Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1992, Side 5
FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992.
5
Fréttir
Skoðanakönnun DV:
Meiríhluti
á móti EES
- af þeim sem taka afstöðu
Meirihluti þeirra landsmanna, sem
taka afstöðu til málsins, er andvígur
samningnum um Evrópska efna-
hagssvæðið, EES. Þetta sýnir skoð-
anakönnun sem DV gerði á mánu-
dags- og þriðjudagskvöld. Stærsti
hópurinn er þó hinir óákveðnu, eða
40 prósent af úrtakinu.
Af öllu úrtakinu sögðust 22,2 pró-
sent vera fylgjandi samningnum um
EES. Þetta er 2,1 prósentustigi minna
en var í sambærilegri skoðanakönn-
un DV í byrjun júní. Andvíg eru nú
37,2 prósent sem er 3,5 prósentustig-
um minna en í júníkönnuninni. Óá-
kveðin eru nú 40,3 prósent úrtaksins
sem er 8,8 prósentustigum meira en
var í júníkönnuninni. Þeir sem vilja
ekki svara eru nú 0,3 prósent en voru
3,5 prósent í júní.
Þetta þýðir að af þeim sem taka
afstöðu eru 37,4 prósent nú fylgjandi
Ef aðeins eru teknir þeir
sem afstöðu tóku verða
niðurstöðurnar þessar (í %):
Nú ijúní
Fytgjandi 37,4 37,4
Andvígir 62,6 62,6
Niðurstöður skoðanakönnunar- innar urðu þessar (i %):
Nú ijúní
Fyigandi EES 22,2 24,3
Andvígir 37,2 40,7
Óákveðnir 40,3 31,5
Vilja ekki svara 0,3 3,5
EES en 62,6 prósent andvíg. Svo vill
til aö útkoman var hin sama í júní
þegar teknir voru bara þeir sem tóku
afstööu.
Úrtakið í skoðanakönnuninni var
600 manns og var jafnt skipt milli
kynja og jafnt milli höfuðborgar-
svæðisins og landsbyggðarinnar.
Spurt var: Ertu fylgjandi eða andvíg-
ur samningnum um Evrópska efna-
hagssvæðið, EES?
Skekkjumörk í slíkri skoðana-
könnun eru 3^1 prósentustig.
Andstaðan við EES er mun meiri
úti á landsbyggðinni en á höfuðborg-
arsvæðinu. -HH
Mikið hefur verið fjallað um EES,
þótt almenningi gangi illa að átta
sig enn. Á myndinni ræða nokkrir
toppar um samninginn, á fundi milli
stjórnar og stjórnarandstöðu.
Ummæli fóiks í
könnuninni
Karl í Reykjavík sagði að enginn
vissi neitt um þennan EES-samning
og nær væri fyrir stjómmálamenn
að kynna samninginn heiðarlega
fremur en rífast um hann á þinginu.
„Ég er ekki nógu vel inn í þessu
máli til að mynda mér skoðun,“ sagði
kona á höfuðborgarsvæðinu, eins og
margir fleiri. „Ég er 100 prósent and-
vígur EES-samningnum,“ sagði karl
á höfuðborgarsvæðinu. „Stjórnmála-
mennimir eiga að ráða þessu. Til
þess em þeir kosnir," sagöi kona á
höfuðborgarsvæðinu. „Miðað við
það sem ég hef séð er ég andvígur,"
sagði karl á landsbyggðinni. „Við
komumst ekki hjá því að vera með í
EES,“ sagði karl á landsbyggðinni.
„Við íorum í-gin úifsins ef við verð-
um í EES,“ sagði kona á Norður-
landi. „Ég er hrædd um sjálfstæði
okkar,“ sagði kona á landsbyggðinni.
-HH
Heimilisf jármál - námskeið
Hvernig á að halda utan um fjármálin?
Hvernig er hægt að ganga frá vanskilum?
Hvernig er hægt að öðlast stöðugleika?
Hvernig er hægt að mynda afgang?
Námskeið 1. Tveggja kvölda námskeið þar sem farið
er í helstu atriði þess að halda utan um fjármálin.
Verð kr. 5000.
Námskeið 2. Úr skuldum - Vinnunámskeið þar sem
markvisst er unnið að því að ganga frá öllum lausum
endum. Verð kr. 15.000.
Upplýsingar og innritun í síma 677323.
Garðar Björgvinsson
r^f’rif/JM
WTwro
veitir einnig allar upplýsingar um tónleikana
TUB0RG
GR0NLÉTT0L
Gerir lífið örlíUð grœnna
PPP
•Ám.
FLUGLEIDIR
^AIUKKIPuc Langisandur
■ ■■ ■ Guröabruut 2 - 3(K» Akrancs - Slmi M-13191
TONLISTARFELAG AKRANESS OG SUNDFELAG AKRANES
X.....................................................>g
býður 100 lesendum á Skagarokk
Svaraðu þessum þremur spurningum og freistaðu gæfunrtar:
1. flver er söngvari Jethro Tull?
2. Hver er söngvari Black Sabbath?
3. Hvert er símanúmer DV?
NAFH:
HEIMILI:
STAÐUR:
Sendusvörin HIDVmerkl: Skagarokk, doDV, Þverholti 11,105 Reykjavík. Dregið verðurúrinnsendumseðlumognöfn vinningshala birt ÍDV23. september.
Black
Sabbath
og Artch
LAUGARDAGINN
26. SEPTEMBER
Jethro
Tull
og Gildran
FÖSTUDAGINN
25. SEPTEMBER