Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1992, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1992.
Veiðivon
Hvar heldur
fiskurinn sig?
- flotholtið segir til
Það er viða fallegt við veiðiárnar eins og hérna við Kerið i Gljúfurá i Borgarfirði þar sem Oskar Magnússon rennir.
Það getur stundum komið sér vel
þegar fiskur sleppur, eins og í Gufu-
dalsvatni í Gufudal fyrir skömmu.
Veiðimaður var að renna og fiskur-
inn tók en bleikjan var vel væn.
Veiðimaðurinn hafði látið flotholtið
sitt liggja úti í og aUt í einu var það
rifiö niður. Baráttan við fiskinn stóð
yfir i 5 mínútur en þá sleit hann. En
fiskurinn var ekki einn þarna í vatn-
inu heldur var torfa af fiski í kring-
um bleikjuna. En þar sem flotholtið
var á sínum stað var alltaf hægt að
fylgjast með hvar bleikjutorfan hélt
sig í vatninu. Enda hafa veiðimenn
veitt marga fiska úr torfunni í sum-
ar. En ekki fiskinn með flotholtið.
Hann er orðinn slyngur með fluguna
hann Magnús Óskarsson, 9 ára, og
hér hann við lax sem hann veiddi í
Hrútafjarðará.
DV-mynd Hrafnhildur
Ein stysta
veiðiá landsins
Vatnsdalsá í Vatnsfirði er ekki löng
en samt hefur veiðin þar verið góö í
sumar. Bæði lax og silungur hafa
veiðst þarna. Vatnsdalsá er ein af
stystu veiðiám landsins. Fleiri en
einn og fleiri en tveir hafa farið í
Vatnsdalsá hálfan dag og fengið 10
laxa. Þetta hafa að minnsta kosti
tveir leikið eftir í sumar. Ósá í Bol-
ungarvík er líka mjög stutt eins og
Vatnsdalsá í Vatnsfirði.
Hamarságefið
vel aflaxi
Þær hafa margar komið á óvart
veiðiámar í sumar og margar gefið
góða veiði sem enginn átti von á. Ein
af þeim veiðiám, sem hafa komið
sterkt út, er Hamarsá á Djúpavogi.
Þeir hafa fengist þar margir laxamir
í sumar en þetta hefur aldrei verið
tahn nein laxveiðiá í gegnum árin.
Þama hafa margir fengið góða veiði
og nokkir af löxunum er vel vænir.
' -G.Bender
DV-mynd Hrafnhildur
Benedikt Ólafsson með lax á flugu
í Gljúfurá í Borgarfirði.
DV-mynd Sveinn Ben
Þjóðar-
spaug DV
Spilaramir
„ Veistu hvað leikmenn þeir sem
spila knattspymu fyrir íþróttafé-
lagið Geislann á Hólmavik eru
kallaðir?"
„Nei.“
„Geislaspilarar.“
Stefnir
Kristján frá Djúpalæk kom ein-
hverju sinni inn á Bifreiöastöðina
Stefni á Akureyri, á meðan stöðin
haföí aðsetur sitt við Strandgöt-
una, og kastaði fram þessum
fyrriparti:
Vömbílastöðin Stefhir
stendur Polli þjá.
Bifreiðastjóramir urðu strax
hrifhir af fyrripartinum sem þeir
töldu lofa góðu um framhaldið og
báðu því Kristján um að botna
vísuna. Hann baðst í fyrstu und-
an en lét þó að lokum til leiðast:
Ökuþórar illa gefhir
aka henni frá.
Ekki fer neinum sögum af áliti
bilstjóranna á seinnipartinum.
Ámilli vina
Heyrt á Naustinu:
Óskar: „Ef ég gifti mig einhvern
tíma verður það fallegri stúlku
og dugandi húsmóður."
Páhni: „Veistu ekki aö tvíkvæni
er strangiega bannað i landinu?“
2 prósent
Á bannárunum í Bandaríkjun-
um mátti áfengisstyrkleiki bjórs
ekki fara yfir 2%. Einn af þeim
íslendingum, sem dvöldu í
Bandaríkjunum á þessum tíma,
var vísnaskáldið Káinn, en eins
og margir vita þótti honum sop-
inn góður og þvi betri sem hann
var sterkari Um þetta áfengis-
magn í bjómum og afleiðingar
þess orti hann:
Ég hlýt aö slá viö slöku
í slyngri ljóðamennt.
Það yrkir enginn stöku
á aðeins 2%.
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja viö þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. verðlaun: TENSAI ferðaút-
varpstæki með kassettu að
verðmæti 5.220 krónur frá
Sjónvarpsmiðstöðinni, Síð-
umúia 2, Reykjavík.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur að verðmæti kr.
3.950. Bækumar, sem eru 1 verö-
laun, heita: Falin markmiö, 58 mín-
útur, Október 1994, Rauði drekinn
og Víghöfði. Bækumar eru gefnar
út af Fijálsri fjölmiðlun.
Merkiö umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 171
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir hundrað
sextugustu og níundu getraun
reyndust vera:
1. Hörður S. Óskarsson
Glaðheimum 10, 104 Reykja-
vík.
2. Emanuel Magnússon
Olafsbraut 64, 355 Ólafsvík.
Vinningarnir veröa sendir
heim.
Heimilisfang: