Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1993, Blaðsíða 48
60
-qrn
LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1993.
00
Surtnudagur 14. febrúar
SJÓNVARPIÐ
9.00 Morgunsjónvarp barnanna.
Kynnir er Rannveig Jóhannsdóttir.
* Heiöa (7:52). Þýskurteiknimynda-
flokkur eftir sögum Jóhönnu
Spyri. Þýðandi: Rannveig
Tryggvadóttir. Leikraddir: Sigrún
Edda Björnsdóttir. Flugan. Saga
og teikningar eftir Guörúnu Krist-
ínu Magnúsdóttur. Höfundur les.
Frá 1985. Þúsund og ein Ameríka
(8:26). Spænskur teiknimynda-
flokkur sem fjallar um Ameríku fyr-
ir landnám hvítra manna. Þýöandi:
ÖrnólfurÁrnason. Leikraddir: Aldís
Baldvinsdóttir og Halldór Björns-
son. Af hverju er himinninn blár?
Sverrir Guðjónsson veltir fyrir sér
spurningunni í spjalli við unga
gesti og syngur ásamt Gísla Guö-
mundssyni. Frá 1986. Felix köttur
(5:26). Bandarískur teiknimynda-
flokkur um gamalkunna hetju.
Þýóandi: Ólafur B. Guönason.
Leikraddir: Aðalsteinn Bergdal. Hjá
tannlækninum Björn Erlendsson,
þriggja ára, fer til Guðmundar Lár-
ussonar tannlæknis í fyrsta sinn.
Frá 1978. Lífið á sveitabænum
(2:13). Enskur brúðumyndaflokk-
ur. Þýðandi: Ásthildur Sveinsdóttir.
Sögumaður: Eggert Kaaber. Vil-
hjálmur og Karítas. Handrit: Sig-
urður G. Valgeirsson og Svein-
björn I. Baldvinsson. Leikendur:
Eggert Þorleifsson og Sigrún Edda
Björnsdóttir. Frá 1986.
11.10 Don Quixote (5:5). Endursýndur
verður lokaþáttur framhalds:
myndaflokksins um Don Kíkóta. í
aðalhlutverkum eru Fernando Rey
og Alfredo Landa. Þýðandi: Sonja
Diego. Áður á dagskrá 1. febrúar.
12.10 Hlé.
13.00 HM í skíðaíþróttum. Sýnt verður
frá keppni í svigi karla. (Evróvision)
14.00 Islandsmótið í badminton. Bein
útsending úr Laugardalshöll. Um-
sjón: Samúel Orn Erlingsson.
Stjórn útsendingar: Gunnlaugur
Þór Pálsson.
15.50 Montgomery Clift (Crazy About
the Movies: Montgomery Clift).
Bandarísk mynd þar sem rakinn
er starfsferill Montgomerys Clifts
sem var einn vinsælasti leikarinn í
Hollywood á sínum tíma. Sýnd eru
atriði úr nokkrum þeirra mynda
sem hann lék í og rætt við sam-
ferðamenn hans, meðal annarra
Dennis Hopper, Shelley Winters
og Roddy McDowall. Þýðandi:
Ýrr Bertelsdóttir.
16.50 Evrópumenn nýrra tíma (1:3)
(The New Europeans). Banda-
rísk/þýsk heimildamyndaröð um
Evrópubandalagið. i fyrsta þættin-
um er rakin saga sameiningarinnar
í Evrópu og fjallað um ýmsar stof n -
anir Evrópubandalagsins í Bruxel-
les, Lúxemborg og Strassborg.
Þýðandi: Sverrir Konráðsson. Þul-
ur: Árni Magnússon.
17.50 Sunnudagshugvekja. Hjalti
Hugason lektor flytur.
18.00 Stundin okkar. Meðal annars
verður teiknimynd um tölustafi, kór
leikskólabarna syngur, sýnt verður
atriði úr leikritinu Ronju ræningja-
dóttur, Emelía kíkir í minningakist-
ilinn og Úlli úlfur fer í Sjóminja-
safnið í Hafnarfirði. Umsjón: Helga
Steffensen. Upptökustjórn: Hildur
Snjólaug Bruun.
18.30 Grænlandsferðin (2:3) (Grön-
land). Dönsk þáttaröð um lítinn
dreng á Grænlandi. Þýðandi og
þulur: Gylfi Pálsson. (Nordvision)
Áður á dagskrá 6. janúar 1991.
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Tíðarandinn. Rokkþáttur í um-
sjón Skúla Helgasonar.
19.30 Fyrirmyndarfaðir (14:26) (The
Cosby Show). Bandarískur gam-
anmyndaflokkur meö Biil Cosby
og Phyliciu Rashad í aðalhlutverk-
um. Þýðandi: Guðni Kolbeinsson.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Söngvakeppni Sjónvarpsins.
Flutt verða tvö af þeim tíu lögum
sem keppa til úrslita 20. febrúar.
20.45 Húsið í Kristjánshöfn (6:24)
(Huset pá Christianshavn). Sjálf-
stæðar sögur um kynlega kvisti
sem búa í gömlu húsi í Christians-
havn í Kaupmannahöfn og næsta
nágrenni þess. Aðalhlutverk: Ove
Sprogoe, Helle Virkner, Paul
Reichert, Finn Storgaard, Kirsten
Hansen-Moller, Lis Lovert, Bodil
Udsen og fleiri. Þýðandi: Ólöf Pét-
ursdóttir.
21.10 Landið ókunna - leit án enda
Ný, íslensk sjónvarpsmynd um
könnunarsögu hálendis íslands.
Strax eftir landnám hófu forfeður
okkar að kanna hálendið en á mið-
öldum lögðust hálendisferðir af og
margvíslegar ógnar- og furðusög-
ur um landsvæðið urðu til. Á upp-
lýsingaröld var hálendið uppgöt-
vað á ný og síðan hefur landkönn-
unarsaga þess verið hæg en óslit-
in. I myndinni bregður Stefán
Sturla Sigurjónsson leikari sér f
hlutverk nokkurra af landkönnuð-
um þeim sem átt hafa leið um
hálendiö í aldanna rás. Þulun
Benedikt Árnason. Tónlist: Þor-
steinn Hauksson. Hugmynd,
handrit og texti: Trausti Valsson.
Sjónvarpshandrit og dagskrárgerð:
Þór Elís Pálsson.
21.50 Banvænt sakleysi (Lethal Inno-
cence). Bandarísk sjónvarpsmynd
frá 1991, byggð á raunverulegum
atburðum. Ungur drengur, flótta-
maður frá Kambódíu, á erfitt með
að laga sig að aðstæðum í hinum
nýja heimabæ sínum í Bandaríkj-
unum. Þegar kemur á daginn að
fjölskylda hans er á lífi leggjast
bæjarbúar á eitt til að hægt verði
aö sameina fjölskylduna á ný. Leik-
stjóri: Helen Whitney. Aðalhlut-
verk: Maureen Stapleton, Blair
Brown, Brenda Fricker, Theresa
Wright og Vathana Biv. Þýðandi:
Jón 0. Edwald.
23.15 Sögumenn (Many Voices, One
World). Þýðandi: Guðrún Arnalds.
23.20 Svartur sjór af síld. Síðasti þáttur
af þremur um síldarævintýri íslend-
inga fyrr á öldinni. Umsjón: Birgir
Sigurösson. Dagskrárgerð: Saga
film. Aður á dagskrá 5. janúar
1992.
0.05 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
09.00 í bangsalandi II.
09.20 Barnagælur.
09.45 Umhverfis jörðina í 80 draum-
um (Around the World in 80 Dre-
ams). Teiknimyndaflokkur um
ferðalög Karls sjóara og barna
hans. (4.26)
10.10 Hrói höttur (Young Robin Ho-
od). Teiknimyndaflokkur um Hróa
og félaga hans. (6.13)
10.35 Ein af strákunum (Reporter Blu-
es). Teiknimynd sem segirfrá ungri
stúlku sem á erfitt uppdráttar í
blaðamannaheiminum.
11.00 í blíðu og stríðu.
11.30 Ég gleymi því aldrei (The Worst
Day of My Life).
12.00 Evrópskí vindældalistinn (MTV
- The European Top 20). Gerræð-
islega góður þáttur þar sem 20
vinsælustu lög Evrópulistans eru
kynnt.
ÍÞRÓTTIR Á SUNNUDEGI
13.00 NBA tilþrif (NBA Action).
13.25 íþróttir fatlaðra og þroska-
heftra.
13.55 ítalski boltinn. Bein útsending frá
leik í fyrstu deild ítalska boltans í
boði Vátryggingafélags íslands.
15.45 NBA körfuboltinn. Spennandi
leikur í NBA-deildinni í boði Myll-
unnar.
17.00 Húsið á sléttunni (Little House
on the Prairie). Myndaflokkur um
Ingalls fjölskylduna góðkunnu.
(2:24)
18.00 60 mínútur. Margverðlaunaður
fréttaskýringaþáttur.
18.50 Aðeins ein jörð. Endurtekinn
þáttur frá síðastliðnu fimmtudags-
kvöldi.
19.19 19:19
20.00 Bernskubrek (The Wonder Ye-
ars). Unglingsstrákurinn Kevin
Arnold og félagar hans glíma við
unglingavandamálin af fullum
krafti. (3:24)
20.25 Heima er best.
21.15 Stella. Bette Midler leikur Stellu,
einstæða móður sem er tilbúin til
að færa stórkostlegar fórnir fyrir
dóttur sína. Stella er sjálfstæð,
glæsileg og áberandi kona sem
vinnur á bar I litlum bæ. Hún fær
fjölda tilboða frá viðskiptavinum
veitingastaðarÍRs en kærir sig ekki
um að bindast karlmanni þar til
hún hittir myndarlegan lækni,
Steven. Aðalhlutverk: Bette Midl-
er, John Goodman, Trini Alvarado,
Stephen Collins og Marsha Ma-
son. Leikstjóri: John Erman. 1989.
23.00 Blús á Plúsinum með Billy Boy.
Munnhörpuhetjan Billy Boyereinn þeirra
fáu blúsmanna sjöunda áratugsins
frá Chicago sem enn fást við tón-
list.
23.35 Snögg skiptl (Quick Change).
Þessi gamanmynd fjallar um þrjá
bankaræningja sem eru nýbúnir
að Ijúka vel heppnuðu ráni en eiga
í mestu erfiðleikum með að kom-
ast út úr New York með ránsfeng-
inn. Aðalhlutverk: Bill Murray,
Geena Davis, Randy Quaid og
Jason Robards. Leikstjóri: Howard
Franklin og Bill Murray. 1990.
01.00 Dagskrárlok. Viö tekur næturdag-
skrá Bylgjunnar.
SÝN
17.00 Hafnfirsk sjónvarpssyrpa.
Níundi þáttur þessarar þáttaraðar þar sem
litið er á Hafnarfjarðarbæ og líf
fólksins sem býr þar, í fortíð, nútíð
og framtlð. Horft er til atvinnu- og
æskumála, íþrótta- og tómstunda-
líf er í sviðsljósinu, helstu fram-
kvæmdir eru skoðaðar og sjónum
er sérstaklega beint að þeirri þróun
menningarmála sem hefur átt sér
stað í Hafnarfirði síöustu árin.
Þættirnir eru unnir í samvinnu út-
varps Hafnarfjarðar og Hafnar-
fjarðarbæjar.
17.30 Konur í íþróttum (Fair Play). í
dag verður haldið áfram að fylgjast
með konum í íþróttum. íþróttafatn-
aður kvenna verður í brennidepli
og einnig verður skoóað hvernig
konur komast til æðstu metorða
innan íþróttahreyfingarinnar
(9 + 10.13).
18.00 Attavltl (Compass). Þáttaröð í níu
hlutum þar sem hver þáttur er sjálf-
stæður og fjallar um fólk sem fer
í ævintýraleg ferðalög (5.9).
19.00 Dagskrárlok.
©Rásl
FM 92,4/93,5
HELGARÚTVARP
8.00 Fréttlr.
8.07 Morgunandakt. Séra Sváfnir
Sveinbjarnarson, prófastur á
Breiðabólstað, flytur ritningarorð
og bæn.
8.15 Kirkjutónlist.
9.00 Fréttir.
9.03 Tónlist á sunnudagsmorgni.
10.00 Fréttir.
10.03 Uglan hennar Mínervu. Umsjón:
Arthúr Björgvin Bollason. (Einnig
útvarpað þriðjudag kl. 22.35.)
10.45 Veðurfregnir.
11.00 Messa í Hallgrímskirkju á Bibl-
íudaginn. Prestur séra Sigurður
Pálsson.
12.10 Dagskrá sunnudagsins.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnlr. Auglýsingar. Tón-
list.
13.00 Heimsókn. Umsjón: Ævar Kjart-
ansson.
14.00 Allt hreyfist. Annar þáttur um
þýska leikritun. Leikhús Goethes í
Weimar, upphaf raunsæisstefn-
unnar og leikhúsin í Berlín í lok
. síðustu aldar og byrjun þessarar.
Umsjón: María Kristjánsdóttir.
Flytjendur auk umsjónarmanns:
Guðrún S. Gísladóttir og Hjalti
Rögnvaldsson.
17.00 Sunnudagsleikritið „Bakkusar-
hátíöin“ eftir Arthur Schnitzier.
Þýðing: Þorsteinn Ö. Stephensen.
Leikstjóri: Klemenz Jónsson. Leik-
endur: Anna Kristín Arngrímsdótt-
ir, Sigurður Skúlason, Þorsteinn
Gunnarsson, Steindör Hjörleifsson
og Sigurður Sigurjónsson.
18.00 Úr tónlistarlífinu. Frá kammer-
tónleikum á Kirkjubæjarklaustri 21.
ágúst sl.
18.48 Dánarfregnir. Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Veðurfregnir.
19.35 Frost og funi. Helgarþáttur barna.
Umsjón: Elísabet Brekkan. (Endur-
tekinn frá laugardagsmorgni.)
20.25 Hljómplöturabb Þorsteins Hann-
essonar.
21.05 Leslampinn. Frá opnun sýningar
á Ijóðum Stefáns Harðar Gn'ms-
sonar að Kjarvalsstöðum í gær.
Eysteinn Þorvaldsson segir nokkur
orð um skáldið og Erlingur Gísla-
son les úr Ijóðasafni hans. Umsjón:
Friörik Rafnsson. (Endurtekinn
þáttur frá laugardegi.)
22.00 Fréttir.
22.07 Sellókonsert í a-moll. eftir Cam-
ille Saint-Sans. Matt Haimovitz
leikur á selló með Sinfóníuhljóm-
sveit Chicagoborgar; James Le-
vine stjórnar.
22.27 Orð kvöldsins.
22.30 Veðurfregnir.
22.35 Svíta í E-dúr fyrir lútu eftir Johann
Sebastian Bach. John Williams
leikur á gítar.
23.00 Frjálsar hendur llluga Jökuls-
sonar.
24.00 Fréttir.
0.10 Stundarkorn í dúr og moll. Um-
sjón: Knútur R. Magnússon. (End-
urtekinn þáttur frá mánudegi.)
1.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns.
8.07 Morguntónar.
9.03 Sunnudagsmorgunn með Sva-
vari Gests.
11.00 Helgarútgáfan. Umsjón: Lísa
Pálsdóttir og Magnús R. Einars-
son. - Úrval dægurmálaútvarps
. liðinnar viku.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Helgarútgáfan heldur áfram,
meðal annarsmeð Hringborðinu.
16.05 Stúdíó 33. Örn Petersen flytur létta
norræna dægurtónlist úr stúdíói
33 í Kaupmannahöfn. (Einnig út-
varpað næsta laugardag kl. 8.05.)
- Veðurspá kl. 16.30.
17.00 Tengja. Kristján Sigurjónsson
leikur heimstónlist. (Frá Akureyri.
Úrvali útvarpað í næturútvarpi að-
faranótt fimmtudags kl. 2.04.)
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Úr ýmsum áttum. Umsjón:
Andrea Jónsdóttir.
22.10 Með hatt á höfði. Þáttur vum
bandaríska sveitatónlist. Umsjón:
Baldur Bragason. - Veðurspá kl.
22.30.
23.00 Á tónleikum.
0.10 Kvöldtónar.
1.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns.
NÆTURÚTVARP
1.00 Næturtónar.
1.30 Veðurfregnir. Næturtónar hljóma
áfram.
2.00 Fréttir. Næturtónar - hljóma
áfram.
4.30 Veðurfregnir.
4.40 Næturtónar.
5.00 Fréttir.
5.05 Næturtónar - hljóma áfram.
6.00 Fréttlr af veðri, færð og flug-
samgöngum.
6.01 Morguntónar. Ljúf lög í morguns-
árið.
7.00 Morguntónar.
9.00 Ólafur Már Björnsson. Ljúfirtón-
ar með morgunkaffinu. Fréttir kl.
10.00 og 11.00.
11.00 Fréttavikan með Hallgrími
Thorsteins. Hallgrímur fær góða
gesti í hljóðstofu til að ræða at-
burði liðinnar viku.
12.00 Hádegisfréttir frá fréttastofu
Stöðvar 2 og Bylgjunnar.
12.15 Pálmi Guömundsson. Þægiiegur
sunnudagur með huggulegri tón-
list. Fréttir kl. 14.00, 15.00 og
16.00.
15.00 íslenski listinn. Endurflutt verða
20 vinsælustu lög landsmanna og
það er Jón Axel Ólafsson sem
kynnir. Dagskrárgerð er í höndum
Ágústs Héðinssonar og framleið-
andi er Þorsteinn Ásgeirsson.
17.00 Síðdegisfréttir frá fréttastofu
Stöðvar 2 og Bylgjunnar.
17.10 Tíminn og tónlistin.Pétur Steinn
Guðmundsson fer yfir sögu tónlist-
arinnar og spilar þekkta gullmola.
19.30 19.19 Samtengdar fréttir frá frétta-
stofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar.
20.00 Sunnudagskvöld á Bylgjunni.
Pétur Valgeirsson hefur ofan af fyrir hlust-
endum á sunnudagskvöldi, rétt
þegar ný vinnuvika er að hefja
göngu sína.
0.00 Næturvaktin.
09.00 Morgunútvarp Sigga Lund.
11.00 Samkoma - Vegurinn kristið
samfélag.
12.00 Hádegisfréttir.
13.00 Kristinn Eysteinsson.
14.00 Samkoma - Orð lifsins kristilegt
starf.
15.00 Counrty line-Kántrý þáttur Les
Roberts.
17.00 Siðdegisfréttir.
17.10 Guölaug Helga.
17.15 Samkoma - Krossinn.
18.00 Lofgjörðartónlist.
24.00 Dagskrárlok.
FM#957
10.00 Haraldur Gíslason.Ljúf morgun-
tónlist, þáttur þar sem þú getur
hringt inn og fengið rólegu róman-
tísku lögin spiluð.
13.00 Helga Sigrún Harðardóttir fylg-
ist með því sem er að gerast.
16.00 Vinsældalisti íslands. Endurtek-
inn listi frá föstudagskvöldinu.
19.00 Hallgrímur Kristinsson mætir á
kvöldvaktina.
21.00 Sigvaldi Kaldalóns með þægi-
lega tónlist.
4.00 Ókynnt morguntónlist.
FM^909
AÐALSTOÐIN
10.00 Magnús Orri Schram leikur
þægilega tónlist.
13.00 Sterar og stærilæti.Sigmar Guð-
mundsson og Sigurður Sveinsson
eru á léttu nótunum og fylgjast
með íþróttaviðburðum helgarinn-
ar.
15.00 Áfangar.Þáttur um ferðamál, um-
sjón Þórunn Gestsdóttir.
17.00 Sunnudagssiðdegi.Gísli Sveinn
Loftsson.
21.00 Sætt og sóðalegt.Umsjón Páll
Óskar Hjálmtýsson.
01.00 Voice of Amerika fram til morg-
uns.
S ódn
jrn 100.6
10.00 Stefán Arngrímsson.
13.00 Bjarni Þórðarson.
17.00 Hvíta tjaldið.Umsjón Ómar Frið-
leifsson.
19.00 Ókynnt tónlist.
20.00 Úr Hljómalindinni.
22.00 Sigurður Sveinsson.
3.00 Næturtónlist.
10.00 Tónaflóð.Haraldur Árni Haralds-
son.
12.00 Sunnudagssveifla. Gestagangur
og góð tónlist í umsjá Gylfa Guð-
mundssonar.
15.00 ÞórirTellóog vinsældapoppið.
18.00 Jenny Johansen
20.00 Eðvald Heimisson.
23.00 Ljúf tónlist.Böðvar Jónsson.
★ ★ •*
EUROSPORT
*****
6.30 Alpine Skiing.
8.00 Euroscores Magazin.
8.30 Alpine Skiing.
10.00 Trans World Sport.
11.00 Alpine Skiing.
12.00 Live Speed Skating.
13.00 Live 4-Man Bobsleigh.
14.00 Live Table Tennis.
15.00 Live Speed Skating.
16.30 Live Biathlon.
17.00 Euroscore Magazin.
17.05 Alpine Skiing.
18.00 Borðtennis.
19.00 Biathlon.
21.00 Hnefaleikar.
22.30 Alpine Skiing.
23.30 Euroscore Magazine.
24.00 Dagskrárlok.
6.00 Hour of Power.
7.00 Fun Factory.
11.30 World Tomorrow.
12.00 Lost in Space.
13.00 Robin of Sherwood.
14.00 Trapper John.
15.00 Eight is Enough.
16.00 Breski vinsældalistínn.
17.00 Wrestling.
18.00 The Simpsons.
19.00 Andrew Monton’s Diana: Her
True Story.
21.00 Hunter.
22.00 Entertaínment Tonight.
23.00 Tíska.
SCREENSPORT
24.00 French Athletics.
2.30 Grundig Global Adventure
Sport.
3.00 Keila.
6.00 Heineken Classic.
7.00 Volvó Evróputúr.
8.00 French Athletics.
10.00 Grundig Global Adventure
Sport.
11.00 Hnefaleikar.
13.00 Volvó Evróputúr.
15.00 Snóker.
17.00 Pro Muay Thal.
18.00 Körfubolti bundeslígan.
20.00 World Championship lceraclng.
21.00 Top Match Football.
23.00 Volvó Evróputúr.
24.00 Hnefaleikar.
Fjallað er um hvernig hin nýja Evrópa lítur út.
Sjónvarpið kl. 16.50:
Evrópumenn
nýrra tíma
A sunnudag hefjast í Sjón-
varpinu sýningar á banda-
rísk/þýskri heimildar-
myndaröð í þremur þáttum
þar sem hin nýja Evrópa er
tekin til skoðunar. Fjallað
er um samskipti og samstarf
Evrópuríkja í ljósi sögunn-
ar, sameiningu í eitt banda-
lag og hinar ýmsu stofnanir
Evrópubandalagsins. Einn-
ig er hugað að fjölmörgum
málaflokkum sem snerta
sameinaða Evrópu á ein-
hvern hátt, til dæmis við-
skiptum og gjaldmiðlum,
timgumálmn, því sem þjóðir
Evrópu eiga sameiginlegt og
því sem skilur þær að. í
þáttunum er rætt við fjölda
fólks af ýmsu þjóðemi og
úr flestum stéttum. Þýðandi
er Sverrir Konráðsson og
þulur Ami Magnússon.
Rás 1 kl. 17.00:
Simnudagsleik-
ritið Vojtsek
Útvarpsleikhúsiö heldur lif og hegðun amnnsins. í
áfram kynningu sinni á leikriti hans, Vojtsek, segir
þýskri leikritun meö flutn- ífá óbreyttum varðliða sem
ingi á leikritinu Vojtsek eft- leggur alit í sölurnar til þess
irGeorgBuchner.Þorsteinn að geta séð fyrir ástkonu
Þorsteinsson þýddi verkið sinni og barni. Þegar hann
og leikstjóri er Þórhildur verður þess áskynja að hún
Þorleifsdóttir. Georg Buc- er honum ótrú, skellur
hner lést áriö 1837 aðeins myrkur á huga hans. Með
tuttugu og fjögurra ára að helstu hlutverk fara Ingvar
aldri. Hann var einn af E. Sigurðsson, Sigrún Edda
brautryðjendum nýrra hug- Bjömsdóttir, Steindór Hjör-
mynda í þýskri leikritun. í leifsson, Rúrik Haraldsson,
persónusköpun sinni lagði Kristján Franklín Magnús
hann áherslu á áhrif um- og Felix Bergsson.
hverfís og aóstæðna á sálar-
Stella gerir sér grein fyrir að byggi Jenný hjá föður sínum
ætti hún fleiri kosta völ.
Stöð2kl. 21.15:
Stella
Bette Midler er í hlutverki
Stellu í þessari vönduðu og
áhrifamiklu mynd um ein-
stakt samband mæðgna.
Stella er á sínum yngri
árum áberandi og glæsileg
og vinnur á bar í smábæ.
Það vantar ekki vonbiðlana
við harborðið en hún kærir
sig kollótta og vill ekki
binda sig. Það er ekki fyrr
en hún hittir myndarlegan
lækni, Stephen, að hún
skiptir um skoðun. Þegar
Stephen er boðin læknis-
staða við virt sjúkrahús í
New York hvetur hún hann
til að fara einan og harðneit-
ar að giftast honum þótt hún
sé bamshafandi. Dóttirin
Jenný fæðist og Stella vinn-
ur myrkranna á milli til að
veita dóttur sinni allt.