Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1992, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1992.
11
Útlönd
Færeyingar famir að finna olíulykt:
Fengu f ull yf irráð
yf ir landgrunninu
- Grænlendingar kreflast hins sama
Færeyingar hafa nú fengið yfir-
ráð yfir landgrunni sínu og þar með
allri þeirri olíu og gasi sem þar
kann að finnast.
Þetta er niðurstaða 'fundar milli
Pauls Schltiters, forsætisráðherra
Danmerkur, og Atla Dam, lög-
manns Færeyja, á fóstudag. Fund-
inn sátu einnig Uffe Ellemann-
Jensen, utanríkisráðherra Dan-
merkur, og Anne Birgitte Lundholt
orkumálaráðherra.
Samkomulagið felur í sér að Fær-
eyingar veröi sjálfir að standa
straum af öllum kostnaði við rann-
sóknir á landgrunninu. Engin vissa
er fyrir því að olía finnist á fær-
eyska landgrunninu en það eykur
mönnum bjartsýni aö olía hefur
fundist við tilraunaboranir Breta
skammt utan færeyskrar lögsögu.
Og olíufélögin hafa sýnt áhuga á
að hefja rannsóknir á færeyska
svæðinu.
Ekki verða Færeyingar þó ríkir í
einu vetfangi. Samkvæmt sam-
komulaginu munu hugsanlegar
tekjur af olíuvinnslu kalla á við-
ræður um lækkun danskra ríkis-
styrkja til Færeyja.
I kjölfar samkomulagsins við
Færeyinga hefur grænlenska
heimastjómin nú krafist sams kon-
ar yfirráða yfir auðæfum í græn-
lenska landgrunninu.
Lars Emil Johansen, formaður
grænlensku landstjómarinnar, fer
til Kaupmannahafnar 1 vikunni og
mun hann taka máhð upp á fund-
um með Paul Schluter.
Ritzau
/
KOMDU OG SKOÐAÐU KISTUNA MINA!
STORLÆKKAÐ VERÐ - NU AÐEINS:
234 LÍTRA - KR. 39.970 STGR.
348 LÍTRA - KR. 44.990 .- STGR.
462 LÍTRA - KR. 49.990 .- STGR.
576 LÍTRA - KR. 66.940 STGR.
Hraðfrystihólf. Hraðfrystistilling. Körfur sem hægl er oð
stafla. Ljós í loki. Barnaöryggi ó nitastillihnappi.Öryggisljós
við of hótt hitastig. Frórennslisloki fyrir affrystingu. Hitamælir
og ismolaform. GRAM -EIN MEÐ ÖLLU. Q
DDD O
VISA og EURO raðgreiðslur lil allt að 18 món.,
ón útborgunor. MUNALÁN með 25% útb. og
eftirstöðvar 3.000 ó mónuði.
jFOrax
HATÚNI6A SÍMI (91 >24420
Vextir lækkaðir og
gengisfelling í EB
Þjóðverjar ætla að lækka vexti í
dag til að draga úr áhrifum krepp-
unnar í Evrópu. Aðrar þjóðir Evr-
ópubandalagsins ættu því að geta
fylgt í kjölfarið. Þá var einnig til-
kynnt af hálfu EB í gær að gengi ít-
ölsku lírunnar hefði verið fellt um
sjö prósent innan gengiskerfis
bandalagsins.
Ákvörðun þessi var tilkynnt aðeins
viku eftir að íjármálaráðherrar EB
sögðu að ekki yrði nein breyting gerð
á gengi bandalagsmyntanna og
bankastjóri þýska seðlabankans
sagði að vextir yrðu ekki lækkaðir.
Theo Waigel, fjármálaráðherra
Þýskalands, sagði að lægri Vextir í
Þýskalandi yrðu til þess að auka
hagvöxt í Evrópu og þeir yrðu
frönskum kjósendum hvatning til að
samþykkja Maastricht-samninginn
um póhtíska og efnahagslega einingu
EB í þjóðaratkvæðagreiðslunni
næsta sunnudag.
Háir vextir í Þýskalandi hafa neytt
aðrar þjóðir innan EB til að halda
sínum vöxtum háum, þrátt fyrir
hægan hagvöxt og mikið atvinnu-
leysi, til að viðhalda jafnvægi milU
myntanna í evrópska myntkerfinu.
Itaiska stjómarandstaðan gagn-
rýndi GiuUano Amato forsætisráð-
herra harðlega fyrir efnahagsstjóm
landsins í kjölfar gengislækkunar ít-
ölsku límnnar. Þá voru iðnrekendur
ekkiaUtofhrifnirheldur. Reuter
MYNDBANDSTÆKI
TÆKNILEGAR UPPLVSINGAR:
• 94 rásir, beinval á 32 prógröm
• 4 vikna upptökuminni með 8 minnum
»SCART-tengi
&TVÆR 3ja TÍMA
VÍDEÓSPÓLUR
• Kyrrmynd
• Hraðspólun með mynd í báðar áttir
• Hraðupptaka
• Sjálfvirk bakspólun
• Sjálfvirk endurspilun
• Suðhreinsikerfi
• Teljari og teljaraminni
OPIÐ
LAUGARDAGA
FRÁ11-4
MUNALÁN
1 ÁRS ÁBYRGÐ
ÞÝSKT GÆÐAMERKI