Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1993, Síða 19
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1993.
19
Bretar spyrja hvort þjóðfélag þeirra sé að hrynja eftir morðið á James litla Bulger:
Mannvonska eina
ástæða morðsins
- kröfur um herta löggæslu duga skammt þegar heil kynslóð í Iiverpool er á götunni
„Þegar saklaust ungbam er myrt á
hroðalegan hátt erum við komin yfir
öli þekkt mörk mannvonskunnar.
Við erum komin í ríki myrkursins,"
voru viðbrögð Kenneths Baker, inn-
anríkisráðherra Breta á árunum
1990 til 1992, við morðinu á James
Bulger, tveggja ára gömlum dreng
frá Liverpool.
Ráðherrann fyrrverandi talaði
þarna fyrir munn margra landa
sinna því engin leiö virðist vera að
benda á haldbæra ástæðu fyrir þvi
að James var myrtur. Fyndist ein-
hver ástæða væri verknaðurinn þó í
það minnsta skiijanlegur þótt hann
verði aldrei réttlættur.
Ásvonaþjóðfélag
sér framtíð?
Bretar spyrja að vonum hvað sé
að gerast í þjóðfélagi þeirra þegar
smábörnin eru ekki lengur óhult fyr-
ir samviskulausum morðingjum.
Hve lengi fær samfélag manna stað-
istþegar svo er komið? spyrja menn.
A það er einnig bent að ástandið
er hvergi verra en í fátækrahverfum
Liverpool. Þar hefur nánast ein kyn-
slóð ahst upp við atvinnuleysi og
sótt viðurværi sitt og félagsskap á
götuna. Lögreglan heldur helst að
ungmennin, sem stóðu að morðinu,
séu úr hópi utangarðsunglinga.
Fór í innkaupaferð
með móður sinni
James fór síðdegis síðasta fóstudag
með móður sinni, Denise, í inn-
kaupaferð í eina helstu verslunar-
götu Liverpool. Þau fóru í Strand
verslunarmiðstöðina og þar varð
hann viðskila við móður sína.
Eftir það sá hún ekkert til hans og
fékk næstu fréttir af afdrifum sonar
síns hjá lögreglunni. Leit var gerð
að James og líkið fannst illa útleikið
á brautarteinum nokkuð frá staðn-
um þar sem honum var rænt. James
hafði verið myrtur á hroðalegan hátt
og jafnvel kastað helsærðum fyrir
lest, eftir því sem lögreglan kemst
næst.
Örlög drengsins síðustu klukku-
tímana, sem hann lifði, eru ljós í
aðalatriöum. Hópur unghnga var á
flækingi við verslunarmiðstöðina og
tveir ungir karlar úr hópnum náðu
James á sitt vald. Þetta kemur fram
á sjálfvirkum myndbandsupptökum
af vettvangi.
Lögreglan taldi hugsanlegt að þijár
stúlkur hefðu verið í vitorði með
körlunum því þær komu fram á
myndbandinu við hhð þeirra. James
var þá í höndum ræningjanna, grát-
andi og reyndi að sleppa frá þeim.
Nú er tahð sannað að stúlkurnar
hafi ekki þekkt mennina.
Sögðustfara með
James til læknis
Eftir þetta sneri kona um sjötugt
sér að mönnunum og spurði hvað
gengi á. Hún hefur borið vitni hjá
lögreglunni og sagði að mennimir
hefðu skýrt grát drengsins svo að
hann hefði dottið á höfuðið og þeir
væru að fara með hann tíl læknis.
Konan segir að áverkar hafi verið
á höfði James og styður það fyrri
hugmyndir lögreglunnar að hann
hafi verið barinn um leið og honum
var rænt.
Gamla konan trúði mönnunum og
skipti sér ekki frekar af málinu. Það
gerðu ekki heldur aðrir sem urðu
Þetta er skýrasta myndin sem lög-
reglan hefur af morðingjunum. Hún
dugar ekki til að bera kennsl á þá.
Fólk í Liverpool er harmi slegið. Hér
leggur kona blóm á staðinn þar sem
likið fannst.
vitni að þessum atburði og á mynd-
bandinu kemur berlega íljós að fjöldi
fólks sá þegar James var rænt.
Konan skhdi við mennina klukkan
4.30 á fóstudaginn og eftir það er
ekkert vitað hvað gerðist fyrr en
böm fundu lík James síðdegjs á
sunnudeginum á Liverpool-Kirby
járbrautarstöðinni. Ekki er vitað
nákvæmlega hvenær hann lést eða
hvort hann var látinn áður en á járn-
brautarstöðina kom. Það eitt er vitað
að lest hafði ekið yfir líkið og var það
nánast óþekkjanlegt.
Vitnin hrædd við að
gefa sig fram
Lögreglan híður enn eftir að fleiri
vitni gefi sig fram. Ailir þeir sem sjást
á myndbandinu hafa verið beðnir um
að segja frá þvi sem gerðist en fólk
virðist af einhverjum ástæðum vera
hrætt við aö láta vitnast að það hafi
séð þennan voðalega atburð en ekki
þorað að skipta sér af. Lögreglan
hefur þó yfirheyrt marga en án telj-
andi árangurs.
Lögreglan hefur grun um að morð-
ingjamir hafi reynt aö ræna fleiri
bömum. M.a. er vitað að unglingar
reyndu að hrifsa ham af konu á þess-
um sama stað fym um daginn. James
var einn og því auðveld bráð.
Bamaræningjar fara
öðruvísi að
Lögreglan hefur ekki trú á að
morðingjamir hafi ætlað að ræna
James og krefjast lausnargjalds fyrir
James Bulger var tveggja ára þegar hann var myrtur. Lögreglan getur
ekki með nokkru móti fundið ástæðuna fyrir morðinu og þvi álykta menn
sem svo að þarna hafi mannvonskan ein ráðið. Simamyndir Reuter
hann. Móðir hans er einstæð en
bamaræningjar velja sér aðeins böm
ríkra foreldra.
Þá er það ekki háttur ræningja aö
taka böm af handahófi á götum úti
nema hugmyndin sé að selja bömin
í fóstur. Lögreglan telur það þó fjar-
stæðukenndan möguleika og allra
síst þegar James var misþyrmt strax
eftir aö honum var rænt.
Lögreglan hefur heitið hveijum
þeim sem leiðir hana á spor morð-
ingjanna 40 þúsund pundum í verð-
laun. Það er jafnvirði um 370 þús-
unda íslenskra króna. Enn hafa eng-
ar ömggar vísbendingar komiö fram.
Skömmu eftir að James fannst lát-
inn handtók lögreglan tvo unga
menn og yfirheyrði þá. Þeir voru í
haldi lögreglunnar í tvo daga en þá
sleppt enda ekkert sem benti til að
þeir væru hinir seku. Tólf ára dreng-
ur var einnig handtekinn en honum
sleppt þegar sýnt þótti að hann gat
ekki heldur verið riðinn við máhð.
Rýna í móðuna á
myndbandinu
Lögreglan í Liverpool er því enn í
sömu sporum og þegar líkið fannst á
járnbrautarstöðinni. Mestar vonir
eru bundnar við að vitni gefi sig fram
sem geti borið kennsl á morðingjana.
Gamla konan, sem seinast sá til feröa
mannanna, treystir sér ekki til að
þekkja þá aftur.
Einnig reyna sérfræðingar lögregl-
unnar til þrautar að skerpa mynd-
bandið svo að þekkja megi mennina
af því. Það hefur ekki boriö tilætlað-
an árangur enn. Myndin af mönnun-
um er mjög óskýr þótt vel megi
greinaframvindumála. -GK
Síðumúla 30 — sími 68-68-22
OPIÐ MÁNU DAGA-FÖSTU DAGA 9-18
LAUGARDAGA KL. 10-17
SUNNUDAGA KL. 14-17
HÆGINDASTÓLAR
alsláttur
Á MEÐAN
BIRGÐIR
ENDAST
V,Wt, for bete Sittefe,*,-
TM - HÚSGÖGN