Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1993, Page 11
LAUGARDAGUR13. FEBRÚAR1993
11
ígulkeravimisla flutt til Njarðvíkur:
Verður að vera nærri
útflutningsflugvelli
Samkomulagiö undirritað í Njarðvík. Frá vinstri Robin Kawada, sem á sams konar fyrirtæki í Bandaríkjunum,
Kristján Pálsson, bæjarstjóri í Njarðvík, Ellert Vigfússon, annar eigandi ígulkera, og Sólveig Þórðardóttir,
forseti bæjarstjórnar.
Ægir Már Káxason, DV, Suðumesjum;
„Við erum ekki eigendur að ígul-
keravinnslunni, heldur aðilar að
tilraunavinnslu. íslensk ígulker hf.
sjá alfarið um vinnsluna og bera
ábyrgð á henni. Aðstoð okkar við
verkefnið felst í því að leigja þeim
húsnæði auk annarrar fyrirgre-
iðslu,“ sagði Kristján Pálsson, bæj-
arstjóri í Njarðvík, í samtali við
DV..
„íslensk ígulker hafa verið með
tilraunavinnslu á ígulkerum í
Stykkishólmi en það er nauðsyn-
legt að færa vinnsluna nær Kefla-
víkurflugvelh vegna útflutnings.
Þess vegna varð samkomulag á
mifli fyrirtækisins í Stykkishólmi
og Njarðvíkurbæjar að hefja hér
tilraunavinnslu. Markmiðið er að
stofna fyrirtæki sem getur náð
traustum samböndum á Japans-
markaði með útflutningi á ígul-
kerahrognum. Fyrirtæki með 40-50
manns í vinnu. Það yrði mikið happ
fyrir okkur á Suðurnesjum ef þessi
tilraun heppnaöist og skapaði störf
fyrir stóran hóp í mörg ár,“ sagði
Kristján Pálsson.
„Það er þýðingarmikið fyrir okk-
ur að flytja hingað. Nauðsynlegt
að vera nálægt flugvelflnum til að
þessi rekstur beri sig. Það er vegna
hrognanna. Þegar búið er að taka
þau úr ígulkerinu eru þau mjög
viðkvæm í flutningi. Þola ekki
flutning með bílum eins og vegir
hér eru á veturna. Þess vegna verð-
um við að vera mjög nálægt flug-
velli.
Við hefjumst strax handa við að
gera húsnæðið hér klárt í vinnsl-
una. Byrjum síðan á fullu. Til að
byrja með verðum við með vinnsl-
una í Stykkishólmi. Lokum ekki
þar fyrr en við erum komnir af stað
hér í Njarðvík. Um 20 manns eru í
vinnslunni í Stykkishólmi - laus-
ráðið fólk sem vár sagt í byrjun að
þetta væri tilraun sem gæti brugðið
til beggja vona. Það gekk ekki upp
þar vegna flutningsins. Ekki hægt
aö taka þá áhættu að hrognin eyði-
leggist í flutningi og eina lausnin
að færa starfsemina nær flugvell-
inum,“ sagði Ellert Vigfússon, ann-
ar eigandi íslenskra ígulkera hf., í
samtali við DV.
„Ég er viss inn það að það gengur
hvergi að stofna tíl ígulkeravinnslu
hér á landi nema í tengslum við
flugvöll og það öruggan völl því
þegar við byrjum að senda út má
ekki sending falla niður. Við erum
að tala um allt að 10 tonn af hrogn-
um á dag. Sjómenn veiða ígulkerin
og við kaupum af þeim og erum
einnig með kafara. En það er ekki
víst að hægt sé að stunda veiðar
allt árið.
Við vitum að á Breiðafirði hrygna
ígulkerin í maí. Þá er ekki hægt að
stunda veiðar og við þurfum að
kanna hvort hrygning er á öðrum
tímum, t.d. annars staðar á land-
inu. Það er maður hér að aðstoða
okkur. Hann á sams konar fyrir-
tæki í Bandaríkjunum og er með
250 manns í vinnu. Hann kaupir
af okkur og aðstoðar að koma þessu
af stað gegn því að við seljum hon-
um ígulkerin," sagði Ellert.
IMISSAIM PATROL
EIGUM FYRIRLIGGJANDI
TIL AFGREIÐSLU STRAX
NISSAN PATROL GR. SLX
TURBO DIESEL
Inflvar
Helgason hf.
Sævarhöföi 2,112 Reykjavík
P.O. Box 8036, Sími 674000
Bílasýning um helgina frá kl. 14-17
• VEL 2,8 TURBO DIESEL
• LÚXUSINNRÉTTIN FYRIR 6 FARÞEGA
• ÚTVARP MEÐ CASSETUSPILARA
• TVÆR ÖFLUGAR MIÐSTÖÐVAR
• SAMLÆSINGAR OG RAFDRIFNAR RÚÐUR
• 100% DRIFLÆSING Á AFTURÖXLI
• BREIÐAR FELGUR 31"HJÓLBARÐAR
• VERÐ SEM KEMUR Á ÓVART
KOMIÐ OG SKOÐIÐ ÞENNAN GLÆSILEGA BÍL