Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1993, Síða 31
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1993.
43
„Konan hefur allt á hornum sér. Vinnuveitandinn segir að ég sé ómögulegur. Bömin klaga yfir mér. Mamma
hringir daglega og kvartar yfir einhverju. Mér finnst ég algjörlega misheppnaður."
Um listina
að taka við
gagnrýni
„Það er alltaf verið að gagnrýna
mig,“ sagði hann við lækninn sinn
ogbrosti dapnrlega. „Konan hefur
allt á homum sér. Vinnuveitand-
inn segir að ég sé ómögulegur.
Bömin klaga yfir mér. Mamma
hringir daglega og kvartar yfir ein-
hveiju. Mér finnst ég algjörlega
misheppnaður." Læknirinn kink-
aði kofii. Hann þekkti þessa tilfinn-
ingu. Ófáir vora þeir sem gagnrýnt
höfðu hann á liðnum árum. Starfs-
félagar, fjölskyldan, sálfræðingar
og kraftlyftingamenn höfðu löng-
um haldið uppi gagnrýni á hann.
„Þú verður að læra að taka þessu
með jafnaðargeði og líta gagnrýn-
ina öðrum augum,“ sagði hann ró-
lega. „Margir telja alla gagnrýni af
hinu vonda en svo er ekki. Það er
jákvætt að fólk veit af tilvist þinni
og hefur á þér einhveij a skoðun.
Það væri mun alvarlegra ef öllum
stæði á sama um þig. Gagnrýni
sannar fyrir þér að þú ert lifandi
og skiptir annaö fólk máh.“ Lækn-
irinn þagnaði. Svona átti tilveran
að vera, þannig tóku skynsamir
menn á málunum. Sjálftu- hafði
hann um árabil reynt að hlusta af
athygli og yfirvegun á alla gagn-
rýni en gengið það illa. Oftar en
ekki hafði hann bmgðist reiður við
og fyllst beiskju og vanmáttar-
kennd. En þetta sagði hann ekki
við manninn.
Hvemig er
gagnrýnin?
„Reyndu alltaf að átta þig á gagn-
rýninni," sagði hann spekingslega.
„Margir fara ávallt í vöm þegar
þeir em gagnrýndir, grípa fram í
fyrir viðmælanda sínum, mótmæla
og fyllast réttlátri reiði. Gerðu það
ekki! Leyfðu fólki að tala út, hlust-
aðu vel og spurðu síðan hvort hann
hafi eitthvað meira að segja. Ekki
afgreiða alla gagnrýni sem árás á
þig. Stundum er gagnrýni óréttlát
ogfullaf rangtúlkunum og mis-
skilningi. En láttu viðmælanda
þinn ljúka máli sínu. Á þann hátt
fær hann útrás fyrir tilfinningar
sem beinast að þér. Þær geta verið
jákvæðar og fullar umhyggju eða
neikvæðar og gegnumsýrðar af
beiskju og vonbrigðum. Það er
betra að hleypa þeim út en að
byrgja þær inni í sálarfylgsnunum.
Þar geta þær bólgnað og vaxið og
orðið að sprengiefni sem blásið get-
ur í tætlur samband ykkar tveggja.
Reyndu að átta þig á því sem Uggur
að baki allri gagnrýni. Stundum
byggir hún á vináttu og ást. Gagn-
rýnandinn hefur af þér áhyggjur.
Hann telur að breytinga sé þörf.
Á læknavaktmiú
Mestu skiptir að honum er ekki
sama um þig. Viðmælandi þinn
hefur gefið þér tækifæri til að
spegla þig í augum hans og þannig
færðu ákveðna tUfinningu fyrir
sjálfum þér. Oft er það eina færa
leiðin fil að fá raunhæfa mynd af
sjálfum sér. Slík gagnrýni er upp-
byggjleg og nauðsynleg tíl aukins
þroska. Þeir sem túlka aUa gagn-
rýni sem árás á sig, móðgast, reið-
ast ogkenna í bijósti um sjálfa sig
em illa settir. Þeir líkjast helst
sljúpu MjaUhvítar sem neitaði að
horfast í augu við spegilinn. Þegar
spegjlmyndin var henni á móti
skapi greip hún í bræði sinni tíl
örþrifaráða. Margir em þeir sem
gera shkt hið sama og senda við-
mælendum sínum eitruð epU í
hefndarskyni fyrir þá gagnrýni
sem gegn þeim beinist. En eifruð
epU breyta ekki spegihnyndinni.
Hróp á hjálp
Stundum er gagnrýnin hróp á
hjálp. Margir þurfa á einhverri
aðstoð að halda en geta ekki talað
um eigin tilfinningar, sárindi og
reiði. Þeir velja þann kostinn að
gagnrýna og rífa niður og fá þannig
útrás fyrir eigin vonbrigði og
beiskju og æsa sig upp út af engu.
Stundum segir gagnrýnin meira
um þann sem gagnrýnir en hinn.
Hún verður yfirfærsla tilfínninga.
Sárindi í eigin garð eða gagnvart
öðrum garðeigendum bijótast út
sem gagnrýni á einhvem annan.
Oft þarf að hjálpa slíkum mönnum
og kryíja tíl mergjar hvaða vanda-
mál Uggja að baki gagnrýninni.
Þess vegna skiptir svo miklu máh
að hlysta, grípa ekki fram í, hugsa
sinn gang og velta gagnrýninni fyr-
ir sér frá sem flestum hUðum. Oft
er gott að leita ráða Ujá vinum og
kunningjum og fá þannig tilfinn-
ingu fyrir réttmæti gagnrýninnar.
„Sá er vinur er tíl vamms segir,“
hljómar gamalt máltæki. Sannir
vinir segja yfirleitt hug sinn allan
og draga ekkert undan. GrundvöU-
ur vináttunnar hlýtur að vera
traust og trúnaður. Best er að gagn-
rýna án þess að særa.“ Læknirinn
þagnaði eftir þessa löngu ræðu.
Honum fannst hann hafa mælt af
mannviti og mannskilningi. „Ég
vUdi óska að mér tækist að lifa
samkvæmt eigin visku,“ hugsaði
hann með sér. Maðurinn horfði á
hann stórum augum. „Ertu að
gagnrýna mig fyrir það að finnast
aðrir gagnrýna mig? Þú ert skrýt-
inn læknir." Hann stóð á fætur, fór
í frakkann sinn með raunasvip og
gekk á braut án þess að Uta um
öxl. Læknirinn sat eftir og velti
bréfaklemmu milh fingra sér.
Kannski hefði verið betra aö þegja.
Frá Starfsmannaféiaginu Sókn
Allsherjaratkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu um kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs
Starfsmannafélagsins Sóknar.
Tillögur skulu vera skv. B. lið 21. greinar í lögum
félagsins.
Framboðslistum eða tillögum skal skila á skrifstofu
félagsins eigi síðar en kl. 12 á hádegi mánudaginn
1. mars nk.
Kjörstjórn Starfsmannafélagsins Sóknar
Astmi vegna
efnamengunar
Samtök gegn astma og ofnæmi halda fræðslufund
mánudagínn 22. febrúar kl. 20.30 í Múlabæ, Ármúla 34,3. hæð.
Helgi Guðbjörnsson læknir,
sérfræðingur í atvinnusjúkdómum, ræðir um atvinnuastma,
snertiofnæmi og húsasótt og svarar fyrirspumum.
Allir eru velkomnir á fundinn, kaffiveitingar.
SAMTÖK GEGN ASTMAOG OFNÆMI
T0Y0TA LANDCRUISER
Toyota LandCruiser dísil, árgerð 1992, ekinn 23 þús. km, sjálfskipt-
ur, álfelgur, upphækkaður 1,5", 100% læstur o.fl. o.fl. Skipti á
ódýrari bifreið koma til greina. Staðgreiðsluv. 4 millj. Til sýnis á
Borgarbílasölunni.
OPIÐ SUNNUDAGA KL. 13-17
TÖLVUTENGDUR AÐGANGUR
AÐ VEÐBÓKARVOTTORÐI
BORfrABBTT.ASAT.AN
GRENSÁSVEGI 11, SÍMAR 813085 OG 813150
Greiðsluáskorun
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum skorar hér með á
gjaldendur í Vesímannaeyjum, sem hafa ekki staðið
skil á staðgreiðslu opinberra gjalda með gjalddaga
15. febrúar 1993 og fyrr, virðisaukaskatti með gjald-
daga 5. febrúar 1993 og fyrr og tekjuskatti, útsvari,
eignarskatti, sérstökum eignarskatti, gjaldi í fram-
kvæmdasjóð aldraðra, skatti af skrifstofu- og verslun-
arhúsnæði, iðnaðarsjóðs- og iðnaðarmálagjaldi,
slysatryggingargjaldi v. heimilisstarfa, trygginga-
gjaldi, vinnueftirlitsgjaldi, atvinnuleysistryggingar-
gjaldi, slysatryggingargjaldi atvinnurekenda, aðflutn-
ingsgjöldum, skráningargjaldi skipshafna, skipa-
gjöldum, lesta- og vitagjaldi, bifreiðagjöldum og
þungaskatti með gjalddaga 1. janúar 1993 og fyrr,
að gera þegar skil.
Án frekari fyrirvara verður krafist fjárnáms fyrir
ógreiddum eftirstöðvum gjaldanna með áföllnum
verðbótum/vöxtum og kostnaði, að liðnum 15 dög-
um frá birtingu áskorunar þessarar.
Vestmannaeyjum, 19. febrúar 1993.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum