Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1992, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1992, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992. Utlönd Clintonbýðurtil stórveislu BUI Clinton, verðandí Banda- ríkjaforseti, ætlar að bjóða til fjögurra daga stórveislu í Was- hington áður en hann tekur viö embætti þann 20. janúar. Til- gangurinn með uppákomunni er að láta fólk vita svo að ekki fari á miUi mála að nýr forseti er að taka viö og endurreisn Banda- ríkjanna að hefjast. Clinton kem- ur til borgarinar 17. janúar. Norðmenngera jólainnkaupin íDanmörku Danskir slátrarar maka krók- inn þessa dagana því að Norð- menn flykkjast með ferjunum sem ganga milli landanna og kaupa það besta sem danskur landbúnaöur hefur upp á að bjóöa. Norðmenn telja danskar svína- steikur betri en þeirra eigin. Litiu munaöi þó að öll viðskipti féliu niður þvi sjómenn á feijunum ætluðu í verkfail fyrir jólin en því hefúr verið aflýst. Ferjurnar eru nú þéttskipaðar hvem dag og margt kjötiærið slæðist með í farteski Norð- mannaáheimleið. ntb Harðlínumenn sækja að rússneska forsætisráðherranum: Gajdar hef ur leitt landið í ógöngur Framtíð Jegors Gajdars, starfandi forsætisráðherra Rússlands, er mjög óviss eftir að áhrifamiklir íhalds- menn á þinginu veittust harkalega að róttækri efnahagsstefnu hans. Þeir sögðu að hún hefði leitt landið í miklar ógöngur. Gajdar var ósveigjanlegur í ræðu sinni á fundi rússneska fulltrúa- þingsins í gær og varaði við óðaverð- bólgu ef vikið væri af þeirri markaðs- hyggjuleið sem hann hefði varðað. Hann lét óánægjuhróp ihalds- manna sem vind um eyru þjóta og útlistaði sigra sína og ósigra frá því hann hrinti úmbótastefnunni í fram- kvæmd fyrir tíu mánuðum þegar verðlag var gefið frjálst. „Það var talað um kulda og hungur og að landið mundi liðast í sundur en ekkert slíkt hefur gerst,“ sagði hann við þingheim. „Við höfum kom- ist í gegnum þennan aðlögunartíma án allrar félagslegrar ólgu.“ Alexander Rutskoj varaforseti vís- aði rökum Gajdars á bug og hvatti „GAT MER HAFA MISSÝNST UM SOVÉÍRÍKIN?“ Krislinn E. Andrésson, 1971 Almenna bókafélagið boðar til mikilvægs fundar í tilefni af útgáfu bókarinnar „Liðsmenn Moskvu - samskipti íslenskra sósíalista við kommúnistaríkin" eftir sagnfræðingana Áma Snævarr og Val Ingimundar- son. Fundurinn verður haldinn fímmtudaginn 3. desember í Átthagasal Hótel Sögu kl. 17:00-19:00. Fundurinn er öllum opinn. Dagskrá: I 1. Ámi Snævarr, annar höfundur bókarinnar, ræðir um vandann við að finna skjöl í skjalasöfnum erlendis, hann greinir frá frekari upplýsingum sem er að vænta um þetta efni og segir frá samtölum sínum við persónur bókarinnar. 2. Bjöm Bjamason alþingismaður og Eysteinn Þorvaldsson dósent segja álit sitt á upplýsingum í bókinni og hvaða lærdóm megi draga af þeim. 3. Pallborðsumræður um bókina. Þátttakendur verða þeir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra, Gísli Gunnarsson dósent, ásamt frummælendum. Fundarstjóri og stjómandi pallborðsumræðna er Jón Hákon Magnússon. Verið velkomin! é> ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ HF til meiri ríkisafskipta. Hann lýsti því yfir að það væri rangt að hafna al- gjörlega efnahagsarfi kommúnism- ans og var greinilegt að hann var að biðla til harðlínumanna fyrrum kommúnista. Hörð árás Rutskojs á Gajdar kemur Borís Jeltsín forseta í nokkurn vanda þar sem Jeltsín verður að velja milli þess hvort hann biðurþingið um að staðfesta Gajdar í embætti eöa velja nýjanforsætisráðherra. Reuter Jegor Gajdar, starfandi forsætisráðherra Rússlands, er sakaður um að hafa leitt landið í miklar ógöngur með efnahagsstefnu sinni. Teikning Lurie Kynóður björn nauðgaði 18 kúm Kynóður skógarbjöm, sem und- anfariö hefur vafrað um skóga í Selbæ í Þrændalögum í Noregi, nauðgaði á síðasta sumri átján kúm í hreppnum. Kýmar fundust dauðar í sumar og hófst þá þegar rannsókn á hvaö hefði valdið dauða þeirra. Allir helstu rándýrasérfræðingar Noregs vora kallaðir til verksins og nú hefur Ivar Mysterud frá háskó- lanum í Ósló fundið svarið eftir að fræðimenn höfðu deilt hart um mál- ið. Ivar sagði í niðurstöðu sinni að ekki færi á milli mála að bjöminn hefði nauðgað kúnum áður en hann drap þær. Hann hefði alltaf farið eins að og atferli hans minnti því á fræga raðmoröingja og nauðgara í mann- heimum. Ivar hefur komist að því aö 13 kúnna vora yxna þegar þær lentu í klóm bjamarins. Það bendir til að þær hafi verið auðveld fómarlömb. Bjöminn er enn á lífi að því er best er vitaö. Ivar segir að hann sé trúlega alvarlega truflaður á geði og geti því reynst hættulegur fari hann á stjá á ný með vorinu. NTB Sarajevo: Sprengt í úthverf um Haröar stórskotaliðs- og sprengjuárásir vora gerðar í nótt á þau úthverfi Sarajevo, höfuðborgar Bosníu, sem era á valdi íslamstrúar- manna. Útvarpið í Sarajevo sagði að fót- göngulið Serba hefði ráðist á úthverf- in Otes, Azici og Bare, auk hverfa nærri veginum aö flugvelli borgar- innar. Að sögn bára árásir þessar engan árangur. Fremur rólegt var hins vegar í miðborg Sarajevo. Danskur hermaöur á vegum Sam- einuðu þjóðanna var látinn laus í gær eflir að hafa verið í haldi mann- ræningja í nokkrar klukkustundir. Hann sakaöi ekki. Tveir menn rændu Dananum þar sem hann var að skokka í bænum Kiseljak, um 25 kílómetra fyrir norðan Sarajevo. Sá bær er á valdi Króata. Reuter Eigandi hafna- ántæiifyrirkyn- þáttahatur Gengur þaö að eigandi hafna- boltaliðs kalli blökkumenn nigg- ara og segi að Hitler hafl byrjað vel en gengiö of langt? Miklar lík- ur eru á að Marge Schott, stjórn- arformaður og eigandi Cincinati Reds, verði að víkja úr stöðu sinni vegna ummæla af þessu tagá. Stjómendur annarra liða í bandaríska hafnaboltanum segja að ófært sé að hafa kynþáttahat- ara við stjórnvöhnn hjá virtu liöi. Marge segist hafa látiö umrædd orð falla í gamni. MichaelJack- sonvill milljarða fráL.A.Gear Poppgoðið Michael Jackson vill að skóframleiðandinn L.A. Gear greiðí honum jafnvirði 2,5 millj- ai-ða íslenskra króna í skaðabæt- ur fyrir samningssvik vegna framleiðslu á skóm hönnuðum af popparanum og seldum undir naftii hans. Samningurinn var gerður árið 1989 en var lítils virði vegna þess aö skómir þóttu Ijótir og seldust ekki. Fyrr á árinu vildi L.A. Gear fá skaöabætur frá Jackson vegna samningsins því hann fékk væna fyrirframgreiðslu. Nú vill Jack- son tryggja sinn hlut með gagn- sókn. Bjóða Farrow fúlgurfyrir sögurumAllen Tímarit í Bandaríkjunum eiga nú í harðri samkeppni um einka- rétt á viðtali við leikkonuna Miu Farrow þar sem hún reki í smá- atriðum sambúð sina með Woody Allen. Að sögn býöur Star best en Mia hefur ekki enn tekið boðinu. Hún hefur þegar selt breska vikurit- inu Hello Evrópurétt á sögu sinnl Þar hefur hún birst í tvemur hlut- um og einnig í blöðum á Spáni og í Frákklandi. Sagan hjá Hello þykir hins vegar fremur bragð- dauf. Madonna kaupir 300 milljóna húsíHollywood Klámdrottningin Madonna hef- ur leyst úr brýnustu húsnæðis- vandræðum sínum með því að kaupa hús íyrir 300 milljónir ís- lenskra króna í Hóllywood. Fyrir átti hún tveggja herbergja íbúð í nágrenni við nýja heimiliö. Undanfarin tvö ár hafði hún leitaö sér að stærri vistarveru og nú loksins fundið hana. Madonna á einnig hús á Miami og íbúð í New York. Tatum O’Neal ætlaraðskilja UfCnrftn vio mctnroe Leikkonan Tatum O’Neal er búin að fá nóg að eiginmanni sín- um, John McEnroe tennisleikara, og ætlar að skilja við hann hið bráöasta. Skammt er þó liðið frá því hún sagðist vera hæstánægð með mann sinn. Tatum hefúr helgað sig hús- móðurstörfimum imdanfarin sjö ár og ekkert leikiö á þeim tfina en jafnan fylgt manni sínum hvert á land sem er. Þau hjón elga þijú höm, sex, fimm og eins árs. Tatum hefur fengjð tilboð um að leika í nýrri kvikmynd.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.