Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1993, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1993, Qupperneq 5
MIÐVIKUDÁGUR 17. FEBRÚAR 1993. 5 Fréttir Ríkisendurskoðun um Borgarspítalann: Stimpilklukku á sérfræðingana Veruleg þörf er á því aö komiö sé upp stimpilklukkukerfi á Borgar- spítalanum, segir í athugasemdum Ríksendurskoðunar við ríkisreikn- ing 1991. Samkvæmt kjarasamning- - leggur til aukið eftirlit með einkastarfsemi læknanna um hafa sérfræðingar spítalans heimild til takmarkaðrar vinnu á eigin stofnunum. Könnun á vegum Ríkisendurskoðunar leiddi hins veg- ar í ljós að margir sérfræðinganna vinni það mikla vinnu utan spítalans að þörf sé á auknu eftirhti. Ríkisendurskoðun gerir einnig at- hugasemd við einkastarfsemi lækna á Borgarspítalanum. Um 30 læknar hafa samið við spítalann um móttöku einkasjúklinga í húsnæði spítalans gegn greiðslu aðstöðugjalds. Að- stöðugjaldið hefur hins vegar skilað sér Ula og kennir Ríkisendurskoðun óvirku eftirhti um. Leggur hún til að eftirhtið verði eflt og samningum verði sagt upp við þá lækna sem ekki hafa staðið í skhum. -kaa Ársreikningur SÁÁ: Leiðrétting opinberaði 44 milljóna króna skuld Verulegir gallar á ársreikningi SÁÁ komu fram við endurskoðun ríkisreiknings 1991. Keypt var innbú í nýtt meðferðarheimih að Vík á Kjal- amesi og ráðist var í gerð bílastæðis við Vog án þess að fyrir því væru fjárlagaheimildir. Engu að síður voru þessi útgjöld bókfærð til gjalda. Þá voru á árunum 1990 og 1991 færðar til gjalda afskriftir af fasteign- um sem námu 1 prósenti af fasteigna- mati þeirra húseigna sem eru í eigu SÁÁ. Að mati Ríkisendurskoðunar er þetta ekki í samræmi við uppgjörs- aðferðir stofnananna sem fá framlag úr ríkissjóði. í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðun- ar kemur fram að við leiðréttingu á ársreikningnum hafi komið í ljos að SÁÁ skuldaði sjúkrastofnunum rík- isins um 44 milljónir. Á síðasta ári var gert samkomulag milli hehbrigð- isráðherra og SÁÁ um uppgjör á þessari skuld. í því felst að samtök- unum er einungis gert að greiða rík- issjóði helming skuldarinnar. Á móti ætlar ráöuneytið að leita heimildar til viðbótarfj árveitingar. Þrátt fyrir skuld SÁÁ við ríkið var verulegur rekstrarafgangur á sjúkrastofnunum SÁÁ á árinu 1991. Framlög og tekjur umfram gjöld námu 25,3 mihjónum króna. Legu- dögum fjölgaði um 3,2 prósent miöað við árið á undan og sjúklingum fjölg- aðium2prósent. -kaa Líf og fjör í frímínútunum Þó að fullorðna fólkið reyni að halda sig að mestu innandyra í allri þeirri ófærð og snjóþyngslum sem verið hafa siðustu vikurnar kann unga kynslóð- in betur að meta útiveruna. Á leiksvæði ísaksskóla í Bólstaðarhlíðinni er jafnan líf og fjör í frímínútunum og ekki spillir ef nóg er af snjónum. DV-mynd GVA Yfirskoöimarmenn: Sértekjur ríkisstof nana hærri en fjárlög ráðgera Sértekjur ríkisstofnana hafa reynst mun meiri en fjárlög gera ráð fyrir. Ástæðan er yfirleitt vanáætlun en einnig kemur fyrir að stofnanir komi sér upp sértekjum án þess að fyrir því sé gert ráð við fjárlagagerð. Vegna þessa leggja yfirskoðunar- menn rötisreiknings til að sértekjur ríkisins verði samræmdar. Þá komi th áhta að skhgreina sértekjur sem tekjur ríkissjóðs og auka framlög th viðkomandi stofnana að sama skapi. í nýrri skýrslu yfirskoðunarmanna vegna ríkisreiknings 1991 eru sér- tekjur heilsugæslustofnana teknar sem dæmi um óreiðuna. Sértekjur þessara stofnana reyndust 127 mhlj- ónir í stað 93 mihjóna eins og áætlað var í fjárlögum. Þennan mun telja yfirskoðunarmenn óeðhlegan. Telja þeir það þarfnast skýringar við hvers vegna sértekjur á einstökum stofn- unum hehsugæslunnar eru aðeins fáein þúsund króna þegar þær skipta milljónum annars staðar. í þessu sambandi má geta að á ár- inu 1991 reyndust sértekjur hehsu- gæslunnar í Hveragerði um 4 þúsund og á Akranesi um 8 þúsund. A Eghs- stöðum námu sértekjurnar hins veg- ar 9,4 milljónum og í Borgamesi um 6,2milljónum. -kaa RENAULT 19 Frískur og fallegur fólksbíl á fínu verði Hinn nýi Renault 19 endurspeglar þá fersku vinda sem hafa blásið hjá Renault síðustu árin. Áhersla er lögð á gæði, langan endingartíma og fallegt útlit. Renault 19 er frískur, fallegur og vel búinn fólksbíl í millistærðarflokki. Hann er fáanlegur með fimm gíra beinskiptingu eða fjögurra þrepa sjálfskiptingu og búinn lúxus innréttingu, rafdrifnum rúðum, fjarstýrðum samlæsingum og mörgu fleiru. Renault 19 er á fínu verði eða frá kr. 1.119.000,- og í boði eru greiðslukjör til allt að 36 mánaða. Formula I WILLIAMS -RENAULT HEIMSMEISTARI 1992 RENAULT ..fer á kostum RENAULT Bflaumboðið hf. Krókhálsi 1-110 Reykjavík - Sími 686633

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.