Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1993, Page 36
\ F R É X T A s JtéT T 1 JC'Þ i^k. 1 R wZJ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrifl : - D reifing; Sími 632700
MÁNUDAGUR 24. MAÍ 1993.
w
Þorsteinn Pálsson:
Ákvæðium
_ aflamagn ekki
ísamningnum
„Það verður að lesa þetta ákvæði í
heild sinni. Ef greinin öll er lesin þá
sést að þetta er ekki samningur um
heildaraflamagn heldur um gengis-
viðmiðun. Þvert á móti ber samn-
ingsákvæðið það með sér að samn-
ingsaðilamir gera ráð fyrir því að
það þurfi aö gera ráðstafanir til þess
að bæta rekstrarafkomu sjávarút-
vegsins og það sé hægt að gera það
án þess að til uppsagnar samningsins
komi,“ segir Þorsteinn Pálsson sjáv-
arútvegsráðherra.
í sjöttu grein nýja kjarasamnings-
ins, sem fjallar um samningsforsend-
ur, segir í íjórða lið „að aflakvótar á
fiskveiðiárinu 1993 til 1994 verði ekki
minni en á yfirstandandi fiskveiði-
ári“. Þorsteinn vill tengja þessa
málsgrein við hð tvö þar sem segir
„að gengi krónunnar verði innan
viðmiðunarmarka Seðlabanka ís-
lands enda standist neðangreindar
forsendur um afla og verðlag sjávar-
vöru“.
Þorsteinn segir að það hefði verið
fáránlegt ef ákvæði um heildarafla-
magn hefði verið bundið inn í kjara-
samning. -Ari
Maður stunginn
Ungur maður var stunginn með
hníf í nára aðfaranótt laugardags í
miðbæ Reykjavíkur.
Maðurinn var á gangi í bænum þar
sem flöldi fólks var saman kominn
og gekk hann á annan mann. Sá
maöur dró upp hníf og stakk hann
tvisvar og kom önnur stungan í nár-
ann. Maðurinn var fluttur á slysa-
deild en fékk að fara heim þegar
búið var aö gera að sárum hans sem
reyndust minni háttar. Ekki náðist
til árásarmannsins sem hljóp af vett-
^ vangi. -pp
Þeytti timbri á
nærstadda bíla
Lögreglan í Reykjavík þurfti að
hafa afskipti af ungum manni aðfara-
nótt sunnudags þar sem hann var á
vappi á veggbrún á 5. hæð Lækjar-
götu 2.
Maðurinn, sem var vel við skál,
grýtti timbri niður á nærstadda bíla
og dælduðust tveir nokkuð. Litlu
mátti muna aö hann færi sjálfum sér
og öðrum að voöa en lögreglunni
tókst að ná honum niöur áður en til
þess kæmi og fékk hann að sofa úr
sérífangageymslumumnóttina. -pp
leykjavík
Stúlkan, sem leitað hefur verið fannst í árgili í Kjós, skammt frá Skeiöarvogi í Reykjavík. Helga var
að síðan á fimmtudagskvöld, fannst bænum Eyri, og er talið að stúlkan 21 árs, ógift og barnlaus.
látin í bíl sínum um klukkan hafi látist samstundis. Hún hét Helga var á leið frá Reykjavík til
hálftvö i gær. Bíllinn sem hún ók Helga Helgadóttir, til heimilis i Akraness um Hvalflörð þegar bíll
Btllinn fannst á hvolfl í stórgrýttu gllinu. Tallð er að stúlkan hafi látlst samstundls. Mjög erflðar aðstæður voru
á slysstað og þurftí að nota þyrlu vlð að koma bilflaklnu upp á veglnn. DV-mynd Slgurstelnn
hennar fór út af veginum í beygju
og endaði á hvolfi í gilinu. F'yrir
ofan gilið er vegrið og virðist bíll-
inn hafa fárið út af um 20 metra fr á
því. Af ummerkjura á slysstað að
dæma má leiða getum að því að
Helga hafi sofnað undir stýri og
ekki náð beygjunni. Við það hafi
hún farið fram hjá vegriðinu og
ekið um 30 til 40 metra utan vegar,
niður brekku og meðfram gilbrún-
inni þar til bíllinn steyptist. 15
metra niður í stórgrýtt gilið þar
sem hann lenti á hvolfi. Einu sjáan-
legu ummerkin um slysið voru
brotin vegstika sem lá í vegarkant-
inum og ógreinileg fór eftir bílinn
þar sem hann hafði farið utan veg-
ar. Engin bremsufór voru á vegin-
um. Ómögulegt var að sjá flakið frá
veginum og sömu sögu var að segja
af ströndinni.
Lýst var eftir stúlkunni á fóstu-
dagskvöld og í DV á laugardag. Hún
starfaði í Reykjavík og haföi ætlað
heim til foreldra sinna á Akranesi
á fimmtudag. Þegar hún haföi ékki
skilað sér á tilsettum tima var farið
að svipast um eftir henni en án
árangurs þangað til í gær þegar
rúmlega 3 sólarhringar voru liðnir
frá því síðast spurðist til hennar.
Stúlkunnar var leitað úr Iofti, af
sjó og landi og tóku á annað hundr-
að manns þátt í leitinni. Skömmu
áður en björgunarsveitarmenn
Landsbjargar fundu bílflakið haföi
þyrla Landhelgisgæslunnar flogið
yfir slysstaðinn án þess að nokkurs
yrði vart, enda botn bílsins sarnlit-
ur gijótinu í gihnu.
Aðstæður voru mjög erfiðar á
slysstaö og þurfti að nota þyrlu viö
aö koma bílnum upp á veginn. Á
meðan þyrlan athafnaöi sig þétt viö
klettabrúnina var Vesturlandsveg-
urinn lokaður allri umferð við slys-
staðinn.
Foreldrar Helgu vilja koma á
framfæri þakklæti til allra þeirra
sem tóku þátt 1 leitinni.
-pp
LOKI
Þessi hefurvaknaðtimbraður
-trúi ég!
Veðrið á morgun:
Þokusúld
ogskýjað
með köf lum
Á morgun verður hæg breytileg
átt. Víða þokusúld við strendum-
ar en skýjað með köflum inn til
landsins. Hiti 4-7 stig í þokuloft-
inu við strendurnar en 9-15 stig
yfir daginn þar sem sólar nýtur
inn til landsins.
Veðrið í dag er á bls. 44
7