Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1993, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1993, Blaðsíða 30
42 LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1993. Trölladeigsnámskeið vinsælt: Þarf ekki listræna hæfi- leika til að búa til fína muni segir Aldís ívarsdóttir leiðbeinandi „Ég var í námi í Myndlista- og hand- íðaskóla íslands á sínum tíma, bæði í myndmótadeild og málaradeild. Ég hef hugsað mér að fara aftur í skól- ann þegar ég hef tíma og þá í grafík. Ég hef verið heimavinnandi húsmóð- ir undanfarin ár enda með fjögur böm. Sköpunarþörfin fór auðvitað að gera vart við sig og fyrir fjórum árum byijaði ég að fikta við trölla- deigið. Þetta voru alls kyns fígúrur sem ég bjó til úr deiginu. Þar sem þær vöktu mikla athygli gat ég drýgt heimilistekjurnar svolítið meö því að selja þær. í framhaldi af þvi datt mér í hug að halda námskeið ef ein- hver áhugi væri fyrir slíku,“ segir Aldís ívarsdóttir, leiðbeinandi á trölladeigsnámskeiðum sem haldin hafa verið annað slagið. „Mér finnst mjög gott að komast út á kvöldin innan um fólk og hef því sjálf gaman af þessu,“ segir Aldís en eitt námskeið hjá henni er nýaf- staðið. „Það er mjög mismunandi hversu mikii aðsókn er að námskeið- unum en flest var hjá mér fyrir jólin. Ég býst við að þá hafi fólk verið að búa til jólagjafir.“ Trölladeig hefur í huga flestra tengst starfi á bamaheimilum. Aldís segist hafa fengið fyrstu uppskrift sína á bamaheimih. „Grunnupp- skriftin, sem fóstrumar nota, er ekki nógu góð þar sem deigið vill molna. Sú uppskrift, sem ég nota núna, er miklu betri og það er hægt að búa til hluti sem endast ef baksturinn heppnast vel. Það er mikið atriði með trölladeigið að baksturinn heppnist vel. Hins vegar er deigið sniðugt þar sem hver og einn getur bakað það í eigin bakaraofni. Auk þess er mjög auðvelt að búa til úr því alls kyns hluti og allir ná góðum árangri. Vinnslan byggist á uppröðun á form- um, sívalningum, kúlum, femingum og þess háttar. Maður raðar saman hlutum en mótar þá ekki,“ segir Al- dís. Alltgóðirhlutir Á námskeiðunum lánar Aldís til- búna hluti til að fara eftir meðan konumar em að læra á deigið. Þann- ig geta þær fengið hinar ýmsu hug- myndir svo sem trúða, par í sófa og margt fleira. „Yfirleitt hafa þetta ver- ið myndir sem hengdar em á vegg en nú hef ég fundið út að hægt er að gera frístandandi muni úr trölla- deigi. Með því að nota álpappír er hægt að byggja í kringum hann og þannig myndast nýr möguleiki með deigið." Aldís segir að það þurfi enga hst- ræna hæfileika til að búa til hluti úr tröhadeigi. „Hver einasta kona, sem hefur komið til mín, hefur búið til góða hluti. Þó að konur fari eftir þeim fyrirmyndum, sem ég hef á staðnum, í fyrstu meðan þær era að læra geta þær haldið áfram heima hjá sér og þróað eigin hugmyndir. Notarvenjulega málningu Þegar deigið hefur verið bakað, hluturinn búinn til og bakaður, þarf aö mála hann. Aldís notar venjulega vatnsmálningu (innanhússmáln- ingu) og segir það mjög hentugt auk þess sem það sé mun ódýrara en fóndurhtir. Fyrir einstaklinga er kannski óhentugt að nota málning- una þar sem hún er í stórum umbúð- inn nema nokkrir kaupi saman. Ekki þarf mörg verkfæri til að búa til fig- úrumar, aðeins hvítlaukspressu, Aldís leiðbeinir nemendum sínum á trölladeigsnámskeiðinu hvernig best sé að haga sér við málningarvinnuna. Nákvæmnin leynir sér ekki í svip hennar. Hún er að mála konu sem les fyrir barn, sitjandi i sófa. Trúöurinner vinsæll. Hérmálareinn nemandi Aldísar af mikilli innlifun. hníf og prjóna." Aldís notar sérstaka trölladeigs- uppskrift og ef einhver vih prófa þá htur hún svona út: Uppskrift /i kg hveiti Vi kg s§lt 3 dl vatn 1 msk. mataroha 1 msk. veggfóðurslímduft „Þessi uppskrift er mjög góð og deigið hefur alveg haldið sér. Ég læt deigið standa á bökunarplötu í hálfan til hehan sólarhring áður en það fer í ofninn og þá nær þaö að þoma á yfirborðinu. Ef maður gerir það ekki vih deigið lyfta sér og bólgna út,“ útskýrir Aldís. „Eftir hehan eða hálf- an sólarhring setur maður fígúruna neðst í ofninn við hundrað gráða hita. Bakaraofnar era mismunandi en það er mjög mikUvægt að það sé góður undirhiti þegar deigið er bak- að. Hjá sumum konum, sem hafa verið á nániskeiði, hefur þetta farið úrskeiðis vegna þess að undirhitinn er ekki nægur. Þær verða að finna þetta út og þurfa jafnvel að hafa hærri hita en ég segi. Eftir tvo tíma er hitinn hækkaöur upp í hundrað og tuttugu gráður. Það getur tekiö aht frá tíu upp í fimmtán tíma að baka deigið." Karlamirhafa ekki áhuga Námskeiðið hjá Aldísi er fjögur kvöld, tvö fyrstu fara í að búa tU fíg- úrur og síðari kvöldin í að mála. Konumar fara með hlutina með sér heim tíl að baka þar sem ekki er aðstaða tU þess hjá Aldísi. Þegar búið er að mála hlutinn er hann lakkaður með ohulakki og myndast þá nokk- urs konar glerungur á honum. Svo virðist sem það séu frekar kon- ur sem hafa áhuga á að vinna úr trölladeigi, að minnsta kosti hefur enginn karlmaður komið á námskeið ennþá hjá Aldísi fyrir utan unglings- pUt sem hafði hug á að hefja mynd- hstamám. „Sumar konumar sem koma hafa verið að fikta við deigið heima hjá sér og hafa mjög gaman af aö bæta við sig þekkingu með því að koma á námskeið. Aðrar hafa aldrei komið nálægt nokkurri handavinnu. Það má því segja að hingað komi ahs konar fólk,“ segir Aldís. „Ég finn að konumar hafa mjög gaman af að vinna með trölla- deigið, tvö fyrri kvöldin era reyndar krefjandi en þær era afslappaðar seinni kvöldin meðan þær máia. Það er líka ahtaf gaman að komast út og vera meðal fólks.“ -ELA Aldís ívarsdóttir kennir fólki hvernig á að baka úr trölladeigi. DV-myndir Brynjar Gauti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.