Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1993, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1993, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 4. MARS1993 Fréttir Gífurleg skemmdarverk á fímm sumarbústöðum: Sex ungmenni hand- tekin við drykkju „Það er skelfilegt að svona skuli vera til og maður trúir því varla. Ég myndi kannski trúa þessu ef þetta væri í bíómynd. Maður veit ekki hvaö er að svona fólki. Það er allt ónýtt héma og það er enginn tilgang- ur með því. Þetta hefur bara verið skemmdarfýsn. Allt gler er brotið, stólar maskaðir, rafmagnssnúrar slitnar í sundur og skápahurðir rifn- ar af hjörunum,“ sögðu þau Björn Traustason og Sigríður Kjerúlf þegar þau skoðuðu vegsummerki við sum- arbústað sinn við Meðalfellsvatn í Kjós gærdag. Tjónið á bústaðnum á aðra milljón Sex ungmenni voru handtekin í gær viö Meðalfellsvatn en þar höíðu þau brotist inn í alls 5 sumarbústaöi og gjörsamlega rústað bústað Bjöms og Sigríðar. Tjónið á bústaðnum er metið á aðra milijón króna og ekki er með öllu víst hvort tryggingar bæta það. Einungis hálfur mánuður er síðan brotist var inn í þennan sama bústað og voru þar að hluta til sömu unglingar á ferð. Það innbrot var kært og hefur getum verið leitt að því að skemmdarverkin í gær hafi verið hefndaraðgerðir. Unglingamir, tvær stúlkur og íjór- ir strákar, eru á aldrinum 14-16 ára. Þau hafa öll komið ítrekað við sögu lögreglu fyrir margs konar aíbrot svo sem innbrot, þjófnaði og fikniefna- mál. Flest þeirra hafa átt hlut í öldu afbrota sem tiltölulega fáir unglingar hafa staöið fyrir að undanfómu. Undir áhrifum vímuefna Tveimur bílum af Saabgerð var stolið í vesturbæniun í fyrrakvöld og fannst annar þeirra illa farinn fyrir utan sumarbústaðinn í gærmorgun. Hafði honum meðal annars verið ekið í gegnum sterklegt stálhhð og upp á verönd bústaðarins. Grunur leikur á að sömu unglingar hafi einn- ig stolið hinum bílnum og jafnvel að einn eða fleiri unglingar hafi stungið af af vettvangi skömmu áður en lög- regla hafði hendur í hári sexmenn- inganna. Allir vom unglingarnir undir áhrifum vímuefna þegar þeir vom handteknir. Sama hvort til þeirra sést „Það vom allar rúður brotnar í þeim bústað sem var verst farinn. Búið var að keyra niður tré, grind- verk, bijóta hurðir, klósett og allt lauslegt. Nánast allt innbúið var meira og minna skemmt og komið út um allt. Við fundum einn sófa og - hafa öll komið ítrekað við sögu lögreglu Sex unglingar, 14-16 ára, frömdu gifurleg skemmdarverk á fimm sumarbústöðum við Meðalfellsvatn í gær. Þessi bústaður varö sýnu verst úti. Bíl hafði verið keyrt upp á veröndina og allar rúður í húsinu voru brotnar. eldavél sem okkur sýndist vera í lagi,“ segir Geir Jón Þórisson, aðal- varðstjóri hjá lögreglunni í Reykja- vík, sem skoðaði vegsummerki. Tiltölulega litlar skemmdir vom unnar í hinum íjórum bústöðunum. í einum þeirra hölðu unglingamir þó tekið fjórhjól traustataki og ekið yfir hvað sem á vegi þeirra varð. Vegfarandi sá til athafna ungmenn- anna og tilkynnti lögreglu en þau virtust ekkert vera að fela sig. Þau vom að lokum handtekin við drykkju í einum bústað og í fóram þeirra fannst þýfi. „Þeim er nákvæmlega sama hvort til þeirra sést. Þau vita hvemig kerf- ið hefur brugðist við í svona málum og spila á það,“ segir Geir Jón. Eftir yfirheyrslur í gær var önnur stúlkan vistuð á meðferðarheimilinu Tindum en hinni sleppt þar sem ekki var pláss fyrir hana. Tveir piltanna vom vistaöir á vegum Unglinga- heimilis ríkisins en þeir tveir sem náð hafa sakhæfisaldri sitja í Síðu- múlafangelsi á meðan á rannsókn Hvert einasta snifsi í bústaðnum var brotið og eyðilagt. Sigríður Kjerúlf, eigandi bústaðarins, kannaði vegsummerki málsins stendur. -ból í gær. Á innfelldu myndinni sést hvernig aökoman var að klósettinu. DV-myndir Sveinn Bragi Guðbrandsson, aðstoðarmaður félagsmálaráðherra: Hálfgert neyðarástand í málefnum síbrotaunglinga - farið fram á flárveitingu til að stofnsetja lokað meðferðarheimili „Það er alveg ljóst að þaö er hálf- gert neyðarástand í þessum efnum. Við höfum verið að skoða skýrslur frá bamavemdamefnd og lögregl- unni og þaö hefur komið í ljós að það er ansi stór hópur unglinga sem virðist vera alveg stjómlaus í síbrotum og notfæra sér götin í kerfinu. Síöustu dæmi sanna þetta," segir Bragi Guöbrandsson, aðstoðar- maöur félagsmálaráðherra og formaður stjómar Unglingaheimil- is ríkisins. Stjómarfundur Unglingaheimil- isins samþykkti á þriðjudag að beina þeirri tillögu til félagsmála- ráðherra að komið verði á fót lok- aöri meðferöardeild fyrir unglinga eins fljótt og auðið er. Ráðherra mun á morgun taka málið upp í ríkisstjóm og óska eftir 10-12 milfj- óna króna aukafjárveitingu til þessa verkefnis. „Götin í kerfinu em raunar tvö. Aimars vegar skortir lokaða með- ferðardeild fyrir unglinga yngri en 16 ára sem ekki vilja þiggja hjálp og ekki er hægt að taka úr umferð með því að stinga í fangelsi. Hins vegar era sjálfráða síbrotaungling- ar á aldrinum 16-18 ára sem ekki er hægt að taka úr umferö nema dæmt sé í þeirra afbrotamálum. Það er ákveðin tilhneiging hjá dómurum aö safna saman kærum þessara unglinga áður en dómur er felldur. Svo koma alltaf nýjar og nýjar kærur, dómamir dragast og á meðan halda unglingamir áfram,“ segir Bragi. Hann segir að einungis sé hægt að loka þessa unglinga inni í í sólar- hring eða svo á meðan verið er að kanna síðasta afbrot og svo séu þeir látnir lausir. „Viðræður hafa staöið yfir við dómsmálaráðuneytið um hvaða aðgerðum hægt er að beita gagn- vart þessum hópi sem virðist vera mun stærri og afkastameiri en áð- ur hefur þekkst. í lögum er sérstakt ákvæði sem kvefour á um að úr- skurða megi menn í gæsluvarðhald vegna síbrota en ákveðin tregða hefur verið við að beita þessu hing- að tíl,“ segir Bragi. -ból

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.