Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1992, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992.
Fréttir
Mikið að gera við brennsluofn á tilraunastöðinni að Keldum í sumar:
Háttt tonn af gælu-
dýrum brennt á viku
- eigendur láta svæfa dýrin áður en þeir fara í frí, segir dýrahirðir
„Þetta er rosalega mikið sem berst
hingað. Bara frá Dýraspítalanum
brenndum viö um tíu tonn af gæludýr-
um sem höfðu drepist á síðasta ári. Við
fáum fleiri dýr en frá þeim, frá öðrum
dýralækni og svo kemur fólk líka sjálft
með dýrin sín. Þetta eru því 12-13 tonn
á ári. Við erum nýbyijuð aö taka við
dýrum og þessar tölur eru bara það sem
viö vitum um,“ sagði Sonja Vilhjálms-
dóttir, dýrahirðir hjá Tilraunastofu
Háskólans í meinafræði að Keldum, í
samtali við DV.
Að Keldum er brennsluofn þar sem
meðal annars er tekiö við gæludýrum
sem hafa verið svæfð, aöallega frá Dýra-
spitalanum í Víðidal. Sonja segir að þeg-
ar aðal sumarvertíðartiminn hafi staðið
yfir hafi tæplega hálft tonn af dauðum
gæludýrum borist frá Dýraspítalanum
í brennsluna að Keldum. Dýrin eru vigt-
uð í pokum þegar þau koma. Algengt
var að rúmlega 400 kíló kæmu í viku
hverri í júní og júlí. „Fólk bara losar
sig við dýrin þegar þaö fer í frí,“ sagði
Sonja.
„Þetta eru aðallega kettir. Fólk losar
sig við dýrin áður en það fer í frí eða
flytur úr landi, vegna ofnæmis sem
kemur upp á heimilinu og af fleiri
ástæðum. Margir gera sér ekki grein
fyrir hvað það er mikil vinna við að
hafa dýr - heldur að það þurfi ekkert
að hafa fyrir þessu. Einnig eru margir
sem eiga ketti og láta ekki gelda þá eða
passa ekki upp á aö þeir fjölgi sér ekki
- það er allt of mikið af kettlingum,"
sagði Sonja.
„Við vitum hve mikið kemur hingaö
frá Dýraspítalanum þar sem dýrin eru
svæfð. En það er miklu meira um þetta
en það. Fólk grefur heimilisdýr sín sjálft
og dýrin hverfa með öðrum hætti.“
Sonja segist ekki vita hve mörg dýr
séu brennd á ári þótt tölur um heildar-
þyngd liggi fyrir. „Ég er ekki að kíkja
ofan í pokana sem koma frá Dýraspítal-
anum en langstærstur hlutinn er kettir.
Það er alltaf eitthvað um hunda en kett-
imir eru helmingi fleiri. Einnig koma
hingað páfagaukar, marsvín, hamstrar
og fleiri tegundir," sagði hún.
Sonja segir að gæludýr séu brennd 3-4
sinnum í mánuði en brennslan er í
gangi á hverjum degi fyrir aðra starf-
semiaöKeldum. -ÓTT
Katrín Harðardóttir dýralæknir:
Ekki á að láta börnin ráða
Hvað kostar
aðláta
svæfa gælu-
dýrið?
Dýraspítalinn í Viðidal hefur
tekiö á móti gæludýrum sem eig-
endur vilja láta svæfa. Effir svæf-
ingu sendir spftalinn gæludýrin
í brennslu í Tilraunastöðina að
Keldum.
Að láta svæfa kött kostar 1.450
krónur. Innifaliö í verðinu er
brennsla. Fyrir stóran hund er
verðið 2.700 krónur, íyrir meðal-
hund 2.300 og lítinn hund um
2.000 krónur.
Ef komlö er með kettllnga,
t.a.m. 6-8 vikna, kostar svæfingin
415 krónur fyrir hvem. Séu þeir
nýfæddir er verðiö 150 krónur.
„Gæludýraeignin er almennt orðin al-
geng hér á íslandi og fólk veit oft ekkert
hvað það er að fara út í. Fólk er þá að
taka að sér dýr, eitthvað sem verður á
heimilinu í 10-15 ár. Það á aldrei að fá sér
dýr bamanna vegna, maður fær sér dýr
fyrir sig því það em þeir fullorðnu sem
sitja uppi með þau og þurfa að hugsa um
þau. Ef maður er sjáifur tilbúinn til að
taka á sig þessa skuldbindingu er þetta
hins vegar í lagi. En maður á ekki að láta
bömin ráða,“ sagði Katrín Harðardóttir,
dýralæknir viö Dýraspítalann í Víðidal, í
samtali við DV vegna þeirra staðreynda
sem fram koma hér á síðunni um mikinn
Qölda gæludýra sem eigendur láta svæfa.
„Það er alveg sama hvert farið er í heim-
inum, þetta er alls staöar sama sagan. Ein
ástæða fyrir því að það er svona mikið
um þetta á sumrin er að það fæðast ósköp
af kettlingum sem ekkert heimili er fyrir.
Varðandi hunda em margs konar ástæður
fyrir þvi að fólk gefst upp á að hafa þá.
Margir hafa gaman af þessu í nokkur ár
en síðan er flutt. Fólk hreinlega kaupir sér
íbúö þar sem það getur ekki haft hund.
Það er algeng ástæða fyrir því aö hundar
em svæfðir."
Katrín segir brýnt að tilvonandi gælu-
dýraeigendur geri sér grein fyrir því að
kettir fara úr hárum, þeir veiða fugla,
þeir þurfa að pissa einhvers staðar - þeir
gera sem sagt ýmsa hluti sem kannski eru
ekki mjög æskilegir. „Fólk verður að átta
sig á þessum hlutum áður en það tekur
að sér skuldbindingar," segir Katrín.
- Hvað segja dýraeigendur þegar þeir
biðja ykkur að svæfa dýrin sín?
„Allt frá því að segja „dreptu þetta fyrir
mig“ en sumir em hágrátandi yfir þessu.
Það er mjög mismundandi. En við erum
löngu hætt að spyija um ástæður," sagði
Katrín Harðardóttir.
-ÓTT
—---------j—j
Tugir kiióa af gæludýrum, sem send voru frá Dýraspítalanum í
Víðidal, voru brennd að Keldum i gær. Sonja Vilhjálmsdóttir,
dýrahirðir að Keldum, vigtaði dýrin sem eru i plastpokum áður
en þeim var varpað niður í stóran eldofn.
DV-mynd GVA
í dag mælir Dagfari___________________
Ólafur býður í Naustið
Ólafur Ragnar Grímsson hefur lof-
aö að bjóða þeim Friöriki Sophus-
syni, Pálma Jónssyni og Sigurði
Þórðarsyni ríkisendurskoðanda í
mat í Naustinu ef þeir lofa að vera
sammála sér. Ólafur hefur sent frá
sér hoðskortið með grein í Morgun-
blaöinu og bíður nú spenntur eftir
viðbrögðum boðsgestanna. Þeir
þurfa ekki annað en lýsa yfir því
að þeir séu sammála Ólafi Ragnari
í ríkisfjármálaútreikningum og þá
fá þeir frítt að bprða í Naustinu.
Það er von að Ólafur bjóði. Hann
er einn á báti og enginn hefur viljað
borða með honum eða getað borðað
með honum þvi hann var eini þing-
maöurinn sem greiddi atkvæði
með því að breyta útreikningum á
ríkisfjárhallanum þegar fjárlaga-
nefnd lagði til að sleppa aö reikna
með útgjöldum þegar skuldir ríkis-
ins eru taldar saman. Hann vill
vita hvort Friörik Sophusson var
með honum eða móti, hvort hann
hafi skipt um skoðun eða hvort
hann var andvígur þeirri aðferð viö
útreikninga á ríkishallanum sem
hann hafði áður verið meðmæltur.
Ólafur Ragnar vill líka vita hvort
Pálmi sé orðinn sammála sér og á
móti þeirri tillögu sem hann flutti
sjálfur f fyrra og Sigurður ríkisend-
urskoðandi er líka spurður um
hvort hann sé sömu skoðunar og
áður eða hvort hann hafi breytt um
skoðun á þeirri skoöun sem hann
hafði sjálfur lagt til og ekki farið
eftir.
Þetta mál er nefnilega sérkenni-
lega snúiö að því leyti aö þeir sem
voru á móti aðferð Ríkisendur-
skoöunar um útreikninga á ríkis-
hallanum heimtuðu að Ríkisendur-
skoðun reiknaði hallann öðruvísi
út þegar þeir voru í stjómarand-
stöðu. Svo þegar stjórnarandstæð-
ingarnir voru komnir í stjóm fór
Ríkisendurskoðun að asnast til að
fara eftir tillögum sjálfstæðis-
manna, sem fyrir vikið urðu þá
öðmvísi en útreikningamir árinu
áöur. Ólafur Ragnar benti þá á
þetta misræmi, sem hann var að
vísu sammála en var á móti af því
útreikningurinn passaði ekki við
útreikninginn frá árinu áður.
Friðrik Sophusson var hins vegar
með þessum útreikningi, sem Ólaf-
ur var meö, en varð hins vegar aö
benda á að hann hefði veriö á móti
því að breyta útreikningnum, sem
hann var með, til að gefa rétta
mynd af samanburöi milli ára.
Málið var sem sagt þannig komið
að Ólafur Ragnar varð að styðjast
viö aðferðina, sem hann var á móti,
til aö sýna fram á að aðferðin, sem
hann var á móti, væri réttari sam-
anburður heldur en hin sem hann
var með til að samanburöur feng-
ist. Friörik var í rauninni sammála
þessu nema með þeim öfugu for-
merKjum aö hann hafði fallist á
aðferö Ríkisendurskoðunar en
varð að vera á móti henni ef Ólafur
ætlaði að fara að misnota hana til
að gera samanburðinn milli ára,
sem ekki var réttur miðað viö þær
röngu aðferðir sem notaðar voru á
milli ára.
Þessu til viðbótar hafði Pálmi
Jónsson, formaður fjárlaganefnd-
ar, mælt með tillögu um aðferð
Ríkisendurskoðunar, sem Ólafur
hafði greitt atkvæði á móti og nú
væri farið að nota og hann hefur
ekki á móti nema þegar hún væri
misnotuð í samanburðinum milli
ára. Sigurður Þórðarson ríkisend-
urskoðandi er sá maðurinn sem
hefur komið öllum þessum deilum
á stað, vegna þess aö hann notaöi
aðferð sem hann var á móti og lagði
til að breyta aðferðinni yfir í það
sem Ólafur Ragnar var á móti en
Friðrik var með, þangað til þessi
árekstur varð að Ólafur þurfti að
benda á að aðferð ríkisendurskoð-
anda kæmi Friðriki vel en Ólafi illa
og Friðrik varð þá á móti aðferð-
inni sem hann hafði verið með.
Nú er Ólafur Ragnar sem sagt að
gera sér vonir um aö menn séu
orðnir sammála um að vera ósam-
mála um það sem þeir eru sam-
mála um og þess vegna treystir
hann sér til að bjóða þeim félögun-
um öllum til matar í Naustinu og
hann vill jafnvel leyfa Ingva Hrafni
á Stöð tvö að fljóta með. Sjálfsagt
til að sjónvarpa megiþessari veislu
til að sýna fram á að Olafur Ragnar
étur ekki einn á Naustinu og býður
reyndar aldrei neinum í Naustið
nema sem er sammála honum. Þess
vegna hefur Ólafur ekki haft neinn
til að bjóða og tímir því aðeins að
bjóða að hann sé öruggur um að
boðsgestirnir geti ekki þegið boðið.
Dagfari