Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1993, Side 18
18
LAUGARDAGUR13. FEBRÚAR1993
Stöð 2 sýnir Engil eða óvætti:
Hrollvekja
blönduð
rómantík
- í tveggja þátta myndaflokki
Stöö 2 býöur upp á tvo tveggja
þátta myndaflokka í þessum mán-
uði. Sá fyrri hefur þegar veriö
sýndirn en hinn seinni verður á
skjánum sunnudaginn 21. og
mánudaginn 22. febrúar. Einnig
var í vikunni sýndur afar spenn-
andi íjögurra þátta myndaflokkur,
Kaldrifjaður kaupsýslumaður.
Hafa því áhorfendur Stöðvar 2
fengið nokkuö fyrir sinn snúð und-
anfama daga.
Það er bresk/nýsjálensk miniser-
ía sem sýnd verður eftir viku, sem
nefnist Engill eða óvættur, The
Dark Angel, en myndin er gerð eft-
ir hinni þekktu spennusögu,
„Uncle Silas" sem rithöfundurinn
Sheridan le Fanu skrifaði. Sagan
er sögð rómantísk og hrollvekjandi
en hún gerist á tímum Viktoríu
drottningar. Með aöalhlutverk fara
leikarinn góðkunni, Peter O’Toole,
og img óþekkt leikkona, Batie Edn-
ey, en þetta mun hafa verið fyrsta
hlutverk hennar í sjónvarpi. Þá
leikur Jane Lapotaire stórt hlut-
verk í þáttunum.
Myndin segir frá sautján ára
stúlku, Maud, sem býr ásamt öldr-
uðum foður sínum á stóru ættaróð-
ah. Faðirinn hefur aldrei haft
áhuga á ættarauðnum en þess
Hún er sautján ára en ræður yfir
miklum auðæfum eftir að faðir
hennar deyr.
meiri á misheppnaðri stjórnmála-
baráttu sinni. Hann hefur ekki
mikinn tíma fyrir dóttur sína sem
verður gagntekin af málverki af
frænda sínum, Silasi. Sá var eitt
sinn bendlaður við morðmál og
hefur aldrei tekist aö sannfæra
aðra um sakleysi sitt.
Hin unga frænka er hins vegar
viss í sinni sök um að frændinn sé
saklaus. Þegar faðir hennar deyr
er hún gerð að fjárgæslumanni Sil-
asar og flytur hún til hans fljótlega.
í erfðaskránni kemur fram að ef
Maud lætur lífið fyrir tuttugusta
og fyrsta afmæhsdag sinn muni
hinn mikh arfur frá föður hennar
renna til frændans.
Maud hefur ekki búið lengi undir
sama þaki og Silas þegar ógnvekj-
andi atburðir fara að gerast og hún
fær annað áht á frænda sínum. Má
reikna með að frændinn vhji eign-
ast hinn mikla auö sem hin unga
frænka ræður yfir. Það gerist því
margt spennandi í þáttunum.
Leikarinn Peter O’Toole, sem
leikur Shas frænda, er fæddur á
írlandi 2. ágúst 1932 og er því sex-
tugur að aldri. Hann ólst upp í
Leeds á Englandi. Þegar Peter var
fjórtán ára hætti hann í skóla og
fór að vinna sem sendih fyrir dag-
blað. Sautján ára gamall fékk Peter
hlutverk á sviði í Leeds Civic The-
atre. Það var síðan árið 1955 sem
hann hóf að leika fyrir alvöru sem
atvinnuleikari. Fyrsta hlutverk í
bíómynd fékk hann árið 1960. Árið
1962 fékk hann alvöruhlutverk í
kvikmyndinni Lawrence of Arabia
Peter O’Toole leikur ógnvekjandi frænda ungrar stúlku í tveggja þátta
myndaflokkl.
og var thnefndur th óskarverð-
launa fyrir það hiutverk. Eftir
næstu tvær bíómyndir, Becket (ár-
ið 1964) og Lord Jim (1965), var
hann orðinn ein af skærustu kvik-
myndastjömunum. Síðan hefur
Peter O’Toole leikiö í aragrúa kvik-
mynda sem vart verða upp taldar
hér.
Þessi bresk/nýsjálenska miniser-
ía, sem sýnd verður á Stöð 2, er
gerð árið 1988. Leikstjóri hennar
er Peter Hammond.
-ELA
Finnur þú fimm breytingai? 192
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í íjós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. verðlaun: ELTA útvarps-
vekjaraklukka að verðmæti
kr. 5.450 frá versluninni Tón-
veri, Garðastræti 2, Reykja-
vík.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur að verðmæti kr.
3.950. Bækumar, sem eru í verð-
laun, heita: 58 mínútur, Víghöfði,
Sonur Ottós, Kolstakkur og Leik-
maöurinn. Bækumar eru gefnar út
af Frjálsri íjölmiölun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 192
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir hundrað
og nítugustu getraun reyndust
vera:
*
1. Eyþór Gunnarsson,
Heiðnabergi 7,111 Reykjavík.
2. Pálmi Guðmundsson,
Kehusíðu 4i, 603 Akureyri.
Vinningamir veröa sendir
heim.