Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1993, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1993, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1993. 13 dv Sviðsljós Kynningardagur búfræðinema Nemendur bændaskólans á Hólum í Hjaltadal gengust fyrir kynningu á skólastarfinu fyrir skömmu. Boöið var upp á dagskrá i reiðskemmu þar sem m.a. gafst kostur á aö kynnast árangri af tamningum en i haust fengu nemarnir folöld til að frumtemja. Á eftir var síðan sýning á ýmsum búnaði sem tengist hestamennsku og var myndin tekin við það tækifæri. DV-mynd örn Þórarinsson, Fljótum Höfðinglegar gjafir Bókasafni Sigluf jarðar voru nýlega færðar höfðinglegar gjafir frá nemendum úr árgangi 1933 sem ólust upp á Siglufirði. Gjöfin var tölva, prentari og 100 þúsund krónur sem ætlaðar eru til hugbúnaðarkaupa. Tækjununum hefur þegar verið komið fyrir á skrifstofu bókasafnsins og hér er Óli J. Blöndal bókavörður að vinna við þau. DV-mynd örn Þórarinsson, Fljótum Menning Klofin- stefia Bjöm Sigfússon, fyrrum háskólabókavöröur, dó frá þessari bók fuUsaminni 10. maí í fyrra. Hann var þá 86 ára. Efni bókarinnar er dægurmál, reyndar nokkur ár fram í tímann. Hér er fjallað um stöðu íslendinga á alþjóðavettvangi, einkum EES-samninga og framtíð- arhorfur tengdar þeim. Bjöm var alkunnur fyrir feiknalegan fróðleik. Hann var ákaflega víðlesinn og bókin sýnir að hann hafði kynnt sér vel nýjustu rit um viðfangsefni sitt, auk þess sem hann byggir mikið á hliðstæðum úr sögu Islands og annarra þjóða. Einnig var hann sjálfstæður í hugsun, svo sem sést t.d. á rökstuðningi hans fyrir því að setja niður á íslandi iðnað sem eykur á gróður- húsaáhrif, þau verði þó miklu minni hér við jarðhita og vatnsaflsraforku en erlendis þar sem þyrftí kol eða olíu til þessa nauösynlega iðnaðar. Hins vegar rekur Bjöm stímdum hvað kenningum ýmissa manna sé sameiginlegt án þess að rökræða þær að neinu gagni, t.d. um Toynbee og Jón Ámason (bls. 80-81). Sömuleið- Bókmenntir Örn Ólafsson is sakna ég raka fyrir því að herstöðin í Keflavík sé nauðsynleg eftir hrun Varsjárbandalagsins, óljóst tal um hryðjuverkahópa nægir ekki. Bjöm segir réttilega að það leiddi bara til ófijós hverfarígs að skipta Reykja- vík upp í (einmennings)kjördæmi. En augljóslega gild- ir það einnig um núverandi skiptingu höfuöborgar- svæðisins í kjördæmi, í Fossvogsdal og við Eiðis- granda. Röksemdalaust boðar þó Bjöm viðhald henn- ar. í stað rökræðna um svo nærtæk efni koma framtíð- arspár miklar og sýna fijótt ímyndunarafl Bjöms sem fylgdi mikilli þekkingu hans og gerði svo skemmtilegt að hlusta á hann. Ég minnist alla ævi þriggja sumra sem ég vann hjá honum fyrir aldarfjórðungi. En vissu- lega ganga þessar framtíðarspár út í öfgar hér ef hugs- að er um hagnýtt gagn. Bjöm skiptir landinu í þijú fylki út frá miðju Reykjavíkur og lítur þá helsti núkið á flatarmál. Nær væri að miða viö samgöngur og þá er augljóst að Vestfjarðakjálkinn og Dalasýsla ætti fremur heima með „Snælandi" (Norðausturlandi) en með „Upplöndum" höfuðborgarsvæðisins, sem hann kallar Esjuland. Síðan koma heilmiklar vangaveltur um væntanleg átök þessara fylkja um auðnir miðhá- lendisins og hvernig megi leysa þau átök í einstökum greinum. En þetta eru ystu mörk ritsins. Gagnlegra er það sem lýtur að nánustu samtíð og rök Bjöms fyrir fylkja- skiptingunni eru mikið umhugsunarefni, að þannig geti íbúar hvers svæðis gætt sameiginlegra hagsmuna gegn stórfyrirtækjum í eigu fjarstaddra, hvort sem er útlendinga eða Reykvíkinga. Sérstaklega má og nefna hve orðhagur Bjöm var. Vissulega skrifaði hann sam- þjappaðan stíl og snúinn, svo sem Ólafur Halldórsson Björn Sigfússon. Frjótt ímyndunarafl og mikil þekking. nefnir í ágætum formála. En þeim mun betri var hann að gera einstök orð, t.d. dreifræði fyrir „subsidiarity" það sem alitaf er verið að ræða í sambandi við vax- andi einingu EB. Þá hefði bara þurft að hafa erlenda orðið í svigum aftan við það íslenska í nafnaskrá og atriöisorða sem annars er einstaklega rækileg. Bjöm hefur hvarvetna á hraðbergi ljóðlínur þjóðskálda og þá þarf að tíltaka hverju sinni hvaðan það er, heildar- skrá aftan við nægir ekki. Til mikillar fyrirmyndar finnst mér að tiltekið er fæöingarár hvers manns sem nefndur er, auk dánarárs, sé það komið. En það hefði nægt að hafa í nafnaskrá. Að ööru leyti er þessi útgáfa afar vel unnin og hefði umsjónarmaður hennar gjaman mátt láta nafns síns getiö. Ég skil betur hógværð kápuhönnuðar. Góður fengur er t.d. að ritaskrá Bjöms aftast og má mikið vera ef ekki mættí gera gott úrval greina hans, einkum um íslensk fræði. Eg óttast bara að óhóflega stórt upp- lag þessarar bókar (2500 eintök) tefji lengi útgáfu shks greinasafns. Björn Slgfússson: Kloflnstefja. Háskólaútgáfan 1992, 228 bls. ÚTSALAN HEFST í DAG Meiri háttar verðlækkun Rauðarárstíg 14, sími 13505 - 14303

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.