Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1992, Page 2
2
MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1992.
Fréttir______________________________________________________________________________dv
Jöfhunargjald verður sett á vegna húshitunar:
Samstaða hef ur tekist
um fjármagnstekjuskatt
niðurskurðurinn 1 heilbrigðis- og tryggingamálum er yfír tveir miUjarðar
Þingmenn Sjáfstæöisflokks, sem
eiga sæti í fjárlaganefnd og efnahags-
og viöskiptanefnd, hittust um helg-
ina þar sem þeir ræddu fjárlagavinn-
una en eins og DV hefur skýrt frá
hefur reynst mun erfiöara að koma
saman fjárlögum en gert var ráð fyr-
ir og þegar er sýnt aö fjárlög verða
ekki lögð fram fyrr en einhveijum
dögum seinna en aö var stefnt.
Heimildir DV úr Sjálfstæðisflokki
segja að þar á bæ hafi nánast ekkert
verið rætt um breytingar á virðis-
aukaskattinum. Þrátt fyrir það eru
þingmenn með skoðanir á máhnu.
Helst virðist stefna í átök um ein-
staka þætti, svo sem skattlagningu á
húshitun og gistingu.
Innan beggja stjómarflokkanna er
talað um að tekið verði upp jöfnunar-
gjald vegna þeirrar hækkunar sem
leggst á húshitun vegna virðisauk-
ans, þannig að hægt verði að greiða
niður kyndikostnað þar sem hann
er dýrastur, það er á þeim stöðum
sem nota rafmagn til hitunar. Ekki
er búiö að útfæra með hvaða hætti
þetta jöfnunargjald verður.
Þá óttast menn að hótel og aðrir
gististaðir þoli ekki virðisaukaskatt.
Halldór Blöndal samgönguráðherra
vildi lítið um þetta ræða - annað en
aö hann hefði skipað nefnd til að leita
leiða til að lækka verð í ferðaþjón-
ustu.
Innan þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins eru sterkar raddir sem
segjast ekki geta sætt sig viö tveggja
þrepa virðisauka án þess að matvæli
verði í neðra þrepinu en svo virðist
sem það sé tómt mál að tala um.
Það eru nokkur atriði önnur en þau
sem hér hafa verið tahn sem ekki er
samstaða um. Þó hefur tekist sam-
staða mihi stjórnarflokkanna um að
fjármagnstekj uskattur verði tekinn
upp í áföngum og að fyrsti áfangi
komi til framkvæmda strax á næsta
ári. Með þessu verða fjármagnstekj-
ur, það er bæði af bréfum og pening-
um, skattlagðar jafnt á við eigna-
skatta.
Beinn fjármagnstekjuskattur verö-
ur ekki tekinn upp núna en með
þessu er ekknaskatturinn svokallaði
sagður heyra sögunni th. Sem dæmi
má nefna að nú sleppur fólk ekki
undan skatti ef það selur húsið sitt
og setur peninga í banka eöa verð-
bréf.
Eitt þeirra atriða, sem margir
stjómarliða virðast vera mótfallnir,
er skerðing á fæðingarorlofi.
Kvennahstakonur hafa lýst sig alfar-
ið á móti þessum hugmyndum.
Eitt þeirra mála, sem hvað mestur
ágreiningur er um mihi stjórnar-
flokkanna, er skólagjöld. Þar eru
kratar á móti en sjálfstæðismenn
meö Ólaf G. Einarsson í fararbroddi
segja krata þá þurfa að þola annan
og ekki síður sársaukafullan niður-
skurð á móti.
Flestir þeir ráðherrar sem DV
ræddi viö sögðust búnir að ganga frá
niðurskurðartillögum í sínum ráðu-
neytum en þeir vhdu ekki ræða um
hversu mikið verður skorið niður -
og ahs ekki hvað verður skorið nið-
ur. „Þetta verða niðurskurðarfjár-
lög,“ sagöi einn þeirra. Heimildir DV
herma að í heilbrigðis- og trygginga-
málum verði skorið niður um rúma
tvomilljarða. -sme
Fjölmenni sótti sýningu Hundaræktarfélags íslands I Laugardalshöll I gær. Besti hundur sýningarinnar var valinn
Fróði fró Götu. Edda Sigurösson, eigandi hundsins, sýnir hann hér aö lokinni keppni. DV-mynd Rasi
Framtíö Miklagarös ræðst á fimmtudag:
Óvissa um öf lun
350 milljóna
króna hlutafjár
„Ég get ekki talað mikið um þaö
hverjir ætli að kaupa hlutafé í Milda-
garði eða hve mikið. Stjómarfundur
Sambandsins næstkomandi fimmtu-
dag mun taka Miklagarðsmáhð til
umræðu og það verður væntanlega
lokaumræða. Fyrst þá mun verða
ljóst hvemig th tekst,“ sagði Sigurð-
ur Markússon, stjórnarformaður
Sambands íslenskra samvinnufé-
laga, við DV.
Th að mæta rekstrarvanda Mikla-
garðs hf„ sem hefur verið vemlegur
síðustu ár, hefur verið ákveðið að
auka hlutafé félagsins um 350 mihj-
ónir króna. í DV á laugardag vísuðu
Sigurður og Sverrir Hermannsson,
bankastjóri Landsbankans, á bug
fréttum um aö Landsbankinn hefði
hafnað beiöni Sambandsins um 400
mihjóna króna lán th að rétta hlut
Miklagarðs.
- Heldurðu að þessi björgunarth-
raun takist?
„Ég er nokkuö bjartsýnn á að það
takist að afla nýs hlutafjár en hvort
upphæðin veröur 350 mhljónir eða
eiihiver önnur verður ekki Ijóst fyrr
en eftir fundinn á fimmtudaginn."
- Hvað gerist ef ekki tekst að safna
thætluðu hlutafé?
„Ég vh ekki reyna aö svara þeirri
spumingu fyrr en ég sé hvað kemur
út úr umræddum stjómarfundi."
Á aðalfundi Sambandsins í sumar
var gerð stefnumarkandi samþykkt
þar sem segir að stefna beri að dreif-
ingu eignarhalds í hinum nýju hluta-
félögum sambandsins, sex að tölu,
þar á meðal Miklagarði. Þannig fari
enginn einn aðili með meira en þriðj-
ung eignarhalds í hverju einstöku
félagi.
Sambandið á mikinn meirihluta í
fjórum þeirra, Samskipum, Jötni,
Miklagarði og íslenskum skinnaiðn-
aði en um það bh helming í íslensk-
um sjávarafurðum og Goða. Ef sala
meirihlutaeignar Sambandsins
gengur eftir verður Sambandið ein-
ungis samband kaupfélaganna, eins
og það var upphaflega, og eignar-
haldsfélag með mun minna umleikis
en nú. Engin tímamörk hafa verið
sett varðandi sölu á meirihluta í fé-
lögunum sex. Segir Sigurður að um
nokkurra ára ferh sé að ræða.
„Við erum byrjaðir að selja hluti
af félögunum en ekki er mikhl skrið-
ur á sölunni. Undanfarið hefur staðið
yfir sala á hlutabréfum í Samskipum
sem gengur samkvæmt varlegri
áætlun Landsbréfa, sem sjá um söl-
una, og tekur mið af hiutabréfamark-
aðnum eins og hann er núna.“
-hlh
Frísvæði á Suðumesjum:
Bnhver tregða er í fjármálaráðuneytinu
„Við erum að brenna á tíma. Hug-
myndinni um frísvæði á Suöumesj-
um hefur verið vel tekið í utanríkis-
og iðnaðarráðuneytunum en mér
finnst eins og einhver tregða sé í fjár-
málaráöuneytinu. Menn era uggandi
um að ekkert verði af þessu ef svona
heldur fram,“ sagöi Oddur Einars-
son, framkvæmdastjóri Atvinnuþró-
unarfélags Suöumesja. Suðumesja-
menn hafa unnið að því að frísvæði
veröi komið upp þar sem iðnaöur,
verslun og önnur þjónusta njóti tolla-
og skattafríðinda. Útfærsla á frí-
svæðinu er th athugunar hjá fjár-
málaráöuneytinu og em Suðumesja-
menn orðnir óþreyjufuhir eftir af-
greiðslu ráðuneytisins. Vonir hafa
staðið th að koma frísvæðinu á um
næstu áramót þegar samningurinn
um Evrópska efnahagssvæðiö tekur
ghdi, EES-samningurinn.
Um frísvæði sem þessi ghda sér-
stakar reglur hvað varðar tollmeö-
ferð, skattlagningu og fleira. Sem
dæmi má nefna fniðnaðarsvæðið
Shannon á írlandi. Fyrirtæki á svona
svæðum flytja gjaman inn hráefni
th að vinna úr því og flytja síðan út,
aht tollfijálst.
Meginástæðan fyrir áhuga Suður-
nesjamanna er erindi bandarísks
tölvufyrirtækis sem hefur sýnt
áhuga að hefja starfsemi á frísvæði
á EES-svæðinu og er með ísland þar
efst á blaði. Fyrirtækið og umboðsað-
ih þess á íslandi, Aco hf„ hafa sýnt
útreikninga sem sýna hagkvæmni
þess að athafnast á frísvæði á Suður-
nesjum. Utanríkisráðuneytið og iðn-
aðarráðuneytið hafa skoðað þessa
útreikninga og segir Oddur við-
brögðin hafa veriö jákvæð. Flösku-
hálsinn er hins vegar í fjármálaráðu-
neytinu. Að sögn Odds er nýleg
reglugerð um frísvæði ástæðan fyrir
tregðunni. Reglugerðin byggist á lög-
um um tolla.
„Reglugerðin byggist á gömlum
hugmyndum um gaddavírsgirðingu
og tohhhð í kringum frísv^eði sem
hafa tíðkast th þessa. Núna era að-
stæður hins vegar að breytast, jafnt
vestan hafs sem austan, með nýjustu
tækni. Efdrht tohyfirvalda fer bara
fram í gegnum tölvur og girðingar
eða tohhhð er óþarfi. Th aö útfæra
hugmyndir Bandaríkjamannanna
þarf að breyta þessari reglugerð. Það
stendur eitthvaö í mönnum í fjár-
málaráðuneytinu. Ef máhð dregst
lengi gæti farið svo að bandaríska
fyrirtækið missi áhugann og fari eitt-
hvað annað,“ sagöi Oddur.
Atvinnuþróunarfélag Suðurnesja
hefur verið í sambandi við tvö önnur
erlend fyrirtæki í iðnaði sem hafa
sýnt áhuga á að starfa á frísvæði.
Ekki náðist í fjármálaráðherra
vegnaþessamáls. -bjb