Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1993, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1993, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1993. 3 Fréttir Prentsmiðja Guðjóns Ó í 300 milljóna gjaldþrot Prentsmiðjan Guðjón Ó og systur- fyrirtæki hennar, Prentsmiðjan Við- ey, hafa verið gerðar upp vegna gjaldþrotaskipta. Samtals voru skuldimar um 300 milljónir króna, af þeim töpuðust vel yfir 200 milljón- ir króna. Það sem fékkst greitt var tryggt með veðum í fasteignum fyrir- tækjanna, að Þverholti 11 til 13, Þver- holti 15 í Reykjavík og í Auðbrekku 9 til 11 í Kópavogi. Þá voru vélar fyr- irtækjanna einnig veðsettar. Allar þessar eignir voru seldar á nauðung- aruppboðum. Fyrir utan þaö sem fékkst fyrir fasteignir og lausafé greiddust rétt um ein og hálf milljón króna. í Guð- jóni Ó töpuðust kröfur upp á 195 milljónir og upp á 13 milljónir í Við- ey. Þá vantar það sem tapaðist af veðkröfum í nauðungarsölunum. Þrátt fyrir þetta stóra gjaldþrot var Guðjón Ö með óvenjugóða viðskipta- samninga. Meðal þess sem var prent- að þar voru ríkisskuldabréf, tékk- heftí og fleira. Meðal stórra við- skiptavina voru Landsvirkjun, Seðlabankinn, Búnaðarbankinn, Rafmagnsveita Reykjavíkur og fleirri traustir aðilar. Aðaleigandi fyrirtækisins var Sigurður Nordal. Helstu starfsmenn þess hafa keypt reksturinn og þeir halda flestum þeim viðskiptum sem Sigurður hafði. Stærsta fasteignin var að Þverholtí 11 til 13. Það voru um 60 milljónir veðsettar á þeirri eign, það er fyrir utan lögtök sem til komu vegna van- skila. Landsbankinn átti lán á fyrsta veðrétti, rétt um 20 milljónir, þá kom Iðnlánasjóður með um 30 milljónir og Iðnþróunarsjóður með mn 10 milijónir. Iðnlánasjóður keyptí húsið á nauðungaruppboði fyrir rúmar 22 milljónir. Iðnlánasjóður eignaðist síðan vélarnar en Iðnþróunarsjóður eignaðist húseignina í Kópavogi, en sá sem seldi Sigurði Nordal Prent- smiðjuna Viðey keyptí þá eign aftur á nauðungaruppboði. -sme Fannst látinn í Vaðlaheiði Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii Rúmlega fertugur maður fannst látinn seint á mánudagskvöld í Vaðlaheiði en mannsins hafði þá ver- ið leitað um kvöldið. Maðurinn, sem hét Stefán Páll Steinþórsson, 41 árs gamall, frá bæn- um Syðri-Varðgjá í Eyjafirði, haíði farið að gera við girðingar nærri bænum en skilaði sér ekki heim á réttum tíma. Björgunarsveitir voru kallaðar út til leitar en maðurinn fannst mjög fljótlega í Vaðlaheiði, skammt frá bænum. Dánarorsök er ókunn. Siglufjörður: Pramminn braut trilluna Gylfi Kristjánsscoi, DV, Akuxeyri: Prammi, sem var í eigu Dýpkunar- félagsins á Siglufirði, lenti á trillu í Siglufjarðarhöfn þegar verið var að flytja hann til og brotnaði trillan illa. Þegar verið var að færa prammann svo hægt væri að koma skipi að bryggju lenti pramminn á trillunni, sem er úr plasti, og kom slæm sprunga í hana. Eigandi trillunnar var um borð í henni þegar óhappið áttí sér stað en hann sakaði ekki. Þverholt 11 til 13. Hér voru höfuðstöðvarnar. Húsið var selt á nauðungaruppboði. Þverholt 15. Eign Prentsmiðjunnar Viðeyjar var seld á nauðungaruppboði. Auðbrekka 9 til 11. Hluti Guðjóns Ó í húsinu var seldur á nauðungaruppboði. Guðjón Ó átti neðri hæð hússins. DV-mynd BG alla daga vikunnar kl. 13-20 Loksins! w Otakmarkaðir ferðamöguleikar Framtíðarferðir bjóða þéraði/dað stærsta ferðafélagi í heiminum. Ef þú gætir valið um frí hvar sem væri í heiminum hvert myndir þú þá vilja fara? Egyptaland? Hawaii? Karíbahaf? Disney World? Austurríki eða leyndardómar Austurlanda? • Þú tryggir þér fríið þitt í eitt skipti fyrir öll. • Félagsmenn hafa aðgang að yfir 2.200 vinsælum orlofsstöðum um allan heim. • Þetta veitir þér spennandi orlof, meiri ánægju, meira pláss og bestu þægindi sem völ er á. • Og það sem er fyrir mestu - þú færð meira fyrir pen- ingana. Við veitum þér allar nánari upp- lýsingar og á skrifstofu okkar liggja frammi bæklingar og kynningarmyndbönd. Að gerast meðlimur er ódýr fjárfesting sem veitir þér ómælda ánægju. Allir nýir meðlimir í febrúarmánuði fá ókeypis gistingu í Flórída, á Jamaica eða Bahamaeyjum í sjö daga. Faxafeni 10 - sími 684004

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.