Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1993, Síða 16
16
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1993.
Skák
Margeir einn
efstur í Árósum
Margeir Pétursson tryggði sér
sigurlaunin óskipt með góðum enda-
spretti á 90 ára afmælismóti Taflfé-
lags Árósa sem lauk sl. sunnudag.
Margeir og danski alþjóðameistarinn
Klaus Berg voru fljótir að sættast á
skiptan hlut í síðustu umferð og þar
með var sigur Margeirs á mótinu í
höfn.
Margeir hlaut 7 vinninga af 9
mögulegum, hálfum meira en þurfti
til að ná áfanga að stórmeistaratitli.
Hann tapaði ekki skák og lagði m.a.
helsta keppinaut sinn, sænska stór-
meistarann Johnny Hector sem varð
í 2. sæti með- 6,5 v. Rússinn Miron
Sjer frá Kaliningrad varð í 3. sæti
með 6 v., síðan kom ungverski stór-
meistarinn Guyla Sax (sem tapaði
fyrir Sjer í síðustu umferð) með 5,5
v., Soffia Polgar - miðsystirin - fékk
5 v. en danska heimavamarliðið rað-
aði sér í neöstu sætin: Klaus Berg,
Jens Kjeldsen, Erik Pedersen, Erling
Mortensen og Jens Ove Fries Niel-
sen.
Margeir hefur ætíð verið með iðn-
ari skákmönnum og á að baki fjölda
sigra á alþjóðlegum mótum. Hann
heldur rakleiðis frá Árósum til
franska bæjarins Capelle la Grande,
þar sem árlegt opið mót hefst um
helgina. Auk Margeirs munu sex ís-
lendingar taka þátt í mótinu, Hannes
Hlífar Stefánsson, Þröstur Þórhalls-
son, Andri Áss Grétarsson, Helgi Áss
Grétarsson, Guðmundur Gíslason og
Tómas Bjömsson.
Skoðum handbragð Margeirs frá
Árósum. Skák hans við Soffíu Polgar
úr 5. umferð þótti í dönsku blööunum
„elegant" tefld af hans hálfu. Soffía
átti raunar erfitt uppdráttar með
svörtu mönnimum, hefði eftir 6 um-
ferðir fengið 2,5 v. af 3 á hvítt en tap-
að öflum skákum sínum með svart.
Gegn Margeiri lenti hún í afdrifa-
ríkri leppun, sem kostaði hana lið.
Margeir Pétursson stórmeistari tefldi góða skák við miðsysturina, Soffíu
Polgar, á afmælismóti Taflfélags Árósa.
Skák
Jón L. Árnason
Hvítt: Margeir Pétursson
Svart: Soffla Polgar
Katalónsk byijun.
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rf3 Rf6 4. g3 dxc4
5. Bg2 Bd7 6. Re5 Bc6 7. Rxc6 Rxc6 8.
0-6 Dd7 9. e3 Hb8 10. De2 b5 11. b3
cxb3 12. axb3 Hb6 13. Hdl
Eldri systumar, Zsuzsa og Soffía,
mæta katalónskri byrjun hvíts
gjaman á þennan hátt. En Soffía
kemur ekki að gagnabanka Margeirs
tómum! Hvítur getur unnið peö sitt
til baka með 13. Bxc6 Dxc6 14. Hxa7
en þannig tefldist m.a. skák Tékkans
Stohl við Soffíu 1991. Peðsfómin er
einnig vel þekkt og gefur hvítvun
góða möguleika.
13. - a6 14. Rc3 Be7 15. Bb2 Rb4
Svarið við 15. - 0-0 yrði 16. e4! og
ef nú 16. - Rxd4 þá 17. Hxd4! Dxd4
18. Rd5 Dc5 19. b4 Dd6 20. e5 Dxd5 21.
exfB! Dd8 22. fxe7 Dxe7 23. Bd4 með
betri stöðu á hvítt (Karpov).
16. e4 0-0 17. Bh3!?
Þennan möguleika gefur Karpov
upp í skýringum við skák sína við
Beljavskí á skákþingi Sovétríkjanna
1988. Smejkal hafði annan háttinn á
gegn Zsuzsu í Polanica 1991, lék 17.
h4 og síðan g4-g5 og hóf sóknarað-
gerðir. í því tilviki á hvítur einnig
góð færi í skiptum fyrir peðið.
17. - De8?!
Hvítur hótaði 18. d5 en þessi ólán-
legi leikur virðist ekki leysa vanda
svarts. Reyna má 17. - c6!? með
traustri en óvirkri stöðu.
18. Ra2!
Riddarinn á b4 er sterkasti maður
svarts. Eftir uppskiptin hyggst Mar-
geir þrýsta að a-peðinu.
18. - Rd7 19. Bc3 Rxa2 20. Hxa2 c5?
Skynjar ekki hættuna.
21. d5! exd5?
Kannski var best að reyna að
blíðka goðin með 21. - e5 en 22. Bxd7
Dxd7 23. Bxe5 gefur hvítum betra.
Leppunin eftir e-línunni reynist nú
banvæn.
22. exd5 Rffi
Hvítur hótaði 23. d6, eða 23. Hel og
vinna mann.
23. Ba5! Hd6 24. Hel Rxd5 25. Hd2
Soffia á tveimur peðum yfir í stöð-
unni en þau koma að litlu gagni. Hún
er bundin í báða skó.
25. - b4 26. Df3 Dc6 27. Bg2 He6
Ef 27. - Bd8 28. Bxd8 Hxd8 29. Hedl
Re7, þá 30. Hxd6 Hxd6 31. Hxd6 Dxd6
32. Da8+ og vinnur.
Er Soffia nú að bjarga sér? Sú yrði
raunin eftir 28. Hxe6 fxe6, eða 28.
Hedl Db5. En Margeir hefur séð
lengra:
28. Ddl!
Eftir þennan snjalla leik kemst
svartur ekki hjá liðstapi.
28. - Db5 29. Bxd5 Dxa5
Eða 29. - Hxel 30. Dxel Dxa5 31.
Dxe7 og maður fyrir borð.
30. Bxe6 fxe6 31. Hd7 Bffi 32. Dd6 e5
33. Hc7 Da2 34. De6+ Kh8 35. Hc8 Bd8
36. Df7!
- Og Soffia lagði niður vopn.
-JLÁ
Bridge
Bridgehátíð 1993:
Zia og Cohen unnu tvímenninginn
Eins og kunnugt er af fréttum þá
sigmðu Zia og Larry Cohen með
nokkmm yfirburðum í tvímennings-
keppni Bridgehátíðar. Þeir félagar
tóku snemma afgerandi forystu og
héldu henni þar til upp var staðið.
Röð og stig efstu para var annars
þessi:
1. Zia Mahmood-Larry Cohen 259
2. Tor Hoeyland-Even Ulfen 218
3. Helgi Jóhannsson-Guðm. Her-
mannsson 207
4. Sverrir Armannsson-Matthías
Þorvaldsson 202
5. Georgio Belladonna-Pietro Forqu-
et 198
6. Öm Amþórsson-Guðlaugur Jó-
hannsson 168
7. Björn Eysteinsson-Aðalsteinn
Jörgensen 164
8. Ih Limdby-Inge Keith Hansen 143
Önnur pör fengu ekki verðlaun.
Þaö hefir lengi loöað við Zia að
hann sér meira í spilunum en marg-
ir aðrir. Spilið í dag er kátlegt dæmi.
Zia sat í suður með þessi spil:
♦ 64
V 63
♦ 9862
4» KG863
N
v A
s
og hlustaði á eftirfarandi sagnir:
Pakistaninn Zia Mahmood og Bandarikjamaðurinn Larry Cohen unnu næsta
öruggan sigur í tvímenningskeppni Bridgehátíðar. DV-mynd ÞÖK
Með Cohen og Zia í n-s og Jón Ás-
bjömsson og Símon Símonarson í a-v
gengu sagnir á þessa leið:
Suður Vestur Norður Austur
pass lhjarta 3lauf 4hjörtu
4spaðar 51auf pass Sspaðar
pass 7hjörtu pass pass
pass
Engin leið var að losna við tígultap-
slaginn og Símon varð einn niður.
Glöggir lesendur sjá þó strax að sjö
Vestur Norður Austur Suöur
lhjarta 31auf 4hjörtu ?
N-s vom utan hættu og a-v á, þann-
ig að flestir myndu styðja laufið. En
Zia taldi aðeins tvær sagnir koma til
greina. Annaðhvort væri aö dobla
eða segja fjóra spaða. Fjórir spaðar
væm líklega aðeins betri sögn tfl
þess að gragga vatnið. Spilið og sagn-
irnar voru þannig.
S/A-V
* KDG7
? ÁG8742
♦ ÁK7
+ -
* 985
V 9
♦ D43
+ ÁD9742
* Á1032
V KD105
♦ G105
+ 105
♦ 9862
+ KG863
spaöar em upplagðir þótt leiðin upp
í þá sé ekki auðrötuð. Mér dettur
samt í hug ein leið ef a-v spila nei-
kvæð dobl. Austur getur þá doblað
þijú lauf og þar með opnast greið
leið í alslemmu í spaða.
Aðeins eitt par náði alslemmu í
spaða. Það vom Guðmundur Syeins-
son og Júlíus Sigurjónsson.
Stefán Guðjohnsen
DV
Sálarstríð hafið
Short og Kasparov skiptast nu
á glósum. Á meöan á eintígi
Shorts við Timman stóð sagðist
Kasparov geta unnið þá í fjöltefli.
„Ðæmígerður hroki af hans
hálfu,“ sagði Short í viðtali í blaö-
inu Sunday Telgraph ura mán-
aðamótin þar sem hann lætur
þung orð falla í garð heimsmeist-
arans. Short segir Kasparov m.a.
ekki kunna á mannleg samskipíi
og hegóa sér eins og „bavían“ viö
skákborðið. „Ég sá Kasparov í
sundlauginni. Vissir þú að hann
er loðinn frá hvirfli til ilja og lítur
út eins og api?" sagði Short.;
Þá hafði Short eftir ónafn-
greindum enskum skákmeistara
að hann þyrfti ekki að kviða því
að tapa einviginu við Kasparov.
Hann yröi eftir sem áður fremst-
ur meðal manna. „Ég verö að
undirbúa mig andlega ef ég ætla
að vinna hann... en ég ætla ekki
að fara niður á svið dýranna til
þess að vinna dýrið."
Kasparov var staddur í Lund-
únum í vikunni þar sem hann
tefldifjölteflivið hundraö manns.
Á blaðamannafimdi sagðist hann
vera 100% viss um sigur í einvíg-
inu við ShorL Eg er viss um að;;
ég vinn Short fljótt og að einvígið
verði styttra en einvígi mín við
Karpov," sagði hann.
Hann sagði gott að Short skyldi
vekja athygli á einvíginu með þess-
um ummælum sínum en bætti við
að menn ættu að bera virðingu fyr-
ir heimsmeistaranum.
AfPolgar-
systrum
Judít Polgar tapaði síðustu ein-
vígisskákmni við Boiis Spasskí í
Búdapest en haföi þegar tryggt
sér sigur i einvíginu. Lokatölur
urðu 5,5-4,5 Judit í vil.
Að sögn Janosar Kubats, sem
skipulagði einvígið, em miklar
líkur á því að Judit muni tefla
við Short í maí og verði þá teflt í
Búdapest og Aþenu.
Elsta systirin, Zsuzsa, hefur
náð forystu í' áskorendaeinvígi
kvenna gegn Nönu Ioseliani um
réttinn til þess að skora á kín-
versku stúlkuna Xie Jun. Eftir
þrjár skákir hefur Zsuzsa unnið
tvær en einni hefur lokið með
jafntefli.
ÁslaugReykja-
víkurmeistari
Áslaug Kristinsdóttir vann all-
ar fimm skákir sínar i kvenna-
flokki á skákþingi Reykjavíkur
og sigraöi með glæsibrag. Guðný
Hrund Karlsdóttir, Keflavík, varð
í 2. sæti meö 4 v. og Ólöf Ragnars-
dóttir, Sandgerði, i þriðja sæti
með 3,5 v.
Héðinn Steingrímsson sigraði á
; atskákmóti Taflfélagsins Hellis,
Skákfélags Hafnarflarðar og Tafl-
félags Kópavogs, sem fram fór í
Ilafnarfirði um síðustu helgi.
Héðinn fékk 5,5 v. af 7 möguleg-
um, Sigurður Daöi Sigftísson
varð í 2. sæti ásamt Andra Áss
Grétarssyni og Arinbirni Gunn-
arssyni með 5 v. og Guðmundur
Gísiason fékk 4,5 v.
Tveir Norður-
landameistarar
íslencflngar fengu flesta vinn-
inga samanlagt í einstaklings-
keppni norrænnar skólaskákar,
sem frarn fór í Asker í Noregi um
síðustu helgi - tveimur vinning-
um betur en Sviar. í tveimur
flokkum af fimm varð íslending-
ur Norðurlandameistari. Arnar
E. Gunnarsson í flokki 13-14 ára
og Jón Viktor Gunnarsson í í
fbkki 11-12 ára. Árangur Jóns
Viktors er sérlega eftirtektar-
verður. Hann geröi sér lítið fyrír
og vann allar skákir sínar, sex ö
aðtölu. -JLÁ