Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1992, Blaðsíða 26
34
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992.
Afmæli
Sigurvin Rúnar Sigurðsson
Sigurvin Rúnar Sigurðsson, Rauð-
ási 12, Reykjavík, er fertugur í dag.
Starfsferill
Rúnar fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lauk stúdentsprófi
frá MT1973, lauk prófi frá Vélskóla
íslands og tók sveinspróf í vélvirkj-
un 1977 og útskrifaðist í véltækni-
fræði frá Odense Teknikum 1980.
Að námi loknu hóf Rúnar störf
hjá Stálvík hf. og var þar tæknifræð-
ingur til 1983. Hann varð síðan
framkvæmdastjóri Vélsmiðjunnar
Stálvers hf. 1983 en hefur verið
framkvæmdastjóri Skipasmíða-
stöðvarinnar Drafnar hf. í Hafnar-
firði frá ársbyrjun 1988.
Fjölskylda
Rúnar kvæntist 17.9.1977 Ólafíu
Guðrúnu Kristmundsdóttur, f. 2.8.
1956, gjaldkera hjá Þróun hf. Hún
er dóttir Kristmundar Sörlasonar
iðnrekanda og Láru Stefaníu Ólafs-
dótturgjaldkera.
Böm Rúnars og Ólafíu Guðrúnar
eru Lára Rún, f. 15.6.1977, og Hauk-
ur, f. 14.8.1980.
Systkini Rúnars eru Gunnar Her-
mann, f. 10.5.1956, deildarstjóri hjá
Sementsverksmiðju ríkisins,
kvæntur Arnbjörgu Guðmunds-
dóttur og eiga þau þrjú böm; Pétur
Sigurður, f. 5.5.1962, d. 11.3.1984,
vélfræðingur; Sveinn, f. 15.1.1969,
vélvirki, kvæntur Sigurborgu
Hrönn Sigurbjörnsdóttur og eiga
þaueittbam.
Foreldrar Rúnars era Sigurður
V. Gunnarsson, f. 7.12.1929, iðnrek-
andi í Reykjavík, og Þýðrún Páls-
dóttir, f. 19.1.1931, forstöðumaður
þar.
Ætt
Sigurður er sonur Gunnars, vél-
stjóra í Neskaupstað, Bjamasonar,
b. á Sveinsstöðum, Guðmundsson-
ar, b. og trésmiðs á Sveinsstöðum,
Jónssonar, b. á Kirkjubóli, Vil-
hjálmssonar. Móðir Bjarna var
Gunnhildur Ólafsdóttir Pétursson-
ar og Mekkínar Erlendsdóttur frá
Helhsfirði. Móðir Gunnars var Guð-
rún Þorgrímsdóttir en móðir henn-
ar var Oddný Ólafsdóttir, systir
Jóns Ólafssonar, skrifara á Eski-
firði.
Móðir Sigurðar iðnrekanda var
Hermannía Sigurðardóttir Stefáns-
sonar. Móðir Hermanníu var Vil-
helmína Hermannsdóttur, b. á
Brekku og Barðsnesi, Vilhjálmsson-
ar, b. á Brekku í Mjóafirði, Vil-
hjálmssonar. Móðir Vilhelmínu var
Guðný Jónsdóttir, prests á Skorra-
stað og í Heydölum, Hávarðssonar
og Sólveigar Benediktsdóttur.
Þýðrún er dóttir Páls, b. á Stóm-
Vöhum, bróður Þorgils, foður Jóns
framkvæmdastjóra héraðsnefndar
Rangárvallasýslu. Páh var sonur
Jóns, b. og fræðimanns á Ægissíðu
á Rangárvöhum, bróður Jóns í Hlíð,
afa Jóns Helgasonar, prófessors og
skálds. Jón var einnig bróðir Skúla,
afa Jóns Skúla Sigurðssonar, for-
stöðumanns loftferðaeftirhtsins. Þá
var Jón bróðir Júlíu, ömmu Guð-
rúnar Helgadóttur, fyrrv. skóla-
stým Kvennaskólans. Önnur systir
Jóns var Ingiríður, langamma Sig-
urðar, afa Þórðar Friðjónssonar,
forstjóra Þjóðhagsstofnunar. Jón
var sonur Guðmundar, b. á Keldum
á RangárvöUum, Brynjólfssonar, b.
í Vestri-Kirkjubæ á RangárvöUum,
Stefánssonar, b. í Árbæ á Rangár-
vöUum, Bjamssonar, b. og hrepp-
stjóra á Víkingslæk, Halldórssonar,
ættfóður Víkingslækjarættarinnar.
Móðir Þýðrúnar var Sigríður,
dóttir Guðjóns, b. í Þúfu í Land-
sveit, Þorbergssonar, b. á Stóm-
VöUum í Landsveit, Jónssonar
yngsta, b. á Efraseli á Landi, Jóns-
sonar, b. og hreppstjóra í Flagveltu
og síðar Efraseli. Móðir Jóns yngsta
var Þómnn Jónsdóttir eldri, b. á
Efraseh á Landi, Bjamasonar, b. og
hreppstjóra á Víkingslæk, HaUdórs-
sonar. Móðir Sigríðar Guðjónsdótt-
ur var Sigríður Sæmundsdóttir, b.
á Fossi á RangárvöUum, Ólafssonar,
í Húsagarði á Landi, bróður Guð-
brands á Lækjarbotnum, foður Sæ-
mundar, ættföður Lækjabotnaætt-
Sigurvin Rúnar Sigurðsson.
arinnar, og Sigurðar á Gaddastöð-
um, afa Guðmundar Daníelssonar'
rithöfundar. Móðir Sæmundar á
Fossi var Guðný Sigurðardóttir,
systir Elínar, móður Sæmundar
ættfóöur. Ólafur í Húsagarði var
sonur Sæmundar, b. á Hellnum á
Landi, Ólafssonar.
Rúnar tekur á móti gestum í sam-
komusal Rafveitunnar við Elhðaár,
fóstudaginn 4.12. mUli kl. 20.00 og
23.00
Til hamingju með
afmælið3. desember
Ólafur Þór Jónsson
90 ára
Stefán Björnsson, „
Hamraborg 32, Kópavogi.
Ólafia Guðbjörnsdóttir,
Skipholti21, Reykjavfk.
Eiginmaður Ólafíu var Tómas
Guðmundsson
veitingamaöur
semléstl990.
Ilúntekurámóti
gestumá heimih
dóttursinnará
afmælisdaginn
aöKleppsvegil06
í Reykjavík, jarð-
hæð.
Sigurfinnur Einarsson,
Faxastíg35. Vestmannaeyjum.
Margrét H. Lúthersdóttir,
Byggðavegi 148, Akureyri.
Jóhanna Þorsteinsdóttir,
Ægisgötu 19, Akureyri.
60 ára
Ragnhildur Björgvinsdóttir,
Fellsmúla 17, Reykjavik.
Brynja Tryggvadóttir,
Teigagerði 9, Reykjavík.
KrLstján Árnason,
borgarstarfsmaður 1 Laugardal,
frá Bræöraminni
á Bíldudal,
Stiíluseli 5,
Reykjavík.
EiginkonaKristj-
ánserUnnur
Pálsdóttirbatika-
starfsmaður. Þau
verðaaðheiman
50ára
Ása K. Ásgeirsdóttir,
Baröaströnd 9, Seltjamamesi.
Anna G. Ásgeirsdóttir,
Fellsmúla 11, Reykjavik.
Hrafnhildur Stella Stephens,
Miðey, A-Landeyjahreppi.
Margrét Erna Blomsterberg,
Lerkilundi 16, Akureyri.
Ólafur Þór Jónsson sjúkranuddari,
Birkihlíð 26, Reykjavík, er fimmtug-
urídag.
Starfsferill
Ólafur fæddist í Vogunum og ólst
upp bæði þar og í Reykjavík. A
þriðj a ári varð hann fyrir sly si er
leiddi tU þess að hann missti sjón á
öðm auga og u.þ.b. 22 ára gamaU
var hann orðinn lögbhndur.
Á sínum yngri árum starfaði Ólaf-
ur bæði við fiskvinnslu og sjó-
mennsku en rak svo verslun í Vog-
unum um nokkurt skeið.
Árið 1969 hóf hann að nema nudd
hjá Eðvald Hinrikssyni en tók bók-
legt nám í Nuddskóla Félags ís-
lenskra nuddara. Sex árum síðar,
1975, setti hann upp eigin stofu í
húsakynnum Blindrafélagsins að
Hamrahhð 17 og rekur hana enn í
dag en réttindi sem sjúkranuddari
fékk hann árið 1987.
Ólafur hefur sótt námskeið í fag-
inu, bæði hér heima og erlendis, og
verið iðinn við að bæta þannig við
þekkingu sína. Hann hefur enn-
fremur verið virkur í félagsmálum,
setið í stjóm íþróttasambands fatl-
aðra frá upphafi, eða síðan 1979,
verið formaður Félags íslenskra
nuddara 1973-87, formaður Félags
íslenskra sjúkranuddara 1988-91,
setið eitt ár í varastjóm BUndrafé-
lagsins og síðasthðin tvö ár í aðal-
stjórnþess.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 28.8.1971, Mar-
gréti F. Sigurðardóttur, f. 9.10.1943,
bhndrakennara frá Ólafsfirði. Hún
er dóttir Sigurðar Péturs Jónssonar,
vélstjóra í ðlafsfirði, og Freygerðar
Þorsteinsdóttur afgreiðslumanns.
Þauembæðilátin.
Börn Ólafs og Margrétar eru: Jón
Gestur, f. 4.3.1972, starfsm. Bílaleigu
Akureyrar í Reykjavík; Freygerður
Anna, f. 25.6.1974, nemi í MH; og
Edda Rún, f. 3.2.1978, grunnskóla-
nemi. Þau búa öh í heimahúsum.
Alsystir Ólafs er Sigríður Sólrún,
ritari, búsett í Kópavogi, var gift
Ragnari Sigurðssyni vélstjóra sem
nú er látinn. Þau eignuðust fjögur
böm.þíjúeruálífi.
Hálfsystkini Ólafs em: Særún
Jónsdóttir, kennari í Vogum, gift
Ragnari Karh Þorgrímssyni raf-
virkja og eiga þau þijár dætur; og
Þröstur Hlöðversson, garðyrkju-
Ólafur Þór Jónsson.
maður í Reykjavík, og á hann einn
son.
Foreldrar Ólafs em Jón G. Bene-
diktsson frá Suðurkoti í Vogum,
Vatnsleysustrandarhreppi og Guð-
rún I. Ólafsdóttir frá Stóra-Knarrar-
nesi. Þau skildu 1944.
Ólafur og Margrét taka á móti
gestum á n. hæð í húsnæði Bhndra-
félagsins á milh kl. 17.30 og 20 á af-
mæhsdaginn.
lara_______________________
Helga Ásdís Eínarsdóttir,
Bakkatúni 18, Akranesi.
Gunnar Sæmundsson,
Álfheimum 56, Reykjavík.
Ólafur Steinarsson,
Ritnasfðu 27d, Akureyri.
Sigríður Jökulrós Grímsdóttir,
Bogabraut 3, Skagaströnd.
Auður Ingólfsdóttir,
Ásgarði 39, Reykjavík.
Jón Kristinn Guðmundsson,
Safamýri 59, Reykjavík.
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
RAFVIRKJAR - RAFVERKTAKAR
Próf í fagtæknilegum áföngum til löggildingar í raf-
virkjun verður haldið íTækniskóla íslands mánudag-
inn 14. des. 1992 kl. 13.15-14.30.
Þátttakendur leggi fram staðfest gögn um að þeir
hafi lokið námskeiðunum eða sambærilegu námi.
Rafmagnseftirlit ríkisins
Marfa Árnadóttir,
Hjallavegi7,Flateyri.
María tekur á móti gestum að
heimilisonar síns, Kársnesbraut
45, Kópavogi, laugardaginn 5. des-
emberámilhkl.
15og21.
Þorbjörn Þor-
steínsson,
Baugsvegi4,
Seyðisfiröi.
MÚtkalínaFinn-
bjömsdóttir,
HjaUagötu2, :
Sandgerði.
Benedikt Ólafur Sigfússon
Benedikt Ólafur Sigfússon bóndi,
Gröf n, Víðidal, V-Húnavatnssýslu,
erfertugurídag.
Starfsferill
Benedikt fæddist í Seljahhð í Eyja-
firði en bjó um tíma á Orrastað í
Austur-Húnavatnssýslu og í Þór-
ormstungu í Vatnsdal eða þar til
hann fluttist tólf ára gamall í Gröf
þar sem hann býr í dag.
Benedikt lauk fuhnaðarprófi frá
bamaskólanum í Víðihhð 1966 og
starfaði á þessum ámm ætíð á búi
foreldra sinna. Tvítugur að aldri
stofnaði hann síðan sitt eigið bú sem
hann hefur starfrækt síðan, sam-
hhða því að starfa í sláturhúsi KVH
áHvammstanga.
Frá árinu 1973 hefur Benedikt
ennfremur stundað grenjavinnslu
fyrir Þorkelshólshrepp.
Fjölskylda
Benedikt kvæntist 28.9.1973 Sig-
rúnu Herdísi Sigurbjartsdóttur, f.
5.3.1957, húsmóður. Hún er dóttir
Sigurbjarts Frímannssonar og Sig-
rúnar Ölafsdóttur, bænda á Sól-
bakka í Víðidal, sem shtu samvist-
uml985.
Böm Benedikts og Sigrúnar era:
Sigurbjartur Ragnar, f. 15.5.1974,
starfar í búi föður síns; og Ólafur
Sigfús, f. 23.7.1978, nemi í Laugar-
bakkaskóla.
Alsystkini Benedikts era: Helga,
f. 23.8.1951, b. á Marðamúpi í Vatns-
dal, gift Helga Ingólfssyni og eiga
þau þrjú böm; Skúh Ástmar, f. 18.10.
1955, b. í Gröf í Víðidal; Jóhanna, f.
28.3.1963, b. Ytri-Völlum, V-Hún.,
gift Georg Ragnarssyni og eiga þau
þrjú böm; og Jónas, f. 25.4.1972, d.
25.11.1990 af slysförum.
Háifsystir Benedikts er Sigrún
Ásgrímsdóttir, f. 3.5.1948, húsmóöir
í Ólafsfirði, gift Agh Sigvaldasyni,
verslunarstjóra í Valbergi, og eiga
þautvö börn.
Foreldrar Benedikts em Sigfús
Sigfússon, f. 19.11.1917, b. í Gröf í
Benedikt Ólafur Sigfússon.
Víðidal, og Ragnheiöur Konráðs-
dóttir, f. 21.9.1932, b. sama staö.
Benedikt tekur á móti gestum að
heimih sínu laugardaginn 5. des-
ember næstkomandi.