Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1993, Side 11
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR1993
11
»v________________________________________Vísnaþáttur
En hvað tíðin er nú hörð
„Hægan, hægan upplýkur vetrar-
dagurinn sínu norræna auga.
Frá því hann kiprar hvarmana í
fyrsta sinn, uns hann hefur lyft
þúngum augnalokunum til fulls,
líður ekki aðeins stimd eftir stund,
- nei, tímabil hður eftir tímahti um
hinar órannsakanlegu fjarvíddir
morgunsins, heimur eftir heim,
einsog sýnir blinds manns, veru-
leikur eftir veruleik, og eru ekki
leingur til, - það birtir. Svo fjarri
er vetrardagurinn á sjálfs sín
morgni. Jafnvel morgunn hans er
fjarlægur sjáifum sér. Hið fyrsta
tór við sjónhring og dagmálaskí-
man á glugganum eru sem tvö ólík
upphöf, tvö úthöf. Og úrþví jafnvel
morgunn hans er fjarri eftirað tek-
ið er að morgna, hvað mundi þá
kvöld hans? Eyktir hans, - dagmál,
hádegi og nón eru eins og löndin
þángaðsem við ætlum þegar við
erum orðin stór, kvöld hans eins
fjarlægt og sá dauði sem ýngsta
syni hjónanna var trúað fyrir í
gær, dauðinn sem tekur lítil börn
frá mæörum þeirra og lætur prest-
inn sýngja þau niðrí garð hrepp-
stjórans, sá dauði þaðansem eng-
inn gengur aftur eins og í sögunum
hennar ömmu, sá dauði sem vitjar
þín þegar þú ert orðinn svo gamall
að þú ert aftur orðinn barn.“
Það er snillingurinn Halldór Lax-
ness sem lýsir vetrarkomunni á
þennan hátt í ritverki sínu „Sjálf-
stætt fólk“ Er hægt að gera það
betur? En veturinn hefur orðið
mörgum að yrkisefni og hér á eftir
má sjá örlítið brot af þeirri fram-
leiðslu.
Guðmundur Einarsson í Hergils-
ey:
Það er margt sem þyngir geð
þegar lengjast nætur,
þá er eins og myrkrið með
manni festi rætur.
Séra Sigurður Norland í Hindis-
vík:
Það eru sjálfsagt átján ár
eða lengra síðan
vetrargaddur svo var sár
þeir sátu við að þíð’ann.
María Rögnvaldsdóttir frá Rétt-
arholti í Blönduhlíð í Skagaflrði,
húsfreyja á Sauðárkróki:
Undan þykkjuþungri brún
þorri sjónum renndi.
Sá hefur marga ramma rún
rist með kaldri hendi.
Jón Benediktsson, Höfnum í
Vindhælishreppi í A-Hún„ odd-
viti á Skagaströnd:
Enga bliðu úti eg finn,
enn er hríðarkliður.
Ætlar tíðarandskotinn
allt að ríða niður?
Þórarinn Bjamason, jámsmiður
í Reykjavík:
Hranna skvaldur heyrist þrátt,
hrímið faldar serki,
vetur baldinn hreykir hátt
húmsins skjaldarmerki.
Rósberg G. Snædal:
Blakta á hæðum héluð strá
hemar flæði og tjamir.
Vilja mæða veikum á
vetrarnæðingamir.
Guðrún Benediktsdóttir Heiðars-
eli:
En hvað tíðin er nú hörð,
ekki er þetta gaman.
Mér finnst helzt sem himinn og
jörð
hangi á snjónum saman.
Endurski
í skam
Vísnaþáttur
Torfi Jónsson
En þótt móti blási um sinn er þó
gott að lifa í voninni um „betri tíð
með blóm í haga“. Guðjón Krist-
mannsson í Reykjavík lýsir því
þannig:
Fönnin hvíta fyllir mó,
færð er þung í spori.
í brekkunni munu brosa þó
blóm á næsta vori.
Hér áður fyrr á ámnum var lífið
enginn dans á rósum, aö minnsta
kosti ekki hjá þeim sem áttu ekki
í neitt hús að venda, samanber eft-
irfarandi húsgang:
Harðnar vetur, herðir frost,
heyri ég vindinn gnauða.
Nú er fátt um feitan kost
hjá fórumanninum snauða.
Og vetrarlangt þráir Friðrik
Hansen sumarið:
Sendið hingað sólskin inn
sumardagar Ijósir,
vetur gróf á gluggann minn
gráar hélurósir.
Sölvi Sigurðsson frá Undhóli í
Hofshreppi í Skagafirði lítur björt-
um augum til komandi daga:
Uggs er gengin sveitin svarta,
svalra strengja ómur þver.
Það er engin þörf að kvarta
þegar lengja daginn fer.
Ekki veit ég hver höfundur næstu
vísu er:
Ei er fölnuð frostsins rún,
fönn er enn í spori,
en yfir vetrar ygglibrún
er þó bjarmi af vori.
Jón S. Bergmann:
Aftangliti geislar ský
glöggur viti nætur,
jörðin situr sorgum í
sólarhitann grætur.
Ólafur Sigfússon, bóndi í For-
sæludal í Áshreppi í A-Hún.:
Þrautaleiðum þokai' fjær,
þíða greið í spori.
Mundi seiða svona hlær
sól tti heiða á vori.
Mín er bænin mikið heit:
Mokaöu snjó úr hlíðarkinn,
svo aö hjörð mín hafi beit.
Og hamastu nú drottinn minn!
Torfi Jónsson
FLUGLEIÐIR
Aðalfundur Flugleiða hf.
Aðalfundur Flugleiða hf. verður haldinn fimmtudaginn
18. mars 1993 í Höfða, Hótel Loftleiðum, og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta félagsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu vera komnar í hendur
stjórnarinnar eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og reikningar félagsiris, munu liggja frammi á skrif-
stofu félagsins hluthöfum til sýnis 7 dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á aðalskrifstofu félags-
ins, Reykjavíkurflugvelli, hlutabréfadeild á 2. hæð, frá og með 11. mars kl. 14.00.
Dagana 12. til 17. mars verða gögn afgreidd frá kl. 9.00 til 17.00 og á fundardag til
kl. 12.00.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja fundargagna sinna fyrir kl. 12.00 á fundar-
degi.
Stjórn Flugleiða hf.