Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1993, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1993, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR1993 23 Menning Meimingarverðlaun DV: Tilnefningar í byggingarlist Skólahús Breiðdalshrepps á Breiðdalsvík. Þaö styttíst óöum í að Menningar- verðlaun DV fyrir árið 1992 verði afhent en það veröur gert á Hótel Holtí næstkomandi fimmtudag, 25. febrúar. Við höldum áfram með tál- nefningar, þegar hefur verið sagt frá tilnefningum í myndiist, tónlist og bókmenntmn. Nú er komið að bygg- ingarlist. í dómnefnd sitja Guðjón Bjarnason, Jes Einar Þorsteinsson og Pétrún Pétursdóttir. Hér fara á eftir fimm tilnefningar dómnefndar: Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins við Austurstræti. Arkitekt Páimar Guðmundsson. Létt og líflegt yfir- bragð og afar vandvirknislegt hand- bragð einkennir þetta verk. Rýmis- mótun skapar aðlaðandi andrúms- loft með góðri lýsingu og sterkum heildarsvip, sem samhliða efnisnotk- im jafnt utanhúss og innan gefur óvenjuleg tengsl ytra og innra rýmis. Hrá og þung efnisnotkun viðarhluta myndar viðeigandi andstæður við fíníegt yfirborð álplatna. Hjólbarðaþjónusta og verslun við Undirhlíð 2 á Akureyri. Arkitektar Sjálfseignaríbúðir á Sléttuvegi 11-13. Gísli Kristinsson og Páli Tómasson. Þetta verk er gott dæmi um metnað- arfullt framtak einkafyrirtækis til að skapa hógværa byggingu sem þó upphefur umhverfi sitt. Mjög opin glerjun skála gegnt nálægu hring- Hjólbarðaþjónusta og verslun við Undirhlíð 2 á Akureyri. torgi gefur ríka hrynjandi og boga- dregnar svalir í forrými hússins mynda skemmtilegt mótvægi við stailaða framhliðina. Aðstaða starfs- fólks er björt og aðlaðandi og lóð- arfrágangur til fyrirmyndar. Efnis- uppbygging er skýr og einfóld. Ráhús Reykjavíkur. Arkitektar Margrét Harðardóttir og Steve Christer. í kyrrlátri dulúð þessarar byggingar ríkir ljóðræn hrynjandi forma á síbreytilegum vatnaspegl- um. Óræð, margbreytileg og jafn- framt hnitmiðuð skipan rýmis gefur öllu umhverfi ævintýralegan blæ og upphefur margþætta starfsemina. Deihng hússins í aðskilda hluta veit- ir birtu í öll rými og undirstrikar af festu innra skipulag. Handverk allt er einstök dvergasmíði og leikið er af alúð við hvert smáatriði svo að úr verður margslungin heild. Það er álitamál hvort stærð og umfang byggingarinnar sé í samræmi við fín- gert umhverfi Kvosarinnar. Frum- leiki er eitt helsta einkenni þessarar byggingar og hún verður nú að telj- ast eitt helsta tákn Reykjavíkur. Sjálfseignaríbúðir á Sléttuvegi 11-14. Arkitektar: Árni Friðriksson, Páll Gunnlaugsson og Valdimar Harðarson. Landslagsarkitekt Pétur Jónsson. Stöllun byggingarinnar og form móti útsýni og birtu er afar sannfærandi og vel leyst á einfaldan hátt. Óvenjuleg skásett form bygg- ingar á móti skýrri staðsetningu stigahúsa virkar uppbyggjandi í sjónrænum skilningi. Innri rými eru hlutlaus og lita- og efnisval ganga gefur rólegt yfirbragð. Grunnmyndir eru einfaldar en vel leystar, svahr og yfirbyggt rými gefur íbúðum auk- ið ghdi. Lóðarfrágangur er til fyrir- myndar. Sameiginlegt rými mætti að ósekju vera stærra og fjölbreyttara. Skólahús Breiðdalshrepps á Breið- dalsvík. Arkitekt dr. Maggi Jónsson. Byggingin fehur ákaflega vel að um- hverfi sínu og myndar sannfærandi samspil milh nærhggjandi fjallshlíða í bakgrunni byggðarinnar við vog- inn. Þríhyrningslögun byggingar- innar og strýturnar á þaki tengir með áhrifaríkum hætti byggð og náttúru hvaðan sem htið er. Opið miðrými og færanlegt svið gefur ótal mögu- leika til fjölbreyttrar félagsstarfsemi. Innbyggðir hreyfanlegir veggir eru vel leystir og auka enn fjölnýtingu hússins. Rík áhersla er lögð á nátt- úrulega lýsingu, frágang og efnis- notkun og engu ofgert. Hvítieit bygg- ingin er afar eftirtektarverð í náttúr- unni og setur sterkan svip á allt umhverfið. Ráhús Reykjavíkur. Umbætur til almannaheilla Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins við Austurstræti. - Verkefni framundan - Reykjavík Jón Baldvin HannibaLsson utanrikisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra Alþýðuflokkurinn boðar til opins stjórnmálafundar í Súlnasal Hótel Sögu þriðjudaginn 23. febrúar kl. 20.30. Framsögumenn verða: Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra Fundarstjóri verður Össur Skarphéðinsson, formaður þingflokks Alþýðuflokksins. AHir velkomnir Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur Islands Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðhcrra Össur Skarphcðinsson, formaður þingflokks Alþýðuflokksins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.