Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1993, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1993, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1993. 13 Reynum að opna í ágúst - segir Kjartan Öm Kjartansson, eigandi McDonald's á íslandi „Við erum að senda út íjóra íslend- inga í 6 mánaða nám í sérstakan skóla McDonaid’s fyrirtækisins. Þeir eru verðandi stjómendur fyrirtækis- ins og fara í þjálfun í hamborgarahá- skólann fræga í Englandi. Norður- Evrópu er stjómaö frá höfuðstöðvum í Englandi," sagði Kjartan Öm Kjart- ansson sem er með uppsetningu McDonald’s hamborgarastaðar á Suðurlandsbraut í undirbúningi. „Það er mun styttra og ódýrara að senda menn til náms þar en til Bandaríkjanna. Þetta nám sem þeir em að fara 1 er mjög erfitt. Þeir munu þurfa að læra öll þau störf sem inna þarf af hendi innan fyrirtækis- ins. Eftir að námi lýkur verða þeir einnig færir um að kenna öðrum. Námið er ipjög víðtækt. Kennsla er bæði bókleg og verkleg. Nemendur em látnir vinna öll störf á öllum stig- um framleiðslu og stjómunar á ein- hveijum McDonald’s stað. Síðar verða 3-6 sendir til viðbótar í nám sem er heldur viðaminna en það tekur um 3 mánuöi. Þeir fara sennilega út í maí á þesu ári og munu læra að veröa það sem heitir á ensku „floor manager" sem hugsanlega er hægt að útselja sem liðsstjóri á ís- lenskri tungu. Þeirra hlutverk verð- ur að stjóma ákveðnum svæðum í starfseminni á hveijum tíma. Sjálfur var ég allt síðasta ár í námi hjá McDonald’s háskólanum. Samkvæmt þeim reglum sem gilda hjá McDonald’s er þannig litið á að menn hafa ekki klárað sitt nám þó að á vinnustaðinn sé komið. Óll vinna er í raun stöðug starfsþjálfun og starfsmönnum er stanslaust ýtt áfram. 70-80 manna vinnustaður Allt í allt verða sennilega um 70-60 manns starfandi hjá keðjunni en þó ekki allir þeirra í fullu starfi. Þeir sem lokið hafa námskeiðum úti í Englandi munu þjálfa annað starfs- fólk sem velst til starfa hér. Fyrst um sinn verður afgreiðslu- tími McDonald’s á íslandi frá 10-23.30 en húsið, sem byggt verður að Suður- landsbraut 56 undir staðinn, er um 500 fermetrar að gólffleti. Undirbún- ingur er enn það skammt á veg kom- inn aö ekki er endanlega búiö að ákveða hvenær McDonald’s hefur göngu sína hér. Hönnunarvinna er í fuilum gangi en það væri ágætt ef okkur tækist að opna í ágústmánuði í ár.“ - Nú er mikil samkeppni á þessum markaði hérlendis. Ertu ekkert hræddur um að þú sért að fara út í vonlausa samkeppni og baráttu á al- gjörlega mettuðum markaði? „Ég hef aldrei kynnst neinu öðru en samkeppni á mínum viðskipta- ferli og hún er af hinu góða. Ég vona Rússar fengu sinn fyrsta McDonald’s hamborgarastað i janúarbyrjun árið 1990. Nú stefnir allt í það að McDonald’s hamborgarar fáist hérlendis í ágúst- mánuði á þessu ári. að koma McDonald’s til landsins muni leiöa margt gott af sér fyrir ísland og matvælaiðnaðinn í heild. Hráefnisframleiðendur sækjast eftir samvinnu við okkur og með tilkomu McDonald’s bætist við þekking sem nýtist mörgum. Samkeppnin leiðir oft tii meiri gæða og það er jákvætt. Það eina sem ég get sagt er að ég ber virðingu fyrir samkeppninni og það er ekkert sjálfgefið að vel gangi,“ sagði Kjartan. Reynt að halda verði niðri - Nú eru McDonald’s staðimir þekkt- ir fyrir ódýran mat. Verður lögð Kjartan öm Kjartansson verður elg- andi McDonald's hamborgarastað- arins sem veröur opnaður á Suður- landsbraut 56. áhersla á að halda verðinu sambæri- legu á við það sem gerist erlendis? Það veröur stefnan hér að gera allt eins ódýrt og hægt er, án þess þó að það komi niður á gæðunum. Gæða- kröfur McDonald’s eru mjög háar og það er stundum erfitt að láta það ganga upp, lágt verð og mikil gæði. Það er stefna okkar en því miður eru margir þættir þannig hér á ís- landi að erfitt er að sameina þetta tvennt. Matarverð er mjög hátt hér, hér er hár virðisaukaskattur, það er ipjög hár tollur á kartöflum og fleira mætti nefna til. Við erum þegar búnir að ganga frá samningum um hráefniskaup en ég vil ekki tilgreina þá aðila sem við munum skipta við. Þegar þar að kemur verður gefin yfirlýsing um viðskiptaaðila okkar. Stefnt verður að því að hafa til sölu hamborgara í mörgum stærðum, franskar og hinn fræga McDonald’s ís, en Chicken McNuggets kjúklingabitar verða ekki hér til að byija með né ferskt blandaö salat í skálum eins og sumir kannast við sem farið hafa á McDon- ald’s staði erlendis. Sérstök tæki, sem eru rándýr, þarf til að búa til þessa sérstöku gerð kjúklingabita sem notaðir eru í Chic- ken McNuggets. Því byijum við, á meðan við erum að þjáífa liðið og slípa okkur til, á því að hafa grunnréttina á boðstólum," sagði Kjartan. -ÍS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.