Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1993, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1993, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR1993 Gylfi Kristjánssan, DV, Akvreyxi: „Þetta er auðvitað talsverð breyt- ing þótt að í veikindum pabba höf- um við í hljómsveitinni tekið að okkur ýmsa aðstoð við hann varð- andi rekstur hljómsveitarinnar. Þetta er því alls ekki eins mikil breyting og ætla mætti en þó alln- okkur. Ég tek á mig það sem pabbi gerði áður eins og að hafa yfirum- sjón með gangi mála. Það er margt sem gera þarf við rekstur einnar hljómsveitar og þetta er mikil skipulagsvinna. Það þarf að sinna pöntunum og gefa upplýsingar, skipuleggja ferðalög og æfingar og halda öllum endum saman. En ég reyni að láta strákana vinna líka og það hefur gengið vel.“ Þetta segir Inga Eydal, söngkona á Akureyri. Þegar faðir hennar, hljómhstarmaðurinn ástsæh Ingi- mar Eydal, féU frá fyrir skömmu, hafa eflaust margir reiknað með því að þar með væri lokið áratuga löngum ferU hljómsveitar Ingimars Eydal. En þaö leið ekki langur tími þar til hljómsveitin var komin fram á nýjan leik, skipuð sama fólkinu og áður, og Gunnar Gunnarsson sestrn- í sæti Ingimars við hljóm- borðið sem hlýtur að vera erfitt verkefni. I. Eydal Hljómsveitin spilar nú undir nafninu Hljómsveit I. Eydal. og það fer ekki á milU mála að fólk hefur velt því fyrir sér hvort I. standi fyrir Ingu eða Ingimar. „Það var ekki tekin nein stór ákvörðun um nafnið á hljómsveit- inni og það má eiginlega segja aö það hafi komið af sjálfu sér eihs og það aö við ákváðum að halda áfram að spila saman. Það var verið að hringja í okkur vegna dansleikja þeim? „Nei, aUs ekki enda á þetta allt að heita samvinna og við ræðum hlutina. Það tekur enginn ákvarð- anir án þess að spyija hina. Við erum búin að vera saman í 10 ár og þekkjum hvert annað mjög vel og þetta gengur árekstralaust. En auðvitað finnst mér það dáUtið öfugsnúið þegar ég er að „stjóm- ast“ í þeim enda er ég yngst í hljóm- sveitinni.“ í háskólann Það var ekki torsótt að fá að spjaUa við Ingu smástund þótt ætla mætti að hennar tími væri fullnýtt- ur og vel það. Ekki bara það að hún haldi nú úti vinsælU hljómsveit og sé gift kona með barn, heldur stundar hún nám í hjúkrunarfræð- um við Háskólann á Akureyri. Maður hennar er Davíð Valsson, sölufulltrúi Ölgerðar EgUs SkaUa- grímssonar á Norðurlandi, og þau eiga saman soninn Ingimar sem er að yerða 7 ára. „Ég varö stúdent frá Menntaskól- anum á Akureyri árið 1983 og hef síðan veriö á vinnumarkaðnum, síðast á skrifstofu Samvinnuferða- Landsýnar hér á Akureyri. Það stóð alltaf til að læra meira og þetta hlé sem ég tók mér frá náminu varð lengra en ég hafði ætlað mér. Mér hefur aUtaf þótt hjúkrun áhugavert starf og ég hef mikið gaman af þessu námi.“ Hvernig gengur þér að láta þetta allt saman ganga upp? „Ég viöurkenni það að álagið hef- ur aukist talsvert. Þetta gekk vel upp á haustömúnni í skólanum. Ég er ekkert að skrökva því að þetta sé auðvelt og ekkert mál en ég ætla að láta þetta ganga upp núna líka. Það er ákveðin ögrun í því að láta þetta takast en einkunn- imar í vor verða sennUega að skera Inga Eydal ásamt syninum Ingimar. DV-mynd gk Þegjandi samkomu- lag hjá okkur að halda þessu áfram - segir Inga Eydal sem fetar nú í fótspor föður síns og stýrir hljómsveitinni I. Eydal á Akureyri sem þurfti að auglýsa og þetta varð bara ofan á. Pabbi sagði aUtaf aö þetta væri sama hljómsveitin þótt hann væri veikur og við vUjum bara hafa það svoleiðis. Ég held að í þessum vangaveltum um nafnið I. Eydal verði fóUc bara að fá aö leggja sinn skilning í það, hvort I. stendur fyr- ir Ingu eða Ingimar." Engin stefnubreyting Hljómsveit Ingimars Eydal var ekki síst vinsæl farir það í áratugi hversu fjölbreytta tónhst hún flutti og Inga segir enga breytingu hafa orðið á þeirri stefnu. „Við reynum aUtaf aö æfa a.m.k. tvisvar í viku og svo spUum við nánast um hveija helgi, einu sinni eða tvisvar. Þetta verður svona áfram því hljómsveitin er mikið bókuð. Við höldum líka þeirri stéfnu óbreyttri sem pabbi markaði að með þessu erum við fyrst og fremst að skemmta öðrum og reynum að hafa eitthvaö fyrir aUa svo fólkið fari allt ánægt af dansleikjum hjá okkur. Við leggjum því jafna áherslu á að vera með glænýja tónl- ist og gömlu dansana. Og þá meina ég ekki bara einhver gömul lög, heldur góð gömludansalög sem eru vel æfð.“ Byrjaði 17ára Þótt Inga sé ekki gömul er hún enginn nýgræðingur í tónUstinni. „Ég var 17 ára þegar ég byrjaði að syngja með hljómsveit og þetta eru því orðin þrettán ár. Reyndar má segja um mig eins og margar aðrar söngkonur að ég hafi verið syngj- andi síðan ég man eftir mér og ég gerði t.d. talsvert að því aö syngja með vinkonu minni Örnu Valsdótt- ur. Þaö var ekki pabbi sem fékk mig út í þetta, heldur Ásdís Ámadóttir sem þá vann á Hótel KEA, og þar byijaöi ég aö syngja. Og pabbi var ekki hrifinn af þessu í byijun, held- ur mótfaUinn því til að byija með.“ - Hvers vegna var það? „Ég held að það hafi fyrst og fremst verið vegna þess aö hann var búinn að sjá fólk fara út úr þessu á ýmsan hátt. Og sem fjöl- skyldumaöur vissi hann aö þetta var ekki það aUra besta sem ég gat vahö mér. En með áranum sætti hann sig viö þetta enda sá hann að mér var alvara meö þessu.“ Þegjandi samkomulag - Kom það aldrei tíl umræðu að hljómsveitin hætti þegar pabbi þinn féU frá? „Nei, það var aldrei rætt, ein- hvem veginn var eins og það væri um það þegjandi samkomulag hjá okkur aö halda áfram. Við fengum til Uðs viö okkur Gunnar Gunnars- son til að taka sæti pabba við hljómborðiö og það hefur ekki ver- ið létt fyrir hann að taka við. Fólk fylgist vel meö honum en hann fær sína viöurkenningu. Gunnar er snUlingur á hijóðfærið og á þá við- urkenningu skUda, auk þess sem hann er afar góður félagi." - Það eru ganúir „refir" í hljóm- sveitinni. Er ekkert erfitt aö stjóma úr þvi að lokum hvemig til hefur tekist.“ Bara eitt hljóðfæri „Ég held aö ég verði a.m.k. ekki í hlutverki söngkonunnar fram á sextugsaldurinn,“ sagði Inga þegar ég spurði hana í lokin hvort hún reiknaði með að skemmta lands- mönnum í marga áratugi eins og faðir hennar gerði. „Söngvarar eru í annarri aðstöðu heldur en hljóðfæraleUcarar. Þeir hafa bara eitt hijóðfæri sem ekki er hægt að endumýja. Ég held að þaö sé náttúrulögmál að þótt fólk geti haldið ágætri rödd þá sé þaö ekki rödd sem endist í þessu „harki“ þar sem verið er að syngja frá 11 á kvöldin og langt fram eftir nóttu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.