Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1993, Page 32
44
LAUGARDAGUR 1'3. EEBRÚAR lð93
borð fyrir gesti.
Sá bar, sem þjónað hefur matar-
gestum í gegnum tíðina, hefur verið
á fleygiferð um salinn hingað og
þangað og oft á hjólum. Nú er honum
fundinn fastur samastaður.
Stofa til minningar
um Jóhannes
Móttakan eða lobbíið er einnig
mjög nálægt upprunalegu formi,
stólar, borð og Ijósakrónur eru að
miklu leyti þau sömu og voru hér í
upphafi. Suðurgangurinn er að
grunninum til eins og hann var upp-
runalega og þar var mikið stuðst við
Ijósmyndir. Skreytingar þar eru nýj-
ar og farin var einfaldari leið við
enduruppbygginguna og ekki lagt í
eins mikla harðviðarsmíði og annars
staðar var gert.
í Jóhannesarstofu inn af anddyr-
inu eru húsgögn öll upprunaleg en
sem shk er hún alveg ný og var ekki
þar áður. Þama var fatageymsla en
hún er nú inni í veitingasalnum sjálf-
um. Ættingjar Jóhannesar voru okk-
ur mjög innan handar með að útvega
okkur muni úr eigum hans til að
gera stofuna eins skemmtilega og
hún er.
Herbergin fara að mörgu leyti í
upprunalegt horf en þau voru aldrei
í jafn háum gæðaflokki og þau eru
nú. Þau eru mun tæknilegri og rík-
mannlegri nú enda voru kröfumar
allt aðrar og minni hér áður fyrr, það
var allt annar standard ef svo má að
orði komast á þjóðinni þá en nú er.
Stílhnn er mjög í þessum gamla
anda á herbergjunum en þau eru
mjög tæknivædd. Það eru 3 símar á
hverju herbergi, faxhnur og tölvulín-
ur, sjónvarp með tengingu við gervi-
hnattadisk og myndbandakerfi, út-
varp, kassettutæki og geislaspilarar.
Þegar verið var að endurhanna alla
umgjörð hótelsins var mikið lagt á
sig til að umgjörðin væri sem líkust
því sem gerðist á árum áður. Sá við- .
ur (eik) sem notaður er á hótehnu
er til dæmis ekki lakkborinn.
Viðurinn var allur reyktur með
saltsýru og ammoníakssýru, borið á (
hann bón, síðan litabón, sem skilur
eftir sig rákir í kverkum á viðnum,
þannig að hann lítur út fyrir að vera
gamall. Síðan var þriðja bónlagið
borið á,“ sagði Páh.
-IS
Flestöll húsgögnin í móttökunni eru upprunaleg.
Páll Hjaltason arkitekt I veitingasal Hótel Borgar.
Anddyrið á Hótel Borg er svo til nákvæmlega eins og það var við opnun
hótelsins fyrir 60 árum. DV-myndir Brynjar Gauti
Páll Hjaltason, arkitekt við enduruppbyggingu Hótel Borgar:
Reynt að halda
í gamla formið
- sumir hlutar hótelsins nákvæmlega eins og fyrir 60 árum
„Það var reynt í megindráttum að
halda í form hússins eins og það var
upphaflega, árið 1930. Menn hafa lagt
á sig töluvert erfiði og umstang til
þess að gera það mögulegt," sagði
Páh Hjaltason arkitekt sem undan-
fama 4 mánuði hefur haft faglega
yfirumsjón með enduruppbyggingu
Hótel Borgar.
„Það sem var fært hvað næst upp-
runalegu formi er anddyrið sem er
svo th nákvæmlega eins og það var
fyrir 60 árum. Það tókst með hjálp
gamaha Ijósmynda og síöan var kaf-
að niður á grunnmálninguna, hún
litgreind og málað eftir henni.
Veggmyndir voru mældar upp eftir
ljósmyndum og allt gert á sem vís-
indalegastan hátt th að eftirlíkingin
yrði nákvæm. Síðan er matsalurinn
mjög nærri upprunalegri mynd ef
barinn á miðju gólfinu er undanskh-
inn. Hann er nýr en þar var enginn
bar upprunalegá, heldur eingöngu
Gamalt hótel hafið til vegs og virðmgar a ny:
Losnaði ekki við Hót-
el Borgar-bakteríuna
- sagði Tómas A. Tómasson, hótelstjóri Hótel Borgar
„Hótel Borgar-ævintýrið byrjaði
hvað mig varðar árið 1984. Þá gisti
ég nokkrar nætur á hótelinu með það
fyrir augum að taka á leigu veitinga-
rekstur th þess að opna Hard Rock
Café. Þá fékk ég bakteríuna en það
varð ekkert úr því þá en ég fékk samt
þessa ólæknandi Hótel Borgar bakt-
eríu. Ég er búinn að vera að sverma
fyrir hótelinu síðan,“ sagði Tómas
A. Tómasson, hótelstjóri Hótel Borg-
ar, í samtali við DV.
Tómas hefur verið umsvifamikih í
veitingarekstri á undanfómum
árum og hefur rekið Hard Rock Café
frá árinu 1987 og rekur einnig veit-
ingastaðinn Ömmu Lú í Kringlunni.
Hann festi nýverið kaup á Hótel Borg
sem Jóhannes Jósepsson („Jóhannes
á Borg“) byggði árið 1930. Tómas
hefur hrundiö af stað miklum og
kostnaðarsömum endurbótum á hót-
elinu með það að markmiði að færa
það th fyrri vegsemdar.
„Á þeim tíma þegar urðu eigenda-
skipti á hótelinu var ég ahtaf að velta
fyrir mér möguleikanum. Lands-
bankinn var eigandi og síðan Reykja-
víkurborg og þá hringdi ég í fuhtrúa
Reykjavíkurborgar og hann sagði
mér að ef ég hefði áhuga þyrfti ég
að koma og ræða það strax.
Ég byrjaði á þvi að gista hér eina
nótt í sumar og þá féhust mér hendur
og ég hætti við. Þegar ég kynnti mér
aöstæður fannst mér þetta of viða-
mikið verkefni og það dundi ein-
hvem veginn yfir mig og varð yfir-
þyrmandi. Svartsýnin náði algerlega
tökum á mér.
En hótehð lét mig ekki í friöi og
var stöðugt í huga mér. Svo tveimur
vikum seinna hafði ég aftur samband
við fuhtrúa Reykjavíkurborgar og
sagði þeim að ég hefði áhuga á þessu.
Það varð úr að ég keypti Hótel Borg
og var skrifað undir samningana 3.
september."
Merkilegur dagur
í lífi mínu
„Þriðji september er merkhegur
dagur í ferh mínum sem veitinga-
húsastarfsmanns. Ég byijaði að læra
matreiðslu þann 3. september árið
1967. Þann 3. september 1984 skrifaði
ég undir samninginn um Hard Rock
Café og 3. september árið 1992 skrif-
aði ég undir samninginn um kaup á
Hótel Borg. Á þessum degi hef ég því
stigið mörg af stærstu skrefum lífs
míns.
Tæpum mánuði eftir að skrifað var
undir, þann 1. október, tók ég síðan
við hótelinu. Við lokuðum strax hót-
elinu og ætluðum þá aö fara út í létta
andlitslyftingu fyrir svona 10 mhlj-
ónir króna. Það var tala sem var al-
gjörlega úr lausu lofti gripin, það var
svona slumpað á hana.
En þegar farið var að vinna í þessu
þurfti að gera aðeins meira hér og
aðeins meira þar th þess að gera vel
og nú hefur þessi tala vaxið mikið.
Ég gæti trúað að talan fari upp í
80-100 milljónir enda gera menn ekki
endurbætur á 3 þúsund fermetra
húsi fyrir 10 mihjónir.
Skemmtistaður og
hótel eiga illa saman
Það var strax ákveðið að feha niður
skemmtistaðinn, enda gengur það
ekki að vera með hótel og skemmti-
stað í sama húsinu af þessari stærð-
argráðu.
Ennfremur eru gerðar þær'breyt-
ingar á hótehnu að fækka herbergj-
um og stækka. Það voru hér 47 her-
bergi upphaflega en það voru aðeins
44 þeirra í notkun þegar ég tók við.
Þau verða að loknum endurbótum
35 talsins, öh með baði. Það verða
hér 5 svítur ef tumherbergi er tahð
með, 8 eins manns herbergi og af-
gangurinn tveggja manna herbergi.
Þau eru öh mjög fullkomlega útbú-
in enda verður Hótel Borg ekki ódýrt
hótel. Það verður í svipuðum verð-
flokki og Hótel Holt og Hótel Saga.
Hótehð mun aldrei verða fuhbúið því
alltaf er hægt að bæta og gera bet-
ur,“ sagði Tómas.
Staðsetning
hótelsins ergóð
„Staðsetning Hótel Borgar er mjög
góð, þannig að þegar fram líða stund-
ir ætti það að vera thvahnn staður
að gista fyrir þá sem eiga erindi á
hinar ýmsu stofnanir eða staði í
næsta nágrenni.
Auk þess hef ég tekið eftir því að
mörgum þykir afskaplega vænt um
Hótel Borg og hafa áhuga á því að
hótelið sé í góöu standi. Eg hef orðið
var við það núna eftir að formlega
var opnað á nýjan leik hér að áhugi
fyrir því að halda árshátíðir héma
er mjög mikih og við emm með pant-
að langt fram í tímann th árshátíða-
halds.
Það er hins vegar erfiðara að segja
í hvað stefnir með bókanir hótel-
gesta. Þetta er hótel sem er frekar
htið og er ekki mikið í þvi að taka á
móti hópum. Þess vegna er ekki bók-
að mjög langt fram í tímann. Þetta
era svona 2-3 vikur fram í tímann
sem við vitum um bókanir.
Það er ekki orðið neitt áhyggjuefni
hjá okkim enda er hótehð ekki al-
mennhega komið í gang ennþá. Það
er aðeins hluti herbergjanna sem
kominn er í gagnið. Það er auðveld-
ara að fylla 35 herbergi heldur en
2-300. Þegar allt er komið í gott stand,
sem það er reyndar á góðri leið með
að verða, þá held ég að hótehð eigi (
eftir að höfða til fjölda fólks.
Ég hef lagt áherslu á að fá hingað
mjög góða matreiðslumenn. Yfirmat- (
reiðslun}aðurinn, Sæmundur Kristj-
ánsson, var á Ömmu Lú í eitt ár og
erlendis hjá flugfélaginu SAS í tvö
ár. Síðan erum við með matreiðslu-
menn sem vora hjá veitingastaðnum
Við Tjörnina (Gunnar Jónsson) og á
Horninu (Margrét Össurardóttir),“
sagðiTómas. -ÍS
Tómas A. Tómasson, hótelstjóri Hótel Borgar.