Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1992, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1992, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1992. 41 - Helgarpopp með sóló- plötu Björk Guömundsdóttir Sykur- moli er þessa dagana að leggja lokahönd á gerð sinnar fyrstu sólóplötu sem er væntanleg á markað í byrjun næsta árs. Plat- an, sem ku verða með djassivafi, var hljóðrituð í Bretlandi og nú er Björk í Los Angeles þar sem hljóöblöndun fer fram. Enginn hinna Sykurmolanna kemur nærri vinnslu plötunnar og styðst Björk aðallega við útlenda aöstoðarmenn. Þar fer iremstur Graharo Massey úr 808 State. Þá syngur Björk dúett raeð Nellie Hooper úr Soul n Soul í einu lagi. Mixaðir molar Um næstu mánaðamót koma út tvær re-mix plötur með Sykur- molunum. Um er að ræða safn af eldri lögum hfiómsveitarinnar og koma ýmsir tónlistarmenn og snúðar við sögu enda lögin öll endurhljóðblönduö að einhveiju leyti. Meöal þehra sem snúa tökkum eru Youth úr Killing Joke og Graham Massey úr 808 State. Ónnur platan ku verða tvö- fóld en hin í venjulegri lengd. Black Sabbath fyrir aðkasti sértrúarhópa Nú styttist óðum í Skagarokk ’92 en það hefst nk. föstudagskvöld með tónleikum Jethro Tull. Kvöldið eftir stíga svo rokkararnir í Black Sab- bath á svið. Mörgum er í fersku minni þegar forsvarsmenn Krossins í Kópavogi fáruðust yfir hingaðkomu Ozzy Osboume sem stóð fyrir dyrum fyrr á þessu ári. Ozzy, sem fyrnnn var meðlimur í Black Sabbath, var sakaður um djöfladýrkun og fram- komu sem talin var æskufólki til óheilla. Siðprúði meirihlutinn og ýmsir sértrúarhópar í Bandaríkjunum hafa haft horn í síðu Ozzy og fleiri þunga- rokkara, þar á meðal Black Sabbath sem kemur hingaö til lands í næstu viku. Sértrúarhópar vestra hafa und- anfamar vikur farið á stjá í tengslum við tónleikaferð Black Sabbath og halda því fram að sveitin leggi sig fram um að skemmta skrattanum og misbjóða trúuðu fólki. Á nokkmm stöðum hafa trúarhópar efnt til mót- mælastöðu fyrir utan tónleikahalhr. Ronnie James Dio, söngvari Sabbath, hefur haft þann sið að fagna áhorf- endum með því að rétta upp vísi- og litlafingur hægri handar. Þetta telja trúarhópar vera tákn djöfulsins og að merkið tákni homin á kölska. Átök góðs og ills Á tónleikaferð sveitarinnar und- anfarið hefur stór hvítur kross verið á tjaldi að baki sveitinni. Fyrir ofan krossinn er hins vegar púki með þrí- fork. Meðlimir Black Sabbath segja þetta táknrænt fyrir baráttu góðs og ills og vísa gagnrýni á bug sem segir hljómsveitina vera að storka trúuðu fólki. Reyndar hefur Black Sabbath lengi verið kennd við kukl og djöfla- trú. Meðhmir hljómsveitarinnar hafa aha tíð borið shkar sakir af sér og Rannie James Dio hefur sagt í viðtali að þessi umræða hafi hjálpað sveitinni til að koma sér á framfæri á sínum tíma en meðlimum hafi ver- ið htt um hana gefið. Þegar þeir hins vegar sáu að ekki stoðaði aö beijast á móti slíku umtah hafi þeir ýtt und- ir það, m.a. með því að sthla upp táknum góðs og ihs á tónleikum. Þaö vekur hins vegar athygli að allir meðlimir Black Sabbath ganga með kross um hálsinn sem vott um trú þeirra á guð. Þeir segja þó að ekki sé hægt að víkja sér undan þeirri staðreynd að öfl góðs og hls takist stööugt á í heiminum. Black Sabbath. \ Sálin hans Jóns Sálin í hljóðver Sáhn hans Jóns míns, vinsælasta hljómsveit landsins, heldur í hjjóð- ver á mánudag. Hljómsveitin er th- búin með tíu lög sem verða tekin upp á tólf döginn. Stefán Hilmars- son, söngvari sálarinnar, sagði í samtali við Poppsíðuna að það kvæði við nýjan tón í þessum lög- um. Línan er grófari en áður og lögin pönk-skotin sum hver. Platan verður hljóðrituö í Stúdíó Sýrlandi og mun Eric Zobler, útlendur sánd-gúru, aðstoða hljómsveitina við upptökur. Eric þessi hefur unn- ið talsvert með Mezzoforte. Upp- tökutíminn er óvenjustuttur og er hugmyndin að keyra efnið að stærstum hluta life inn en sáhn hefur áður tekið sér aht að tvo mánuði í vinnslu hverrar plötu. Lögin eru öh samin af hljómsveit- inni í hehd en lagasmíðar hafa hingað th komið úr smiðju Guð- mundar Jónssonar og textamir frá Stefáni. Það er því margt breytt í vinnubrögðum frá því sem verið hefur hjá Sálinni hans Jóns míns og verður fróðlegt að heyra útkom- una þegar nýja platan kemur á markað í nóvember. Ný dönsk slær í Hljómsveitin Ný dönsk vinnur nú við upptökur í Jacobs-hljóðverinu í Surrey. Upptökur hófust sl. mánudag en áður en hljómsveitin skundaði í hfióðver hélt hún tónleika í London þar sem áhrifamenn úr tónhstargeir- anum hlýddu á leik hennar. Þar á Umsjón: Snorri Már Skúlason meðal var trommuleikarinn úr Prefab Sprout sem bar mikiö lof á leik hljómsveitarinnar eins og flestir viðstaddra. í framhaldi af tónleikun- um var Ný danskri boðið að hita upp fyrir hljómsveitina ELO Part n á tón- leikaferð hjjómsveitarinnar um stóra Bretland. ELO Part II er skipuö öhum gömlum meðlimum ELO utan Jeff Lynn. Þetta boð er talsverð upphefö fyrir Ný danska enda ELO-sveitin mjög vinsæl á Bretlandi um þessar mund- ir. Tónleikaferðin tekur um tvær vik- ur og á þeim tíma sphar Ihjómsveitin tólf sinnum, þar á meðal í hinni frægu tónleikahöh Hammersmith Odeon í London. Bjöm J. Friöbjömsson bassaleikari Ný danskrar sagði í samtali við poppsíðuna að beðið væri atvinnu- leyfis fyrir hljómsveitina og vinnur sendiráö íslands í London að því máh. Ef grænt ljós fæst ætlar Ný dönsk að þekkjast boðið, enda segir Bjöm máhð spennandi. Hljómsveitin fær auglýsingu og athygli sem ekki veitir af í hörðum heimi popptónhst- arinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.