Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1993, Page 11
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1993
11
UÚönd
Tímamót í rannsókn á flöldamorðunum:
Feðgar tengdir
Tistedals-morði
Eitt morðanna í Tistedal í Noregi
er hugsanlega upplýst. Ann-Kristin
Olsen, lögreglustjóri í Halden, sagði
í gær að hlutur, sem lögreglan fann
í Svíþjóð á þriðjudag, tengdi 54 ára
gamlan mann frá Tistedal eða son
hans við eitt af morðunum íjórum.
Báðir mennimir sitja nú í gæslu-
varðhaldi fyrir önnur afbrot en
morðin. Faðirinn er grunaöur um
bankarán í fyrra og sonurinn um
tryggingasvindl í Svíþjóð fyrir fjór-
um árum.
„Við höfum gert athyglisverða
uppgötvim sem hægt er að segja að
marki tímamót í rannsókninni þar
sem hún tengir hina tvo grunuðu við
eitt morðanna," sagði Olsen í sam-
tali við NTB. Hún vildi þó ekki skýra
frá hvaða morð feðgarnir væru grun-
aðir um.
Lögreglustjórinn vildi heldur ekki
segja hvað lögreglan hefði fundið í
hlöðu á landareign við bæinn Ström-
stad í Svíþjóð. Hlaðan er í eigu
tengdafóður eldri mannsins og liggur
aö annarri landareign þar sem lög-
reglan fann sundurtekna haglabyssu
í rotþró á fostudag í síðustu viku, auk
þess sem lagt var hald á húsvagn
föðurins frá Tistedal.
Réttur í Strömstad úrskurðaði í
gær að lögreglan í Halden skyldi fá
þessa hluti. Auk haglabyssunnar
fundust tvö haglaskot, margar rúllur
af einangrunarbandi og eitt norskt
skráningamúmer fyrir bíl. Þá fund-
ust einnig tveir hnífar í húsvagnin-
um.
Ekki er vitað hvemig lögreglan lít-
ur á þessa hluti sem sönnunargögn
í málinu. Það er þó staðreynd aö tvö
morðanna vom framin með hníf. Og
eftir því sem NTB hefur komist að
voru árarnar, sem morðingi Karls
Johans Hageviks notaði við flóttann,
vafðar með einangrunarbandi.
NTB
. Ástraiski sjónvarpsmaðurinn Ray Martin safnaöi saman öllum fimmburum Ástralíu í fyrradag, fimm settum.
Mæöur barnanna höfðu allar tekið frjósemislyf áður en af getnaði varð. Simamynd Reuter
Hugsanlegt samband milli silíkons
og meltingarf æratruf lana í börnum
NústenduryfiríBandaríkjunum Jeremiah Levine, læknir hjá Al- silikonígræðslur eiga við ýmsar
rannsókn á því hvort silíkonfyll- bertEinsteinCollegeofMedicineí meltingartruflanir að glfma.
ingar í bijóstum kvenna hafi áhrif Nevv York, sagði að það væri fyllsta Um það bil ein milljón banda-
á börn þeirra. Það er bandaríska ástæðatilaðhafaáhyggjurafþess- rískra kverrna hefur silíkon í
matvæla- og lyfjaeftirlitið sem um málum. Hann hefur komist að brióstunum.
stendur fyrir rannsókninni. þvi aö börn mæðra sem eru með Eeutcr
Fiskveiðisamningur Grænlands og EB að renna út:
Grænlendingar sjá fram á
erfiðar samningaviðræður
Grænlendingar sjá fram á erfiðar
samningaviðræður við Evrópu-
bandalagið þegar fiskveiðisamning-
ur þeirra í millum verður endurnýj-
aöur. Grænlendingar fá um 2,7 millj-
arða íslenskra króna, auk tollfrjáls
aðgangs að markaði bandalagsins
fyrir afurðir sínar, í skiptum fyrir
fiskveiðiréttindi EB. Núverandi
samningur rennur út 31. desember
1994.
Grænlenska landsþingið var ein-
huga á mánudag um aö óska eftir
nýjum samningi í líkingu við núver-
andi samning frá 1. janúar 1995. Sjón
EB-landanna hafa einnig áhuga á að
veiða þorsk við Grænland. En þar
sem þorskurinn er horfinn af Græn-
landsmiðum gæti reynst erfitt að ná
fram jafn hagstæðum samningi við
EB og fyrr.
Grænlenskir stjómmálamenn
leggja því til að nýi samningurinn
við EB nái til fleiri sviða. Jonathan
Motzfeldt, þingmaður Siumutflokks-
ins, vill þannig aö námuvinnsla á
Grænlandi verði með.
Þingmenn eru auk þess sammála
um að það sé lífsnauðsynlegt fyrir
Grænlendinga að fá áfram tollfriáls-
an aðgang að markaði Evrópubanda-
lagsins fyrir grænlenskar sjávaraf-
UTÖÍr. Ritzau
BILAR FRA
VOLVO
6 MÁNAÐA ÁBYRGO
LÁN TIL ALLTAÐ 36 MÁNAÐA
TÖKUMNOTADA UPPÍNOTAOA
VOLVO 740 FÓLKSBÍLAR
OG 740 STATION
Votvo740GL
4 dyra, sjálfsk.
Árgerð 1988
Ekinn: 88.000 km
Verð: 890.000 kr.
Ilolvo740GL
4 dyra, sjálfsk.
Árgerð 1986
Bánn: 70.000 km
Verð: 790.000 kr.
0
o
Volvo 740 GL Station
5 dyra, sjálfsk.
Árgerð1987
Ekinn: 87.000 km
Verð: 980.000 kr.
Volvo 740 GL
4dyra, sjálfsk.
Árgerð 1987
Ekinn: 85.000 km
Veifl: 880.000 kr.
VOLVO 240 FOLKSBILAROG
240 STATION
0 0
Volvo240GL Volvo 240 GL
4 dyra, sjálfsk. 4dyra,sjálfsk.
Árgerð 1987 Árgerð 1988
Ekinn: 95.000 km Ekinn: 43.000 km
Verð: 670.000 kr. Verð: 790.000 kr.
o 0
Volvo240DL 1/olvo240GL
4 dyra, sjálfsk. 4 dyra, sjálfsk.
Árgerð 1988 Árgerð 1987
Ekinn: 75.000 km Ekinn: 60.000 km
Verð: 750.000 kr. Verð: 750.000 kr.
VOLVO
FAXAFENI 8 • SÍMI 91- 685870