Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1992, Blaðsíða 27
26
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1992.
Trúaður fram-
kvæmdamaður
- Tómas A. Tómasson í augum vina og samstarfsmanna
„Tommi var mjög bráðþroska í öllu
tilíiti. Við byrjuöum á aö fikta við
að reykja í ellefu ára bekk. í tólf ára
bekk var Tommi kominn á fast með
skólasystur okkar. Það var mikil
ást,“ segir Tómas Á. Einarsson tann-
læknir um Tómas A. Tómasson veit-
ingamann sem keypti Hótel Borg á
dögunum.
Nafnamir voru sessunautur í
Melaskóla í fjögur ár frá eUefu ára
aldri. Þeir halda enn sambandi og í
vetur unnu þeir að því að koma
gömlu bekkjarfélögum sínum saman
í tilefni áf því að þijátíu ár eru liðin
síðan þeir kláruðu bamaskólapróf.
Elín Thorarensen var kennari
þeirra í Melaskóla. Henni var boðið
í 30 ára afmælið sem haldið var í
Hard Rock og síðan var farið í Ömmu
Lú á eftir.
„Báðir staðimir eru glæsilegir og
Tómasi til sóma,“ segir Elín. „Tómas
var einstaklega góður nemandi og
yfirvegaður eins og bekkurinn í
heild. Þó ég sé ekki vel kunnug í
veitingahúsarekstrinum tel ég að
Hótel Borg hefði vart getað fengið
betri veitingamann og hún er því í
góðum höndum. Ég óska Tómasi til
hamingju með kaupin um leið og ég
þakka honum og bekknum í heild
þann hlýhug sem þau hafa sýnt
mér.“
Alinn upp
hjá Ömmu Lú
Tómas Andrés Tómasson er fædd-
ur 4. aprO 1949. Móðir hans er Katrín
Fjeldsted en faðir hans Thomas A.
Downey sem búsettur er í Bandaríkj-
unum. Tómas er alinn upp hjá afa
sínum og ömmu, Lárusi Andrési
Fjeldsted og konu hans, Lovísu Ág-
ústsdóttur. Tómas Einarsson tann-
læknir segir að félagar Tomma hafi
alltaf verið velkomnir heima hjá afa
hans og ömmu.
„Lovísa sýndi okkur mikla þolin-
mæði og var ákaflega góð við okkur.
Móðir Tomma sendi honum reglu-
lega sælgæti frá Ameríku og við nut-
um góðs af. Ég man sérstaklega eftir
Hershey’s súkkulaðinu sem okkur
þótti ákaflega gott,“ segir Tómas.
„Þegar hún kom íslands fékk Tommi
að velja sér eina gjöf. Ellefu ára bað
hann um viskífleyg, sem var í laginu
eins og lítil bók, og fékk hann. í fyrsta
á Þingvöllum," segir Jórunn Viðar,
píanóleikari og tónskáld. Lárus, eig-
inmaður Jórunnar, var móðurbróðir
Tomma. „Tommi var ósköp indæll
og laglegur drengur. Hann var aldrei
að reyna neitt teygjuhopp hjá mér.
Hann reyndi þó einu sinni að klifra
upp á skúrþak en datt niður og lær-
brotnaði. Þess vegna var ég svo hissa
þegar hann fór í þetta teygjuhopp."
Jórunn segir að Tommi hafí
snemma haft tilhneigingu til þess að.
vera góður veitingamaður. Þegar
amma hans veiktist hugsaði Tommi
um afa sinn.
„Hann dekkaði alltaf upp borð,
mjög fallega með silfri og flnasta
stelli. Svo matreiddi hann fyrir afa
sinn og bar það svo fallega fram,“
segir Jórunn. „Hann sauð egg handa
honum og það var alveg mátulegt.
Amma Lú hafði áhyggjur af því hvað
yrði úr drengnum hennar en ég sagði
að hann yrði góður kokkur."
Tók átta ár að
klára fjóra bekki
Að loknu námi í gagnfræðaskóla
lá leið Tomma í Verslunarskóla ís-
lands. Það tók hann reyndar átta ár
að klára fjóra bekki enda var hann
með mörg járn í eldinum. Árin 1965
og 1966 kláraði hann fyrsta og annan
bekk og hætti svo. Hann tók tii við
námið í Versló aftur 1971 og lauk
jafnframt matsveinsprófi frá Hótel-
og veitingaskóla íslands. Með fjóröa
og síöasta bekk var hann í fullri
Tommi hefur alltaf verið veikur fyrir glæsilegum bílum.
bekk kom hann með viskífleyginn í
skólann, missti hann í gólfið og það
var mikið uppistand.“
Fékk skot í augað
Tómas segist vel muna eftir slysinu
þegar Tommi eyðilagði í sér augað.
Þetta var að sumarlagi og Tommi var
í byggingarvinnu, þá 14 ára gamall.
í kaffitímanum voru strákamir að
leika sér með loftriffil og skjóta í
mark. Loftriffillinn stóð á sér og
Tommi þurfti að athuga það nánar
og kíkti upp í hlaupiö. Um leið hljóp
skotið af sjálfu sér úr byssunni og
beint í augaö.
„Hann lá lengi á sjúkrahúsi með
bundið fyrir bæði augun. Okkur þótti
þetta hræðilegt því það var lengi
hætta á að hann yrði blindur á báð-
um augum,“ segir Tómas.
Hæfileikamir
komu snemma í ljós
„Tommi er hálfgerður fóstursonur
minn. Hann var nokkur sumur með
minni fjölskyldu í sumarbústaðnum
vinnu í flugeldhúsi Loftleiða á Kefla-
víkurflugvelli. Sótti skólann fióra
daga og vann í fióra daga.
Hermann Ragnar Stefánsson réð
Tomma til sín árið 1972. Tommi var
þá matsveinn hjá Loftleiðum á Kefla-
víkurflugvelli. Þar vann líka dóttir
Hermanns, Henný, sem hlaðfreyja
og flugfreyja.
„Ég var að leita að manni til að
hjálpa
mér með veislur og samkvæmi sem
dansskólinn var leigöur undir um
helgar. Tommi kom til okkar og stóð
sig afburðavel. Sá um veislumar og
pantaði inn. Hann lagði á ráðin um
matseðla og stjómaði veislunum.
Hann gekk vel frá öllum hlutum og
við áttum ánægjulegt og gott sam-
starf. Síðan þá hefur hann verið einn
af mínum uppáhaldsvinum," segir
Hermann Ragnar.
Stjómsamur
en notalegur
„Tommi er duglegur, samvisku-
samur og gott að lynda við hann í
alla staði. Hann er mjög sérstakur,
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1992.
39
Tommi fyrir utan Hard Rock að prófa teygjuna áður en hann fór stökkið fræga
hlýr og notalegur og á auðvelt með
að umgangast fólk. En hann er
stjómsamur og það er bara af hinu
góða. Ég kunni vel við það.“
Þegar Tommi hætti hjá Hermanni
keypti hann Matarbúðina í Hafnar-
firði. Sá rekstur gekk illa og lokaði
hann fljótlega. Það var fyrsta alvar-
lega áfall hans í rekstri.
Tommi verður fyrst nafnkunnur
veitingamaður þegar hann tók við
Festi Grindavík sem hann rak frá 1.
maí 1974 til ársloka 1977. Þá var Festi
aðalskemmtistaðurinn og ungt fólk
af Suðurnesjum og Reykjavík flykkt-
ist í Festi. Eiríkur Álexandersson,
'sem nú er útibússtjóri íslandsbanka
í Keflavík, var þá sveitarstjóri í
Grindavík. Hann réð Tomma sem
framkvæmdastjóra að félagsheimil-
inu Festi og áttu þeir gott samstarf.
Grindavíkoflítil
„Reksturinn gekk strax vel í hönd-
unum á honum og skilaöi hagnaði.
Hann er áhlaupamaður og gefur sig
allan í það sem hann er að gera.
Hann þarf að hafa eitthvað krefiandi
fyrir stafni og svo leið að því að
Grindavík var ekki nógu stór fyrir
Tomrna," segir Eiríkur Alexanders-
son.
Eiríkur segir frá þvi að eitt sinn
hafi Tommi leitað ráða hjá honum
varðandi bílakaup. Þá hafði Tommi
svartan Benz í sigtinu og bar kaupin
undir Eirík. „Ég réð honum eindreg-
ið frá því að kaupa bílinn og studdi
það mörgum rökum. Tommi stóð
upp, gekk að dyrunum og sneri sér
við og þakkaði mér fyrir ráðlegging-
amar. Spurði svo hvort mér væri
ekki sama þó hann færi ekki eftir
þeim. Hann hafði mikla ánægju af
bílnum þann stutta tíma sem hann
átti hann en ég hafði samt rétt fyrir
mér,“ segir Eiríkm'.
Þegar Tommi var framkvæmda-
stjóri í Festi fékk hann Konráð
Adolphsson hjá Stjórnunarfélaginu
til að halda Dale Camegie námskeið
sem allir frammámenn bæjarins
sóttu. Hann varð síöan aðstoðarmað-
ur á Camegie-námskeiðunum.
Framkvæmir
hugmyndimar
„Tommi er einn af þessum sjald-
Matreiðslumaðurinn Tommi lagði allt undir þegar hann opnaöi Tommaborg-
ara en tókst að selja landanum eina milljón hamborgara.
gæfu mönnum með ótrúlegt hug-
myndaflug og framkvæmir hug-
myndimar. Þeir sem hlusta á
Tomma fyllast allir eldmóði þegar
hann fer að taka flugið. Hann er langt
á undan sinni samtíð. Það er svo
mikill lífskraftur í Tomma og eitt-
hvað sem knýr hann áfram til að
skara fram úr. Hann er nú búinn að
sýna þaö gegnum árin aö hann stend-
ur við það sem hann segir,“ segir
Konráð Adolphsson.
„Tommi er góður vinur vina sinna
og alltaf þegar þú kemur til hans tek-
ur hann þér opnum örmum og vill
allt fyrir þig gera. Hann er traustur
og man eftir þér.“
Ætti að leysa
Davíð Oddsson af
Konráð vill fá fleiri athafnamenn á
borð við Tomma og gefa ráðamönn-
um frí. „Við ættum að láta Davíð
Oddsson í Hard Rock og láta Tomma
taka við starfi hans i smátíma. Hann
myndi koma lífi og fiöri í íslenskt
atvinnulíf sem er alveg að deyja út
og sérstaklega út af nöldri og kvein-
stöfum í forráöamönnum þjóöarinn-
ar. í krepputali þurfa menn að vera
jákvæðir og tala um tækifærin.
Tommi væri kjörinn í að benda
mönnum á nýjar leiðir."
Árið 1977 fór Tommi með fiölskyldu
sína, eiginkonu og tvo syni, -til
Flórída að læra hótel- og veitinga-
rekstur. Hann lauk BS prófi í Inter-
nátional Hotel Management. Tommi
lagði ekki mikla rækt við skólanámið
en stundaði veitingastaði mikið. Að
beiðni sonanna, Yngva Týs og Tóm-
asar Áka, var öðru hvoru farið á
MacDonald’s eða Burger King. Þá
fannst Tomma matreiðsla á ham-
borgurum eitthvað það mest niður-
lægjandi sem menn gátu unnið við.
Sú skoðun átti eftir að breytast.
Sú skoðun átti eftir að breytast.
Eftir óreglutímabil fór Tommi í
áfengismeðferð árið 1980 og þegar út
úr henni kom var ekki um auðugan
garð að gresja í atvinnu. Hann átti
að heita sprenglærður í hótelfræðum
en enginn vildi hann í vinnu. Hann
aðstoðaði vin sinn við aö koma ham-
borgarastaðnum Winny’s á laggimar
og uppgötvaði að hann kunni ýmis-
legt fyrir sér í gerð hamborgara effir
dvölina í Ameríku.
Hamborgara-
bakterían
Upp úr þessu fékk Tommi ham-
borgarabakteríuna og lagði allt und-
ir. Hann og þáverandi kona hans,
Helga Bjamadóttir, bjuggu á skrif-
stofunni á væntanlegum Tommastað
á Grensásveginum í 10 mánuði enda
fór allt þeirra fé 1 að koma Tomma-
borgumm af stað. Þann 14. marz 1981
opnuðu þau fyrsta Tomma staðinn
og landinn tók við sér í hamborgara-
átinu.
Veitingastaöir undir heitinu
Tommaborgarar urðu aUs sex. Það
var ekki nóg og Tommi opnað
skemmtistaðinn VUlta, tryUta VUla
við Skúlagötu og Pottinn og pönnuna
með Úlfari Eysteinssyni og Sigurði
SumarUðasyni.
Milljón hamborgarar
Eftír að hafa selt eina milljón ham-
borgara seldi Tommi allt sitt á ný
1983 og fór í vettvangsrannsókn til
Bandarríkjanna í eitt ár. Þegar heim
kom hafði hann enn nýjar hugmynd-
ir að veitíngastað og úr varð Hard
Rock Café í Kringlunni sem var opn-
aður í júlfiok 1987. Hann hélt upp á
fimm ára afmæU Hard Rock í ár með
því að vera fyrstur manna til að
stökkva úr teygju hérlendis, svo sem
frægt er orðiö.
Það var mikið um dýrðir þegar
Amma Lú tók tíl starfa árið 1990.
Staðurinn þykir sá glæsUegastí sem
sögur fara af á jslandi. Enn virtist
Tommi hafa framkvæmt rétta hug-
mynd á réttum tíma. Amma Lú er
nefnd í höfuðið á ömmu Tomma,
Lovísu, og staðinn prýðir málverk
af henni. Sama ár opnaði Tommi
Glaumbar í Tryggvagötu.
Á sterka trú
Tommi er mikiU trúmaður og er
aðstoðarmeðhjálpari í Grensás-
kirkju. Hans nánasti vinur er Hall-
dór Gröndal, sóknarprestur í Grens-
ásprestakaUi. Þeir hafa þekkst í mörg
ár enda kollegar þvi HaUdór er fyrr-
um veitingamaður.
„Tómas á gífurlega sterka trú í
hjarta sínu og er góður bænamaður.
Við höfum rætt og iðkað saman
trúna. Svo bauð hann fram sína þjón-
ustu fiér í kirkjunni sem er alveg
sérstakt. Ég held hann hafi komið í
hveija einustu messu í mörg ár.
Hann hefur góðan skilning á kristí-
legri vakningu sem kom hér upp úr
1972 enda opinn og framsýnn maður.
Hann elskar drottín sinn, viU þjóna
honum og gerir það,“ segir séra Hall-
dór Gröndal og er Uka ánægður með
veitingamanninn Tomma.
„Það sem Tómas tekur sér fyrir
hendur gerir hann vel. Þess vegna
varð ég ógurlega glaður þegar ég
heyrði að hann hafði keypt Borgina.
Ég bað mikið tíl guðs um að það
mættí verða mikU blessun, af því að
ég treystí honum tíl að reisa hana
við. Þetta hefur líka persónulega
þýðingu fyrir mig. Faðir minn var
þarna yfirþjónn og þama steig ég
tólf ára mín fyrstu spor í veitinga-
bransanum sem pikkaló sem kallað
var á þeim árum.“
Leynd þörf fyrir
viðurkenningu
Á dögunum keyptí Tommi Hótel
Borg sem hann ætlar að reka sem
hótel og veitingastað. Viðmælendur
DV voru sammála um að Tommi
þrifist best þegar ögrunin væri mest.
Þegar fyrirtæki hans eru komin á
lygnan sjó fer honum að leiðast og
hann viU takast á við eitthvað nýtt.
„Ég hef einhveija leynda þörf fyrir
viðurkenningu. Ég treysti á sjálfan
mig en aðaUega á guð almáttugan,"
segir Tómas A. Tómasson veitinga-
maður sem eftírleiðis verður kennd-
ur við Borgina.
JJ/IBS