Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1992, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1992, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992. Lífsstíll DV kannar verd í matvöruverslunum: Kjúklingarnir ódýr- astir í Miklagarði - seldust upp í Bónusi Verð á kjúklingum hefur lækkað að undanförnu vegna samkeppni matvöru- verslana. DV fór á stúfana í gær og kannaöi matvöruverð í fimm stórverslunum á höfuöborgarsvæðinu. Farið var í Fjarðarkaup í Hafnarflrði, Mikla- garð við Sund, Hagkaup í Hólagarði, Bónus í Faxafeni og Kaupstað í vest- urbænum. Litið var á veröiö á agúrk- um, grænum vínberjum, rauðri papriku, kartöflum, rófum, appelsín- um, kjúklingum, 1,5 lítra af kóki, smjörva, Royal súkkulaðibúðingi, 200 g af dökku Nescafé og blómkáli. Það hefur brunnið við að verð á grænmeti hafi breyst í verslununum frá því að könnunin var gerð og þangað til blaðið kemur út. Græn- metisverð er mjög óstöðugt og getur breyst frá degi til dags og í Bónusi í Faxafeni er t.d. búið að hengja upp skilti þar sem viðskiptavinir eru beðnir að hafa þetta í huga. Hvað aðrar vörur snertir þá á verð þeirra ekki að breytast frá miðvikudegi til fimmtudags. í byrjun vikunnar lækkuðu Fjarð- arkaup verðið á kjúklingunum og hefur verðstríð geisað á milli Fjarð- arkaupa og Bónuss. Neytendur hafa tekið vel við sér og voru kjúklingam- ir uppseldir í Bónusi í Faxafeni. Þar höfðu Móakjúklingar verið seldir á 450 krónur kílóið og Gæðakjúklingar líka en á þeim síðarnefndu fékkst 5 prósenta afsláttur við kassann og voru þeir því á 428 krónur. Von var á meira magni af kjúklingum. Kjúkhngarnir voru dýrastir í Kaupstað, þar sem þeir kostuðu 566 krónur kílóið, en lægsta verðið var í Miklagarði. í Miklagarði vom þeir seldir á 485 krónur kílóið og með 3 prósenta staðgreiðsluafslætti færir það verðið niður í 470 krónur. Eru kjúklingamir því 20 prósentum dýr- ari í Kaupstað en í Miklagarði. í Fjarðarkaupum og Hagkaupi voru kjúklingamir á 480 krónur kílóð. Það var mál manna að þessi lækkun á kjúklingum væri skrípaleikur einn. Verðmunur á agúrkum milli versl- ana reyndist 28 prósent. í Bónusi voru þær á 109 krónur kílóið en á 139 í Hagkaupi og Kaupstað. Mikhgarður seldi gúrkurnar á 115 krónur og Fjarðarkaup á 135 krónur. Grænu vínberin voru á lægsta verðinu í Fiarðarkaupum, á 139 krónur. í Bónusi voru þau tuttugu krónum dýrari og Mikligarður var með vínberjakílóið á 170 krónur. Kaupstaður og Hagkaup voru með grænu vínberin á 199 krónur. Rauð paprika fékkst hvorki í Bón- usi né Miklagarði. í Kaupstað og Hagkaupi var rauða paprikan seld á 638 krónur kílóið en aðeins á 145 krónur í Fjarðarkaupum. Munurinn er í þessu tilfelli 340 prósent. Kartöflukílóið var ódýrast á 65 krónur í Bónusi. í Fjarðarkaupum voru bestu kartöflukaupin í 5 kílóa pokum á 72 krónur kílóið. Hagkaup var þremur krónum dýrara með gljá- kartöflur. Mikhgarður var með kíló- ið af kartöflunum á 85 krónur og Kaupstaður á 99 kronur. Rófumar reyndust langdýrastar í Kaupstað þar sem þær kostuöu 252 krónur kílóið. Lægsta verðið var í Miklagarði, 128 krónur kílóið. í Fjarðarkaupum .og Hagkaupi kost- uðu rófurnar 199 krónur en 159 krón- ur í Bónusi. Munur á hæsta og lægsta verði er 97 prósent. Blómkáhð var dýrast í Kaupstað þar sem það kostaði 279 krónur. Það var krónu ódýrara í Hagkaupi, kost- aði þar 278 krónur. í Miklagarði kost- aði það 275 krónur og 129 krónur í Fjarðarkaupum. Verðmunurinn er 119 prósent. Verð á appelsínum var það sama í Hagkaupi og Kaupstaði, 98 krónur kílóið. í Hagkaupi voru þær einnig í lausu á 119 krónur. í Fjarðarkaupum kostaðu appelsínumar 69 krónur og í Miklagarði 67 krónur. í Bónusi fengust appelsínurnar pakkaðar á 55 krónur kílóiö. Munur á hæsta og lægsta verði er 78 prósent. Kók í 1,5 lítra flöskum er selt þessa dagana á sérstöku tilboðsverði. Samt er nokkur munur á verðinu mihi verslana. í Bónusi kóstaði 1,5 lítri 125 krónur. Flaskan var fimm krónum dýrari í Miklagarði. í Fíarðarkaup- um kostaði 1,5 htra kók 134 krónur og 135 krónur í Hagkaupi. Dýrast var kókið í Kaupstað, á 149 krónur. Verð- munurinn var 19 prósent. Aðeins munaði 8 prósentum á hæsta og lægsta verði af smjörva. Smjörvi (300 g askja) kostaði 170 krónur í Fjarðarkaupum og Hag- kaupi og 173 krónur í Miklagarði. í Kaupstað kostaði smjörvaaskjan 179 krónur og 166 krónur í Bónusi. Royal súkkulaðibúðingurinn var ódýrastur í Bónusi, á 43 krónur. Búð- ingurinn reyndist þremur krónum dýrari í Miklagarði. í Fiarðarkaup- um kostaði pakkinn 60 krónur, 66 krónur í Kaupstað og 64 krónur í Hagkaup!. Munur á hæsta og lægsta verði var 53 prósent. Loks skal htið á dökkt Nescafé í 200 g krukkum. Það kostaði 414 krónur í Kaupstað og var það hæsta verðið. Bónus var með lægsta verðið, 299 krónur. í Hagkaupi kostaði kafflduft- ið 318 krónur, 321 í Fiarðarkaupum og 370 í Miklagarði. -GHK Mikil hækkun á agúrkum Agúrkur hafa hækkað gífurlega í verði frá því að þær voru síðast tekn- ar inn í könnunina. Nú er meðalverð- ið 127 krónur en var fyrir skömmu aðeins 50 krónur. Þann 5. ágúst var meðalveröið 75 krónur og í lok júlí kostuðu gúrkurnar 102 krónur. Grænu vínberin hafa lækkað nokkuð í verði. Verðið núna er 173 krónur en var um miðjan ágúst 198 krónur og um miðjan júlí var það 205 krónur. Rauöa paprikan er á svipuðu róli og síðast. Munar þar mest um að Fjarðarkaup selja rauðu paprikuna á 145 krónur en hún er mun dýrari í Kaupstað og Hagkaupi þar sem hún er á 638 krónur. Þann 29. júlí var rauða paprikan á 272 krónur og um miðjan júlí kostaði hún 504 krónur. Kartöflumar hafa lækkaö í verði. Meöalverðið núna er 79 krónur fyrir kílóið en 26. ágúst kostaði kartöflu- kílóið 92 krónur. í júhmánuði kost- uðu kartöflumar í kringum 50 krón- ur kílóið. Verð á rófum er einnig á niðurleið. Núna kosta þær 187 krónur en kost- uðu 194 krónur fyrir hálfum mán- uði. í júh vom rófumar á 231 krónu kílóið. Appelsínumar virðast lítið hagg- ast. Nú kosta þær 77 krónur khóið að meðaltah en kostuðu áður 81 krónu. í tveimur könnunum í júlí voru appelsínumar á 70 krónur og 71 krónu. Sértilboð og afsláttur: Kaupstaður býður viöskiptavin- g af spergh (aspargus) á 73 krónur. um sínum í þessari viku upp á 1200 í Miklagarði fást nú tveir lítrar g af lasagna á 549 krónur, 1 1 af af Pepsi á 98 krónur. Hægt er að Rynkeby appelsínusafa á 89 krón- gera kjarakaup í handklæöum með ur, 95 g af Kavle kavíar á 79 krón- því að kaupa fjögur baðhandklæöi ur, tvær tegundir af K.J. sardínum saman í pakka á 799 krónur en á 79 krónur og 500 ml af Glit upp- áður kostuðu þau 1540 krónur. þvottalegi á 89 krónur. Einnig er Happy Quick kókómalt á Sérstök trippavika verður í Bón- 199 krónur, 800 g, og 452 g af Hy usi í næstu viku og er trippakjöt Top kókómalti er á 197 krónur. þar af leiöandi á sérstöku tilboös- í Hagkaupi eru Reach tamiburst- veröi. Trippahakk kostar 325 krón- ar nú á sérstöku tilboðsverði. Hægt ur kílóið, trippasnitsel kostar 545 er að velja mflli fjögurra gerða og krónur kílóið og tríppagúllas kost- kosta tannburstamir nú 89 krónur. ar 498 krónur kílóiö. Af þessum Hálft khó af Tilda hrísgrjónum í trippategundum fæst síðan 10 pró- suðupokum er á 79 krónur. Kókó- senta afslsáttur við kassann. í Bón- maltið er einnig á góðu verði í Hag- usierhægtaðkaupal77gafJumbo kaupi en þar fást nú 453 g af Quick kartöflustráum á 199 krónur. kókómalti á 139 krónur. Veittur er Fjarðarkaup em með vörur frá 33 prósenta afsláttur af McVites Sweet Lífe á tilboðstorgi sínu þessa homewheat súkkulaðikexi en það vikuna. Meöal þess sem hægt er kostar nú 79 krónur (var á 117 að kaupa frá Swcet Life er 1,89 lítr- krónur). Stórlækkun er á Goða ar af mýki á 187 krónur, 793 g af medisterpylsu. Kilóið var á 838 súkkulaðisírópi á 168 krónur og 233 krónur en er nú á 419 krónur. -GHK -GHK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.