Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1992, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1992, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1992. Tilfinningahiti TORMENTS OF SPRING Utgefandi: Háskólabió. Leikstjóri: Jerzy Skolimowski. Aóalhlutverk: Timothy Hutton, Natassja Kinski og Valeria Golino. ítölsk/bresk, 1990 - sýningartími 100 min. Leyfð öllum aldurshópum. Torments og Spring er gerð eftir þekktri klassískri skáldsögu og hefur innanborðs úrvalsleikara. Leikstjóri er Jerzy Skolimowski sem oft hefur vakið athygli fyrir kraftmiklar myndir. En þrátt fyrir allt úrvalsliðið og innihaldsríkan söguþráð nær myndin aðeins að vera miðlungs skemmtun og stafar það fyrst og fremst af tiifínninga- rýrum leik Timothy Huttons í hlut- verki hins veiklundaða Dimitris sem hrífst fyrst af veitingastúlk- unni Gemmu og vill giftast henni en gleymir henni um leið og hin fagra Maria sýnir honum áhuga. Það er ekki aðeins Hutton sem er liflaus í hlutverki sínu heldur er Valeria Golino engu skárri og samleikur þeirra í ástríðuþrungn- um atriðum er ískaldur. Það er helst að Nastassja Kinski nái að framkalla einhverjar tilfinningar auk þess sem leikur hennar minnir dálítið á hversu góð hún var í Tess. Systurhefnd HURRICAN SMITH Útgefandi: Steinar hf. Leikstjóri: Colin Budds. Aðalhlutverk: Carl Weathers, Jurgen Prochnow og Cassandra Delaney. Bandarísk, 1991 - sýningartimi 83 min. Bönnuð börnum innan 16 ára. í Hurrican Smith leikur Carl Weathers (þekktastur fyrir að leika boxara á móti Sylvester Staiione í Rocky myndunum) töffara, sem ákveður þegar móöir hans deyr að bregða sér til Ástralíu til að hafa uppi á systur sinni en þar sást síð- ast til hennar. Þegar þangað er komið kemst hann fljótt að því að systirin hafði komist í félagsskap eiturlyfjasala og er hún horfin. Upplýsingarnar sem Smith fær benda til að hún hafi bæði verið eiturlyfjaneytandi og stundað vændi og verður hann brátt von- daufur um að finna hana á lífi. Smith kemst þó fljótt að því hverjir eiga sök á hvarfi hennar og þegar lögreglan sýnir h'tinn áhuga á mál- inu tekur hann til eigin ráöa... Hurrican Smith er formúlumynd þar sem ekki bólar á neinu frum- legu. Hasarsenurnar, sem nóg er af, hafa oft sést áður. Eina tilbreyt- ingin er að myndin er að mestu leyti tekin í Ástrahu. Gáfubamið Tate LITTLE MAN TATE Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Jodie Foster. Aðalhlutverk: Jodie Foster, Dianne Wi- est, Harry Connick jr. og Adam Hann- Byrd. Bandarísk, 1991 -sýningartimi 96 mín. Leyfð öllum aldurshópum. Hin ágæta leikkona Jodie Foster, sem þrátt fyrir að vera ekki orðin þrítug á að baki leik í hátt á þriðja tug kvikmynda, leikur aöalhiut- verkið og leikstýrir Little Man Tate og er þetta frumraun hennar bak við kvikmyndavélina. Er ekki ann- að hægt að segja en hún standi sig með miklum sóma. Little Man Tate er mannleg og hlý gæðamynd. Aðalpersónan er Fred Tate, sjö ára gáfnaljós sem er langt á undan sínum skólafélögum í námi. Hann býr einn með móður sinni sem er gengilbeina á veitingastað. Fréttir af gáfum Freds berast til sálfræð- ingsins Jane Grierson sem hefur sérhæft sig í að eiga við shk böm. Hún vih fá Fred til rannsóknar en móðirin, sem er innst inni hrædd um að missa son sinn frá sér, reyn- ir að hindra þessa þróun mála. En þegar hún kemst að því hversu erf- iðlega Fred samlagast jafnöldrum sínum gefur hún eftir og í fram- haldi fær Grierson móðurina til að samþykkja að Fred hth stundi há- skólanám eitt sumar. Ekkert í sam- bandi við námið veldur Fred erfið- leikum en hann er að sama skapi ekki jafn ánægður í sambúðinni með Grierson og það kemur að því að bamið í honum gerir uppreisn. Little Man Tate er raunsæ í lýs- 1 (3) JFK 2 (2) Dead again 3 (4) Deceived 4 (1) Freejack 5 (■) PureLuck 6(5) Stone Cold 7 (15) My Own Private Idaho 8 {-) All American Murder 9(7) Fourth Story (9) Frankie & Johnnie (6) What about Bob? (8) Curly Sue {-) Rocketeer Gamanmyndin Pure Luck stekkur hæst nýrra mynda á listanum -J4 /|Q\ Cijljl SeCOnd þessa vikuna, fer beint í fimmta sætið. Þaö eru þeir Danny Glover ' K og Martin Short sem leika aðaihlutverin og eru þeir á myndinni 15 {-) The Lawnmower Man ásamt Adriene Peellcer. MY OWN PRIVATE IDAHO Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Gus van Sant. Aðalhlutverk: River Phoenix, Keanu Reeves og James Russo. Bandarisk, 1991 - sýningartimi 90 min. Bönnuð börnum innan 16 ára. Gus van Sant hefur með sínum tveimur fyrstu kvikmyndum hrært upp í fólki með því að sýna á raurisæjan hátt heim þeirra sem lifa á rapli og ránum til aö geta átt fyrir eiturlyfium (Drugstore Cowboy) og þeirra sem búa nánast á götunni og selja sig hverjum sem vhl en það er einmitt hlutskipti sem vinirnir Mike og Scott í My Own Private Idaho hafa vahð sér. Þó báðir lifi fyrir daginn í dag og selji sig þá eru Mike og Scott ólíkir og koma úr ólíku umhverfi. Mike er viðkvæmur og draumlyndur piitur sem hefur sett sér það tak- mark að finna móður sína þótt hún hafi yfirgefið hann í æsku. Scott aftur á móti á ríkan fóður sem hann fyrirlítur og vhl lifa á götunni. Hef- ur hann ákveðið að hjálpa Mike að finna móður sína og fara þeir með- al annars th Ítalíu í þeim erinda- gjörðum. Á Ítalíu hittir Scott stúlku sem hann hrífst af og ákveður að breyta um líferni. Mike, sem er háður Scott og viðurkennir að hann sé ástfanginn af honum, á erfitt með að sætta sig við þessa ákvörðun. My Own Private Idaho er raunsæ og opinská mynd sem lýsir vel lifi utangarðsfólks í stórborg. Sum atr- iði eru eftirminnileg og vel gerð en þrátt fyrir húmor í einstaka atrið- um er atburðarásin þunglamaleg og mikhl drungi hvílir yfir mynd- inni. Frábær leikur þeirra River Phoenix og Keanu Reeves lyftir þó myndinni upp ásamt sérstakri og hehlandi kvikmyndatöku. -HK Sálfræðingurinn Jane kemur til að taka Tate með sér. Dianne Wiest, Adam-Hann Byrd og Jodie Foster í hlutverkum sinum. m mu pmmm iuaho Lífiðíræsinu ingu sinni á afburðagáfuðum börn- um. Skólafélagar Tate litla hta á hann sem eitthvert viðundur og vilja ekki leika við hann þótt hann þrái einna helst að vera eins og þeir. Fullorðnir reyna að leiða gáf- ur hans hjá sér og þar er móðirin engin undantekning. Little Man Tate er ekki kvikmynd sem lætur mikið yfir sér en skilur því meira eftir. Jodie Foster getur DECEIVED Útgefandi: Biómyndlr. Leikstjóri: Damian Harris. Aöalhlutverk: Goldie Hawn og John Heard. Bandarísk, 1991 -sýningartími 103 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára. Deceived er í klassískum þrhl- erstíl, söguþráðurinn kunnuglegur og fátt í handritinu sem kemur á óvart. Samt er það svo að leikstjóra myndarinnar, Damian Harris, tekst að byggja upp góða stigandi og spennu sem nær hámarki í lok- in. Aðalpersónumar era tvær, Adri- enne og Jack Saunders. Þau era bæði í vel launuðum störfum þegar þau hittast af thvhjun og er um ást viö fyrstu sýn að ræða. Sex árum síðar er aht í lukkunnar standi, að því er Adrianne heldur. Ekki er samt aht sem sýnist. Rán á dýr- mætri festi í listasafni, þar sem Jack vinnur, verður afdrifaríkt og gjörbreytir lífi þeirra. Sh« IhougM S^8 Hid Th« Perfect lift. Btf Sf» Wis D$ac W/org Ahorfandanum er líthl greiði geröur með þvi aö fara nánar út í söguþráðinn því að öh bygging í myndinni er á þann veg að koma láhorfandanum sem mest á óvart. En sjóaðir spennumyndaáhorfend- ur eiga ekki í erfiðleikum með að sjá í gegnum sumar ghdrur. Deceived er í heild ágæt afþrey- ing, mjög spennandi meðan á sýn- ingu stendur en sum svörin era bæði of einfold og ófullnægjandi, sérstaklega varðandi Adrienne sem hefur lifað í slíkum blekking- arheimi í sex ár að það er með óhk- indum að jafn menntuð kona og hún skuh ekki hafa tekið eftir neinu athugaverðu í fari eigin- manns síns. Goldie Hawn er með betri gaman- leikkonum og sýnir hér að hún veldur einnig hlutverkum alvar- legs eðhs þótt um engan stjömuleik sé að ræða. Það er greinhegt aö leikstjórinn hefur lært ýmislegt með að horfa á eldri myndir en hann treystir um of á tónlist og hljóðmenn og því er yfirbragð myndarinnar nokkuð gróft. -HK verið stolt af þessum „frumburði“ sínum. -HK Blekkingarvefur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.