Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1992, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1992, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1992. 17 Calypso, Jennifer Ehle, á sér marga aðdáendur í þáttunum Kamilluflöt. Hún vildi ekki giftast Olvier, Toby Stephens, en þau gera samning um að hún sofi hjá honum brjótist út stríð. Sjónvarpsþættimir Kamilluflöt: Uppáferðir og loftvarnaflautur Breski framhaldsmyndaflokkur- inn Kamilluflöt (The Camomile lawn) hefur vakiö nokkra athygli sjónvarpsáhorfenda þar sem seinni heimsstyrjöldin er séö frá öörum sjónarhóli en venja er. í þáttunum er lýst ástum og örlögum nokkurra frændsystkina, íjölskyldum þeirra og vinum og óhætt er að segja aö meigináherslan sé á kynlífið, uppá- feröimar eru ófáar. Þættirnir ger- ast bæöi á fyrstu árum stríðsins og einnig 40 árum síðar, þegar persón- urnar eru í leið í jarðarfor fiðlu- snillingsins Max. Leikstjóri þáttanna er Peter Hall, þekktur og mjög virtur leikstjóri í Bretlandi. Hann hefur leikstýrt í 35 ár og sett upp yfir eitt hundrað leikrit í London, New York og víð- ar. Hall stofnaði The Royal Sha- kespeare Company 1960 og tók við af Laurence Olivier sem leikhús- stjóri þjóðleikhúss þeirra Breta. Um Kamilluflöt segir hann: „Þætt- imir eru í senn kynngimagnaðir og óveiúulegir. Þeir fjalia um kyn- líf á marga ólíka vegu og það er erfitt að flnna þá sögupersónu sem ekki er drifln áfram af kynlífi á einn eða annan hátt.“ Þættimir Kamilluflöt em gerðir eftir samnefndri skáldsögu Mary Wezley sem kom út 1984 og féíl strax í kramið. Hefur bókin verið endurútgefm sjö sinnum. Wesley hefur skrifað frá því hún var ung en fékk fyrst bók útgefna 72 ára gömul. „Ég reyndi að ná stemmningu fyrstu ára stríðsins. Ég hugsaði sem svo að ef ég gerði það ekki mundi ég kannski ekki fá annað tækifæri til þess. Stemmningin var þannig að hver kveðjustund gat verið sú síðasta, þú vissir aldrei hvert mennirnir vom sendir eða hvenærþeir kæmu til baka. Því var hvert stefnumót, hver fundur nýtt- ur til hins ýtrasta," segir Wezley. Þegar velja átti stúlku til að leika Sophie litlu var aðstandendum vandi á höndum. Eftir langa mæðu Lom þó engin önnur til greina en dóttir Peter Halls, Rebecca Hall. Jennifer Ehle leikur hina kyn- þokkafullu Calypso þegar hún er ung. Calypso eldri leikur hins veg- ar mððir Jennifer, Rosemary Harr- is. Jennifer Ehle leikur nú á sviði í leikritinu Tartuffe, sem Peter Hall stýrir. Hún segir um Calypso: „Hún er mjög sterkur og skýr per- sónuleiki, sjálfselsk en viðkvæm. Hún er mjög ólík mér sjálfri og þess vegna var það mikil ögmn fyrir mig að fá hlutverkið." Pottablóm 20-50% afsláttur Kerti, 20-40% afsláttur Sjálfvökvandi ker 30-50% afsláttur Gjafavörur 20-75% afsláttur Garðyrkjuvörur, 20-70% afsláttur Pottahlífar 20-75% afsláttur Opið 10-19 alla daga _____________________ / blómabúð Tágasett, sófi, tveir stólar og borð, aðeins kr. 18.800 stgr. GARÐSHORN við Fossvogskirkjugarð - sími 40500 NÚER

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.