrannasveitarfélög
og gera þau að einu atvinnusvæði.
Þetta er þróun sem mun veröa og
ég sé ekki rök fyrir að streitast
gegn því.“
-IBS
Nýtt Nýtt
fyrir ungt fólk
Við höfum þá ánægju að bjóða núna í miklu úrvali
hina nýju fallegu æskulínu frá stórfyrirtækinu
RAUCH í Þýskalandi. Þetta eru húsgögn fyrir ungt
fólk sem stundar langskólanám. Notagildi þeirra er
aðalatriði og það hve auðvelt er að raða þeim í lítil og
stór herbergi. Margir "glaðir" litir og verðið er hagstætt.
Þrjár skápaeiningar, skrifborð og rúm með
rúmteppi og 3. púðum í áklæðalit að eigin vali.
Allt í einum pakka kr. 120.770,-
Einnig fáanlegt stakt eins og hver vill.
Varanleg eign þegar fólk giftir sig og fer að búa.
BILDSHOFÐA 20 - 112 REYKJAVIK - SIMI 91-681199
3
s
V)
.?.k.‘PULagsbök
VMaji
u t
,rmcMM„„ símaskha
^ssssass
■ i
«as- ------JH
A Menntabraut íslandsbanka eru nýir og spennandi möguleikar fyrir
námsmenn i 8 ára og eldri. Menntabraut er opin öllum námsmönnum
óháb LÍN. Athafnastyrkir eru veittir námsmönnum árlega sem hafa nýjar
hugmyndir um nýsköpun í atvinnulífinu. Námsstyrkir eru veittir sjö
námsmönnum á ári. Vönduö íslensk skipulagsbók sem er afhent
ásamt penna viö skráningu á Menntabraut auöveldar náms-
mönnum aö gera áœtlanir og skipuleggja tíma sinn.
Tékkareikningur meö 50.000 króna yfirdráttarheimild.
Námsmannakort Menntabrautar veitir aögang aö
95.000 hraöbönkum víöa um heim. Aö loknu námi
eiga námsmenn kost á langtímaláni. Margir aörir
kostir eru í boöi á Menntabraut.
Komiö og fáiö nánari upplýsingar hjá
þjónustufulltrúum íslandsbanka. Þeir hafa
sérhœft sig í málefnum námsfólks.
Menntabraut íslandsbanka
- frá menntun til framtíbar!
MENNTABRAUT
Námsmannaþjónusta íslandsbanka
Námsmenn komast lengra
á Menntabraut!