Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1992, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1992, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1992. 11 Vísnaþáttur Brageyrað er víða veikt Þeir eru að líkindum ekki ýkja margir meðal íslendinga sem aldrei hafa reynt að hnoða saman vísu þótt árangurinn hafi verið ærið misjafn, eins og öllum mun kunn- ugt. En ef' þeim sem reynir tekst aö koma saman einni frambæri- legri stöku er þó betur af stað farið en heima setið. Og hjá mörgum hafa fleiri fylgt á eftir því að æfmg- in gerir meistarann. Og víst væri skarð fyrir skildi væru aðeins snill- ingamir viðurkenndir. Gætum við þvi tekið undir með Snæbimi Ein- arssyni, kennara og skáldi, sem kvað: Oft varð litlu landi lið að skáldsins tungu, þó að þagni rómur þeirra, er fegurst sungu. Vísnaþáttur Torfi Jónsson Inn í Baldurs björtu hjörð barstu lamb hins snauða. Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd kvað svo að loknum skoðanaskipt- um um skáldskap: Brageyrað er víða veikt, virðist hæfni missa. Eitt er víst að illa kveikt andagift er skyssa. Ekki er lengur metið mál, meitlað eins og forðum. Andans veislur orðnar tál, atómsull á borðum. Gísli Stefánsson í Mikley í Skaga- firði yrkir svo um ferhenduna: Hún með söng og kærleikskoss, kjamafóngum sönnum, hefur löngum yljað oss útigöngumönnum. Sigurði Snorrasyni, bóna á Gils- bakka í Hvítársíðu, var ekki síður ljóst gildi hennar: Þá á tungan engan yl, enga fagra sögu, þegar ekkert efni er til í ferskeytta bögu. Og Höskuldur Einarsson frá Vatns- homi í Skorradal tekur í sama streng: Lítil vísa, ein og ein, áður vakti gaman, bætti heldur mannleg mein meðan við náðum saman. Og alltaf skyldi hugur fylgja máli. Bjami Jónsson frá Gröf: Vanalega vísan hálf verður iUa kveðin, ef hún kemur ekki sjálf eins og hjartagleðin. Séra Sigurður Einarsson í Holti, skáld, hefur þetta til málanna að leggja: Oft á stundum unaðar yngdist lundin forðum, þegar á fundum vina var visa bundin orðum. Kuldabál þótt biti láð, bryddi álinn gaddi, stuðlamálið stælt og fáð styrkti sál og gladdi. Óðinn þver, sem áður bar yfir þveran dalinn. En ei munu verin orðlistar öll í frera kalin‘ Sigurbjöm Stefánsson skósmiður hafði rangfeðrað vísu í vísnaþætti útvarpsins, eignað hann Baldri á Ófeigsstöðum. Þá barst honum svo- hljóðandi vísa frá réttum höfundi, Jóni Bjamasyni í Garðsvik: Þekkist enn á okkar jörð ófrjálst takið sauða. Asgrímur Kristinsson frá As- brekku orti svo eftir að hafa hlýtt á nýtísku skáldskap fluttan í út- varpi: Geymdi þjóðin andans auð, unni ljóðum hreinum. Er nú glóðin alveg dauð, aska í hlóðarsteinum? Kannski hefur Jakob Thorarensen kveðið af svipuðu tilefni: Það er auma ástandið ýmsra frægra beima, em stórskáld út á við, aulabárðar heima. Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum gerir atómljóðin að yrkisefni: Vísna-glóðin folna fer, flestir hljóðir stara. Atómljóðin era hér orðin móðins vara. Metur þjóðin menntafróð mikla kvæðafenginn? Sitt úr hverju horni hljóð, en höfuðstafur enginn. Friðþjófur Guðlaugsson hefur trú á yfirburðum hefðbundins kveð- skapar: Enn mun stakan eflaust lifa aldir, kannski meir. Áfram þegar árin tifa atómljóðið deyr. Og Jón Bjamason frá Garðsvík er sama sinnis: Atómljóðin aldrei ná alþýðunnar hylli. Þetta mgl er flótti frá feðra vorra snilli. Lokaorðin á að þessu sinni hinn snjalli hagyrðingur Bjami Jónsson frá Gröf: Nú léttist óðum listamannsins starf, lækkað hefur andans frægðartindur. í nýju ljóðin lítið af rími þarf, leirinn þau svo prýðilega bindur. Torfi Jónsson Opið sunnudaga til fimmtudaga til kl. 2 eftir iniðnætti Föstud. og laugard. til kl. 4 eftir miðnætti VIDEO-START (Skeifuhúsí) Verð á spólum 95 195 295 395 EXTRA-EXTRA Allir þættir á veröi einnar spólu 50% afsláttur vió aðra spólu sem tekin er $ N» W C 0 § í 0' FS CS í. tí 1 £ í i \ l Or *í löllfí ÁiD ij i Myndform komin fyrri og seinni hluti Háskólabió - komin Steinar 21. sept. C.I.C. 22. sept. C.I.C. 22. sept. Allt Maarud snakk MMIHATTM GOTT! á 125 kf. Jifet 1 % litri lérstöku tilboðsverði a 130 kr. Laugardag og sunnudag Afbragos samldkur á 180 kr. BÓ5« SP®' I % \ % Skemmuvegur IffÍPP^ j, 14;’ * r 2 f- ó S 0 ® StEVt MAfniN nfANf. Kt.AI'OM MAtTON StiOftT ’Mý* Hi« » ><:« Om Bíómyndir, 22. sept. Háskólabíó, 23. sept. iszéaSti Skifan, 24. sept. Steinar, 12. okt. Opið til kl. 4 i nótt | 11 gpHb Á i f i n i i ■MTART Smiðjuvegi 6 - s. 677005 - Kóp. 1 f i|li Afell M hbbbdhbbiibhbhbbbbbbhhbbhbbhhhíI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.