Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1993, Qupperneq 17
FIMMTUÐAGUR 4, MARS 1993
%
Bíóhöllin: Losti ★ ★ Vi
Kynlífssýki
á háu stigi
Því hefur verið haldið fram að þeir sem blindaðir
eru af kynlífssýki geti ekki hugsað heila hugsun eða
tekið rökréttar ákvarðanir. Þetta er einmitt þemað sem
leikstjórinn Uh Edel veltir sér upp úr í myndinni Losti.
Handritið er að mörgu leyti frambærilegt. Myndin
hefst á þvi að lögreglan er kölluð að heimih eldri
manris sem virðist hafa látist úr hjartaslagi. Náunginn
sem lést var sterkríkur og í erfðaskránni ánafnar hann
ástkonu sinni, Rebeccu Carlson (Madonnu), 8 mhljón-
ir dohara.
Vegna þess vaknar fljótlega grunur um að andlát
hans hafi ekki borið að með eðhlegum hætti og að
Rebecca sé jafhvel völd að dauða hans. Hún er fljót-
lega sakfehd fyrir morðið og Rebecca ræður lögfræð-
inginn Frank Dulaney (Wihem Dafoe) til að halda
uppi vömum fyrir sig í rétti. Dulaney sannfærist fljót-
lega um sakleysi Rebeccu.
I myndinni rekur síðan hver atburðurinn annan og
Dulaney er að lokum í mikilli óvissu um hver sannleik-
urinn er í málinu. Ekki bætir úr skák að fljótlega hefst
hömlulaust losta- og kynlífssamband hjá Rebeccu og
Dulaney sem telst ekki gott frá fræðilegu sjónarmiði
milh lögfræðings og skjólstæðings. Það er óhætt að
segja að kynlífssenumar séu mjög djarfar svo ekki sé
meira sagt.
Urvalsleikarar em í flestum hlutverkum í mynd-
inni. Madonna hefur að vísu hingað til ekki verið tal-
in tíl þeirra hæfheikameiri, en hlutverk hennar í þess-
Kvikmyndir
ísak Örn Sigurðsson
ari mynd er þó greinhega hennar besta th þessa. Um
hæfheika Dafoe’s og Joe Mantegna (sem leikur sækj-
andann í réttinum) efast engir.
Þrátt fyrir að söguþráðurinn sé ágætur og fullur af
óvæntum uppákomum, losnar maður aldrei við þá th-
finningu að hafa séð myndina áður. Söguþráðurinn
minnir reyndar mjögá þráðinn í Ógnareðh (Basic Inst-
inct), en hlutverk Sharon Stone í þeirri mynd samsvar-
ar nær algjörlega hiutverki Madonnu.
Losti: Body of Evidence
Leikstjóri: Eli Udel
Framleióandi: Dino De Laurentis
Aðatleikarar: Madonna, Willem Dafoe, Anne Archer, Joe
Mantegna
Hömlulaust kynlífssamband Rebeccu (Madonnu) og Dulaneys (Dafoe) er fyrirferðarmikið í myndinni.
Meiming
Desire-hópurinn úr Garðabæ sigraði í hópdansi. Stelpurnar heita Erla
Bjarnadóttir, Hrafnhildur Helgadóttir, Sigrún E. Eliasdóttir, Anna S. Sigurðar-
dóttir og Guðfinna Björg Björnsdóttir. DV-myndir JAK
Frjalsir dansar í Tónabæ
Undankeppni íslandsmeistaramóts
unglinga í frjálsum dönsum fyrir
Reykjavík og Reykjanes fór fram í
Tónabæ sl. fóstudagskvöld. Keppt
var í einstaklings- og hópdansi en i
fyrrtalda flokknum sigraði Guðfinna
Björg Bjömsdóttir. Þetta var ekki
eini sigur hennar þetta kvöld því
Guðfmna Björg er ein fjögurra yngis-
meyja sem skipa Desire en sá hópur
hrósaði sigri í hópdansi.
Sjálf íslandsmeistarakeppnin verð-
ur haldin á sama stað næsta fóstu-
dagskvöld og þar verður ýmislegt á
boðstólum auk dansins.
Saga-bíó: 1492: ★ ★
Paradís sigruð
Saga sæfarans og landkönnuðarins Columbus
spannar yfir langan tíma með mjög dramatískum við-
burðum með löngu milhbih. Lítið sem ekkert er vitað
um hvemig menn hann hafði að geyma og því geta
þeir sem endursegja afrek hans í máh eða myndum
teldð sér mikið skáldaleyfi.
í síðustu tveim myndum sem geröar hafa verið um
Columbus, hefur ekki tekist að tengja saman há-
punkta ferils hans, né skapa sannfærandi persónu á
bak við afrekin.
1492: Conquest of Paradise er öhu veigameiri fram-
leiðsla en Columbus: The Discovery, sem var sýnd
fyrir nokkrum mánuðum, og skartar tveim stórstjöm-
um, stílistanum Ridley Scott og kyntákninu Gerard
Depardieu. Því miður þá hafa þeir ekki erindi sem
erfiði. Þrátt fyrir mikh efni og tíma er þessi Columbus-
mynd ekkert betri en hin fyrri þó hún sé flottari.
Handrit frönsku blaðakonunnar Roselyn Bosch er
shtrótt, sundurlaust og þungt í vöfum. Það spannar
tuttugu ár af ævi Columbus (líka slæmu tímana eftir
landafundinn) og tekur til flests sem vitað er mn hann.
Inn á milli bætir Bosch við eigin dramatík, sem er
sjaldnast upp á marga fiska, plús ómissandi söguend-
urskoðun. Sagan myndar ekki grípandi hehd og mynd-
in er of löng. Þetta er fyrsta handrit Bosch og hún
eflaust vanari heimhdaöflim en persónusköpun.
Hæfileikar Ridley Scotts sem leikstjóra em nánast
allir á myndræna sviðinu. Þegar Scott segir sögu eftir
góðu handriti (Thelma & Louise) eða sögu þar sem
myndræn frásögn skiptir eins miklu (The .Duelhsts)
eða meira (Blade Runner, Ahen) máh en sagan, þá er
árangurinn yfirleitt ótrúlegur. Þegar Scott hefur ekki
góðan efnivið í höndunum eins og hér, gerir hann
ekki nema takmarkað gagn. Myndin er auðvitað guh-
faheg á að hta eins og Scott er von og vísa en þau fáu
atriði, sem ná að hrífa með myndrænum krafti, gera
ekkert fyrir söguna. Þegar þau em búin þá er myndin
komin í sama gamla fariö. Þetta er lakasta mynd Scott
th þessa.
Frakkinn Gerard Depardieu er ekkert sérlega sann-
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
færandi Columbus, franski hreimurinn hans er of
mikhl og persónusköpunin í handritinu hth. Mig grun-
ar að hann eigi í erfheikum með að leika af jafnmik-
ilh innlifun á ensku og móðurmálinu. Depardieu nýtur
sín best þegar hann fær góðan texta (eins og í Cyrano
de Bergerac) og slíkt er ekki fyrir hendi hér. Afgangur-
inn af leikhópnum er mjög skrautlegur en sá sem er
minnisstæðastur er Bretinn Michael Wincott, sem
leikur Moxica, aðalsmann sem snýst gegn Columbusi
í nýju álfunni.
1492: Conquest of Paradise (1992) 165 min.
Handrit: Roselyne Bosch.
Leikstjórn: Ridley Scott.
Tónlist Vangelis (Bitter Moon, Btade Runner). Lelkarar: Ger-
ard Depardieu (Green Card, Cyrano De Bergerac), Sigourney
Weaver, Armand Assante (Mambo Kings), Fernando Rey,
Frank Langella, Tcheky Caryo (Nikita), Angela Molina, Mlcha-
el Wincott (Robin Hood: Prince of Thieves).
Guðfinna Björg Bjömsdóttir fór heim
hlaðin verðlaunum en hún sigraði í
einstaklingsflokknum og var jafn-
framt i sigursveit Desire i hópdans-
inum.
Asdís Kjartansdóttir, Guðjón
Bjarnason og Sigurður Elí Haralds-
son fylgdust með keppninni.
FAGOR
FAGOR FE83
Magn af þvotti 4,5kg
Þvottakerfi 17
Þeytivinda 850/500
Afgangsralci 63%
Hitastillir *-90°C
Rúmmál tromlu 42 1
Hraðþvottur °
Áfangaþeytivinda o
Sjálfvirkt vatnsmagn o
Hæg vamskæling 0
Bamavemd o
Hljóðlát o
KYNNINGARVERÐ
GERÐ FE83 - STAÐGREITT KR.
45900
KR. 47990 -MEÐAFBORGUNUM
RONNING
SUNDABORG 15
SÍMI 68 58 68