Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1992, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1992, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1992. FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1992. 29 íþróttir______________________________________ Kærumál í kvennakörfubolta: „Ferðin var hryllingur" Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum; Grindavík hefur kært báða leiki sína gegn Tindastóli í 1. deild kvenna í körfuknattleik, sem fram fóru á Sauöárkróki um síðustu helgi, á þeim forsendum að heimadómarar hafi dæmt báða leikina. Tindastóll vann fyrri leikinn með tveimur stigum og þann síðari með flmm stigum. „í fyrri leiknum kom annar dómarinn til okkar og sagði að þetta væri bara rugl, þeir réðu ekki við leikinn, væru vanir að dæma í 1. deild karla og hefðu ekki vitað að það væri orðinri svona mikill hasar í kvenna- körfunni," sagði Stefanía Jónsdóttir, fyrirliði Grindavíkurliðsins, við DV. Níu tímar í rútu í brjáluðu veðri „Annar dómarinn átti að koma frá Dalvík en hinn frá Akureyri. Við vorum níu tíma norður í bijáluðu veðri og það þurfti að draga okkur sex sinnum á leiðinni. Ef KKÍ hefði haft samband við okkur og sagt okkur frá því að dómarinn frá Dalvík kæmist ekki hefðum við snúið við á stund- inni. Að láta tvo heimadómara dæma og annan þeirra starfsmann íþrótta- hússins er út í hött og til háborinnar skammar og þessi ferð var hreinn hryllingur. Borgum í dómarasjóð til að leysa svona vandamál Eftir fyrri leikinn spurðum við formann Tindastóls hverjir myndu dæma þann síðari. Hann sagði að það kæmu dómarar frá Dalvík og Akureyri en við hefðum farið beint heim ef viö hefðum vitað að tveir heimamenn myndu dæma aftur. Við eigum nóga peninga, það er ekki vandamálið, en við borg- um í dómarasjóö til að leysa svona vandamál en ekki til þess að dómaram- ir geti keypt sér galla og úlpur,“ sagði Stefanía. Vissi ekki að báðir kæmu frá Sauðárkróki „Ég fékk hringingu frá Sauðárkróki á laugardaginn og þá hafði annar dómar- inn hringt og tilkynnt að hann gæti ekki mætt vegna ófærðar. Þá var spurn- ing um að fresta báðum leikjunum og senda stelpumar, sem höfðu ferðast með rútu alla leið norður, heim eða setja dómara frá Sauðárkróki á leik- inn. Ég tók þessa ákvörðun en ég vissi ekki að hinn dómarinn kæmi hka frá Sauðárkróki," sagði Pétur Sigurðsson, framkvæmdastjóri KKÍ, þegar DV spurði hann um máhð. Var orðinn áhyggjuf ullur sagöi Valdimar Grímsson eftir sigur Vals gegn Haukum að Hlíðarenda, 27-26 Valsmenn unnu Hauka, 27-26, í hörkuleik í 1. deildinni í handboltan- um á Hlíðarenda í gærkvöldi. Þrátt fyrir eins marks mun var sigur Vals- manna öruggari en tölumar gefa til kynna. Eftir jafnan fyrri hálfleik náðu Valsmenn fljótlega yfirhönd- inni í seinni hálfleik og náðu mest fjögurra marka forustu. Tíminn dugði Hafnfirðingum ekki til að jafna í leikslok en tæpt var það. Fyrri hálfleikur var sveiflukennd- ur og skiptust liðin á að hafa forústu. Jafnt var í leikhléi og frairi í seinni hálfleik en þá var komið að Geirs þætti Sveinssonar. Hann skoraði 4 mörk í röð af línunni fyrir Val og lagði grunninn að öruggri forustu sem Valsmenn héldu til leiksloka. í annars jöfnu Valsliði voru Geir og Jón Kristjánsson atkvæðamestir auk þess sem Axel Stefánsson stóð sig vel í markinu. Haukarnir léku ágætlega en klúðruðu nokkrum sóknum klaufalega. Páll Olafsson og Halidór Ingólfsson voru einna skást- ir, svo og Sigurjón Sigurðsson þegar hann loksins hrökk í gang í seinni hálfleik. „Við áttum annað stigið skilið í þessum leik,“ sagði þjálfari Hauka, Jóhann Ingi Gunnarsson, í leikslok við DV og bætti við: „Ég er ekki van- ur að segja það en Stefán og Rögn- valdur hafa verið okkur afar óhag- stæðir dómarar i allan vetur, sér- staklega í síðustu leikjum. Eg veit ekki af hverju það er. Þéir eiga að teljast bestu dómarar landsins." „Sem betur fer hafðist þetta í lokin. Ég var orðinn áhyggjufullur því við erum svo gjarnir á að missa niður þriggja til fjögurra marka forustu. Þetta gerist leik eftir leik og við verð- um að setjast niður og skoða hvað er að gerast nákvæmlega," sagði Valdimar Grimsson, leikmaður Vals, eftirleikinn. -bjb Valsstúlkur komust í annað sætið Það var fyrst og fremst sterk liðs- heild Valsstúlkna sem lagði grunn- inn að stórum sigri þeirra gegn Stjörnunni er liðin mættust í 1. deild kvenna í handknattleik í gærkvöldi. Lokatölur urðu 18-24 eftir jafna stöðu í leikhléi, 10-10. Með sigrinum vippuðu Valsstúlkur sér í annað sætið og eru nú með 18 stig en Víkingur á toppnum með 21. Mörk Stjömunnar: Una 5/1, Nína 3/1, Ingibjörg 3, Margrét 2, Ragnheiður 2/1, Guðný 1 og Sigrún 1. Mörk Vals: Hanna Katrín 10/3, Krist- ín 5, Irina 3, Guðrún 3, Ama 2 og Sig- urbjörg 1. Amheiöur varði 12 skot í marki Vals, þar af 3 vítaköst. • Brynhildur Þorgeirsddóttir tryggði Gróttu annað stigið gegn ÍBV í leik liðanna í Eyjum í gærkvöldi. Lokatölur urðu 19-19 eftir 7-9 í leik- hléi. Lokamínútur leiksins voru hníf- jafnar og spennandi. Sara Ólafsdóttir kom ÍBV yfir, 19-18, þegar 50 sekúnd- ur vom eftir en Brynhildur jafnaði fyrir Gróttu þegar 30 sekúndur voru eftir. Mörk ÍBV: Judith 7/2, Andrea 6, Ragna Jenný 3/2, Katrín 2 og Sara 1. Mörk Gróttu: Laufey 12/7, Þuríður 4, Sigríður 1, Elísabet 1 og Brynhildur 1. Fanney Rúnarsdóttir varði 15 skot í marki Gróttu, þar af 3 vítaskot. • Víkingur vann Hauka stórt, 17-26, í Hafnarfirði eftir 6-15 í leik- hléi. Mörk Hauka: Ragnheiður 5/1, Harpa 5/1, Heiörún 4 og Rúna Lísa 3. Mörk Víkings: Halla María 5, Inga Lára 5/3, Valdís 4, Svava 4, Heiörún 4, Matthildur 2, íris 1 og Elísabet 1. • Ármann vann Gróttu, 19-21, í 2. deildkarlaígærkvöldi. -SK/-BÓ/-HS Sandgrasvöllur Breiðabliks 1. janúar hefst nýtt leigutímabil á sandgras- vellinum. Pantið strax vegna mikillar að- sóknar. Pantanir í síma 641990 eftir kl. 13.00 á daginn. Knattspyrnuúrslit í gærkvöldi Evrópukeppni meistaraliða A-riðill CSKA Moskva - G. Rangers....0-1 Marseille - Club Brugge.......3-0 Staðan: Marseille 3, Rangers 3, Club Bmgge 2 og CSKA Moskva 0. B-riöill IFK Gautaborg - Porto.......1-0 PSV Eindhoven - AC Milan....1-2 staðan: AC Milan 4, Gautaborg 2, PSV 1 og Porto 1. UEFA-Keppnin Galatasaray - AS Roma......3-2 (Roma vann samanlagt 5-4) Enska deildakeppnin - 4. umf. Blackbum Rovers - Watford..6-1 Enska bikarkeppnin - 2. umf. Plymouth - Peterbro........3-2 VS Rugby - Marlow..........0-0 . -SK Eins og greint var frá hér í DV á dögunutn slasaðist Birgir Sigurðsson, landsliðstnaður í handknattleik', illa á dögunum í leik með Víkingum gegn HK. Óttast var að krossbönd í hné heföu slitnað og sú var reynar raunín og meira til því liðþófi, reyndist vera rif- inn. „Ég reikna meö að fara í uppskurð eftir helgina. Læknar segja mér að það taki um 6 mánuði aö jafna sig og síöan fari nokkur tími í aö þjálfa fótinn upp en vonandi verö ég orðinn góður fyrir næsta haust og get þá farið að sþila á ný,“ sagði Birgir í sam- tali við DV i gær. Þetta er mikið áfall fyrir Víkinga og ís- lenska landsliðið en Ijóst er að Birgir verður ekki með landsliðinu í heimsmeistara- keppninni í Svíþjóð í mars á næsta ári. Góðu fréttirnar í herbúðum Víkinga eru hins vegar þær að Bjarki Sigurðsson, horna- maðurinn öflugi, er óðum að ná sér eftír að hafa slitið krossbönd í lmé í júlí í sum- „Bjarki kemur inn í hópinn í kvöld þegar viö heimsækjum Þórsara. Hann hefur verið skipaöur íýrirliöi í stað Birgis en ég á samt ekM von á að hann spili mikið í þeim þrem- ur leikjum sem viö eigum að leika á þessu ári. Það er hins vegar mjög ánægjulegt aö Bjarki er aö braggast og hann verður kom- inn á fullt með okkur eftir áramótin," sagði Gunnar Gunnarsson, þjálfari og leikmaður Víkings, við DV í gær. „Mimum leika um fallsæti“ - ÍBV tapaði naumlega gegn FH „Við vissum að IBV-liðið er á upp- leið og því áttum við von á jöfnum leik. Það var visst einbeitingarleysi í okkar liði enda kemur viss órói í mannskapinn eftir landsliðsferðir en þar áttum við nokkra menn. Vöm og markvarsla hefur verið heldur á niðurleið hjá okkur og það verður gert í að laga það. Þetta voru dýrmæt stig og við stefnum ótrauðir á að halda toppsætinu í deildinni," sagði Guðmundur Karlsson, liðsstjóri FH, eftir sigur sinna manna gegn ÍBV í Kaplakrika, 29-27. Fyrri hálfleikurinn einkenndist af slökum varnarleik. FH-ingar náðu þó að sýna oft ágæt tilþrif í sókninni og sérstaMega voru þeir skæðir í hraðaupphlaupunum. Undir lok hálfleiksins voru FH-ingar komnir með vænlega stöðu en Eyjamenn FH (17) 29 ÍBV (14) 27 0-1, 4-4, 7-5, 12-9, 14-10, 17-12, (17-14), 17-17, 19-19, 21-23, 22-25, 26-26, 28-27, 29-27. Mörk FH: Sigurður 5, Guðjón 5/1, Kristján 4, Hálfdán 4, Svafar 3, Gunnar ,Pétur 3, Trúfan 2/2. Varin skot: Bergsveinn 10. Mörk ÍBV: Björgvin 7, Svavar 6, Sigurður 4, Magnús 3, Belánýi 3/3, Erlingur 2, Guðfinnur 1, Sigbjöm 1. Varin skot: Sigmar Þröstur 4, Hlynur 7. Dómarar: Gunnlaugur Hjálm- arsson og Einar Sveinsson, dæmdu illa. Áhorfendur: 300. Maður leiksins: Björgvin Rún- arsson, ÍBV. skoruöu þrjú síðustu mörMn í fyrri hálfleik og þrjú fyrstu í þeim síðari og hleyptu þar með spennu í leikinn að nýju. FH-ingar voru værukærir lengi framan af síðari hálfleik og það nýttu Eyjamenn sér vel. Hafnfirðing- arnir vöknuðu upp við vondan draum 10 mínútum fyrir leikslok, þá þremur mörkum undir og tryggðu sér sigur á lokakaflanum en segja má að Eyjamenn hafi verið Maufar að ná ekki að minnsta kosti öðru stig- inu. „Við vorum ekki nógu skynsamir á þessum lokamínútum, „panikin" var of mikil og við köstuðum þessum frá okkur. Við erum komnir í erfiða stöðu og okkar hlutsMpti verður að spila um fallsæti,“ sagði Sigurður Gunnarsson, þjálfari og leikmaður ÍBV, við DV eftir leiMnn. -GH Valur (13) 27 Haukar (13) 26 0-1, 4-2, 6-3, 6-8, 9-9, 9-11,10-12, 13-12, (13-13), 13-14, 15-15, 20-17, 23-22, 27-24, 27-26. Mörk Vals: Valdimar 7/3, Geir 6, Jón 5/3, Dagur 4, Ólafur 2, Óskar 1, Júlíus 1, Sveinn 1. Varin skot: Guðmundur 5, Axel 12/2. Mörk Hauka: Páll 5, Sigurjón 5/2, Baumruk 4/1, Halldór 3, Jón 3, Pétur 3, Óskar 2, Aron 1. Varin skot: Leifur 8, Magnús 4/1. Dómarar: Stefán Amaldsson og Rögnvaldur Erlingsson dæmdu erfiðan leik ágætlega. Áhorfendur: 300. Maður leiksins: Geir Sveinsson, Val. íþróttir Fjárhagsstaða 1. deildar félaganna í knattspymu: Flest félögin stórskuldug - Valur og Víkingur í áberandi mestum vanda Langflestar knattspyrnudeildir félaga, sem léku í 1. deild á síðasta keppnistímabili knattspyrnu- manna, eru stórskuldugar og eiga við miMnn fjárhagsvanda að stríöa. Sjö félög af tíu skulda mikla peninga en hjá þremur félögum er fjárhagsleg staða viðunandi. Reykjavíkurfélögin Valur og Vík- ingur standa áberandi verst. Skuldir Valsmanna eru um 28 milljónir króna í dag og knatt- spymudeild Víkings skuldar 19 milljónir. • Þrátt fyrir gríðarlega erfiða stöðu hefur Valsmönnum teMst að grynnka verulega á skuldunum, eða um 10 milljónir frá því 1991. • Nýlega var skipt um stjórn hjá knattspymudeild VíMngs. Nýju stjómarinnar bíður erfitt verkefni, aö takast á við skuldir upp á 19 milljónir króna. Upphaf erfiðleika Víkings má rekja allt til ársins 1983 og hefur Víkingum lítið gengið að lækka skuldir sínar síðasta áratug- inn. • Síðasta keppnistímabil var KA erfitt eins og fleiri félögum. Skuld- imar eru 6 milljónir og útíitið allt annað en bjart. Liðið leikur í 2. deild á næsta tímabili. • Þórsurum hefur teMst að lækka skuldir sínar undanfarið en betur má ef duga skal. Knatt- spymudeild Þórs skuldar nú 5 milljónir. • Breiðablik, sem leikur í 2. deild næsta sumar, á einnig í erfiðleik- um, skuldar í dag um 3,5 milljónir. • Framarar skulda um 3 milljón- ir og versnaði hagur knattspyrnu- deildar nokkuð sl. sumar. Þar veg- ur þyngst fækkun áhorfenda á leikjum liðsins. • FH berst einnig í bökkum og knattspyrnudeild félagsins vantar um 2,5 mifijónir til að ná saman endum. • KR er eina félagið sem stendur alveg á sléttu þessa dagana. • Skagamenn em með 400 þús- und krónur í hagnað eftir síðasta sumar. Hefur ÍA sjaldan átt við tap- rekstur að stríða. • Ljósið í myrkrinu logar í Eyj- um. Staðan hjá ÍBV í dag er jákvæð sem nemur 2,5 miUjónum. Á síö- asta tímabiU tapaði ÍBV þó 1,5 mfilj- ónum króna. Tímabært að hægja á ferðinni Hjá þeim sjö knattspymudeildum, sem beijast við taprekstur, er heildarupphæð skuldanna samtals 67 miUjónir. Rekstur þessara deilda hefur verið sérlega erfiður og ástæðumar em margar. Greiðslur til þjálfara og leikmanna eru gengnar langt úr hófi fram. Einn heimildarmaður DV hjá einu 1. deUdar félaganna sagði: „Menn verða að fara að koma sér niður á jörðina. Það er engu líkara en hjá sumum félögunum haldi menn að þeir séu staddir á ítaUu. Þetta geng- ur ekM lengur og ef menn taka sér ekM tak endar þetta með gjaldþroti margra knattspyrnudeUda." Endurspeglar stöðuna í öðrum íþróttagreinum íþróttahreyfingin í heUd á við gíf- urlegan fjárhagsvanda að etja. Menn innan hreyfmgarinnar, sem DV hefur rætt við, fullyrða að stað- an hjá umræddum knattspyrnu- deildum endurspegli þröngan fjár- hag margra annarra íþróttagreina. SkUningsleysi stjórnvalda ber oft á góma og ekki er fast að orði kveðið þegar fullyrt er að framlag rUúsins tíl íþrótta sé í engu samræmi viö þann miMa fjölda sem íþróttir stundar innan fjölmennustu fé- lagasamtaka landsins. Uppeldis- og forvarna- þátturinn gleymist Stjórnmálamönnum hefur gjarnan orðið tíðrætt um mikið uppeldis- starf íþróttafélaganna og sífellt er talað um að betra sé áð unga fólk- ið, framtíð þjóðarinnar, stundi heUsusamlegar íþróttir en láti ekki glepjast af vímuefnum og ööru böli á uppeldisárunum. Þrátt fyrir þetta hefur „örlæti“ þeirra sem með fjár- veitingavaldið fara sífellt hrakaö undanfarin ár og stööugt og án af- láts virðist stefnt að því að íþrótta- hreyfingin á íslandi búi við sult og seyru. Nöturleg fjárhagsleg staða knattspymudeildanria, sem birt er í DV í dag, er aðeins lítið dæmi um þá mUclu erfiðleika sem til staðar eru. Og með óbreyttu hugarfari þeirra sem í aðstöðu eru tU að snúa blaðinu við, og alltaf mæta fyrstir í Leifsstöðina til að hampa íþrótta- hetjum, eru því miöur enn dekkri dagar framundan. -SK Fjárhagsstaða 1. deildar félaganna í knattspyrnu 1992 RobertstilUMFG ÚrvalsdeUdarlið Grindavíkur hefur fengið til liðs við sig nýjan erlendan leikmann og er honum ætlað að fyUa skarð það sem Dan Krebs skUdi eftír sig. Leikmaðurinn, sem hér um ræðir, heitir Jonathan Roberts. Hann er tveir metrar á hæð, svartur á hör- und. HeimUdir Grindvíkinga segja að hér sé um mjög sterkan leik- mann að ræða. Roberts þessi lék áður í Kólumbíu og í bandarísku háskólafiði við mjög góðan orðstír. Þar var hann stigahæstur 1 sínu liði í Pensylvaníu og tók einnig flest frá-. köst. Jonathan Roberts er væntan- legur til Grindvíkinga milli jóla og nýárs og var Axel Nikulásson Grindvíkingum innan handar í leit að nýjum erlendum leUonanni. -SK/-ÆMK Suðurnesjum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.