Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1992, Page 24
32
FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992.
Smáauglýsingar - Sími 632700 Þverholti 11
Sérræktaðar túnþökur.
• Með túnvingli og vallarsveifgrasi.
• Þétt rótarkerfi.
• Skammur afgreiðslutími.
• Heimkeyrðar og allt híft í netum.
• Ath. að túnþökur eru mismunandi.
• Ávallt ný sýnishorn fyrirliggjandi.
• Gerið gæðasamanburð.
Jarðvinnslan, túnþökusala Guðmund-
ar Þ. Jónssonar.
Áratugareynsla tryggir gæðin.
Símar 91-618155 og 985-25172.
Mold, mold, mjög góð, heimkeyrð, til
sölu. Annast einnig alla jarðvinnu,
útvega fyllingarefni. Símar 91-668181
og 985-34690. Jón.
• Mold. Mín viðurkennda gróðurmold
til sölu, heimkeyrð, tek einnig að mér
alla jarðvinnu, útvega fyllingarefni.
Úlfar/Sveinbjörg í s. 51468/985-30394.
Úrvals gróðurmold og húsdýraáburður,
heimkeyrt. Höfum einnig gröfur og
vörubíla í jarðvegsskipti og jarðvegs-
bor. Símar 91-44752 og 985-21663.
Túnþökur til sölu. Greiðslukjör Visa
og Euro raðgreiðslur. Bjöm R. Einars-
son. Sími 91-20856 og 91-666086.
■ Til bygginga
Til sölu góður 14 m3 vinnuskúr, einangr-
aður með hita og raflögn. Auðveldur í
flutningi. Uppl. í síma 98-31512.
■ Húsaviðgerðir
Leigjum út allar gerðir áhaldatil við-
gerðar og viðhalds, tökum að okkur
viðhald og viðgerðir á fasteignum,
erum m/fagmenn á öllum sviðum, ger-
um föst verðtilboð. Opið mánud. -
föstud. 8-18, laugard. 9-16. Véla- og
pallaleigan, Hyrjarhöfða 7, s.687160.
Gerum upp hús að utan sem innan.
Jámklæðningar, þakviðg., sprungu-
viðg., gler, gluggar, steyptar þakrenn-
ur. Vanir - vandvirkir menn. S. 24504.
prýði sf. Málningarvinna, spmngu- og
múrviðgerðir, skiptum um járn á þök-
um og öll alhliða trésmiðavinna úti
sem inni. Trésmiður. S. 42449 e.kl. 19.
■ Vélar - verkfæri
Hrærivél til sölu, Atika, 140 lítra, einnig
borðsög fyrir mótatimbur og seglyfir-
breiðsla, 4x6 metrar. Upplýsingar í
síma 91-675902 eða 91-652479.
Naglabyssa, pinnabyssa, heftibyssa og
loftpressa til sölu, einnig Cenko hjól-
sög ásamt ryksugu. Allt í mjög góðu
lagi. Uppl. í síma 92-12911.
■ Tilkyimingar
ATH.i Auglýsingadeild DV hefur tekið
í notkun bréfasíma 63 27 27 sem er,
bein lína til auglýsingadeildar.
Nýr bréfasími annarra deilda DV er
63 29 99. Auglýsingadeild DV.
■ Verslun
20% afsláttur á Hafa baðinnréttingum.
Póulsen, Suðurlandsbraut 10, sími 91-
686499.
Rýmingarsala á eldri sturtuklefum og
baðkarshurðum, verð frá kr. 15.900 og
11.900. A & B; Skeifunni 11 s. 681570.
Dugguvogi 23, sími 91-681037.
Fjarstýrð flugmódel, þyrlur, mótorar,
startarar, módeleldsneyti, ný módel-
blöð, balsi, lím og allt efni til módel-
smíða. Opið 13-18 virka daga.
■ Veisluþjónusta
Hús til mannfagnaðar. Til leigu er hús
um 40 km frá Rvík. Húsið er nýinnr.
Hentar til s.s. ættarmóta,
veislu/fundahalda eða hvíldar. í hús-
inu eru 6 herb. m/uppb. rúmum, stórar
stofur m/borðum og stólum, 2 salemi
og stórt eldhús m/ýmsum tækjum til
matarg. Pöntun í s. 78558/ 667047.
Tilboö: Áöur 5.850, nú 2.995.
Herraskór, vandaðir og slitsterkir,
leðurskór. Skóverslun Þórðar,
Kirkjustræti 8, sími 91-14181.
Rafkaup
ÁRMÚLA 24 • S: 68 15 18*
Dráttarbeisli, kerrur. Ódýru, ensku
dráttarbeislin á flestar gerðir bíla.
Samþykkt af Bifreiðaskoðun íslands.
Ásetning á staðnum. Póstsendum.
Opið alla laugardaga. Víkurvagnar,
Laufbrekku 24, s. 43911 og 45270.
■ Vagnar - kemir
Dráttarbeisli. Höfum til sölu vönduð
og ódýr dráttarbeisli frá Brenderup
undir flestar tegundir bifreiða, viður-
kennd af Bifreiðaskoðun Islands.
Ryðvamarstöðin sf., Fjölnisg. 6e, 603
Akureyri, s. 96-26339, Ryðvörn hf.,
Smiðsböfða 1, Rvík, s. 91-30945. Bíll-
inn, Bakkast, 14, Njarðvík, s, 92-15740,
■ Ýmislegt
Hausttorfæra J.R. verður við Jósefsdal
19.-20. sept. Keppt verður í sérútbún-
um flokki, götubílafl. og opnum götu-
bílafl. Skr. keppenda er í s. 985-30086.
Skr. lýkur lau. 12. sept., kl. 22.
ífLUB BUR\^
Sandspyrna. Skráning í 4. og síðustu
sandspymu sumarsins til Islm: fer
fram í félagsh., Bíldsh. 14, 10.9. kl.
20-23 og 12.9. kl. 17-19. Kvartmílu-
klúbburinn, sími 91-674530.
■ BHar til sölu
Ford Bronco II Eddie Bauer 2,9 EFi,
árg. ’86, ek. aðeins 50 þús. mílur, sjálf-
skiptur, vökvastýri, 31" dekk, cruise-
control, rafm. í öllu o.fl. Ýmis skipti
koma til greina. S. 91-680159 e.kl. 19.
Mercedes Benz 310 D, árg. ’91, ekinn
20 þús. km, ath. skipti.á ódýrari. Til
sýnis á Bílasölunni Braut, símar 91-
681510, 681502.
Ford Econollne 350 4x4, árg. '86,
bensínbíll, 15 manna, góður bíll. Sími
96-31300 og 96-31303 á kvöldin.
pv_______________________Meiming
Kammertónlist í
Norræna húsinu
Tónlistarhátíð ungs fólks á Norðurlöndum var fram haldið í gær-
kvöldi. Var þá leikin kammertónlist í Norræna húsinu eftír unga höf-
unda, þá Úlfar Haraldsson Tryggva Baldvinsson og Eirík Stephensen frá
íslandi, Bo Anderson frá Danmörku, Veh-Matti Puumala og Osmo Honk-
anen frá Finnlandi og Trod Lindheim frá Noregi. Flytjendur voru Aðal-
heiður Eggertsdóttír, Asbjöm Keiding, Kari Tikkala, Hrefna Eggertsdótt-
ir og Trond Lindheim á píanó, Rikke Yde og Kaisa Kalhnen á fiðlu, Jyrki
Myllarinen á gítar, Anna Sigurbjömsdóttir á horn og Kjartan Óskarsson
á klarínett.
í tengslum við hátíðina er einnig fyrirlestrahald og í gærmorgun ræddi
Ríkharður Friðriksson um algoritmiskar tónsmíðar og eftir hádegi hélt
franska tónskáldið Gérard Grisey sinn fyrsta fyrirlestur af þrem. Fjallaði
hann aö þessi sinni um hljómfræði verka sinna. Grisey leitast þar við
að brúa bihð mhli hljóms og hljóðs, tóna og litbrigða hljóðfæra eða öhu
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
heldur að beita hverju gegn öðm þannig að út komi ný blæbrigði. Lék
hann upptökur á verkum sínum máli sínu tíl stuðnings og var þetta allt
mjög alhyghsvert og tónhstín gullfogur.
Um tónleika gærkvöldsins er unnt að segjfi að þar var fjölbreytni í fyrir-
rúmi eins og vænta máttí. Það má telja tímanna tákn hve margar ólíkar
stefnur eru uppi í nýrri tónhst og kemur það ekki síður fram í verkum
ungra höfunda en þeirra eldri. Sundum heyrast óskir um að tónskáld
reyni að nálgast sameiginlegt tungumál, en ekki verður vart neinnar
sérstakrar hreyfingar í þá átt enda vafasamt hvort nokkurt sé við það
unnið. Mörg verkin voru einkar áheyrileg og skemmtíleg áheyrnar þótt
ekki sé unnt að fjalla um hvert þeirra sérstaklega. Þá var flutningur alla-
jafna mjög góður. Framhald verður á hátíðinni næstu kvöld og ætti tón-
Ustaráhugafólk að notfæra sér það.
Kammertónlist í
Listasaf ni íslands
Tónleikar á vegum Tónlistarhátíðar norræns æskufólks - UNM, voru
haldnir í Listasafni íslands á þriðjudaginn var. Flutt voru sjö verk og var
það fyrsta á efnisskránni eftir Svía, Daniel Stáhl að nafni. Hann er fæddur
árið 1967, er að verulegu leyti sjálfmenntaður í tórhist, en með bakgrxmn
í rokk- og poppgítarleik. Soulmining heitir verk hans og er skrifað fyrir
blásarakvintett. Blásarakvintett Reykjavíkur lék verkið sem er í þrem
þáttum. Það er skýrt fram sett frá hendi höfundar og er unnið úr Utlum
efniviði. Hugmyndimar eru margar hveijar fyrst og fremst rytmískar.en
á hehdina er úrvinnsla efniviðarins fremur takmörkuð og einhUða.
Intermezzo xmdir regnboganum er einleiksverk fyrir fagott eftir Hrafn-
kel Orra Eghsson sem numið hefur sehóleik frá átta ára aldri. HrafnkeU
er fæddur árið 1974 og verður aö segjast um verk hans að það er bæöi
ungæðigslegt og fremur byrjandalegt. Verkið var þokkalega leikið af
HaUdóri ísak Gylfasyni.
Einleiksverk fyrir selló eftir Finnann Hannu Pohjonnaro (f. 1963) sem
numið hefur tónsmíðar hjá nokkrum af þekktustu tónskáldum Finna,
var næst á efnisskrá. Verkið er æði flókið varðandi þá tækni sem krafist
Tóiúist
Áskell Másson
er af einleikaranum. TitiU þess, Valáhdyksiá, mun þýða glennur - sjö
smámyndir fyrir einleiksselló. Þótt þetta verk sé vel skrifað tæknhega
virkar það æði sundurlaust við áheym. Það var frábærlega leikið af Jukka
Rautasalo.
Eitthvað fallegt eftir Elínu Gunnlaugsdóttur, sem hefur tónmenntakenn-
arapróf frá TónUstarskólanum í Reykjavík og er að ljúka þar námi í tón-
smíðum, var flutt af þeim HUn Pétursdóttur sópran, Kolbeini Bjarnasyni
flautuleikara og Uwe Wschner gítarleikara. Verkið er í sex stuttum þátt-
um sem byggðir eru á japönskum ljóðum og tónstigum. Margt er laglega
gert í þessu verki en helsti gahi þess er hve stutt frá japönsku tónstigun-
um það kemst og skortír það fyrir bragðið fjölbreytni, bæði í hljóm og Ut.
Einleiksverk fyrir seUó, eftir Markus Fagemdd frá Finnlandi, sem hann
nefnir Ingrepp II, var mjög vel leikið af Jukka Rautasalo. Verkið er fag-
lega skrifað og virkaði sannfærandi. Þuríður Jónsdóttir, sem hefur num-
ið flautuleik og tónsmíðar á íslandi og ítaUu, átti næsta verk, einleiksverk-
ið Studio fyrir sembal. Verkið er æði einhæft, trillur og arpeggíó, sem
ekki leiða til neinnar nýrrar niðurstöðu frá upphafmu. Guðrún Óskars-
dóttir lék verkið ágætlega. Síðasta verk tónleikanna var Vier Widmungen
fyrir blásarakvintett, eftir danska höfundinn Klaus Ib Jörgensen. Verkið
er kunnáttusamlega skrifað og einkar áheyrilegt. Víddin sem það spann-
ar er þónokkur og skhur eftir góða minningu. Það var ennfremur, eins
og fyrsta verk tónleikanna, mjög vel leikið af Blásarakvintett Reykjavíkur.
Volvo F 609, árg. 1977, til sölu, ekinn
200 þús. km, 5 m kassi. Verð 500 þús.
með vsk. Uppl. í síma 91-51070 og á
kvöldin í síma 91-54980.
Nissan 100 NX, árg. '91, ekinn aðeins
10 þús. km, 5 gíra, vökvastýri, rafinagn
í rúðum, centrallæsingar, upphituð
sæti, 16 ventla, m/beinni innspýtingu,
gulur sportbíll. Úppl. gefur Bílasala
Reykjavíkur, s. 678888.