Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1993, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1993, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1993. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aöstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofyr, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. ísland í EB? Umræöa um, hvort ísland eigi að ganga í Evrópu- bandalagið, EB, er komin í gang. Þetta var umræðuefn- ið á viðskiptaþingi Verzlunarráðs íslands í fyrradag. Skoðanakönnun meðal þingfulltrúa leiddi í ljós mikinn áhuga á, að kannað yrði hið fyrsta, hvaða kjör byðust íslendingum, yrðu þeir aðilar að bandalaginu. 65 prósent þingfulltrúa sögðu já við spurningunni, hvort ísland eigi að „sækja um aðild og hefja viðræður um aðildarsamning við EB og þar með staðreyna á hvernig kjörum íslandi byðist aðild að bandalaginu.“ Fylgi við umsókn um aðild var mun meira meðal þeirra fulltrúa, sem eru félagar í Verzlunarráði, en annarra fulltrúa. Á hinn bóginn sögðu 70 prósent nei við spurn- ingunni um, hvort þeir væru fylgjandi aðild að Evrópu- bandalaginu nú þegar. 16 prósent sögðu já við þeirri spurningu. Mikill meirihluti hefur lýst andstöðu við aðild áð EB í skoðanakönnunum. Afstaða fólks gæti breytzt nokkuð, nú eftir að Alþingi hefur samþykkt aðild að Evrópska efnahagssvæðinu, EES, og frumvarp þar um er orðið að lögum. Aðild okkar að Evrópska efnahagssvæðinu fylgja margir kostir í efnahagslegu tilliti. En stofnun EES hef- ur tafizt. Nú telja flestir líklegt, að EES verði ekki kom- ið á koppinn fyrr en um næstu áramót hið fyrsta, ári síðar en ráðgert var. Þessi töf kostar íslendinga millj- arða króna. Aðild að EES þýðir auðvitað ekki, að næsta skref verði að ganga í EB. En við þurfum að ræða það mál og vera með á nótunum um, hverra kosta við eigum völ. EB verður vissulega þungamiðja Evrópu í pólitísku og efnahagslegu tilliti. Við þurfum að ræða, hvort við eigum að reyna að hafa áhrif í þeim efnum. Augljóst er, að þróun Evrópubandalagsins mun bæta lífskjör þeirra þjóða, sem þar verða. Samstarf verður þar mikiö og vaxandi, og við mundum hagnast af auknu frelsi í viðskiptum. Þá skiptir miklu, að önnur EFTA-ríki hyggj- ast ganga í EB. Ef það gerist, verðum við einir úti í kuldanum. Við mundum þurfa að fást við tollmúra EB. Að því leyti yrði okkur hagstæðast að vera þar innan dyra. En aðild að EB fylgja einnig margir ókostir fyrir okkur. Fyrst og fremst ber að nefna, að erfitt yrði fyrir okk- ur að halda stjórnun fiskveiða við ísland utan 12 mílna í okkar höndum. EB hefur þar harða stefnu, og stofnan- ir EB vilja ráða stjómun fiskveiða. Auðvitað byggist úthlutun fiskveiðikvóta í EB mest á hefð, og í því tilliti kæmum við allvel út. En fæstir íslendingar mundu sætta sig við, að fiskveiðistjómunin flyttist í hendur annarra. Um þetta þyrfti að semja, en sjálfsagt er að kanna máhð hið fyrsta. Líklegt er, að smáþjóðir muni eiga erfitt uppdráttar innan EB eftir nánari samruna í bandalaginu upp úr 1996. Rök mæla því með því, að við athugum, hvort við gætum ekki tryggt rétt okkar fyrr. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra sagði á viðskiptaþingi, að aðild að EB væri „ekki á dagskrá“ núverandi ríkisstjómar. En málið er mikilvægt. Við þyrftum ekki tapa neinu, þótt sótt yrði um aðild til að kanna viðbrögðim. Að öllu athuguðu væri réttast að hafa þá stefnu, sem meiri- hluti fulltrúa á viðskiptaþingi lýsti sig fylgjandi í skoð- anakönnuninni. HaukurHelgason Clinton boðar kreppuráðstafanir Komist hefur í fréttir í Washington að fyrir kynningu sína á efnahags- stefnu á nýjum nótum fyrir þjóð og þingi hafi Bill Clinton Banda- ríKjaforseti tekið til lestrar í hvíld á sveitasetrinu Camp David nýja bók: „Suðumark. Repúblikanar, demókratar og dvínandi velmegun millistéttarinnar". Höfundur er stjómmálaskýrandi í Washington, Kevin Phillips að nafni, og í síðustu viku átti Lawrence Malkin frá Int- ernational Herald Tribune viðtal við Phillips. Fréttamaðurinn spurði meðal annars: „Enginn stjómmálamaður hefur enn sagt hinn skelfilega sannleika - að við emm ekki eins rík og við vorum. Richard Nixon reyndi að komast undan því með verðbólgu og Ronald Reagan og George Bush reyndu aö komast undan því með lántökum. Gerði þaö gagn- ef forsetinn segði sann- leikann?" Phillips svarar: „Henry Kissinger og Nixon töldu sig vera að hafa stjóm á hnignun Bandaríkjanna á alþjóðavettvangi á frumstigi. Nú er að vita hvort Clinton, menntaður (við háskólana) í Georgetown og Oxford, megnar að móta sér ísmeygilega skoðun á hvernig skil- greina beri feril hnignunarinnar án þess að nefna hana. Ummæli hans um hnignun miilistéttarinnar benda til að hann hafi þokkalegan skilning á vandanum. Meiri hrein- skilni en vant er á eftir að bera ávöxt því hann verður að sýna fram á fjárlagakreppuna sem krefst fóma.“ Oröaval Clintons í sjónvarps- ávarpi til Bandaríkjamanna fyrir stefnuræöuna á Bandaríkjaþingi bendir til að hann sé sama sinnis og Phillips. „Við stöndum nú frammi fyrir kreppu sem er jafn djúpstæð og aðrar sem við höfum þurft að standa andspænis á liðn- um tímum þótt hún sé hljóölát- ari,“ sagði forsetinn. „Við eigum á hættu að glata lífskjörunum sem við höfum svo lengi talið sjálfsögð fyrir Bandaríkjamenn." Ríkisskuldir Bandaríkjanna hafa íjórfaldast síðan 1980. í stefnuræð- unni á þingi setti Clinton fram áætlun um að snúa af braut vax- andi ríkissjóðshalla þannig aö hann verði 500 milljónum dollara minni á fjögurra ára kjörtímabili en ef ekkert væri að gert og komist í lok þess niður fyrir 200 milljarða á ári. Þetta vill Clinton að gert verði jöfnum höndum meö niðurskurði útgjalda og hækkun tekna, einkum með því að taka aftur nokkuö af skattalækkunum á háum tekjum sem ákveðnar voru i upphaíi for- setaferils Reagans. En þar að auki verður lagður á orkuskattur sem gæta mun langt niður eftir tekju- stiganum. Þar með á jöfnum hönd- um að afla tekna og stemma stigu við orkusóun en bensínverð hefur um langan aldur verið langtum Bill Clinton forseti stígur í ræðustól Bandaríkjaþings til að flytja stefnu- ræðu sina. Að baki honum standa forsetar þingdeilda. Simamynd Reuter stofnunum. Hillary Clinton for- setafrú stjómar starfshópi sem skila á tillögum um spamað og umbætur í heilbrigðiskerfunum fyrir maíbyrjun. Ráðherrar og aðrir nánir sam- starfsmenn forsetans verða nú sendir víða um Bandaríkin til að skýra tillögur forsetans og vinna þeim fylgi. Verður lögð áhersla á að ekki er eingöngu um að ræða niðurskurð, verja á 30 milljörðum dollara strax og 50 milljörðum síðar til að vinna gegn atvinnuleysi með opinberum framkvæmdum, skattaívilnunum vegna fjárfesting- ar í þágu aukinna atvinnuskapandi umsvifa fyrirtækja og ekki síst til að styrkja fræðslukerfið, einkum starfsfræðslu og þjálfun ung- menna. Ekki mun af veita fyrir Bill Clin- ton að reyna að mynda þrýsting frá almenningi til stuðnings áformum sínum. Þar er vegið að hagsmunum hópa og aðila sem hafa á sínum snærum öfluga málsvara í Wash- ington sem gjaman afla sér aöstöðu gagnvart þingmönnum með fjár- framlögum í kosningasjóði þeirra. Hættan er sú að þingið samþykki skattahækkanimar en guggni á að framkvæma niðurskurð útgjalda- liða. Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson lægra í Bandaríkjunum en í öðrum iðnvæddum ríkjum. Spamaður kemur fyrst í stað sér í lagi frá lækkun útgjalda til hem- aðarþarfa. Þegar fram í sækir velt- ur þó mest á að takast að koma böndum á gífurlega hækkun sem fyrirsjáanleg er verði ekkert að gert í kostnaði við opinberar greiðslur fyrir heilbrigðisþjónustu, annars vegar fyrir aldraða og fati- aða, hins vegar fyrir tekjulága. Þar hefur nánast veriö um sjálftöku að ræða hjá læknum og heilbrigðis- Skodanir annarra Sjúklingurinn í Evrópu „Einu sinni unnu Bretar fyrir sér með því að gera hlutina betur en aðrir. Núna komast þeir aðeins áfram með því að gera hlutina ódýrar. Samkvæmt áætlunum frá bandaríska vinnumálaráðuneytinu er tímakaup á Bretlandi 18 prósentum lægra en í Frakk- landi, 30 prósentum lægra en í Hollandi, 42 prósent- um lægra en í Þýskalandi. Lífeyrir, bætur vegna uppsagna og sjúkrapeningar eru líka verulega lægri. Bretland er eina land EB sem ekki kveður á um hámarkslengd vinnuvikunnar eða lágmarksorlof.“ Úr forystugrein Independent on Sunday 14. febrúar. Tökum Rushdie alvarlega „Þó svo að hann (breski rithöfundurinn Salman Rushdie) sé frægari en flestir er hann tákn fyrir ótelj- andi fjölda lítt þekktra andófsmanna sem hafa mátt þola ofbeldi og kúgun eða verið drepnir fyrir skrif sem stjómvöldum stóð ógn af. Framarlega í flokki stuðningsmanna Rushdies er hópur íranskra menntamanna í útlegö; vandi hans er þeirra." Úr forystugrem Washington Post 16. febrúar. Litháar kusu heimamann „í fyrstu frjálsu og beinu forsetakosningunum í Litháen frá því í síðara stríði greiddi mikill meiri- hluti kjósenda fyrrum kómmúnistanum Algirdas Brazauskas atkvæði sitt. Kosningin var til marks um að Litháar vilja fremur mann sem þeir þekkja en ókunnan í forustu fyrir landið. Andstæðingurinn Stasys Lozoraitis hefur lengst af búið á Vesturlönd- um þar.til jafnaöarmenn og miðflokkar ákváðu að tefla honum fram sem óháðum frambjóðanda." Úr forystugrein Politiken 16. febrúar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.