Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1992, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992.
i
Fréttir
Efraim Zuroff um Mikson-gögnin sem hann fékk að sjá í innanríkisráðuneyti Eistlands:
Þessi sönnunargögn
er ekki unnt að hunsa
-þeim komið á framfæri við íslensk stjómvöld á næstunni
Þór Jónssan, DV, Stokkhólmi:
„Þau sönnunargögn sem viö höf-
um aflaö í Eistlandi um stríösglæpi
Evalds Miksons er ekki unnt aö
hunsa. Það er íslenskra stjómvalda
að sjá um aö réttlát lausn hljótist
í þessu máh. Okkur er nú fært aö
fá slíka niðurstöðu."
Þetta segir Efraim Zrn-off, for-
stöðumaöur Simon Wiesenthal-
stofnunarinnar, eftir aö hafa fengið
afrit af öllum gögnum sem dóm-
stóll Sovét-Eistlands lét safna um
lögregluforingjann Evald Mikson
(Eövald Hinriksson) viö undirbún-
ing stríðsglæparéttarhalda í höfuð-
staðnum Tallinn fyrir þijátíu
árum.
„Vð ætlum okkur nokkra daga til
þess að fara yfir sönnunargögnin
og meta þau. Eftir það verður þeim
komiö á framfæri við rétt yfirvöld
á íslandi."
Um er að ræða þijár gildar
skjalamöppur sem geyma ótal frá-
sagnir vitna auk ýmissa skjala sem
Mikson færði og notaði við starf-
semi sína á stríðsárunum, u.þ.b.
700 blaösíður alls. Sum vitnanna
voru ung í stríðinu. Þau eru trúlega
enn á lífi og geta sagt frá reynslu
sinni. Erindrekar Wiesenthal-
stofnunarinnar munu á næstunni
reyna að hafa uppi á þeim.
Aftökuskipanir
Starfsmaður innanríkisráðu-
neytis Eistlands, Russ, er einn
þeirra sem í samtali við fréttamenn
hefur gefið upplýsingar um að
meðal sönnunargagna í þessum
möppum um Mikson séu aftöku-
skipanir. Hins vegar er Zuroff fá-
máll um efni skjalanna. Hann var
spurður hvort hann teldi sig nú
hafa fengið sannanir fyrir því aö
Mikson hefði framiö glæpi í stríð-
inu sem ekki væru fymdir á ís-
landi.
„Já,“ sagði hann.
- í þessu tilviki er þá vart um ann-
aö að ræða en manndráp?
„Þú átt kollgátuna.“
Samkvæmt áhtsgerð tveggja lög-
manna, sem Þorsteinn Pálsson
dómsmálaráðherra fól að athuga
ásakanir Wiesenthal-stofnunar-
innar á hendur Mikson, er unnt aö
hefja opinbera rannsókn séu sak-
argjftimar „studdar nægum gögn-
um“ og brotin „ófyrnd“.
Lögregluforingi
Áður hefur komið fram í fréttum
að Mikson hafi gegnt valdamikilli
stöðu innan Omakaitse-sveitanna,
sem nasistar skipulögöu m.a. til
þess að taka af lífi fólk með óæski-
lega póhtíska sannfæringu eða af
óæðri kynstofni, og aö hann hafi
síðar orðiö foringi í póUtísku lög-
relgunni í Tallinn. Sú lögregludeild
rannsakaði mál, sem gátu leitt til
dauðarefsingar, þ.e. mál gyðinga
og kommúnista. Hver einasti gyð-
ingur, sem handtekinn var af þeirri
lögregludeild, var líflátinn. Um það
bera nákvæmar skýrslur Martins
Jensens vitni en hann var sam-
starsmaður og félagi Miksons í lög-
reglunni. Hann flúöi í stríðslok til
Svíþjóðar eins og Mikson en fluttist
síðar til Kanada.
í sumar hafði kanadísku lögregl-
unni orðið vel ágengt í rannsókn
sinni á meintum stríðsglæpum
Jensens hjá póUtísku lögreglunni
þegar hann lést hinn 8. ágúst. Mál-
ið var lagt á hiUuna. Samkvæmt
áreiðanlegri heinúld höfðu fundist
aftökuskipanir útgefnar af lög-
reglumanninum Martin Jensen.
Hörkudeilur á kvöldfundi:
Sjúkraliðar samþykktu
að mætatil vinnu
eftir fundi og símtöl við ráðherra og ríkissáttasemjara
Gert var hlé á fundinum meðan rætt var við Friðrik Sophusson fjármálaráðherra i síma. Á myndinni eru Kristín
Guðmundsdóttir formaður, ögmundur Jónasson, Bima Ölafsdóttir og Gunnar Gunnarsson. DV-mynd GVA
SjúkraUðar samþykktu að mæta til
vinnu í morgun eftir stormasaman
fund sem lauk seint í gærkvöldi.
Áður en sú ákvörðun var tekin hafði
formaður Sjúkraliðafélagsins, Krist-
ín Guðmundsdóttir, setið skyndifund
með Guðlaugi Þorvaldssyni ríkis-
sáttaseiqjara. Hefur verið boðaður
sáttafundur með samninganefndum
sjúkraUða og ríkisins klukkan 14 í
dag.
Mikil harka hljóp í fundinn strax í
upphafi þegar Kristín bar upp tiUögu
um að sjúkraUðar gæfu út yfirlýs-
ingu um að þeir myndu hefja störf
ef sáttasemjari boðaði til viðræðna.
Brugðu margir fundarmanna hart
viö og mótmæltu hástöfum. Þótti
þeim sem til Utils hefði verið barist
ef hefla ætti vinnu afitur án þess að
hafa nokkuð fast í höndunum. Vildu
sumir sjúkraUðanna halda aðgerð-
um áfram a.m.k. einn dag í viðbót.
Aðrir ræddu um ekki minna en viku.
Enn aðrir vildu fara að tiUögu for-
mannsins og stjómarinnar og hefja
vinnu strax.
„Með þvi er verið að lúffa fyrir fyr-
ir ríkisvaldinu og ekkert annað,“
sagði einn sjúkraliða, sem DV ræddi
við í fundarhléi. „Ég geng úr félaginu
ef þær ætla aö gefast upp núna,“
sagði annar. „Við fórum út 1 þessar
aðgerðir og það þýðir ekkert aö hætta
núna. Þetta verður aUt svikið og þá
þurfum við að fara út í aðgeröir að
nýju, en þá náum við aldrei sömu
samstöðu og nú.“
Aðrir bentu á að ef farið væri að
tiUögu stjómarinnar um að hefja
vinnu aftur, gætu sjúkraUðar hafið
aðgerðir aö nýju með hreina sam-
visku ef þeir næðu engu fram nú.
Enn aörir sögöu að erfiðara yrði að
fara út í aðgeröir af þessu tagi síðar,
og missa launin sín á meðan, þar sem
Hfskjörin snarversnuðu meö hveij-
um degi sem Uði.
Meðan deUt var um framhaldið
fram og tíl baka, ræddi formaðurinn
í síma við ríkissáttasemjara og heU-
brigðisráðherra. Skömmu síðar var
gert hlé á fundinum, meðan rætt var
símleiðis viö fjármálaráðherra.
Símalínur vom einnig gióandi í bæn-
um þar sem menn réöu ráðum sínum
um hvemig bregðast ætti viö þessari
miklu hörku sem hlaupin væri í
máUð. Svo kom kalUð, formaður fé-
lagsins var boðaður á skyndifund
með ríkissáttasemjara og um hálftíu-
leytið. Aö honum loknum sam-
þykktu sjúkraUðar nær samhljóða
að mæta til vinnu aftur.
-JSS
Kristín Guðmundsdóttir:
„Eftir fundinn með ríkissátta-
semjara tel ég mig haía fullvissu
fyrir þvi að það verði fariö að
ræða máUn fyrir alvöru. Ég er
því vongóð um að þær viðræður
skUi árangri sem viö getum veriö
ánægð með,“ sagði Kristín Guö-
mundsdóttir, formaður Sjúkra-
liðafélags íslands, viö DV aö
afloknum fundi sjúkraliða í gær-
kvöld.
Kristín sagði að hún væri
hreykin og þakklát vegna þess
trausts sem félagsmenn hefðu
sýnt henni. Þeir hefðu treyst
þeim orðum hennar aö tekið yrði
á samningamálunum af alvöru
og samþykkt að snúa aftur tíl
vinnu á þeirri forsendu.
„Ég er einnig stolt yfir því að
okkur skuU hafa tekist að sýna
með aðgerðum okkar að verka-
lýðshreyfingin er enn máttugt
afl. Og það gleður mig að þaö
skiUi hafa verið sjúkraUöar sem
sýndu það og eiga eftir aö sýna
það enn frekar í framtiðinni.“
-JSS
Dalvík:
Fólkhefurvantað
ífiskvinnsluna
Gyffi Kris^ánsson, DV, Akureyri:
Atvinnuástandiö hefúr verið
talsvert betra á Dalvik að undan-
fómu en á flestum öðrum þéttbýl-
isstöðum á Norðurlandi eystra
og atvinnvdeysi ekki mikið.
Aö sögn Símonar EUertssonar,
formanns atvinnumálanefhdar á
Dalvík, hafa þó aUtaf verið ein-
hvetjir á atvinnuleysisskrá, oft-
ast um 20 manns. Það er fólk sem
ekki getur unnið hvaðastörf'sem
er þvi að á sama tíma hefur vant-
að fólk í fiskvinnslu.
Simon sagði að atvinnuleysi
gæti hugsanlega aukist eitthvað
nú í desember því að skipin hætta
að landa afla upp úr miðjum
mánuöinum og auk þess hefur
einn togari nýlega veríð seldur
frá staðnum til Hafnarftarðar.