Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1993, Síða 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1993.
Vinningstölur 2. jan. 1993
Í9) fl7)
'(35)
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 2 1.294.724
2. 4af5'? € 9 49.944
í 3. 4af5 102 7.601
4. 3af5 4.370 414
Heildarvinningsupphæð þessa viku: 5.623.426 kr.
Æ 11
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI91 -681511 LUKKUIINa991002
Meiming
Sviðsljós
Varnarliösmenn á Keflavíkurflugvelli. Forvitnilegasti kafli bókarinnar fjallar einmitt um samningaviðræður
tengdar veru varnarliðsins.
íslensk utan-
ríkisþjónusta
Pétur J. Thorsteinsson sendiherra hefur undanfarin
ár unnið að ritun sögulegs yfirlits um utanríkisþjón-
ustu íslands og utanríkismál. Á1436 blaðsíðum í þessu
þriggja binda verki lýsir hann þróun utanríkisþjón-
ustunnar, segir frá starfsmönnum og sendiráðum, al-
þjóðlegum samningum íslenska ríkisins og þátttöku í
fj ölþj óðasamtökum og stofnunum af margvíslegu tagi.
Einnig fjallar hann um innri mál utanríkisráðuneytis-
ins og þær breytingar sem þar hafa orðið í tímans rás.
Þessi mál eru rakin í tímaröð. Fyrst segir frá tímabil-
inu fyrir 1940, þá stríösárunum, síöan ánmum 1946-
1955, þá tímaskeiðinu 1956-1971 og loks árunum 1972-
1990. Verkið endar á kafla um þróun utanríkisþjón-
ustunnar allt tímabihð frá 1940-1990.
Bókmenntir
Elías Snæland Jónsson
Varnarmál og hermang
Mikið er hér af almennum fróðleik um samskipti
íslenskra stjómvalda og erlendra. Hins vegar er minna
um að kafað sé ofan í einstök utanríkismál umfram
það sem þegar hefur verið rakið annars staðar. Hefur
höfundur þó haft greiðan aðgang að skjalasafni utan-
ríkisráðuneytisins, en þar er vafalítið margt forvitni-
legt að finna sem ekki hefur enn komið fyrir almenn-
ingsjónir. Til slíkra heimilda er þó alltof lítið vitnað.
Helsta undantekningin er í ítarlegri frásögn af vam-
armálum frá stríðslokum langt fram eftir sjötta ára-
tugnum enda er þar um að ræða áhugaverðustu um-
fjöllun höfundar um einstök utanríkismál. Hún undir-
strikar til dæmis hversu mjög íslenskir stjómmála-
menn hafa allt frá upphafi tengt saman í viðræðum
við Bandaríkjamenn efnahagslega fyrirgreiðslu og
framkvæmdir, öðm nafni hermang, við veru banda-
rísks hers í landinu.
Eftir því sem höfundurinn kemur nær samtímanum
er minna vitnað til áður óbirtra heimilda. Enda er
textinn þá oft lítið annað en upplýsingar úr þegar birt-
um greinargerðum, skýrslum, fréttatilkynningum,
handbókum og öðrum slíkum gögnum.
Opinber saga
Þetta viðamikla rit ber þess nokkur merki að vera
eins konar opinber saga utanríkisráðuneytisins skráð
af innanbúðarmanni þar um langt árabil. Hér er til
dæmis lítt vikið að málum sem telja má óþægileg fyr-
ir stjórnvöld. Nefnt skal eitt dæmi af handahófi: Sagt
er frá því með velþóknun þegar Hermann Jónsson
forsætisráðherra hafnaði beiðni Lufthansa um aöstöðu
á íslandi árið 1939. Hins vegar finnst hér ekkert um
hina hliðina á samskiptum íslendinga við Þriðja ríkið,
þ.e. skammarlega afstöðu til flóttamanna af gyðinga-
ættum eða björgunaraðgerðir stjórnvalda vegna ís-
lendinga sem gengið höfðu á mála hjá nasistum.
Stundum líður verkið jafnvel fyrir að vera eins kon-
ar vamarrit fyrir ríkjandi sjónarmið í ráðuneytinu,
ekki síst þegar vikið er að gagnrýni á starfsemi utan-
ríkisþjónustunnar, eða úttektir sem gerðar hafa verið
um einstaka þætti hennar.
En þrátt fyrir slíka ágalla hefur þetta mikla verk
veriðégt gildi sem uppflettirit um einstaka þætti utan-
ríkisþjónustunnar í gegnum tíðina, svo sem um sendi-
ráð og sendimenn, einstaka samninga og fleira af slík-
um toga.
Utanrikisþjónusta islands og utanríkismál. sögulegt yfirlit.
Höfundur: Pétur J. Thorsteinsson.
Hið íslenska bókmenntafélag, 1992.
Nýju ári fagnað í Tunglinu
'68-kynslóðin á Hótel Sögu
Þær Harpa Karlsdóttir, t.v., Þuríður Gunnarsdóttir og Edda Arndal voru
mættar á nýársfagnaðinn í Tunglinu. DV-myndir S
Ýmislegt höfðu þær um að ræða söngkonurnar Björk Guðmundsdóttir og
Ragnhildur Gísladóttir. Jakob Magnússon hlýddi á með stóiskri ró.
Skátamir keyptn Pólstjömuhúsið
Hjálparsveit Skáta á Dalvik keypti á dögunum svokallað Pólstjörnuhús af
Byggðastofnun fyrir 4,5 milljónir króna. Húsið hentar vel skátunum sem
voru ánægðir með verðið og greiðslukjörin. Á myndinni eru fulltrúar skát-
anna að ganga frá samningnum við Valtý Sigurbjarnarson, sem er annar
frá hægri, fulltrúa Byggðastofnunar. DV-mynd Heimir Kristinsson, Dalvík
Það lét sér enginn leiðast á nýársfagnaðinum á Hótel SÖgu. Hér eru þau
kampakát, f.v. Ásgerður Ólafsdóttir, Lilja M. Jónsdóttir, Sigurður Rúnar
Jónsson og Karl Gunnarsson.
Þær lyftu glösum í tilefni nýs árs, f.v. Halla Guðmundsdóttir, Guðrún Gísla-
dóttir, Guðrún Þórarinsdóttir Jensen og Ásta Sigurgeirsdóttir. DV-myndir S